Morgunblaðið - 09.05.1964, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 09.05.1964, Blaðsíða 1
24 siður Finnskir hermenn komu sl. þriðjudag til Nicosia á Kýpur til að st arfa þar í gæzluliði SÞ. — Komu þeir til höfuðborgarinnar frá Dhekelia, og vakti koma þeirra mikla athygli, því þeir komu á reiðhjólum. En vegalengdin milli borganna er 65 kilómetrar. Munu finnsku hermennirnir nota reiðhjól við gæzlustörfin. IJr skýrslu sjónvarpsnefndar: Sjdnvarp um allt land 1970-1972 Kostnaður 180 millj. kr. Sfónvarp, sem næði til 60% lands- manna, kostar 33 milljónir króna GYLFI Þ. Gíslason, mennta- málaráðherra, skýrði á fundi Nýrri gerð eld- flouga shotið írú íslandi Firenze (Flórenz) Ítalíu, 8. mai (AP) VÍSINDAMENN frá 30 lönd- um eru saman komnir í Flórenz, þar sem fundír hófust í dag hjá alþjóða geimrannsóknarnefnd- inni (COSPAR) Á fundinum í dag skýrði franski fulltrúinn, P. Tardi, m.a. frá því að Frakkar muni i sumar skjóta tveimur eld- flaugum á loft til geimrannsókna frá íslandi. Tardi sagði að eldflaugar þess- ar væru af nýrn gerð, og að til- raunum m.eð þær hafi ekki lokið íyrr en í síðasta mánuði. Ekki gaf hann frekari skýringar á tilgangi tilraunanna. Sameinaðs Alþingis í gær frá skýrslu sjónvarpsncfndar. — Kom þar m.a. fram: • Nefndin hefur gert tvær áætlanir um stofnun sjón- varps á íslandi. Báðar eru miðaðar við, að undirbúningi verði lokið árið 1966, og geti framkvæmdir þá hafizt. Önn- ur er miðuð við að ljúka upp- setningu sjónvarpskerfis fyrir landið allt á 5 árum, eða 1966—1970. Hin er miðuð við að ljúka verkinu á 7 árum, 1966—1972. • Stofnkostnaður vegna sjónvarpshúss og dagskrár- tækja er talinn 20 millj. kr. • Sendir í Reykjavík, 500 watta, eða helmingi sterkari en Keflavíkursendirinn, er talinn kosta 4 millj. kr. • Stofnkostnaður sjón- varps, sem næði til Reykja- víkur og nágrennis, væri því 24 millj. kr. • Bygging aðalsendis á Skálafelli (austan Svína- skarðs milli Mosfellssveitar og Kjósar) kostaði 9 millj. kr. • Stofnkostnaður sjón- varps, sem næði til Suður- nesja, inestalls Suðurlands- undirlendis, Borgarfjarðar og sunnanverðs Snæfellsness mundi því samtals nema 33 millj. kr. Á þessu svæði búa um það bil 60% þjóðarinnar. • Nauðsynlegur stofn- kostnaður ásamt byggingu aðalsendistöðva, sem ná mundu j stórum dráttum til landsins alls, er talinn nema 38.5 millj. kr. til viðbótar við fyrrnefnda upphæð (eða alls 71.5 millj. kr.) • Bygging minni endur- varpsstöðva og strengjalögn, til þess að.tryggja öllum lands mönnum afnot af sjónvarpi, mundi kosta 99.5 millj. kr. til viðbótar. • Heildarstofnkostnaður ís lenzks sjónvarps, sem næði til allra landsmanna, væri því 171 millj. kr. Fljótlega þyrfti að bæta við tækjum, sem kosta 9 millj. kr., svo að alls er kostnaðurinn áætlaður 180 millj. kr. • Ríkisstjórnin hefur skýrsluna til athugunar, og er líklegt, að ákvarðanir í þessu Flugslys: 44 f órust Concord, Kalifórníú, 8. maí -• (AP) — BANDARÍSK farþegaflugvél af gerðinni Fairchild F 27 fórst á fimmtudag um 65 kíló- metrum fyrir austan San Francisco, og með henni 41 farþegi og þriggja manna áhöfn. Flugvélar þessar eru skrúfu- þotur, tveggja hreyfla, og smið- aðar í Bandaríkjunum sam- " Siðustu fréttir New York, 8. maí (AP) NBC útvarpið bandariska hafði það í dag eftir „áreið- anlegum heimildum“ í Was- .íington að flugmaðurinn á Fairchild-vélinni, sem hrapaði í Kaliforníu, hafi verið skot- inn. Fréttaritari NBC í Was- 'iington segir að fundizt hafi segulbandstæki í brakinu. Cpptökuspólan var óskemnvl, og á henni mátti heyra flug- manninn segja tvívegis að nann hafi verið skotinn. Einn- ig hefur fréttaritarinn það eftir sömu heimildum að þetta sé ástæðan til þess að flugvélin fórst. kvæmt sérstökum samningi við Fokker-flugvélasmiðjurnar vest- ur-þýzku. Þýzku vélarnar af sömu gerð nefnast Rokker Friendship. Yar flugvélin á leið- inni frá Reno í Nevada til .San Francisco. Ekki er vitað hvað olli slysinu. Og rannsókn málsins verður mjög erfið því flugvélin splundr- aðist er hún féll til jarðar. Síðast þegar fréttist frá flug- vélinni var allt í lagi um borð. Vélin var þá í tvö þúsund feta hæð og á réttri .flugleið. En skömmu seinna var eins og flug- Framhald á hls. 23. Framhald á síðu 23 Klnverjar neita að ræða við Rússa Stórsagur Verkamanna- flokksins i London, 8. maí (AP) Bæjarstjórnarkosningar fóru fram í 336 bæjum á Englandi og í Wales og í 32 hverfum í London. — Kosnir voru um 4.500 bæjarfulltrúar. Taln- ingu er. ekki lokið, en Verka- mannaflokkurinn hefur þeg- ar bætt við sig 259 fulltrúum og tryggt sér % fulltrúanna í borgarhverfunum í London. Bretlandi Segja talsmenn Verkamanna- flokksins að með sama árangri í þingkosningunum í haust, muni flokkurinn fá um 100 sæta meiri- hluta á þingi, eða svipaðan meiri- hluta og íhaldsflokkurinn hefur nú. Verkamannaflokkurinn h'efur fengið 1.531 fulltrúa kjörinn, unn ið 308 sæti, en tapað 49. íhalds- flokkurinn hefur unnið 127 sæti, en tapað 270, og er heildartap flokksins því 143 sæti. Þá hafa Frjálslyndir tapað 59 sætum. Telja útilokad að halda ráðstefnu um ágrein- ingsmálin fyrr enn eftir fjögur til fimm ár Tókíó, 8. maí (AP) SKÝRT var frá því í- Peking í dag að kínverska stjórnin hafi tilkynnt stjórninni í Moskvu að ekki væri unnt að kalla saman alþjóðaráðstefnu til að ræða deilur Kínverja og Rússa fyrr en í fyrsta lagi eft- ir fjögur til fimm ár. Kemur þetta fram í bréfi kínversku stjórnarinnar dag- settu 7. maí. Þar segir enn- fremur að útilokað sé að halda fund fulltrúa Kína og Sovét- ríkjanna um málið fýrr en í niaí næsta ár. Er bréf þetta svar við bréfi Sovétstjórnarinnar frá 7. marz sl., þar sem lagt er til að við- ræður fulltrúa Kína og Sovét- ríkjanna verði haldinn í þessum mánuði, svo verði fundur full- trúa 26 kommúnistaflokka hald- inn í júní-júlí í sumar til að und- irbúa alþjóðaráðstefnu kommún- ista í haust. í svarinu segja Kínverjar að alþjóðaráðstefna þurfi mikinn undirbúning til að tryggja að hún beri árangur. Þessvegna sé fyrirsjáanlegt að ekki verði unnt að halda ráðstefnuna fyrr en eft- ir fjögur til fimm ár. Varðandi fund fulltrúa Kússa og Kínverja í þessum mánuði, segir í svarinu: „Miðað við núverandi aðstæður er ekki aðeins útilokað að halda þennan tveggja flokka fund í maí, heldur væri einriig of ‘"nemmt að halda hann í október. Framhald á 2. síðu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.