Morgunblaðið - 16.05.1964, Side 1

Morgunblaðið - 16.05.1964, Side 1
K E * LÞINGI ÍSLENDINGA sendir Stór- s þingi Noregs einlæga og bróður- 1 lega kveðju sína á hálfrar annarrar aldar af- §§ mæli norsku stjórnarskrárinnar. íslendingar telja til nánari skyldleika við = Norðmenn en nokkra aðra þjóð. Víst voru s landnámsmenn íslands af mörgum löndum, en E þorri þeirra var upprunninn í Noregi. Sömu P menntir og fræði voru í hávegum höfð með j= báðum þjóðum, kvæði, sagnir og listir. Margir s landnámsmenn voru bundnir helgum véum , = Noregs og fluttu með sér minningar úr því E landi, og til þessa dags láta norsk staðarnöfn |j kunnuglegast í eyrum íslendinga allra út- E lendra örnefna. Frá Noregi og öðrum Norðurlöndum höfðu §§ íslenzku landnemarnir með sér hugmyndir um H lög og rétt; þeir vissu vel, að með lögum skal 1 land byggja; þeir áttu sér þing, þar sem dæmd s voru mál manna samkvæmt lögum, sem veittu s hverjum manni sinn rétt. En að öðru leyti §§ fóru þessar tvær þjóðir ekki sömu leið. Með E Norðmönnum tók veldi eins konungs við af | veldi fylkiskonunga, og það óx og efldist með § tímanum. Á íslandi var nýbyggð, og af vík- 1 ingalífi, flutningi og landnámi í nýju landi Í brotnaði niður margt úr fornri stéttaskipun, | og þegar Alþingi var þar stofnað 930, var hið | • nýja ríki lýðveldi • með sérstöku móti. Hér s kom til misjöfn lega landanna og frábrugðin i náttúruskilyrði. I Svo kom sú tíð, að báðar þjóðirnar | misstu sjálfstæði sitt og áttu æðsta vald mála | sinna erlendis. Með frelsinu misstu þær hið i veigamesta menningarafl. Örlög þeirra urðu 1 að ýmsu ólík, eftir mismunandi arfi frá frels- i istíðinni fornu, eftir legu landanna og atburð- i um með öðrum þjóðum. Báðum þjóðum átti að verða þess auðið | að öðlast sjálfstæði að nýju. Norðmenn voru i þar miklu fyrri til, og hefur dæmi þeirra í því efni á marga lund verið íslendingum leið- arljós. í þeirri sögu er margt líkra atvika, sem leiddu fram að sama marki. Hinn nýi, frjálsi Noregur birtist 1814, á öld Napóleonsstyrjaldanna, á hörmungatíð, en í miklum ljóma. Nokkrir hinna beztu sona Nor- egs höfðu verið kallaðir til Eiðsvallar að semja þjóðinni stjórnarskrá. Torfundnir mundu þeir menn, sem gerðu sér gleggri grein fyrir á- byrgð sinni eða ynnu af fölskvalausari föðúr- landsást. Flestir þessara manna þekktu lítt til stjórnarstarfa, en þeir lögðu sig alla fram. Margir þeirra voru vel menntaðir, höfðu drukkið í sig hugmyndir 18. aldar um mann- réttindi og um fullveldi þjóðarinnar. Á því bjargi reistu þeir sjálfstæðið. Hinn 17. maí undirrituðu þeir stjórnarskrána. Bak við lá einnig minningin um hið forna frjálsa Noregs- ríki, sem jafnvel fjallabændur þekktu til af Heimskringlu Snorra Sturlusonar. E9 Atburðirnir héldu áfram sinni rás. Á sín- um tíma tók þessi stjórnarskrá þeim breyting- um, sem efling eða tilkoma nýrra stétta hafði í för með sér. Andi lýðræðisins glæddist og magnaðist, unz hann varð alls ráðandi. í skjóli stjórnarskrárinnar þróaðist þjóðlíf Noregs til nýrrar menningar. Háskóli hafði verið stofnaður aðeins þremur árum fyrir stjórnarskrána; nú þurfti víða höndum til að taka. Næsta ár var stofnaður hæstiréttur. Fjármál, fræðslumál, verklegar framkvæmd- ir, ræktun lands, fiskveiðar, iðnaður, allt þró- aðist þetta, sumt fyrr, annað síðar, og skip hinnar fornu siglingaþjóðar sáust áður en langt um leið á öllum höfum veraldar. Bók- menntir, vísindi og listir tóku að glæðast og urðu heimskunnar. Aftur og aftur getur að líta afburðamenn, sonu Noregs, vinna afrek á alþjóðavettvangi. Noregur naut gæða friðarins langar stundir. Jafnvel þegar sambandsslit urðu með Norð- mönnum og Svíum 1905, gerðust þau án ófrið- j§ ar. Friður hélzt allt til heimsstyrjaldarinnar g síðari, þegar Noregur var hertekinn. Með að- 1 dáanlegri þrautseigju börðust Norðmenn við e ofureflið, á vígstöðvum bæði heima og heim- E an, með konung sinn og krónprins í broddi 1 fylkingar, unz bandamenn báru liærra hlut og * * * § s Norðmenn höfðu aftur öðlazt vald í landi sínu. E GS Það er engin furða, að íslendingum hafi = orðið starsýnt á þessa svipmiklu frændþjóð. g Ekki þarf blöðum um það að fletta, að Jón i Sigurðsson hefur kunnað ærin skil á Eiðs- = vallarstjórnarskránni og stjórnmálalífi Nor- §f egs, og oft naut hann liðs Norðmanna. Jafnan e síðan hafa íslendingar fylgzt með þróun mála j§ í Noregi. Samskipti hafa verið með þjóðun- § um og því meiri og betri sem lengra hefur §j liðið. Áhrif norskra bókmennta, lista og vís- s inda hafa verið meiri á íslandi en frá verði s sagt í fáum orðum. Að lokum skal nefna för 1 margra Norðmanna til íslands árið 1957 til að e heiðra Snorra Sturluson, mátti það helzt kall- §§ ast pílagrímsför; ekki gleymast heldur mót- i tökur Norðmanna, er hópur íslendinga end- i urgalt þá heimsókn með Noregsför. Með allt þetta í huga er það Alþingi ís- Í lendinga heiður og mikið fagnaðarefni að § flytja Stórþingi Noregs heillaóskir á afmæli I stjórnarskrárinnar frá Eiðsvelli. Það leyfir sér 1 og að senda konungi Noregs og allri norsku þjóðinni einlægar hamingjuóskir. íslendingar þakka Norðmönnum bræðralag og vináttu að fornu og nýju og óska hinni frjálsu norsku þjóð velfarnaðar og hamingju um alla framtíð. ALÞINGl ÍSLENDINGA BIRGIR FINNSSON forseti sameinaðs Alþingis SIGURÐUR Ó. ÓLAFSSON forseti efri deildar SIGURÐUR BJARNASON forseti neðri deildar íTiiiuinimiiniiniiHiiiiiiitiiiiiiiiiiiiimiiiiniiiiitiiiiitiiiiininiiiwiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiHiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiMiiiiiiiiiiiiiiiiiiiniiiiiiiiiiiiiitiiiiiiiiiiiitiiiiniiiiHiitiiiiiiiMiiiiiimiimimiiimiiimiiiiiitiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiimiEiiimimiimiiimiiiiiiiiiiimiiimmmmmm; I

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.