Morgunblaðið - 10.05.1964, Side 13

Morgunblaðið - 10.05.1964, Side 13
fvnun*ví y mm vi w u v^nnrwvrvrvrvrv1vrww vf w u « w « «5 *«w Sunnudagur 10. jnaí 1964 MORGUNBLADIÐ 13 BIFVÉLAVERKSTÆÐIÐ 1D VENTILL* nsaBsnBBsaSÍMI 35313nsnoi Höfum opnað bifvélaverkstæði í Sanítas- húsinu við Köllunarklettsveg við Klepps- veg. Tökum að okkur ventlaslípingar, fljót og góð þjónusta. Píanóflufningar Vinsamlegast athugið Tek að mér ílutninga á píanóum og öðrum þung- um og vandmeðförnum stykkjum. Þaulvanir menn. — Fljót og góð þjónusta. Píanófiulniitgar ÞungafButETÍngar HILMAR BJARNASON SÍMI 24674. Sími á Sendibílastöðinni h.f., 24113. f ylgizt með tímanum fljúgið með þofum PAN AMERICAN það kostar aðeins 8044 krónur hl NEW YORK og til baka og aðeins 6964 til KAUPMANNAHAFNAR nm L0ND0N og lil baka. það koslar ekkert að láta okkur panta hótelherbergið. Allar nánari upplýsingar veila: PAN AMERICAN á íslandi Nafnarsfræti 19, Símar 10275 og 11644 og ferðaskrifstofurnar ma* X X X X X X X X X X X X X X X X X X X X X X X X X X StlNNUFERDIR n?eð 'islenzkum fararstjórum sumarið 1964 Margra ára reynsla að baki tryggir farþegn m okkar skemmtilegt og snurðulanst ferða- lag undir leiðsögn reyndra fararstjóra. F1 estar ferðir okkar eru farnar óbreyttar ár eftir ár. Vinsælar og viðurkenndar ferðir a'f þeim fjölmörgu, sem reynt hafa. Norðurlandaferð 1. júlí — 17 dagar. Flogið til Bergen og farið þaðan i viku ferðalag um hinar undurfögru norsku fjarða og dala byggðir. Leiðin er skipulögð um margar af heimabyggðum íslenzku landnáms- mannanna. Dvalið í Osló og nokkra daga i Kaupmannahöfn áður en farið er heim. Byggðir Vestur-íslendinga og Heimssýningin, 27. júlí — 7—30 dagar. Þessi ferð er miðuð við Heimssýninguna i New York og ferðalög um byggðir Vestur-ís- lendinga, í Kanada og Bandarikjunum. Dvalið verður á Gimli á hinum veglegu hátíða- höldum íslendingadagsins á 75 ára afmæli íslenzka landnámsins í Nýja Islandi, þar sem Bjarni Benediktsson forsætisráðherra verður heiðursgestur, sem fulltrui islenzku þjóð- arinnar. Þeir, sem halda ferðina á enda fara vestur á Kyrrahafsströnd. Tilvalin ferð fyrlr þá sem heimsækja vilja ættingja og vini Vestanhafs, skoða Ameriku og heimssýn- inguna. Flogið er allar langleiðir. París — Rínarlönd — Sviss, 26. ágúst — 18 dagar. Þessi ferð til eftirsóttustu ferðamannastaða Mið-Evrópu er baeði skemmtileg og tilbreyt- ingarík, en þó róleg, þar sem ekki er farið of hratt yfir. f París fær fólk tækifæri til að skemmta sér í heimsborg gleðinnar og njóta þess að dvelja í hinni undurfögru borg á Signubökkum. Dvölinni í hinum fögru og glöðu Rínarbyggðum gleymir enginn. Farið er með skemmtibátum á Rín og tekið þáttí hinni óviðjafnanlegu Vínhátíð Rínarbúa, sem haldin er meðan ferðafólkið dvelur þar. Loks er dvalið í Luzern, sem af mörgum er talin fegurst af mörgum fjallaborgum A Ipalandsins. Meðan dvalið er þar gefst fólki kostur á að fara í tveggja daga ferð suður yfir Gotthardskarð til ítaliu. Edinborgarhátíðin, 23. ágúst — 7 dagar. Flogið er til Glasgow og ekið þaðan til Edinborgar, þar sem dvalið er á frægustu lista- hátið Evrópu, sem einnig er orðin einskonar samfelld skozk þjóðhátið með dönsum leikjum og söng. Farið í stutt ferðalög um hinar undurfögru byggðir skozku háland- anna, en auk þess gefst góður tími til hvildar og dvalar i hinni fögru höfuðborg Skot- lands. Odýr og skemmtileg ferð, fyrir þá, sem ekki ætla í langa utanlandsferð í ár. Italía í septembersól, 2. september — 21 dagur. Þessi "ferð hefir reynzt óskaferðin til ítalu, því viðurkennd dönsk ferðaskrifstofa hefir tekið upp okkar ferðaáætlun og notað fyrir vandláta ítaliufara. Flogið héðan til Mil- ano, ekið siðan stutta áfanga og dvalið 2—4 daga i sögufrægustu og fegurstu borgum ítaliu, Feneyjum, Florenz, Sorrento við Napoliflóann og fimm daga í Róm. í stað þess að aka til baka upp alla ítaliu siglum við með glæsilegasta hafskipi ítala Leonardo da Vincí 33.000 smál. með 3 sundlaugum og glæsilegum veizlusölum á næst dýrasta far- rými til Cannes í Suður Frakklandi, ökum þaðan stutta leið til Nizza og dveljum þar í nokkra daga áður en flogið er heimleiðis með viðkomu í London, eða Höfn að vild. Þetta er vönduð ferð fyrir þá, sem njóta vi Ija septembersólar í fögrum byggðum og frægum borgum Suðurlanda. Síðsumardagar á Paradísareynni Mallorca, 4. sept. — 16 dagar. Flogið til Mallorca og dvalið þar i hálfan mánuð á góðum hótelum, m.a. Bahia Palace og Sant Ana, sem hundruð Sunnufarþega þekkja frá okkar vinsælu páskaferðum. Á heimleiðinni er stanzað tvo daga í London og háegt er að framlengja ferðina þar á eig- in vegum. Mallorca er sannkölluð paradis á jörð fyrir þá sem til þekkja og þangað leitar fólk ár eftir ár, enda orðinn fjölsóttasti ferðamannastaður Evrópu. London — Amsterdam — Kaupmannahöfn, 22. sept. — 12 dagar. Ferð þessi var i fyrsta sinn farin í fyrra og hlaut þá vinsældir. Þetta er stutt og ódýr terð, þar sem fólki gefst góður tími til að kynnast þremur helztu borgum Norður- Evrópu, sem þó eru allar mjög ólikar. Hei msborgin London með sín miklu tizkuhús og sögufrægð Amsterdam, sem speglast í fljótum og skurðnm Hollands og loks Kaup- mannahöfn, borginni við Sundið, þar sem íslendingar eru alltaf eins og heima hjá sér, í glöðum og góðum félagsskap. Ítalía og Spánn, 25. september — 20 dagar. Þetta er óvenjuleg ferð, þar sem fólki gefst kostur á að kvnnast ítaliu og Spáni i sömu ferð og sigla með glæsilegu hafskipi Itala Cristoforo Colombo, sem er 34.006 lestir, með sundlaugum og vei-zlusölum. Með skipinu er farið frá Napoli til Gíbraltar. Flogið er til Rómar með viðkomu í London. Þaðan ekið til Napoli og Sorrento og dvalið þar við Napoliflóann. Siglt út til Capri. Eftir hina skemmtilegu ferð með hafskipinu milli Napoli og Gíbraltar er ekið um Sólströnd Spánar og dvalið í hinum víðfræga bað- strandarbæ Torremolinos við Malaga. Þeir, sem ekki nota allan timann á baðströnd- inni þar, skreppa í skyndiferð til Tangier í Marokko. Frá Malaga er ekið hina undur- fögru fjallaleið norður um Granda til Madrid. Þaðan er flogið beim með viðkomu í London. Allar Sunnuferðir eiga það sameiginlegt að eingöngu eru notuð góð hótel, sem þekkt éru að því að hafa góðan mat og þjónustu. Engar þreytandi bilferðir. Flogið eða siglt með skemmtiferðaskipum lengstu áfangana. Reyndir fararstjórar, sem hafa allt að fimm ára reynslu við farar^tjórn í vinsælustu SUNNUFERÐUM. 1 öllum ferðunum getur fólk framlengt dvölina erlendis og flogið heim síðar með áætlunarvélum. Við gefum sjálfum okkur ekki einkun, en spyrjið þá sem reynt hafa. Mörg hundruð ánægðra viðskiptavina hafa ferðast á vegum SUNNU i hópferðum og sem einstakling- ar. Margir ár eftir ár og oft á ári. Vitnisburður þcssa fjölmenna hóps viðskiptavina er okkar bezta auglýsing. Ferðaskrifstofan SUNIMA Bankastræti 7. Símar 16400 og 21020. Biðiið um nákvæmar ferðaáæltanir. komið, skrifið, eða fcímið. PANTIÐ SNEMMA, þegar eru margir skráðir þátttakendur og aðeins hægt a& taka 20—30 manns í ferð.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.