Morgunblaðið - 23.07.1964, Síða 8
8
MORCU N BLAÐIÐ
Fimmtudagtir 23. júlí 1964
Þjóðhátíðin í Eyjum
hefst 7. ágúst
*
Flugfélag Islands tekur upp sérstök
þ j óðhátíðarf arg j öld
HIN árlega þjóðhátíð í Vest-
<* niannaeyjum hefst að þessu sinni
föstudaginn 7. ágúst í Herjólfs-
dal.
Vel verður vandað til dagskrár
þjóðhátíðarinnar að venju, Guð-
laugur Gíslason, alþingis.maður,
setur hátíðina kl. 14:00 á föstu-
dag, en síðan fer fram guðsþjón-
usta. Séra Þorsteinn L. Jónsson
prédikar .Þá leikur Lúðrasveit
Vestmannaeyja undir stjórn Odd
geirs Kristjánssonar, kvennakór
syngur, fram fer keppni í frjáls-
uí» íþróttum og tvöfaldur kvart-
ett skemmtir. f>á fara fram kapp
leikir í knattspyrnu og hand-
botta kvenna og sýnt verður
bjargsig. Á sama tíma og kapp-
leikirnir fara fram, verður á öðr
um stað í Herjólfsdal skemmtun
fyrir börnin, sérstakur barr 'mi
"*og barnadansleikur.
„Frjálst er í fjallasal**
K.1. 20:30 hefst kvöldvaka,
„Frjálst er í fjallasal“. Á kvöld-
vökunni verður margt til
skemmtunar, m.a. leikur Lúðra-
sveit Vestmannaeyja, skemmti-
þc'ttur eftir Ása í Bæ, tvöfaldur
kvartett úr samkór Vestmanna-
eyja skemmtir, gamanþáttur eft-
ir Loft Magnússon o,g leikararnir
Rúrik og Róbert hafa uppi gaman
mál. Þá verður fluttur stuttur
ieikþáttur eftir Arnar Einarsson
og nokkrir þjóðkunnir menn á-
varpa þjóðhátíðargesti fyrir til-
stilli Jóns Gunnlaugssonar.
Dans hefst á báðum pöllunum
kl. 23:00 og leikur Gosa-kvartett-
inn nýju lögin, en fyrir gömlu
tíönsunum leikur Rondo-tríó. Há
punktur kvöldsins, verður brenn
an á Fjósakletti og flugeldasýn-
ing ,sem hefst á miðnaetti.
Veitingar verða seldar alla
nóttina.
Á öðrum degi hátíðarinnar,
laugardaginn 8. ágúst, hefst dag-
skráin í Herjólfsdal kl. 16:00, með
leið lúðrasveitarinnar, en síðar
flytur Dr. Richard Beck ræðu.
Síðan hefjast skemmtiatriðin
hvert af öðru og verður breytt
dtagskrá frá því daginn áður.
Sama máli gegnir einnig um
kvöldvökuna, sem hefst kl. 22:30.
Dansinn hefst eins og fyrra kvöld
íð kl. 23:00 og þá hefst einnig
varðeldur skáta.
Þjóðhátiðin í Vestmannaeyjum
90 ára
Nú eru liðin níutíu ár frá þjóð-
hátíðarárinu 1874, og flest ár síð-
sn hafa Vestmannaeyingar hald-
ið sína þjóðhátíð ,sem fyrir löngu
er orðin fastur liður í lífi fólks-
ins í Eyjum.
Sá maður sem margir þjóðhá-
tíðargestir munu minnast, og sem
verið hefir kynnir á hátíðinni í
næstum því mannsaldur, er Ste-
íán Árnason, lögregluþjónn. Ste-
fán verður enn kynnir á þjóðhá-
tíðinni nú í sumar og er það
fertugasta og þriðja þjóðhátíðin,
sem hann gegnir þvi virðingar-
starfi.
íþróttafélögin í Vestmannaeyj-
um, Þór og Týr, hafa í mörg und
anfarin ár séð um allan undirbún
ing þjóðhátíðanna, sem er að
sjálfsögðu geysimikig starf. f ár
er það Þór, sem sér um þjóðhá-
tiðina.
í tilefni þjóðhátíðarinnar, hefir
Flugfélag fslands ákveðið að taka
upp sérstök ódýr þjóðhátíðarfar-
gjöld frá Reykjavík og kosta þau
kr. 705.— báðar leiðir. Skilyrði
f.vrir þjóðhátíðarfargjaldinu er,
að fólk kaupi um leið aðgöngu-
miða að þjóðhátíðarsvæðinu, en
þeir eru seldir í afgreiðslu Fiug-
félags íslands.
Dagana fyrir þjóðhátíðina og
meðan hún stendur, munu flug-
vélar Flugfélagsins fljúga til og
frá Eyjum eftir þörfum, þannig
NYKOMIÐ
VILLEROY & BOCH BADSETT
v.
Villeroy & Boch er ein elzta og stærsta verksmiðja á sínu sviði
í Þýzkalandi, með 200 ára reynslu að baki.
-j< Vörum frá þeim er óhœtt að treysta
Handlaugar í ýmsum stærðum, gerðum og litum,
með fæti eða án.
Klosett
Kaldv/ei baðkör
í ýmsum litum og setur í sömu litum.
í litum.
Gólfmósaik (V. & B.) í úrvali.
-X Kynnið yður vöru og verð sem fyrst
H. BENEDIKTSSON hf.
Suðurlandsbraut 4. — Reykjavík. — Sími 38300.
að enginn þurfi að bíða, en fólki
er ráðlagt að panta sæti tíman-
lega, vegna mikillar aðsóknar.
Um þjóðhátíðina í fyrra flugu
fiugvélar félagsins á klukkustund
ar fresti til Eyja, meðan aðalflutn
ingarnir stóðu yfir og á svipaðan
hátt mun fluginu þangað verða
hagað í ár.
L. R. á Akureyri
Akureyri, 21. júlí: —
LEIKFÉLAG Reykjavíkur hefir
nú sýnt sjónleikinn „Sunnudag-
þrisvar við ágætar viðtökur á-
ur í New York“ á Akureyri
horfenda, sem hafa skemmt sér
hið bezta. Leikendur eru sex, en
leikstjóri Helgi Skúlason, for-
maður L. R.
Næst verður leikurinn sýndur
í Skjólbrekku í Mývatnssveit, þá
í Húsavík og Skúlaskeiði og sið-
an víðar á Norðausturlandi og
Austfjörðum allt til Hornafjarð-
ar. Leikförinni lýkur 3. ágúst.
— Sverrir.
Dr. Steingrímur J. ÞorsteinssoB,
Sótti róðsteinu háskólokennora
í Norðurlandabókmenntam
DR. STEINGRÍMUR J. Þor-
steinsson, prófetssor, er nýkom-
inn til landsins etftir að hafa tek
ið þátt í fimmtu alþj óðaráð-
stefnu háskólakennara í Norður
landabókmenntum, sem að
þessu sinni var haldin við Lund-
únalháskóla, og stóð taepa viku
fyrrihluta júlimánaðar.
Þátttakendur á ráðstefnunni
voru um 70 talsins frá 25 há-
skólum í 14 löndum, þar sem
Norðurlandafræði etru kennd.
Voru 15 fyrirlestrar haldnir um
bókmenntaáhrif, og að þeim lokn
um voru umræður auk sér-
stakra umræðufunda. Dr. Stein-
grímur fiutti þar fyrirlestur um
þjóðsagnaleikrit Jóhanns Sigur-
jónssonar, Fjalla-Ey vind og
Galdra-Loft.
Forseti ráðstefnunnar var
Hume Smith, kunnur prófessor
við London University College,
og ritari Peter G. Foote, sean ís-
lendingum er að góðu kunnur
og er staddur hérlendis um þes«
ar mundir.
Dr. Steingrímur sagði í stuttu
samtali við blaðið í gær, að ráð-
stefnan hefði verið afar voi
skipulögð og ein alira bezta ráð
stefna, sem hann hefði sótt.
Slikar ráðstefnur eru haldnar
á tveggja ára fresti og fjalla ein
vörðungu um Norðurlandabók-
menntir frá aíðari ölduna.
Þegar er hafinn undirbúningur
tveggja næstu ráðstefna, er
haldnar verða í Svíþjóð og
Tékkóslóvakíu. Ráðstefnan i
Svíþjóð fjallar um tengsl bók-
mennta, tónlistar og málaralist-
ar.
Að lokum sagði dr. Stein-
grímur, að fulltrúar á ráðstefn-
unni hefðu eirikum spurt sig um
handritamálið og væntanleg
störf Handritastofnunar íslanda
og um hagi dr. Sigurðar Nor-
dals.
íslendingur hlýtur ágæt-
iseinkunn i lyfjafræði
í Kaupmannahöfn
I NÝÚTKOMNU hefti af danska
lyfjafræðitímaritinu „Farmaceu-
tisk Tidende“ er frá því skýrt, að
íslendingur, Guðmundur Brynj-
ar Steinsson, hafi hlotið 1. ágætis
einkunn við burtfararpróf frá
lyfjafræðiháskólanum í Kaup-
mannahöfn nú um síðustu mán-
aðamót. Var hann einn af aðeins
þremur, sem svo frábærlega
stóðu sig, en alls luku 89 stúdent
ar prófi frá skólanum að þessu
sinni. Þess er sérstaklega getið I
fréttinni, að Guðmundur sé fyrsti
íslendingurinn, sem hlýtur ágætis
einkunn við lyfjafræðiháskólann.
Þar stunda nú nám allmargir ís-
lenzkir stúdentar.
í fréttinni er einnig tekið fram,
að Guðmundur hafi hlotið verð-
laun úr sjóði Niels Schack Aag-
aards lyfsala, og verið sæmdur
minnispeningi H. C. Örsteds fyrir
námsafrek sitt.
DýrmætSr dagar
til heyskapar
Lagarfelli, 19. júlí.
í DAG mun hafa verið jafn-
heitasti dagur sumarsins. Hitinn
mun hafa farið í 25 stig. Þetta
er fjórði landáttardagurinn í röð
hér á Fljótsdalshéraði, hæg suð-
vestan gola, sólskin lengst af, að-
eins þánir sums staðar á himni,
en mikið mistur. Dýrmætir dag-
ar til heyskapar, enda mikið hey
þurrkað. Og allur gróður vex
með hraða, því að jörð var nægi-
lega rök fyrir.
Kartöflugrösin hafa tekið við-
bragð og margfaldazt sums stað-
ar, enda skammt komin áður.
Ég var að skoða kornakur, sem
þrír bændur eiga í félagi í landi
Ekkjufellssels. Þar er Floyabygg.
Það er vel skriðið, vöxtur góð-
ur. Floyabygg á þessu stigi 19.
júlí er nokkuð öruggt til þrosk-
unar í september, ef tíð verður
meðalhagstæð eða betur. Ea
það er síðsumarið, ágúst-septem-
ber, sem mestu ræður um kora-
þroskann.
Nýbúið er að smala og rýja
féð frá Skriðuklaustri inn í Rana,
Margir eiga enn eftir að rýja
fé hér um slóðir, en úr þessu
ætti það ekki að dragast að ráði.
Annars er það mín reynsla að
heppilegasti tími að rýja lamb-
ær, sé um miðjan júlí. Sauðfé
höfum við meðal annars til að
framleiða ull. Þessir dásamlegu
dagar nú minna á sumarið 1953
hér á Fljótsdalshéraði — en þá
var bezti júlímánuður, sem ég
hefi lifað. — Og nú á FljótsdaU-
hérað inni góða sumartíð.