Morgunblaðið - 29.07.1964, Qupperneq 1
24 síður
51. árgangur
175. tbl. — Miðvikudagur 29. júlí 1964
Prentsmiðja Morgunblaðslm
Hrefna sekkur undan Stapa
ÞESSA sérstæðu mynd tók einn af skipverjunum á Gylfa, Einar Eyjólfsson, þegar Hrefna RE-81 var
að sökkva í fyrrakvöld un»20 sjómílur undan Stapa, eins og skýrt var frá í Morgunblaðinu í gær.
Hrefna sökk kl. 22.45 um kvöldið og er myndin tekin skömmu áður. Gylfi hefur verið á humarveiðum
á þessum slóðum, en hélt í gærkvöldi af miðunum heim til ísafjarðar. Mbl. tókst að ná myndinni í
Jand með góðri aðstoð skipstjórans á Gylfa, Ólafs Halldórssonar, sem korn filmunni á hvalbát, sem
átti leið um. — Sjá ennfremur fleiri myndir á bls. 3 í blaðinu í dag, en þar er m.a. sýnt, þegar skip-
verjar á Höfrungi bjarga skipbrotsmönnum af Hrefnu um borð í skip sitt úr gúmmbáti.
Geimfari skotið frá U.S.A.
áleiðis til tunglsins
Kennedyhöfða, 28. júlí (NTB)
BANDARÍSKA tunglfarinu
„Ranger 7“ var skotið á loft
frá Kennedyhöfða í dag. —
Fregnir herma, að geimskotið
hafi gengið að óskum. Megin-
tilgangur tilraunarinnar er að
ná myndum af yfirborði
tunglsins, en ekki verður vit-
að fyrr en á föstudag hvort
það heppnast.
Bandaríkjamenn hafa gert
tólf tilraunir til þess að hitta
tunglið og ná myndum af því,
en þær hafa allar mistekizt.
Fari svo með þá þrettándu
óttast vísindamenn, að ekki
verði unnt að senda mannað
geimfar til tunglsins 1969 eins
og ráðgert hefur verið.
Tunglfarinu „Ranger 7“ var
skotið á loft frá Kennedyhöfða
kl. 16,50 (ísl. tími) með eldflaug
af gerðinni Atlas-Agena. Vegur
tunglfarið 360 kg og fer með tæp
lega 40 km hraða á klukkustund.
Um hádegið á föstudag er gert
ráð fyrir að „Ranger 7“ verði í
18 þús. km fjarlægð frá tunglinu
og gangi allt að óskum, hefst
Framhald á bls. 23.
Ræningjarnír
urðu manni
að bana
París, 28. júlí (NTB)
UMFANGSMIKIL leit er
nú hafin' í Frakklandi að
l fjórum vopnuðum mönn-
um, sem rændu skartgrip-
um fyrir margar milljónir
ísl. kr. aðfaranótt þriðju-
dagsins úr Plaza-gistihús-
iinu í París. Ræningjarnir
urðu leigubifreiðastjóra að
bana, er þeir skutu í átt tii
lögreglubifreiðar, sem ók
upp að gistihúsinu í þann
Vund, er þeir ætluðu að
hverfa á brott með feng
sinn.
Bifreiðastjó.rinn var að bíða
eftir farþegum, sem hann átti
að aka frá gistihúsinu, þegar
ræningjarnir skutu og beið
,hann samstundis bana. Lög-
rqglan veitti ræningjunum
’eftirför, en þeim tókst að
komast undan. Settir voru
vegartálmar við aHa vegi,
sem liggja frá París, skömmu
eftir að ránið var framið, en
þrátt fyrir það hefur lögregl-
unni ekki tekizt að komst á
!slóð ræningjanna.
Ræningjarnir ógnuðu starfs
mönnum gistihússins með
byssum meðan þeir brutu
rúðu í sýningarglugga skart-
gripaverzlunar í anddyri þess
>g létu greipar sópa. Meðal
Framhald á bls. 23.
Neðri málstofan voftar
Sir Winston virðingu
Lcxndon, 28. júlí. (NTB-AP)
^ í DAG samþykkti Neðri
U Thant lœtur
af störfum 1966
U Thant, framkvæmdastjóri
Sameinuöu þjóðanna, kom í
gær til Moskvu frá Burma,
þar sem hann hefur dvalizt
undanfarna daga. Bandaríska
blaðiff „The New York Herald
Tribune“ skýrir frá því að
U Thant hafi sagt í Rangoon,
að hann hygðist ekki gefa
kost á sér sem framkvæmda-
stjóri Sameinuðu þjóðanna
annað starfstímabil, en starfs-
tími U Thants rennur út í
nóvember 1966.
Blaðið segir, að i viðræðum
við vini sína í Rangoon hafi
U Thant; sagt, að þótt hann
nyti stuðnings stórveldanna,
vildi hann ekki starfa sem
framkvæmdastjóri Sameinuðu
þjóðanna annað tímabil. Hann
sagði, að ekkert hefði verið
rætt hver tæki við starfinu.
Framhald á bls. 23.
málstofa brezka þingsins ein
róma tillögu um að votta
Sir Winston Churchill
dýpstu virðingu og þakklæti
fyrir störf hans í þágu þings
ins, þjóðarinnar og heimsins.
Ar TiHagan var borin fram
af öUum flokkum í tilefni
þess að Sir Winston hætfir
nú þingmennsku, 64 árum
eftir að hann tók fyrst sæti á
þingi.
★ Aðeins eitt sæti var autt
í þingsalnum í dag, þegar til-
lagan var borin fram og sam
þykkt. Það var sætið, sem
Sir Winston var vanur að
sitja í á þingfundum.
Að loknum fundinum í Neðri
málsstofunni héldu þeir heim til
Sir Winstons, Sir Alec Douglas-
Home, forsætisrá ðherra, Harold
Wilson, formaður Verkamanna-
flokksins og Joseph Grimond,
formaður Frjálslyndaflokksins
og afhentu honum frumvarpið.
Það var forsætisráðherrann,
Sir Alec Douglas-Home, seim
lagði frumvarpið fyrir þing-
menn. Home hyllti hinn aldraða
stjórnmálaskörung og sagði, að
hann minntist fyrst og fremst
hvatningar hans til brezku þjóð
arinnar, þegar hún stóð ein og
forustu hans þar til sigur var
unninn. — Forsætisráðherrann
minnti á ræður Churchills á ár-
unum milli 1930 og 1940, þegar
hann hefði reynt að fá þingið
og þjóðina til að hlusta og veita
umiboð til þess að undirbúa styrj
öldina, sem hann hafði séð fyrir.
„Síðar þekktum við hann sem
forsætisráðherra í styrjöld, sem
hann stjórnaði af myndugleik
og sigurinn varð okkar og hans,“
sagði Home.
Framhald á bls. 23.