Morgunblaðið - 23.07.1964, Page 3

Morgunblaðið - 23.07.1964, Page 3
MORCUNBLAÐIÐ 3 Fimmtudagur 23. júli 1964 niiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimr I niiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiui g JÓN SIGURBJÖRNSSON, H leikari, fór sem kunnugt er = til Svíþjóðar um síðastliðin = áramót, þar sem hann var ráð = inn til að syngja við Stokk- H hólmsóperuna um eins og = hálfs árs skeið. Fékk hann E prýðilega dóma fyrir söng = sixm í norskum blöðum. Jón M hefur verið hér heima í nokkr g ar vikur í sumarleyfi, en er nú B á förum aftur til Stokkhólms. IKona Jóns, Þóra Friðriksdótt- ir, leikkona, og ung dóttir j§ þeirra hjóna munu fara utan p skömmu siðar. Morgunblaðið g átti samtal við Jón í gær og H spurði hann um Svíþjóðar- E dvölina. — Ég kann alveg prýðilega B við mi|g í Stokkhólmi, sagði = Jón. Ég hafði aldrei komið {§ þangað fyrr en í haust. Mér g leið afskaplega vel í vetur. = nema auðvitað það að Þóra = var að leika á íslandi og gat = ekki komið út fyrr en seint. g Hún var hjá mér í tvo mán- = uði, en varð svo að fara aftur = heim til að æfa Ærsladraug- = inn. — Hvernig bar þag til, að M þú réðist til Stokkhóimsóper- S unnar? Þóra og Jón ásamt Láru dóttur sinni, 7 ára. Líkar vel við Stokkhólmsóperuna Samtal við Jón Sigurbjörnsson — Ég söng í H Trovatore hér 1 Þjóðleikhúsinu í fyrra- vor. Bæði leikstjórinn, Lars Runsten ,og prímadonnan voru sænsk. Runsten var þá starfandi leikstjóri við Stokk- hólmsóperuna og hann kom því til leiðar, að ég fór til Stokkhólms í haust,þar sem ég var prófaður og síðan gerð- ur við mig fastur samningur frá síðustu áramótum og til 1. júlí, 1965. — Hvaða hlutverk hefur þú sungið í vetur? — Ég hóf starfið 20. janú- ar og söng leigumorðingjann, Sparafugile í Rigoletto. Söng é|g hann af og til í vetur ásamt hlutverkum í tveimur öðrum Verdi óperum, Aida og Grímu ballinu. í Aida hafði ég hlut- verk æðsta prestsins, Ramfis. Síðast söng ég í • Rakaranum í Sevilla, hlutverk Don Basili- os, hið sama og ég hafði í Þjóðleikhúsinu hér um árið. Það er sérstaklega skemmti- legt 'hlutverk bæði í söng og leik. — Söngstu yfirleitt á ítölsku eða sænsku? — Allar óperurnar eftir ára mót voru sungnar á sænsku nema Rigoletto. Ég varð dá- lítið hvumsa við, því að ég = hafði aldrei svo mikið sem || talað sænsku fyrr en ég kom || út. Ég hafði alltaf notast við || þessa alræmdu skandinavisku. = Manni vefst svolítið tunga um g tönn í byrjun og það kemur g fram á röddinni. Framburður = er svo gífurlegt atriði í söng. = Ég veit að þetta háði mér, að M minnsta kosti framan af. Hins M vegar lætur sænska afar vel í 5 eyrum í söng eins og reyndar s íslenzka líka. — Hvernig líkar __ þér við 1 samstarfsfólkið hjá Óperunni? 2 — Mjög vel. Fólkið er ljúft = og gott. — Hefur þú hug á ag vera ^ áfram •' Svíþjóð? — Það er erfitt að segja um g það og margs að gæta. í vetur = hafði ég nóg að gera og fékk £ góð hlutverk, svo að ég hef M engan hug á að hætta, þar sem § ég kann auk þess svo vel við = mig í Stokkhólmi. Hins vegar s er þetta óþægilegt fyrir okkur, = þegar Þóra er ag leika hér § heima. Það er engan veginn § gott að við skulum þurfa að s fylgja söng- og leiklistarbraut 1 sitt í hvoru landinu. — Hvag hefur þú haft fyrir 1 stafni hér heima í fríinu? = — Það er nú fremur lítið. M Þó hef ég sungið nokkrum M sinnum, aðallega úti um land. M Ég söng með félögum mín- M um frá því í fyrra, Farand- M söngvurunum, í Borgarnesi = síðastliðinn fimmtudag. Fólk- = ið tók okkur svo dásamlega = að nærri lá að maður kæmist M við. í kvöld ætlum við að ji halda hljómleika að Flúðum. M Auk mín eru Farandsöngvar- M arnir Svala Nielsen, Sigur- M veig Hjaltested og Erlingur 2 Vigfússon. Ragnar Björnsson 2 leikur undir á píanóið. Við = ferðuðumst um allt land í = fyrra við frábærar móttökur S en enga aðsókn, að minnsta M kosti víðast hvar. — Hvenær farið þið utan? 1 — Ég fer á sunnudag, en M Þóra er ennþá að leika í M Ærsladraugnum, svo að þær M mæðgurnar komast ekki fyrr s en síðar. Erfitt er ag fá hús- § næði í Stokkhólmi, en ég get = unnið að því með aðstoð Óper = unnar að útvega okkur íbúð M áður en þær koma. .........................................................................................................................................................................................................................................................iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiniiiiiiiF Amerlkur'ikin Framhald af bls. li dag fimm manna far, töluvert búið vopnum, nærri Sugar Loaf Key, nokkru norðan við Key West. í bátnum voru fjórir kúb- anskir útlagar o.g einn banda- rískur ljósmyndari. Af vopnura voru m.a. í bátnum tyilft riffla, heimagerðar sprengjur, hand- eprengjur og lítil fallbyssa og mikið af skotfærum. Þetta er í annað sinn á þrem dögum, sem Bandaríkjamenn hafa hendur á vopnuðum bátum á leið til Kúbu Hinn fyrri hafði meðferðis fjór- ar sprengjur. Var sá tekinn nærri Palm Beach á sunnudag. Bkki var búið að bera fram kærur þegar síðast fréttist. Það er lögbrot í Bandaríkjunum sé þaðan lagt upp tii árásar á erlent ríki og varðar brotið 5.000 dala sekt eða fimm ára fangelsi. Oswaldo Dortioos, forseti Kúbu tilkynnti í dag að hann hefði tek- ið að sér embætti fjármálaráð- herra. í tilkynningu stjómarinn- ar sagði að Regino Boti, fyrr- verandi fjármálaráðherra heifði verið „leystur frá“ störfum og mýndi falið anrxað embætti. Eng- «r útskýringar voru gefnar fyrir embættistöku Dorticos. Þetta er í annað sinn, sem snögg umskipti verða í embættum fjármála- tnanna á Kúbu í þessum mánuði. Hið fyrra sinnið var utanríkis- verzlunarmálaráðherrann, Aiber- to Mora, „leystux frá” störfum en við tók Marcei Fernández, sem var bankastjóri kubanska Þjóð- bankans. Embættistaka Fernán- dez var ekki útskýrð nánar. Óvenju fáir nýir bílar bíða nú þess að verða skráðir og teknir í notkun. _____Ljósm. Sv. Þ. Bílainnflutningur minni en í fyrra INNFLUTNINGUR bíla mun I það, sem af er þessu ári, vera 1 nokkru minni en var í fyrra. ! Blaðið getur þó ekki fært ná- ' kvæmar tölur því til söhnunar. i Bifreiðaaukning í fyrra var 3731 j bifreið, en nokkur hundruð bíl- ar munu á því ári hafa fallið úr notkun vegna elli, eyðilegg- ingar og ónytja. Varlega mun áætlað að innfluttir bílar hafi í fyrra verið rúm 4 þúsund. I Eftir því sem næst verður kom • izt með athugun hjá skipafélög- unum hafa verið fluttir til lands ins fram til þessa dags 1879 bílar frá áramótum. Fyrstu 6 mánuði ársins voru skrásettir 1652 nýir bílar hjá bifreiðaeftirlitinu hér í Reykjavík, en nokkrir munu hafa verið slcráðir utan Reykja- víkur, en þeir eru mjög fáir. Yfirleitt er bílainnflutningur mestur fyrri hluta ársins eða á vorin og framan af sumri. Ekki er gert ráð fyrir að bílainnflutn- ingur verði, síðari hluta ársins, eins mikill og fram til þessa. Því mun bílainnflutningur nú að öllum líkindum verða nokkru minni en í fyrra. — Viet-Nam Framhald af bls 1 sagði að þetta hefði verig óskap- legt á að horfa. „Ég ætlaði ekki að trúa mínum eigin augum,“ sagði hann. „Fyrst sást ekkert annað en grænn igróðurinn og vatnið og herflokkar stjórnar- innar, sem brutust hægt í gegn- um þetta. Allt í einu þustu um 400 svartklæddir hermenn þama út úr þykkninu og lögðu til at- iögu. Þetta skeði allt í einni svip an.“ Orrustan stóð í stundarfjór? ung eða þar um bil og mannfa stjórnarinnar var mjög mikið. STAKSTEINAR Undirstaða framfara Menntun er bezta fjárfestingin, sagSi Benjamin Franklin, visind- in efla alla dáð, kvað Jónas, og gamall orðskviður segir, að meira vinni vit en strit. Allt þetta er rétt að hafa í huga, þeg- ar fjallað er um menntun og skóla á íslandi. Einn höfuðþáttur hagsældar og velmegunar er taekniþekking. Hlutur hennar í efnahagslífinu vex með aukinni þróun. Of lengi hefur sú staðreynd verið snið- gengin í íslenzku þjóðfélagi, að bókvitið verður vissulega látið i askana. Að framtíð þjóðarinnar stendur og fellur með menntun þegnanna og tækniþekkingu. Það ber því að fagna stofnun hins ís- lenzka tækniskóla, sem í fram- tíðinni á eftir að sjá atvinnuveg- unum fyrir dugmiklum starfs- kröftum. Það má þó ekki einblína á slíka tæknimenntun, sem skólum er ætlað að veita. Aukin almenn menntun og ekki sízt æðri mennt un er ekki síður undirstaða fram- fara og menningar. Hinn íslenzki tækniskóli Dagblaðið Vísir ritar í fyrra- dag forustugrein um hinn ný- stofnaða íslenzka tækniskóla. — Greinin er á þessa Ieið: „Stofnun hins íslenzka Tækni- skóla er mikill og merkur áfangi í íslenzkum menntamálum. Mátti vissulega ekki lengur dragast úr hömlu að koma þessari mennta- stofnun á laggirnar. Sá timi kem- ur senn, að erfiðisvinnan verður útlæg ger úr þjóðfélaginu. Tækn- in tekur við og leysir svitann og stritið af hólmi. Þessi þróun er þegar mjög langt komin I nálæg- um iðnaðarríkjum. Hér hlýtur hún að verða hraðari og hraðari með hverju árinu sem líður. En undirstöðuna, stóran hóp tækni- menntaðra manna á öllum svið- um atvinnulífsins hefir enn skort. Eftir er að brúa bilið milli verk- fræðingsins og erfiðisvinnumanns ins. f því efni er stofnun Tækni- skólans höfuðáfangi. En ekki er síður nauðsynlegt að breyta öðru framhaldsnámi í samræmi við kröfur tækniþjóðfélagsins. Menntaskólanámið má ekki leng- ur vera einungis undirbúningur undir embættisbrautina. Þar þarf að Ieggja aukna áherzlu á tækni- mennt og samhæfa það framhalds námi í tækniskólum. Að þeim breytingum verður að vínda bráð an bug. ísland á fátt auðlinda. Ein hin mikilvægasta er þekking og kunnátta þegnanna“. Nýtt met Smádálkahöfundi kommúnista- málgagnsins, sem gengur undir nafninu Austri, virðist ekkert heilagt, nema þegar til tíðinda dregur úr þeirri átt, sem hann kennir sig við. Hann hefur undanfarið staðið í orðaskiptum við sjálfan sig um það, hversu góður „húmoristi" hann sé. f pistlum hans í gær get- ur að líta ágætt dæmi um þann „húmor“, sem hann hefur til- einkað sér og beri af öðru af því tagi, að eigin sögn. Austri hefur með pistli sínum í gær unnið eftirminnilegan sig- ur. Hann hefur sett nýtt met í „húmor". Altarisgöngu kristinna manna líkir hann við mannát svertingja og segir: „Mörgum veitist erfitt að skilja, hvernig þjóðkirkjan getur fengið það af sér á miðri 20. öld að bjóða mönnum upp á að drekka „blóð Krists“ og snæða „líkama“ hans, enda þótt mannætuþjóðir hafi fyrir löngu haft þann hátt á að éta höfðingja sína og guði. En séu í rauninni til menn, sem sækja andlegan styrk í jafn myrk ar helgiathafnir og eftirlíkingu á kannibalisma, hlýtur sú sér- stæða og ógeðfellda guðsdýrkun að eiga að fara fram í launhelg- um og kyrrþey“.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.