Morgunblaðið - 09.05.1964, Blaðsíða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ
r
LaugardagUT 9.- maí 1964
Akranes vann
verðskuldað 2-0
- i bæfakeppni við Reykjavík
Gísli markv. Rvíkur reynri hér að ná til síðara skots Donna sem var í líkingu við fyrra mark hans
fyrir Akranes. T. v. sést Eileifur hinn bráðefnilegi innherji Akranessliðsins.
Myndir: Sveinn Þormóðsson.
islandsglíman í 54.
sinn á morgun
AKURNESINGAR sigruðu Reyk
víkinga í hæjakeppni í knatt-
spyrnu á Uppstigningardag með
2 mörkum gegn 0. Voru Akur-
nesingar vel að sigrinum komnir
— hin gamla kempa þeirra Hall
dór Sigurbjörnsson (Donni) skor
aði tvö afar glæsileg mörk,
steypt nákvæmlega í sama mót
með því að lyfta knettinum úr
aukaspyrnu yfir varnarvegg í
bláhorn marksins uppi. Auk þess
voru Skagamenn dugmeiri, alltaf
fljótari til og börðust frá upp-
hafi til enda án miskunnar. Sig-
urinn var því verðskuldaður þó
Reykvíkingar hefðu átt mark-
tækifæri sem nægt hefðu til sig
urs ef óheppni hefði ekki leikið
við þetta sundurlausa Reykja-
víkurúrval, voru það tvö hörku-
skot í þverslá — annað reyndar
fyrir innan marklínu þó dóm-
ari viðurkenndi ekki — og víta
spyrna sem rann utan við mark
stöng meðan Helgi markvörður
lá í öfugu horni marksins.
Mörk Akraness voru sérlega
glæsileg og sérstæð. Bæði voru
skoruð úr aukaspymu rétt utan
vítateigs fyrir miðju marki Rvík
ur. Donni framkvæmdi spymurn
ar bæði skiptin nákvæmlega
eins, lyfti yfir varnarvegginn og
knötturinn lenti glæsilega í
efra homi Reykjavíkurmarksins.
Eftir á má segja að bakv. Rvik
ur héfði átt að minnsta kosti
eftir fyrra markið, að stilla sér
í markhornin, en játað skal að
slíkt er óvenjulegt í slíkum
aukaspymum.
Seinagangur Reykvíkinga.
Auk þessara marka áttu Akur
nesingar sára fá tækifæri og eng
in stórhættuleg. En allan tímann
unnu þeir betur, voru fljótari til
og gáfu Reykvíkingum aldrei
stundarfrið til að byggja upp,
enda er það engin knattspyrna,
að þurfa að laga knöttinn til,
taka langan tíma í athuganir og
yfirvegun, áður en sending er
framkvæmd — en slíkur var
oft svipur Reykjavíkurliðsins.
Skagamenn áttu heildarlega
séð betri leik, léku oft laglega,
einkum í fyrri hálfleik, en tókst
þó ekki sem skyldi er að mark-
inu dró. Má ætla að lið Akur-
nesinga verði erfitt viðureignar
í sumar og verði eitt þeirra liða
er kemur til með að berjast um
titlana sem oft endranser.
Óheppni.
Óheppni mikil var sem fyrr
segir yfir sundurlausu liði
Reykj avíkur. Bezt frá leiknum
komust framverðimir Sveinn
og Matthías, en flestir aðrir held
ur laklega. Skárstir voru Gísli
markvörður og Hreiðar bak-
vörður.
Tvívegis glumdu skot frá Rvik
ingum í þverslá Akranesmarks
ins. Haukur Þorvaldsson mið-
herji átti fyrra skotið af stuttu
færi eftir fallega fyrirsendingu
Gunnars Guðmannssonar. Fór
þarna saman klaufasikapur og
óheppni. Sigurþór útherji átti
síðara skotið, hörkuskot af löngu
færi. Knötturinn fór skáhalt
niður — lenti innan marklínu
samkvæmt fullyrðingu þeirra,
er næst stóðu og hrökk út vegna
snúnings. Þetta sá ekki dómar-
inn né línuvörður. Þriðja óheppn
in var er Gunnar Guðmannsson
skaut fram hjá í vítaspyrnu.
Beztu roenn leiksins voru
Donni, sem sýndi mikla leikni
og verður landsliðsmiðherji með
sama framhaldi; hinn ungi Ey-
leifur innherji Akraness og Jón
Ingvason bakvörður í Akranes-
liðinu.
Helgi reynir að verja skot Stein-
þórs. Það lenti í þverslá og knött-
urinn skauzt niður og kom vel
innan við markalínu eftir því sem
ljósmyndarar sem stóðu við mark
ið segja og hrökk út og ekkert var
gert af dómara eða línuvarða
hálfu. Óvanalegt atvik en ekki
einsdæmi.
Veiðimenn
keppn í knst-
hæfni
KASTKLÚBBUR íslands efnir
til kappmóts í dag og á morgun
og hefst mótið kl. 1.30 í dag við
Rauðavatn. 14 menn hafa til-
kynnt þátttöku sína í keppninni.
f dag fer fram keppni í flugu-
köstum. Verður keppt i einnar
og tveggja handa lengdarköst-
um og einnig í' „hittiköstum"
með spinn og kasthjóli.
Á sunnudag hefst keppnin kl.
9 árdegis annað hvort á Laugar-
dalsvelli eða golfvellinum gamla
við Öskjuhlíð. Verður þá keppt
í lengdarköstum með lóðum með
spinn- og kasthjólum.
ÍSLANDSGLÍMAN verður hág í
íþróttahúsinu á Hálogalandi á
morgun, sunnudag, og hefst
keppnin kl. 4 síðdegis. Keppend-
ur í Íslandsglímunni á morgun
verða óvenjumargir. 15 glímu-
menn frá fjórum félögum eru
skráðir til keppninnar: 6 frá
Ármanni, 4 frá KR, 3 frá Héraðs
sambandinu Skarphéðni og tveir
frá Umf. Breiðablik í Kópavogi.
★ Flestir beztu m;ð
Enska
knottspyrnon
Lokastaðan í ensku deildarkeppn-
inni varð þessi:
). deild
átig
1. Liverpool ................ 57 —
2. Manchester U.............. 53 —
3. Everton ................. 52 —
4. Tottenham ................ 51 —
5. Chelsea .................. 50 —
6. Sheffield W............... 49 —
7. Blackburn ................ 40 —
8. Arsenal .................. 45 —
9. Burnley ................. 44 —
10. W. B. A................... 43 —
11. Leicester .................43 —
12. Sheffield U............... 43 —
13. N. Forest ................ 41 —
14. West Ham ................. 40 —
15. Fulham ..............w... 39 —
16. Wolverhampton ............ 39 —
17. Stoke .................... 38 —
18. Blackpool ................ 35 —
19. Aston Villa ............. 34 —
20. Birmingham ............... 29 —
21. Bolton ................... 28 —
22. Ipswioh ................. 25 ___
Bolton og Ipswich féllu niður í II.
deild, en í stað þeirra koma Leeds og
Sunderland.
Meðal keppenda er Ármann
Lárusson (Breiðablik), núver-
andi glímukappi, en hann hefur
sigrað 11 sinnum í Íslandsglím-
unni. Flestir aðrir beztu glímu-
menn landsins keppa einnig á
morgun, t. d; Kristmundur Guð-
mundsson (Á), Hilmar Bjarna-
son (KR), Sveinn Guðmundsson
(Á), Ingvi Guðmundsson (Breiða
blik), Gunnar Pétursson (KR),
Guðm. Freyr Halldórsson (Á) og
Guðmundur Steindórsson (HSK).
'k Elzta reglulega íþróttamótið
íslandsgliman er elzta reglu-
lega íþróttamótið, sem háð er hér
á landi. Fyrsta Íslandsglíman
fór fram á Akureyri árið 1905.
iimiiiiillllimiiiiiiiiiiiiiiiiiiHiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiirH
| Um 5 millj. (
(kr. sviknar út|
( úr Ingo |
HGautiborg, 8. maí (NTB)
jj Rannsóknarlögreglan í Gauta=
=borg skýrði frá því í dag aðp
svíxlafalsarar hefðu haft af[|
Slngemar Johansson, fyrrump
=heimsmeistara í hnefaleik, 350=
gþúsund sænskar krónurS
= (nærri þrjár millj. ísl. kr.)S
SEinnig lítur út fyrir að „íngo“=
Sþurfi að greiða 152 þúsunds
|s. kr. (1.270 þús. ísl.) tap ág
Hfasteignaverzlun, sem hann=
= var tældur út í. Er það mál í~
=rannsókn. s
= Lögreglan hefur unnið aðl
Hrannsókn vixlamálsins undan=
Sfarið hálft ár. Er það þanni.gij
Stil komið að hnefaleikakapp-g
= inn hafði um skeið einkaritara=
Esem hann fékk til að stæla=
sundirskrift sína svo hann=
Hslyppi við að svara bréfumS
^frá aðdáendum. Kona þessi=
= lenti svo í klónum á svindlaraS
Heinvm, er fékk hana til aðH
= skrifa nafn fyrrverandi hús-s
= bónda síns á óútfyllt víxla-=
Seyðublöð. Er 58 ára timbur-g
H kaupmaður, sem þekkti Ingims
= ar vel, grunaður um svikin. =
Hjiiiitiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiinii
Síðan hefur glíman farið fram
árlega, nema á _ heimstyrjaldar-
árunum fyrri. Íslandsglíman á
morgun verður sú 54. í röðinni
í íslandsglírounni er keppt um
„Grettisbeltið“, en það er elzti
verðlaunagrípur, 'sem keppt er
um á islenzku íþróttamóti, og
hefur verið keppt um það frá
upphafi Íslandsglimunnar árið
1905. Handhafi Grettisbeltisins er
nú Ármann Lárusson.
^ Glímundeild Glímufélagsins
Ármanns sér um Íslandsglímuna
að þessu sinni.
IMIMIIIIIMIIIIIIIIIIIMIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIHIIIIIIIIIIIIII
| Akureyringar |
(keppa í knott-l
(spyrnu syðra (
^Akureyringar 4|[
E KNATTSPYRNUMENN á|
II Knattspyrnumenn Akur- =
geyringa verða á ferð sunnan-H
[|lands um belgina. Þeir heyjai|
gí dag kl. 5 bæjakeppni viðf|
pKeflvíkinga og fer leikurinn|§
=fram á grasvellinum í Njarð-3
Hvíkum. - =
g Akureyringarnir sýna sig =
=einnig í Réykjavík. Þeirs
=keppa við Val á Melavellinum=
=á sunnudag kl. 2 síðdegis. j|
H Akureyringar féllu úr l.s
Sdeild s. 1. sumar og verða því=|
Sekki oft á ferð hér í sumar.|
ffVæntanlega munu því margirs
syilja fylgjast með gangi||
prnattspyrnumálanna nyrðra í=
sþau skipti sem tækifæri bjóð-^
=ast.
ÍTjllllllllllllfllllllllllllllllllllMMIIIIIIII.illlllllllllllIlllltfj
M0LAR
UNGVERJAR unnu Spán-
verja í fyrri leik landanna í
undankeppni knattspyrnu-
keppni OL í Tokíó. Úrslitin
urðu 2:1 og fór leikurinn fram
á heimavelli Spánverja í
Paima á Mallorca.
Framkvæmdanefnd OL-Ieik
anna í Tokíó hefur ákveðið að
bjóða kínverska alþýðulýð-
veldinu að taka þátt í leikun
um sem gestir. Er þetta vinar
bragð af hálfu Japana. Al-
þýðulýðveldið er ekki aðili að
alþjóða OL-nefndinni og hef
ur því ekki rétt til þátttöku.