Morgunblaðið - 08.07.1964, Síða 15

Morgunblaðið - 08.07.1964, Síða 15
MiöviKudagur 8. júlí 1964 MORGUNBLAÐID 15 — / h'iltúr Framhald af bls. 10. Gontar stríddi honum og sagði að hann væri lítill hesta maður en Jakob sagðist skyldu sýna honum það, hann hefði verið riddaraliðsforingi í lok síðari heimsstyrjaldar og set- i® sína klára með sæmd á víg- stöðvunum, bæði í Póllandi og Þýzkalandi. Þeir gerðu að gamni sínu um þetta og köst- uðu bröndurum á milli sín, grófum og hrikalegum, og þá komumst við loksins að merki legri niðurstöðu: Jakob Vladi- min túlkur hefur lært ís- lenzku af Þjóðviljanum. Að hugsa sér, húmor Magnúsar Kjartanssonar er orðinn út- flutningsvara. Um þetta hugs- uðum við stundarkom, meðan þeir vom að gantast þarna í aftursætinu, en Jakob fékk ekki stundlegan frið. Við spurðum ungfrúna: „Þykir yður ekki leiðiníegt að hafa alltaf á eftir yður lög- regluþjóna og blaðamenn?“ Hún svaraði ofur rólega: „Nei, bað hefur engin áhrif é mig. Ég reyni bara að fela mig bak við eldri fjölskyldu- meðlimina". Þetta var nóg til að' þagga niður í Gontar. Hann baðaði út höndunum og sagði við mágkonu sína: „Nei, þetta get urðu ekki sagt, nú ertu búin að setja alla ábyrgðirta á mig“. Hún einungis kinkaði kolli til samþykkis. Og nú var henni farið að líða betur í bíln um. Surtur var orðinn fjar- lægt og heldur óskemmtilegt viðlag við íslandsreisuna, brátt mundi hann vonandi gleymast algerlega, og allt hans hafurtask. Við vorum að nálgast Gljúfrastein og það var kom- inn tilhlökkunarsvipur í and- lit Elenu. Hún sá fyrir sér hesta með fagurbúnum reið- tygjum — og hún mundi þeysa eftir sléttum gmndum, vera frjáls. Þannig var svip- urinn sem var kominn í and- lit hennar. „Ég hlakka til að fara á hestbak“, sagði hún, og fór að taka betur eftir landslaginu, fjöllin urðu hlýrri, grasið grænna og vina- legra. En aumingja Gontair sagði einungis: „Ég get víst ekki farið á hestbak, líklega er enginn hestur til á íslandi svo stór að hann beri mig“. Það var stutt eftir í hlað og mi var hver síðastur að spyrja Elenu Krúsjeffsdóttuir nokk- urra spurninga í viðbót. Við vorum því fljótir að skjóta spurningu inn í glensið og gamanið. Við spurðum, hvaða mynd Elena myndi fara með af landinu. „Eins og ég sagði", svaraði hún, „átti ég sæmilega mynd af því, áður en ég kom, en nú er hún skýrari“. „Hvenær var ákveðið að þér fæmð til Islands?" „Það var ákveðið áður en við fómm í Norðurlandaferð- Ina. Þá var mikið talað um ísland, ferðin vegin og metin fram og aftur og svo gáfu pabbi og mamma okkur leyfi og sögðu að við mættum fara til íslands. Þau hafa áreiðan- lega bæði áhuga á að skreppa til íslands, skoða landið og kynnast fólkinu og við verð- um að hafa okkur allar við, þegar við fömm að segja þeim frá ferðalagi-nu. Auðvitað segj um við Iþekn allt sem gerzt hefur". „En hvað um laxinn?" Jakob skaut inn í að Elena mundi taka hann með sór og hann yrði étinn við matarborð Krúsjeffs á föstudaginn kem- ur. „Og þá verður mikil veizla", bætti Jakob við. En við hugsuðum: Svo þetta átti fyrir Elliðaárlaxinum að hggja. „Hafið þér verið aldar strangt upp?“ spurðum við. „Af hverju spyrjið þér að því?“ „Vegna þess að hún sagðist hafa þurft að spyrja foreldra sína að því, hvort hún mætti fara til íslands“. En Elenu þótti sjálfsagður hlutur að spyrja foreldra sína. Hún er sem sagt mjög vel upp alin og fjölskylduböndin sýni lega sterk." Og svo bætti hún við: „Én það er ekki svo auð- velt að komast til íslands". „Hafið þér áhuga á stjóm- málum?“ „Hjá okkur hafa allir áhuga á stjóirnmálum. Það er ekki hægt að komast hjá því að lesa blöðin, og þau em full af pólitík. Auðvitað verð ég að fylgjast með stjórnmálum og hafa áhuga á þeim eins og allir aðriir í landi okkar“. „En hvernig líka yður stjórnmálin á íslandi?" Hún vildi fátt um þau segja, og við vorum spurðir hvað við meintum með þessari spurn- ingu. „Mundi ekki áhugi ykk- ar á pólitík svo sterkur, að þið munduð heldur kjósa að Island væri kommúnistískt land?“ „Það kemur okkur ekkert við“, svaraði imgfrú Elena, „hvaða pólitík er hér tíðkuð. Fólkið sjálft velur hvers kon ar fyrirkomulag það vill hafa. Ég er gestur og mér dettur ekki í hug að fara að segja að mór líki illa það sem fólkið hefur valið“. Síðan fór hún að segja okk ur frá blómunum, sem hún ætti heima, yndislega falleg- um og alla vega litum blóm- um, og hún hlakkaði mikið til að koma heim og hirða um þau. Einhvern veginn höfðum við allan tímann á tilfinning- unni, að ungfrúin væri með heimþrá, þó hún reyndi að bæla hana niður. Það brá fyr ir söknuði í andliti hennar, en svo birti upp aftur og við fórum að huga að því hvað hún hefði séð. Á hlaðinu á Gljúfrasteini stóðu fallegir hestar og biðu knapa sinna. Gestumun var heilsað með hlýju brosi. Þeir fóru inn og skiptu um föt-og stuttu síðar kom Elena aftur út í hvítri reiðblússu. Nú brösti hún, og þegar frú Auður spurði hvort hún vildi ekki fá hanzka, svair aði hún á góðiri ensku þessum lakonísku orðum: „Ég ríð aldrei út með hanzka" Svo var farið á bak og riðið út í íslenzku sólina og sum- arið. Samninganefndir ná sam- komulagi á Vestfjörðum ísafirði 7. júlí. Á laugardagskvöld lauk við- ræðum á ísafirði milli samninga- nefnda A.S.V. og Vinnuveitenda- félags Vestfjarða um kaup og kjör verkafólks á Vestfjörðum. Samkomulag náðist um nýjan ramning með þeim fyrirvara að ramkomulagi ð verði samiþykkt *f viðkomandi verkalýðsfélögum og atvinnurekendum. Gert er ráð fyrir að samningurinn gildi frá 5. júlí ál eins árs og er þá uppsegj anlegur með mánaðar- fyrirvara. Hitm nýi samningur •r gerður samkvæmt samkomu lagi því, sem gert var milli ríikisstjórnarinnar og A.S.. og samtaka atvinnurekenda um stöðvun verðbólgu og kjarabæt ur handa verkafólki. Samning- urinn felur í sér. öllu sömu á- kvæði varðandi kaupgjald, vinnutíma og önnur kjara- ákvæði, sera gilda í Beykja- vík samkvæmt nýgerðum samn- ingi Dagsbrúnar og Vinnuveit- endasambands. Samningur þessi nær til allra verkalýðsfélaga á Vestfjörðum, sambandssvæði Alþýðusambands Vestfjarða er Vestfjarðakjör- dæmi. Þarna er heilu húsi raðað saman úr aluminiumbútum, eins og spilaborg. — Byggingar risa Framhald af bls. 3 skjóta eldflaugunum í þetta sinn, úr því að þar þarf að reisa allt frá grunni. — Jú, við erum að rannsaka Van Allan beltið, og til þess þurfum við að skjóta einhvers staðar sem næst 72. breiddarbaugnum eða sunnan við hann. Það er óþægilegt að vera með þetta á skipsfjöl, svo þá er um að ræða Kanada eða ísland, og hér fundum við þennan hent uga stað úti við hafið. Það tekur ekki langan tíma að reisa húsin,aðeins tvo daga, því allt efni er tilsniðið. Við byrjuðum á þessu húsi i gær og húsin verða til í kvöld. Þetta er alveg nýtt fyrir okk ur og við skemmtum okkur eins og smástrákar við að koma þessu saman. Vísinda- tækin eru ekki komin enn, því þau eru mjög viðkvæm og þurfa hús að vera tilbúin yfir þau. Þegar búið verður að koma þeim fyrir, köllum við á blaðamenn, þá getum við útskýrt þetta allt. Eld- flaugarnar sjálfar og önnur viðkvæm tæki koma með tveimur flugvélum, sem við höfum og sem geta lent á stuttum brautum. Þær geta þó ekki lent hér, en til að stytta flutninginn eftir veg- unum með viðkvæm tæki, lenda þær á Skógasandi og þaðan flytur Almenna bygg- ingafélagið þau fyrir okkur. Það má nú segja, að húsin þjóta upp. Á staðnum, þar sem skjóta má eldflaugunum, er bogaþakið á geymsluhús- inu sett saman á jörðinni, síð an lyft með 8 tjökkum á tveim ur stöðúm, og loks er tjökkun um komið fyrir á milli bog- anna og miðjan á þakinu tjökk uð upp. Þarna stjórnar verki de Villepin frá Sud Aviation. Menn vinna af. kappi, svo varla er hægt að yrða á þá. S vertingj arnir tveir kalla svör sín niður af þakinu, að þeim sé ekkert kalt hér á ís- landi. Þeir starfi í Paris og þeir séu frá Martinique og að þeir séu orðnir afvanir hita- beltisloftslagi. Á þessum stað verður eldflaugunum skotið. Þarna er líka lítið gluggalaust búr úr þykkum málmi. Það verður haft í 40 m fjarlægð frá eldflauginni og þar leita nokkrir menn skjóls, þegar skotið verður. — Það verður ekkert nýtt fyrir okkur, segir de Villepin, nýlega skutum við upp tveimur eldflaugum af þessari sömu gerð í Sahara fyrir Bandaríska vísinda- menn. En það er nýtt að standa í húsbyggingum. Höfðabrekkubærinn fluttur úr rokinu. Á leiðinni inn í Vík aftur lít um við inn hjá Ragnari bónda á Höfðabrekku. Eldflaugunum verður skotið upp í-hans landi, en nýlega mun þó hafa komið í ljós að austari skálarnir eru í landi Hjörleifshöfða og hef- ur Kjartan Leifur Magnússon, sem þar ræður landi, farið fram á greiðslu fyrir afnot af landinu. Við höfðum heyrt að gleymzt hefði að spyrja Ragn- ar um leyfi til að skjóta eld- flaugum í landi hans. Hann sagði það rétt vera að búið hefði verið að koma og mæla staðinn og segja frá því i Ragnar og Guðrún í Höfffabrekku við nýja húsið sitt, sem er í byggingu. blöðunum að þarna ætti að skjóta upp eldflaugum, áður en við hann var talað. En þá lét hann spyrjast fyrir um þetta, og áttuðu menn sig þá og sömdu við hann í snatri. Hann fór fram á 10 þús. kr. fyrir afnot af landinu í 3 mán- uði, og fékk það. — Það er bara eins gott að ekki blási meðan þeir eru að byggja þessi hús svona, sagði Ragnar og hann þekkir það. .— Hér koma slík ofsaveður. f fyrra fauk hjá mér hlaðan, hesthúsið og fjósið. Járnið barst langar leiðir og vatzt upp og steinsteyptir veggir hrundu. Það var við gamla bæinn uppi í brekkunni. Hann var á sínum tíma staðsettur þar vegna hættu af Kötluflóð- um. Eftir að fauk fluttum við bæinn niður fyrir brekkuna. Nú er Ragnar að byggja stórt og myndarlegt, nýtt stein hús við þjóðveginn undir fjall inu. Húsið er enn hálfbyggt, en þegar rafstöðin í gamla bænum bilaði, flutti fólkið inn í það. Og þar drekkum við kaffi hjá húsfreyju, Guðrúnu Gísladóttur. — Það var svo erfitt að búa þarna uppfrá og svo var alltaf rok, segir hún. Hér er bara skjól, aðeins smágustur af hálsinum. — Þið eruð ekkert hrædd við að flóð frá Kötlugosi nái hingað? — Eg held að aðstaðan hafi breytzt mjög segir Ragnar. Flóðið hefur nú greiðari að- gang fram í sjó. Hólarnir, sem voru helzta viðstaðan, eru horfnir. Annars hefur verið talað um að setja varnargarð hér rétt fyri austan, til að koma í veg fyrir að það geti komið liér með hlíðinni til Víkur. — Ætlarðu að byggja gripa hús líka hér niðurfrá? — Við höfum hér rétt hjá helli fyrir 400 f jár og þar get- ur verið heygeymsla að auki. Það þarf bara að laga hann svolítið til. Við ætlum okkur nú að vera trlbúin með íbúð- arhúsið fyrir veturinn. Það fást bara ekki hurðir, stendur líka bæði á smiðum og múrur um. — Bara verst að fá ekki rafmagnið. Eg var orðinn van- ur að raka mig með rafmagns vél, og nenni ekki að raka mig síðan ég missti það, segir Ragnar og strýkur sér um vangana. Hann hafði verið að rýja fé sitt alla nóttina og við vakið hann upp. — Látum vera þó þú getir ekki rakað þig, sagði hús- freyja. Mér þykir verra með þvottinn. Þetta eru nú bara 4 bæir eða 5 ábúendur hér f Mýrdalnum, sem ekki hafa fengið rafmagn til sín. Og við vonum enn að við, þessi 36 manns sem þar búum, verð- um ekki skilin ein eftir raf- magnslaus, sagði hún. Maður verður að lifa í voninni. Frakkarnir eru að koma í mat á hótelinu, þegar við stönzum þar og með þeim túlkurinn þeirra, íslenzkur piltur, sem er að læra dýra- lífeðlisfræði í París, Sigurður Helgasön að nafni. — Hann talar frönsku eins og innfæddur Frakki, kallar Lefevre til okkar. Og svo er þetta sjarmerandi strákur. Ég hugsa að hann sé eins hættu- legur stúlkunum hérna, og við. — E. Pá.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.