Morgunblaðið - 10.05.1964, Page 6

Morgunblaðið - 10.05.1964, Page 6
MORGU N BLADIÐ Sunnudagur 10. maí 1964 Sjónvarpið HÉK birtist úrdráttur úr síð- ari hluta ræðu menntamála- .ráðherra, Gylfa Þ. Gíslasonar, sem hann hélt í Sameinuðu Alþingi á föstudag um stofn- -i, un íslenzks sjónvarps. Fyrri hlutinn birtist í Mbl. á laug- ardag. Rekstrarkostnaður Varðandi rekstrarkostnað ís- lenzks sjónvarps er það að segja, að hann skiptist í þrjá liði: byrj- unarkostnað, fastakostnað og dagskrárkostnað. f skýrslu sjón- varpsnefndarinnar er gert ráð fyrir því, að samið verði við er- lenda aðila um margvíslega tækniaðstoð í sambandi við und- irbúning islenzks sjónvarps. Ef endanleg ákvörðun er tekin nú á næstunni um að koma á fót ís- lenzku sjónvarpi, mundi vera hægt að hef ja íslenzkar sjónvarps sendingar 1966. Telur nefndin slíkan byrjunarkostnað' mundi verða Vz millj. kr. nú á þessu ári, 2,5 millj. á næsta ári, 1 millj. ár- ið 1966 og síðan % millj. árlega. Þegar sjónvarpssendingar hefjast er talið, að þörf sé á 30 föstum starfsmönnum. Laun þeirra, á- samt rekstri endurvarpsstöðva, viðhald véla og öðrum rekstrar- kostriaði, eru talin munu verða 9 millj. kr. á fyrsta starfsári sjón- varpsins eða 1966 og gerir nefnd- in síðan ráð fyrir 1,5 millj. kr aukningu kostnaðar á ári. Talið er, að meira en helmingur fasta- kostnaðarins stafi beinlínis af undirbúningi dagskrár, sem krefj ist mun meiri þátttöku fastra starfsmanna í sjónvarpi en hljóð- varpi. Við þennan fastakostnað mun síðan bætast, annar nauðsyn legur kostnaður við öflun og flutning dagskrárefnis. Gert er ráð fyrir því að vérja 10 millj. kr. fyrsta starfsárið til öflunar sjónvarþsefnis og faH sá kostn- 9 aður vaxandi um 2 millj. kr. á ári á næstu árum. Gert er ráð fyrir því að leigja erlent sjón- varpsefni á kvikmyndum og kaupa fréttamyndir erlendis frá. Jafnframt er nauðsynlegt að verja verulegu fé til þess að gera og kaupa íslenzkar kvikmyndir. Sjónvarpsnefndin hefur gert sýnishorn af fjögurra vikna sjón- varpsdagskrá, þar sem gert er ráð * fyrir tveggja stunda daglegri dag skrá auk síðdegissendinga á laug- ardögum og sunnudögum. Er á- ætlunin um 10 millj. kr. dagskrár kostnað fyrsta árið miðaður við þessar dagskráráætlanir. Áætlan- ir um rekstrarkostnað eru þann- ig, að í undirbúningskostnað er nauðsynlegt að verja 13,5 millj. kr. í áf og næsta ár. Síðan er heildarrekstrarkostnaðurinn tal- inn munu verða 20 millj. fyrsta starfsárið en u.þ.b. tvöfaldast á fyrstu sjö árunum. / Tekjuöflun Tillögur sjónvarpsnefndarinn- ar um tekjuöflun til að standa straum af greiðslu stofnkostnaðar og rekstrarkostnaðar íslenzks sjónvarps eru í stuttu máli þess- ar: Nú munu vera um 2.500 sjón- varpstæki í eigu íslendinga. — Nefndin gerir ráð fyrir því, að kaup sjónvarpstækja munu vaxa mjög ört á næstu árum og muni tala þeirra 1972 vera komin upp í '27 þúsund. Nefndin gerir ráð fyrir því, að vegna hins mikla stofnkostnaðar við dreifingarkerfi sjónvarps á íslandi sé eðlilegt að leggja sérstakt stofngjald á sjón- varpsnotendur. Yrði það 1000,00 kr. á hvert viðtæki og Jnnheimt einu sinni með fyrsta afnota- gjaldi. Á sjö ára‘ tímabilinu. 1966—1972, gerir nefndin ráð fyr- ir því, að 27,0 millj. kr. fáist með þessum hætti. Þá gerir nefndin ráð fyrir a.m.k. 1500,00 kr. ár- legu afnotagjaldi. Yrðu tekjur af því fyrsta starfsárið eða 1966, 12 rrvillj- kr., en yrðu orðnar 40,5 millj. kr. á árinu 1972. Þá gerir nefndin ráð fyrir tekjum af aug- lýsingum, 4,5 millj. kr. fyrsta árið eða 1966, en 13,5 millj. kr. árið 1972. Þá leggur nefndin til, a.m.k. fyrsta áratuginn séu íslenzku sjónvarpi fengnar tekjur af inn- flutningi sjónvarpstækja eða framleiðslu þeirra í landinu, enda hafi Ríkisútvarpið á sínum síma verið byggt upp meðal annars með þeim hætti. Gerir nefndin ráð fyrir þvi, að sjónvarpið fái á einn eða annan hátt sem svarar 80% aðflutningsgjalda af sjón- varpstækjum eða um 4.400,00 kr. á tæki. Gerir hún ráð fyrir frá 8,8—;17,6 millj. kr. árlegum tekj- um af þessu, eða samtals 116,6 millj. kr. tekjum handa sjónvarp- inu á árunum 1964—1972. Miðað við þessa tekjuöflun væri hægt að greiða þann árlega rekstrarkostnað, sem ég gat um áðan, fyrstu sjö starfsárin og all- an stofrikostnaðinn samkvæmt 7 ára framkvæmdaráætluninni án nokkurrar lánsfjáröflunar. Ef framkvæmdirnar yrðu hafðar hraðari og þeim hagað eftir fimm ára framkvæmdaáætluninni yrði um nokkra lánsfjárþÖrf að ræða á árunum 1969—1971, mest 28,0 níillj. kr. árið 1970. Dagskrá Mér þykir rétt að fara nokkr- Nefndin, sem gerði sjónvarps skýrsluna og undirbjó stofnun íslenzks sjónvarps. Á myndinni eru, talið frá vinstri: Björn Th. Björnsson, listfræðingur, Þorvaldur G. Kristjánsson, alþm^ Þórarinn Þórarinsson, ritstjóri, Sigurður Bjarnason, ritstjóri, Benedikt Gröndal, ritstjóri, Vil- hjálmur Þ. Gíslason, útvarpsstj óri og Þorsteinn Hannesson, söngvari. um fleiri orðum um það, sem seg- ir í skýrslunni um hugsanlega dag skrá íslenzks sjónvarps. Lögð er áherzla á, að nauðsynlegt sé að dagskrá sé þegar í upphafi nægi- lega löng og góð til að hvetja al- menning^ til tækjakaupa. Þess vegna er ekki talið hægt að byrja t.d. á 30 mínútna efni á dag og auka það smám saman. Er því gert ráð fyrir að byrja á 2 klst. daglegri sjónvarpsdagskrá, en gera ekki ráð fyrir stöðugri leng- ingu, heldur tveggja’ til þriggja stunda sjónvarpi fyrstu 5—10 ár- in. Að sjálfsögðu yrði ekkert því til fyrirstöðu að sjónvarpa mun lengur einstaka daga þegar sér- stakt tilefni gefst. Er gert ráð fyrir því að byrja dagskrá ávallt kl. 20, en senda endurtekið efní síðdegis á laugárdþgum og sunnu dögum. Gert er ráð fyrir 15 mín- útum í fréttir og 15 min. í aug- lýsingar, kl. 20.30 til 21. f dag- skrársýnirhornum er frumflutt íslenzkt efni 40—50% af heildar- tíma dagskrérinnar. Við þetta bætast úðan fréttakvikmyndir og fræðslukvikmyndir, þar sem ís- lenzkt tal yrði flutt með mynd- unum og stærri kvikmyndir, þar sem íslenzkir textar yrðu með. Sem dæmi um sjónvarpsefni má nefna samtals- og spurninga- þætti ýmiss konar, barnaþætti, einfalda tónlistarviðburði, ein- föld leikrit, þar sem ekki er kraf- izt umfangsmikillar sviðsgerðar, ýmsa atburði, sem gerast á tak- mörkuðum bletti, , erindi, sem skýrð eru með ýmiss konar myndum og íslenzkar kvik- myndir. Erlent efni yrði fyrst í stað allt í kvikmyndum, en síð- ar koma eflaust segulbönd til skjalanna. Afla mundi verða langra kvikmynda, sem upphaf- lega eru gerðar fyrir kvik- myndahús, og textar þá ýmist verða skriflegir neðanmáls eða þulur læsi öðru hvoru efnisskýr- ingar. í kvikmyndir eða leikrit, sem sérstaklega eru tekin fyrir sjónvarp, en í þessum flokki eru flestir vinsælustu sjónvarpsþætt- ir veraldar, yrði einnig að setja neðanmálstexta, en láta tón frummyndarinnar halda sér. Með erlendum fræðslumyndum yrði ávallt að flytja íslenzkt tal. Eru slíkar myndir oft tengdar stór- viðburðum samtíðarinnar, og þá gjarnan samfellt yfirlit, sem gert er úr beztu fréttamyndum. Gert er ráð fyrir því að gerá fasta samninga við eitt eða fleiri alþjóðleg fyrirtæki um kaup fréttakvikmynda, sem þá myndu berast hingað með svo til hverri flugvél. Við slíkt efni yrði sett- ur íslenzkur texti. Skólasjónvarp Þá hefur sérstök athugun ver- ið gerð á skilyrðum þess að taka Sætta sig við allt ÞÁ er allt utlit fyrir að sjón- varpið komi. Ei það út a£ fyrir sig ánægjulegt — og vona allir, að með því verði stigið fram- faraspor. Lélegt sjónvarp er lak ara en ekkert. Mönnum kemur bara ekki saman um hvað sé lélegt og ekki lélegt. Ég held að dómur manna um sjónvarp og yfirleitt allt, sem menn njóta i fristundum, bygg- ist að nokkru leyti á þörfinni fyrir dægrastyttingu. Sumir hafa alltaf nóg að starfa, eiga Tnikið af áhugamálum og kom- ast aldrei yfir helminginn af öllu því, sem þeir ætla sér að gera. Aðrir þurfa alltaf að vera að drepa tíniann. hafa alltaf nóg að starfa, eiga mikið af áhuga- málum og komast aldrei (yfir helminginn af öllu því, sem þeir ætla sér að gera. Aðrir / þurfa alltaf að vera að drepa tímann, hafa ekki rænu á að finn nein viðfangsefni í frístund unum — og þeir fafá á lélegar kvikmyndir, horfa á leiðinlegt sjónvarp og hlusta á leiðinlegt útvarp, — sætta- sig við allt, sem „drepur timann“. Landeyður Annars er lifið svo stutt, en getur areiðanlega verið það fagurt hjá ölium, að mér finnst það hálfgert guðlast að tala um að „drepa umann.“ Gærdagur- inn kemur ekki aftur og fram- farasinnað folk fagnar hverjum nýjum degi vegna þess að hann »<&$ -f, upp islenzkt skólasjónvarp, en með því er átt við dagskrá, sem beint væri inn í skólana og nem- endur tiltekinna bekkja horfðu á í kennslustundum í skólanum. Sérstök ástæða er til þess að benda á gildi sjónvarpskennslu fyrir strjálbýli, þar sem erfitt er að njóta starfs sérmenntaðra kennara í einstökum* greinum og dýr kennslutæki eru ekki til ráð- stöfunar. Skipulagsmál Um skipulagsmál íslenzks sjón- varps er það að segja, að sjón- varpsnefndin telur tvímælalaust hagkvæmt og skynsamlegt, að sjónvarp verði deild í Ríkisút- varpinu við hlið hljóðvarps. Við það sparist verulegt fé, þ. e. ekki þurfi þá sérstakt skrifstofuhald til að stjórna sjóriyarpinu og margvíslegur annar kostnaður geti verið sameiginlegur. Segir í skýrslunni, að í nágrannalönd- um, sem fregnir fari af, hafi sjónvarp vaxið upp undir hand- arjaðri hljóðvarps, og eigi þetta jafnt við um ríkisstofnanir i Ev- rópu ,sem einkafyrirtæki í Amer- íku. Hins vegar telur nefndin rétt, að þegar tveggja til þriggja ára reynsla hafi hlotizt af is- lenzku sjónvarpi, sé tímabært að taka heildarlöggj öfina um útvarp til endurskoðunar, enda sé hún í meginatriðum 30 ára gömul. boðar starf og átök við lífið. Ekki vegna þess að þá er einum degi skemmra til næstu helgar. Þess vegna segi ég það, að íslenzkt sjónvarp á ekki að hjálpa íslendingum til að „drepa tímann“, heldur að fræða og byggja upp. Ef allir finna störf við sitt hæfi (og það ættu allir að geta) — þá eigum við ekki að þurfa nein tíma- drepandi-tæki. Mér finnst þ^ð algerar iandeyður, sem stöðugt þurfa að finna eitthvað til að „drepa tímann.“ Viðfangsefni á íslandi eru óteljandi. Öfugmæli Ein bálreið hringdi til mín í gærmorgun og spurði, hvort Reykvikingum væri nauðsyn- legra að fá tóbak og sælgæti en matvörur um helgar. Ég sagði auðvitað, að ég gæti ekki svar- að þessu —■ nema fyrir mig per- sónulega. Ég þyrfti ekki á tó- baki né sæigæti að halda um helgar fremur en aðra daga. Hins vegar borðaði ég senni- lega meira um helgar en alla aðra daga, en ég viðurkenndi díka að það er ekkert hollt. En sú, sem hnngdi, taldi þetta alger öfugmæli. Leyfa ætti sölu á öllum nauðsynjavarningi um helgar, en stöðva þá sölu á tó- baki og sæ.gæti. Þetta er ekki svo vitlaus til- laga. A.m.k. stuðlaði slíkt fyrir- komulag frekar að heilbrigði þjóðarmnar. Hins vegar kemur þá sú spurning, hvort bönn og hömlur séu réttu aðferðirnar til að auka heilbrigði og bæta kjark manna. Ekki alltaf. En úr því að munaðarvarningur er seldur um helgar, því ætti þá ekki að. leyfa sölu nauðsynja- varnings? Það er von að konan spyrji og það gera yíst fleiri. Kveðjur frá ferðamanni Og toks kemur hér ein að austan: Rússneskur ferðamaður, Pop- ov, fór til Póilands og sendi heim póstkort — og á það var skrifað: Kveðjur frá hinni frjálsu Varsjá. Næst kom frá hopum kveðja frá Tékkoslóvalíiu: Kveðjur frá frjálsri Prag, Frá Ungverjalandi skrifaði hann: Kveðjur frá frjálsri Búda pest. Síðasta kortið kom frá Vínar- borg í Ausmrríki: Kveðjur frá frjálsum Popov.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.