Morgunblaðið - 12.05.1964, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 12.05.1964, Blaðsíða 15
Þriðjudagur 12. maí 1964 MORGU NBLAÐIÐ 15 I Mekkir viÖ Surtsey Miðvikudaginn 22, apríl var Ögri að veiðum skammt frá Surtsey. í»á sáu skipverjar um kl. 9.30 um kvöldið það sem þeim sýndist vera nýtt gos suð- vestur af Surtsey. Adolf Hansen matsveinn, tók þessa mynd. Hann segir að ef hann hefði haft litfilmu í myndavélinni, þá hefði bæði gosið í eynni sjálfri og mökkurinn utan við hana ver ið rauðlitað á myndinni. Logn var og stóð reykurinn hér um bil beint upp í loftið. Við bárum myndina undir Sigurð Þórarinsson, sem sagðist ekki telja að þetta sé annað gos utan við Surtsey, he’.dur myndist mökkurinn þannig a3 hraunið rennur heitt út í sjóinn og kemur af því gufumökkur. Rennur það í sjó bak við eyj- una og kemur til hægri fram undan henni. Nokkrum dögum áður höfðu Ögramenn séð gufumökk kl. 7.30 um morgun koma upp úr sjón- um á sömu slóðum, en hann hvarf eftir skamma stund. í há- degisfréttum í útvarpi heyrðu þeir svo að „nýja gosið, sem skip hefðu séð þarna, hefði ekki sézt síðan daginn áður.“ Ekki vita þeir hvað þar hefur verið. Kiwanis gefur lækningatæki Varaforseti félagsskaparins kemur hingað NÝR félagsskapur verður form- lega stofnaður í Reykjavík Bandarísk menning Andstæður og mótsagiilr BANDARISKUR uppreisnarseggur væri vís til þess að álasa löndum sínum fyrir að líta ekki samkvæmt meginreglum og kenningum hins bandaríska þjóðfélags, en ólíklegt er, að hann drægi í efa gildi kenninganna sjálfra. Guido Piovene, ítalskur maður, sem athugaði þetta nokkuð, gerði þar um eftírfarandi athugasemd: „Ameríka er ekki það sem hún er heldur það sem hún telur sig vera“. Og hún telur sig vera allra þjóða réttlátasta. Þetta er það sem orsakar mestu and- stæðurnar í Bandaríkjunum, þar sem rekast á hugsjónastet'na Bandaríkjamanna og efnishyggja. Aðfinnslusamir, evrópskir nöldurseggir, eru gjarnir á að segja að Bandaríkjamenn séu efnishyggjufólk, sem ekki geti verið án vélknúinna tækja sinná, bíla, sjónvarps, gufuhita. „Bandaríkjamaðurinn", segja þeir, „mælir allt, jafnvel listina, á dollaramælikvarða. Bandarískri utanríkisstefnu er stjórnað af tilliti til peninganna — olíunnar, stóriðjufyrirtækjanna". Sé þessu svarað eitthvað á þá leið að við Evrópumenn sé- um heldur ekki svo sérlega mótfallnir bílum, sjónvarpstækj- um og ísskápum né heldur andsnúnir olíunni, þá hvæsir gagn- rýnandinn á móti: „Það er af því að Ameríka hefur spillt okkur með fordæmi sínu“. En enda þótt Bandaríkjamenn gefi sig mjög að smíðí alls konar smátækja, afrækja þeir ekki af þeim sökum hugsjónir sínar. Bandaríkjamenn trúa því statt og stöðugt, að í megin- reglum þeim, sem bárust til landsins á skipinu ,,MayfIower“ (árið 1620) sé að finna svar við öllum vanda. Reglur þessar eru: Virðing fyrir frelsi annarra, hjálp við bágstadda, sjálf- stæði til handa smáþjóðum. í einu orði sagt, sjðfræðilögmál einstaklings, sem gert hefur verið að siðareglum fyrir almenn- ing. — Þessari siðfræði sinni reyna Bandaríkjamenn síðan að beita við heimsmálin. Bandarísku þjóðinni verður ekki att út í styrjöld, nema henni sé sýnt fram á, að það sé réttlát styrj- öld. Bandaríkin skárust ekki í hildarleikinn árið 1917 til þess að tryggja lán bankastjóranna heldur vegna þess að þýzkir kaf- bátar höfðu orðið varnarlausum konum og börnum að bana. Eisenhower tók ekki hina tvísýnu afstöðu sína í Súezmál- inu af tillitssemi við fjármálamenn heldur til varnar víðtæk- ari hagsmunum sem tengdir voru Sameinuðu þjóðunum. Marshall-áætlunin var ekkert risaglingur til þess ætlað að afla bandarískum vörum markaða, eins og bezt sást á því, að áður en yfir lauk skapaði hún þessum sömu vörum samkeppni. Bandaríkjamönnum eru allir hlutir annaðhvort svartir eða hvítir. A sviði alþjóðamála sjá þeir aðeins hetjur og bófa, enda þótt þeir eigi í flestum tilvikum við að etja venjulega dauð- lega menn, haldna venjulegum dyggðum og löstum. Banda- ríkjamönnum þykir sérgáfa Breta til sátta og málamiðlunar vera undansláttur eða jafnvel hræsni, en stífni Bandaríkja- manna er Bretum aftur á móti þyrnir í augum. Þetta dálæti Bandaxíkjamanna á andstæðum á sér sína sögu. Það voru nefnilega Evrópumenn sem sköpuðu Bandaríkin, — öfgafullir Evrópumenn, sem leituðu þar lausna á vandamálum sínum. Það voru mennirnir, sem ekki gátu sætt sig við andstæðurnar í Evrópu af því að þeir voru uppreisnaiseggir og uppreisnar- seggir eru þeir enn í dag. Hér kemur einnig til greina mennin^ fjöldans gagnvart menningu einstaklingsins. Bandaríkin urðu fyrst til þess að þróa upplýsingatæki sem næðu til fjöldans, útvarp, sjónvarp, vasabrotsbækur og fleira. f Bandaríkjunum er starfsemi þessi rekin eins og fjár- gróðafyrirtæki. Reynt er að vinna alla sem í næst og helzt enn fleiri á hennar band. Árangurinn er fræðsla til handa fjöldan- um. Áhrifa þessa gætir á sinfóníuhljómsveitunum, sem eru um landið þvert og endilangt og á því hve hljómplötur með sígildri tónlist seljast nú vel. Sjónvarpsstöðvar leggja til tíma fyrir menningardagskrár sem afla þeim álits. Vasabækur fara æ batnandi, þær byrjuðu feril sinn sem leynilögreglusögur og æsandi reyfarar, en nú má fá í vasabókarbroti allar helztu sí- gildar bókmenntir heimsins. Trúin á bókina er grundvallar- atriði í bandarískri menningu. Faulkner skrifaði einu sinni: „Bandaríkjamenn trúa ekki öðru en því sem þeir sjá á prenti". Einstaklingshyggjan er heldur hvergi eins áberandi og í Bandaríkjunum. Takið til samanburðar bandarískan rithöfund og franskan. Með örfáum undantekningum tilheyrir franski rithöfundurinn hinum útvöldu í þjóðfélaginu, frönsk skáld og rithöfundar halda hópinn í akademíum sínum og kránum á Montparnasse. En bandarískur rithöfundur er sjálfum sér nóg- ur. Hann býr uppi í sveit eða sezt að erlendis. Faulkner sagði einu sinni: „Ég er ekki rithöfundur, ég er bóndi“. í sérhverj- um Bandaríkjamanni Txlundar landneminn. Hemingway unni dýraveiðum, fiskveiðum, hernaði.... Svo rík er þörf hvers og eins til þess að vera sjálfs sín ráðandi, að líf hirðingjans er dæmigert líf Bandaríkjamanns- ins. Tíu prósent þjóðarinnar ferðast með húsið sitt á bakinu eins og skjaldbakan. Hjólhýsið, sem til að byrja með var rétt aðeins notað í ferðalögum hefur tekið miklum breytingum og er nú orðið heilt hús á hjólum. Hvar sem hixðinginn finnur sér loftslag er honum lyndi og nágranna sér að skapi, getur hann sezt að um stundar sakir til þess að rækta kálgarðinn sinn — og sæki á hann leiðindi, getur hann bara hirt sitt hafurtask og haldið út í buskann, rétt eins og hirðinginn á eyðimörkinni tekur upp tjaldið og leitar grænna haga. Þetta flakk — þetta eirðarleysi, er arfur frá dögum landnemanna. Ég minnist þess að franska skáldið Paul Claudel sagði eitt sinn við mig: „Að skrifa um Ameríku er eins og að taka mynd af ungbarni, það er varla hægt að smella af fyrr en barnið hefur hreyft sig úr stað“. Ég var sjálfur rétt í þann veg- inn að skrifa um vöxt og viðgang borganna og niðurníðslu sveitanna, en nú, hefur þróunin gert þetta viðfangsefni úrelt. I dag' færir stórborgin út kvíarnar með því að setja upp útborgír sem likastar sveitunum, þar eru innkaupamiðstöðvar, kvikmyndahús o. fl. Einu sinni voru allar búðir í bæjunum miðjum og konurnar keyptu í matinn fótgangandi. í dag verzl- ar frúin á bíl og henni verður að sjá fyrir stöðurými. Árangur- inn af þessu er sá að gi-aslendi og tún, sem alveg voru að hverfa, eru nú komin aftur og standa í fullum skrúða. Um Bandaríkin má flest segja með nokkrum sanni. Bandaríkjamenn má skoða sem kaldrifjaða kaupsýslumenn eða sjálfumglaða góðverkaiðkendur, sem leggja hart að sér við að hjálpa þjóðum þeim, sem skemmra eru á veg komnar og börnum sem þjást af næringarskorti. Segja má að Bandaríkja- menn séu dæmigerðir meðalmenn, eins og Babbitt, söguhetja Sinclair Lewis, að þeir megi ekki missa útvarpið sitt, mynda- blöðin og greinarnar, sem birtar eru í öllum helztu blöðum landsins í einu. En það er staðreynd, að í allri meðalmennsk- unni lifa og hrærast tilfinningaxíkir menn og gáfaðir, sem mörgum hverjum mætti skipa til sætis með beztu hugsuðum okkar tíma. Slíkir Bandaríkjamenn eru kannski öðruvísi, kannski einhverjir þeirra af erlendu bergi brotnir. En samt eru þeir sannfærðir um það, hver og einn, að Bandaxíkin eigi sér sina menningu: „The American way of life“, og að þegar fram líði stundir muni hún leysa allan vanda og bera sigur af hólmi. En hvað sem öllum andstæðum og mótsögnum líður þá eru allir Bandaríkjamenn sem einn maður þegar um er að xæða stjórnarskrána, sjónvarpið, sinfóníuhljómsveitirnar, forseta- kosningarnar — þeir sameinast í hinni ólýsanlegu tilfinnihgu, sem á sér djúpar rætur og er hluti af friðarþrá þeirra, löngun- inni til þess að gera ævinlega það sem rétt er, þeirri sannfær- ingu að vinna sé dyggð og vissunni um að efnahagsleg vel- megun sé leiðin til andlegrar farsældar. i kvöld Kiwanisklúbburiau Hekla, sem verður deild i alþjóð- legum samtökum. Kiwanis samtökin eru að mörgu með svipuðu sniði og Rotary- og Lions-klúbbar, og styrkja ýmis framfaramál og vinna að bættum þjóðfélagshátt um. Fyrsti Klwanis-klúbburinn var stofnaður í Detroit 1915, en síð- þó ekki fyrr en 1962, að alþjóða reglan var stofnuð, en íslenzki klúbburinn HEKLA er sá fyrsti, sem stofnaður er á Norðurlönd- um. Nú eru rúml. 260 þús. með- limir í samtökunum’ og fullri fé- lagatölu verið náð hér enda hef- ur klúbburinn þegar starfað í nokkra mánuði, en stofnskráin verður fox-mlega afhent við hátið lega athöfn í kvöld. í þeim tilgangi kemur hingað varaforseti Kiwanis International Dr. R. Glenn Reed, ásarot konu sinni, og' verða þau heiðursgestir kvöldsins. Aðalhvatamaður þessarar fé- lagsstofnunar var Einar A. Jóns son gjaldkeri, sem er formaður klúbbsins. Félagar í HEKLU hafa þegar hafið starfsemi á ýmsum sviðum og á s. 1. jólum sendu þeir nokkrum bar:iaheimi''vm leikföng að gjöf, og nú hafa verið ákveðin kaup á nýjustu lækninga tækjum til afnota í sambandi við brjóstholsaðgerðir. Samtök kennara skólanema HINN 8. marz sl. stofnuðu nem- ar í íslenzkum kennaraskólum til félagsskapar sín á milli. Nefnist hann Samtök íslenzkra kennaranema. Aðilar að samtök- unum eru þeir fimm skólar, er brautskrá kennara fyrir skylu- námsstigið: Kennaraskóli ís- lands, íþróttakennaraskóli fs- lands, Húsmæðrakennaraskóli íslands, kennaradeild Tónlistar- skólans og kennaradeild Hand- íða og myndlistarskólans. Samkvæmt lögum samtak- anna er tilgangur þeirra þessi: 1) Að taka til meðferðar fjár- hagsleg, menningarleg og kennslufræðileg áhugamál nem- endanna. 2) Að vera málsvari kennara- nema gagnvart öðrum félags- samtökum og yfirvöldum lands- ins. 3) Að leita eftir samstarfi við kennara og æskulýðssamtok á íslandi og erlendis. 4) Að efla samvinnu milli Norðurlandanna og norrænna kennaraskólanema með því að halda námskeið og fundj ásamt þátttöku í Det Nordiske Semia- aristrád. í stjórn Samtaks íslenzkra kennaranema voru kosnir þeir Ólafur Proppé formaður, Steinar J. Lúðvíksson varaformaður, Karl Jeppesen gjaldkeri, Svan- hildur KSber ritari og Sigríður Einaxsdóttir spjaldskrárritarL

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.