Morgunblaðið - 08.07.1964, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 08.07.1964, Blaðsíða 17
Miðvíkudagur 8. júlí 1964 MORCUNBLAÐIÐ 17 Hvanneyrarskóli 75 ára HINN 9. ágúst n. k. verður þess minnzt opinberlega, að bænda- ekólinn að Hvanneyri heíur starfað í 75 ár. Starfsemina hóf hann 1889 með 1 nemanda. 1‘ramhaldsnám í búfræði hófst við Skólann 1947 og má telja iþað fyrsta sporið til þróunar hans í tækniskóla og máske í háskóla í búvísindum að lokum. Sem meðlimur rannsóknar- ráðs ríkisins hef ég reynt að kynna mér þarfir atvinnulífsins fyrir tæknimenntun og mögu- leika á því að skólar fyrir slíka menntun rísi í landinu, þegar ástæður leyfa. Því heimsótti ég skólastjóra Hvanneyrarskóla sl. sumar og bitti að máli auk hans tvo kenn- era skólans og naut leiðsagnar þeirra við skoðun á aðstæðum Hvanneyrarskólans. Þegar stofnuð var stærðfræði- c’eild við Menntaskólann í Eeykjavík um 1920, þurfti að hressa upp á gamalt geymsluhús „fjósið“, til þess að fá æfinga- stofur í eðlis- og efnafræðum handa nemendum, Svipað átti sér stað á Hvann- eyri við upptöku framhaldsnáms- ins. Þá var leitað húsnæðis á heyloftinu yfir fjósinu, fyrir æfinga- og rannsóknastofur, og þar eru efnagreind yfir 1000 sýn ishorn á ári, sem skilað hafa markverðum upplýsingum við brðugar aðstæður. Þegar ég frétti hjá skóla- sljóra, að til stæði að hefja byggingu nýs skólahúss á H.vann- eyri, tók ég mig til í fyrrahaust cg hripaði niður tillöigur um framhald raunfræða- og tækni- menntunar á Hvanneyri. Þótt til- lögurnar kunni að þy'kja laus- legar, taldi ég ástæðu til að kynna þær fyrir iandbúnaðar- ráðherra og einnig menntamála- ráðherra, þar sem mér var kunn- ugt um að Tækniskóli íslands væri í uppsiglingu í höndum nefndar, sem nú hefur nýlega skilað ítarlegu áliti. En mig grunaði þó, að tillögur nefndar- innar mundu ekki snerta veru- 'lega þá hlið tæknimenntunar, sem ég hafði í huga, enda er það nú komið á daginn. Tækniskólanefndin hefur að vísu ek'ki tekið afstöðu til, hvaða sérgreinar skuli kenndar við skólann fyrst í stað, en „henni virðist þó einsætt, að fþótlega muni verða tekin upp kennsla í byggingarfræði, vél- fræði, rekstrarfræði, skipaby.gg- ingarfræði, rafmagnsfræði og fisktæknifræði“, eins og segir í éktinu. Ennfremur hefur hún valið skólanum verustað í bráða birgðahúsnæði í Sjómannaskóla- húsinu í Reykjavík, í tengslum Við Vélskólann. Af þessu er ljóst, að þeir þætt- ir atvinnulífsins, sem láta að efurðaframleiðslu til sveita og ejávar, efnaiðnaði á ýmsum svið- um og rannsóknarstarfsemi í cambandi við hverskyns efna- iðnað á ýmsum sviðum og rann- eóknastarfsemi í sambandi við hverskyns efnaiðnað, eru ebki meðal þeirra námsefna sem lagt er til að verði kennd í tækni- skóla á næstunni. Þetta stafar ekki af vanrækslu íiefndarinnar gagnvart efnaiðn- •ðinum, heldur af vanskipun sér- fræðinga í nefndina, því á það ber að líta, að greinir í efnaiðn- aði eiga lítið sem ekkert sam- merkt með þeim greinum tækni- nárns sem taldar voru upp hér að framan, úr áliti tækniskóla- nefndar. Með þeim greinum er aftur á móti sameiginlegt, að geta notast við samnám í fyrri hluta tæknináms, eins og segir í áiitinu. Afurðir, landbúnaðar- og sjávarútvegs, og margvísleg efnaframleiðsla, sem hér er stund uð (matmæla- og neyzluiðnað- ur, áburðar- og steinefnafram- leiðsla o.fl.), eru um margt svipaðri í námsefnum og af- siöðu en margur kann að hyggja við fyrstu athugun og því er æskilegt að þessar greinar haldi hópinn í tækniskóla, hliðstætt því, sem tækninefndin komst að raun um á öðrum sviðum. Þessu til staðfestingar má geta, að efnaverkfræði sker sig frá bygg- ingar- véla- og rafmagnsverk- fræði, en þær þrjá greinar verk- færði hafa aftur á móti sameig- inlegan fyrrihluta sbr. verkfræði deild háskólans. Æfingastofur i efnaver-kfræði eru allt annars eðlis en gerist í annari verk- fræði, og því er ekkert hagræði fyrir tækninám í efnafræði af aðstöðu Vélskólans í Reykjavík. A hinn bóginn eru æfingastof- ur Hvanneyrarskólans, sem ef- laust verða stækkaðar og auknar í hinu nýju skólahúsnæði, af rétta taginu og tiltækilegar fyr- Jr væntanlegt tækninám í efna- fræði, ef fyrirvari er hafður um slíkt nám á Hvanneyri. Efnagreiningar lífrænna og óiífrænna efna eru undirstöðu- atriði í efnatækni- sem verk- fræðinámi. Auk þess þarf vinnu- pláss til æfinga í svonefndri flokkaðri tækni (unit oper- ations) og til tilrauna í aðal- greinum atvinnuveganna, eftir því sem ástæður leyfa. Ég vil taka það fram, að enda þótt I annsóknastofum atvinnuveg- anna í Reykjavík sé sífellt að bætast rannsóknartæki eru stofn anirnar ekki sniðnar fyrir skóla- nám, en geta hinsvegar látið í té æfingaaðstöðu við ýmsa sér- tækni, þegar nemendur koma frá skólanámi oig eru undir slí'kt búnir. Þau tímamót eru nú í Hvann- eyrarskólanum, að ekki verður komizt hjá að ríkisvaldið geri upp við sig, hvort skólinn eigi áfram að vera eingöngu bænda- skóli og búfræðií’ga, eða skuli táka að sér ný viðfangsefni í ná- inni framtíð. Skólinn kennir nú bændaefn- um búnaðarfræði í 2 vetur og síðan búfræðikandidötum í íramhaldsdeild aðra 2 vetur, eft- ir sérnám við Menntaskólann á Akureyri í tungumálum og srærðfræði. I bændaskólanum voru 1983, 52 nemendur, en í framhalds- deild 8. Kennarar voru 10, auk skólastjóra og er það allhá tala á svo fáa nemendur. Ef aðstæður leyfðu gætu kennslukraftar nýtzt nun betur, með víðtækara tækninámi í skilum greinum. Mitt álit er það, að tækninám í efnaiðnaði mundi laða að skól- anum 10 til lö nemendur árlega, að auki, eða 30 til 45 nemendur í þriggja ára námi. Yrði einnig horfið að því að gera skólann að gagnfræðaskóla raungreina, sena hann hefði allra skóla bezt skilyrði til að ann- ast, mundi enn fjölga nemend- um við skólann. í áliti tækniskólanefndarinnar er gert ráð fyrir', til bráðabirgða, að undirbúningsdeild taki við af venjulegum gagnfræðaskóla. Þetta lengir tækninámið enn eitt ár (2 misseri) og er því brýn nauðsyn að stofna gagnfræða- skóla raungreina sem allra fyrst, sem veita inngöngu beint í tækni skóla af hvaða tagi sem er. Fjölþætti náms í nýjum Hvanneyrarskóla yrði mögulagt með breyttu kennslufyrirkœau- lagi, eftir tillögu sem ég setti emnig fram í greinagerðinni til skólastjórans sl. haust. Auk þeirra atriða sem nefnd hafa verið, er aðstaða til tækni- skólahalds á Hvanneyri hin ákjósanlegasta vegna staðsetn- ingar, ef heimavistarskóli telst hentugur í þeim efnum. Verk- legu undirstöðunámi má kynnast í mjólkurbúi á Selfossi, iðnfyrir- tækjum, fiskvinnslustöðvum og_ rar.nsóknastofum í Reykjavík og a Akranesi (hvalstöð í Hval- firði), og mjólkurbúinu í Borgar- nesi og Blönduósi, en þessir Kristján Andrésson KRISTJÁN Andrésson var fædd- ur að Ingjaldshóli á Snæfellsnesi hinn 5. október 1896. Foreldrar hans voru Andrés Kristjánsson bóndi þar, og kona hans Margrét Sigurðardóttir. Þar ólst hann upp til átta ára aldurs, að faðir hans andaðist. Þá fór hann í fóstur til frú Ágústu Ólafsson í Stykkishólmi. Eftir fermingu fór Kristján sem lærlingur í Lyfjabúð Stykkis hólms, og mun það hafa verið ásetningur hans að verða lyfja- fxæðingur. En þegar að hann var búinn að læra undir fyrrihluta prófs veiktist lyfsalinn, og seldi eignir sínar í Sty'kkishólmi og fiutti til Kaupmannahafnar. Þar með hætti Kristján störfum í Stykkishólmi. Árið 1918 fluttist Kristján til ísafjarðar og gerðist verzlunar- nxaður hjá Þórði Kristinssyni, sem þá hafði umsvifamikla verzlun á ísafirði. Þegar Þói'ður hætti störfum á ísafirði, fluttist Kristján til Reykjavíkur. Árið 1921 fluttist Kristján til Kaupmannahafar og stundáði þar verzlunárstörf. Þegar Krist- iján fluttist til Ísílands (1927) stofnaði hann matvöruverzlun í Reykjavík og rak hana fram yfir 1930. Þá voru erfið ár fyrir kaup- rnenn og reyndar landslýg allan, svonefnd kreppuár. Lánsverzlun var þá í miklum blóma, sérstak- lega hjá matvörukatxpmönnum, s'/okölluð mánaðarviðskipti. En oftast var það svo um mánaða- mót að pyngjan var létt, og lítið til að gi'eiða með. Kristján mun ekki hafa spunnið gull á verzlun- inni, hann hætti að höndla upp ur 1930. Þegar kom að því að leggja hitaveitu Reykjavíkur réðst hann til Höjgaard og Schultz, (verkfræðinga firma frá Dan- mörku) og gerðist þar gjaldkeri. Hann starfaði hjá þessu fyrir- tæki, þar til það hætti störfum á íslandi. Þegar störfum Ki'ist- jéns lauk hjá félaiginu, færði forstjórinn honum væna peninga fúlgu að gjöf, einnig færði hann honum skrautritað skjal, með þckk fyrir vel og samviskusam- lega unnin störf. Kristjáni þótti að vonum vænt um féð, en vænna þótti honum um heiðursskjalið, og svo myndi fleirum farið hafa. Nok'kru eftir að Kristján hætti störfum við hitaveituna gerðist hann ski-ifstofustjóri hjá „Ölgerð- in Egill Skallagrímsson“, og stai-faði þar meðan heiisan éntist. Kristján mun ekki' síður hafa stundað starf sitt vel þar en annarsstaðar. Það sagði hann mér að annar eins húsbóndi og Tómas Tómasson væri vand- — Þvi dæmist . . . Framh. af bls. 8 milli þess tímabils, er ákærði vann einn í rakarastofu sinni og er hann hafði Guðjón Mýrdal í þjónustu sinni. Leitað var ti’ ýmissa aðila og þeir beðnir að láta uppi álit sitt um framangreint efrxi. Iðnráð Reykjavíkur sagði í umsögn sinni, að „ekki verði um deilt, að hér sé um iðnrekstur að ræða“ og sé um að ræða „ský laust brot á iðnlöggjöfinni.“ .Dómurinn taldi þó mörg atriði styðja aðra niðurstöðu að því er snertir tímabilið, er ákærði vann einn, m.a. umsögn stjórnar Landssambands iðnaðarmanna, ummæli á Alþingi, er umrædd lög voru sett, svo og orðalag lagagreinanna en Það benti til þess, að þær ættu fyrst og fremst við það, er fleiri en einn maður vinna að iðnaði, en ekki við það, er aðeins einn maður starfar að honum. Niðurstaðan varð því sú, að dómurinn taldi ekki vera næg rök til að telja, að ákæx-ði hefði með starfrækslu rakarastofu sinn ar einn síns xiðs gerzt sekur um brot gegn lagagreinúm þeim, sem ákært var fyrir. Að því er snertir það tímabil, er Guðjón Mýrdal vann hjá á- kærða segir svo í forsendum að dómi saiííidóms. „Guðjón Mýrdal hafði ekki fengið útgefið meistarabréf í rak araiðn, áður en eða meðan hann starfaði hjá ákærða, liklega frá maí til nóvember 1961 og var ákserða kunnugt um það, að slaðir eru allir nálægir, ef skól- inn þarf á að halda. Af framangreindum ástæðum taldi ég tímabært að vekja máls á þessari hlig tæknináms hér á landi, sem að minni hyggju má ekki sitja á hakanum um áókveð- inn tíma, né heldur má láta hentug færi sér úr greipum ganga ,eins og stækkun Hvann- evrarskólans verður að teljast. Það er góður og gegn siður að marka þýðingarmi'kil framtíðar- og framfaraspor, við hátíðleg tækifæri, og 75 ára afrnæli Hvanneyrarskólans er vissulega e:tt þeirra. Ásgeir Þorsteinsson. fundinn, enda munu milli þeirra hafa myndast þau vináttubönd, sem entust meðan Kristjáns naut við. Kristján var fríður maður sýnum en frekar smávaxinn. Hann var prýðilegum gáfum gæddur, hnittinn í orðum, spak- rnæli og orðskviðir hrutu hon- um áf vörum í glöðum hóp, og nxunu kunningar hans og vinir riuna þau enn um skeið. Kristján var hógvær og mjög dagfarsprúður, svo orð var á gert. Kristján var það sem kallað er veizluglaður maður. Kristján átti við mikla van- heilsu að búa síðustu árin sem sem hann lifði, en tók því mót- læti með stóiskri ró, og æðraðist aldrei. Hann giftist aldrei, og andaðist að Vífilstöðum hinn 30. júní og er til moldar borin í dag. Með þökk fyrir vinsemd og glaðar stundir um 4ð ára skeið. í Guðs friði. Torfi H. Halldórsson. hann hafði ekki slíkt bréf, þegar lögreglan yfirheyrði ákærða 12. júlí sama ár. Ákærði hafði ekki meistararéttindi í iðn sinni og var honum því óheimilit að ráða Guðjón Mýrdal til sín og hafa hann í starfi á rakarastofu sinni. Varðar sú háttsemi ákærða við 14. gr. laga nr- 18, 1927 um iðju og iðnað, sbr- 2. gr. 1. mgr. laga nr. 105, 1936. Hinsvegar réð ákærði Guðjón Mýrdal til sín að því er ætla verður eingöngu vegna framkom innar kæru a hendur honum fyrir að starfxækja rakarastofu án meistararéttinda og taldi hann að úr því væri bætt með ráðn- ingu Guðjóns Mýrdals, þar eð ha.nn væri raKarameistari. Hafði ákærði og réttmæta ástæðu til að ætla að svo væri, enda virð- ist Guðjón Valtýsson hafa sjálf- ur verið sannfærður um það, að hann væri fuilgildur rakarameist ari og það hafði heldur aldrei verið véfengt, svo vitað sé, fyrr en eftir að hann réðst til ákærða. Einnig má telja upplýst, að Guð- jón Mýrdal hafði ótvíi'æðan rétt til þess að fá meistarabréf í rak- araiðn og gat ákæi'ði því vænzt Þess, að hann fengi útgefið slíkt bréf þá og þegar, eftir að hann hafði sótt um það.“ Samkvæmt ofansögðu og með hliðsjón af málavöxtum öllum og með heimiid í hegningai'lög- um var ákveðið, að refsing á hendur ákærða fyrir þessa hátt- serni skyldi felld niður. Þá var ákærði og dæmur skýkn af kröf- um ákæruvaldsins um sviptingu iðni'éttinda. Svo sem fyrr segir var dómur þessi staðfestiir í Hæstarétti.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.