Morgunblaðið - 29.07.1964, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 29.07.1964, Blaðsíða 17
Miðvikudagur 29. júlí 1964 MORGU N BLAÐIÐ 17 Pálína Pétursdóttir Minning UM Grund í Skorradal hefur frá öndverðu leikið seiðandi bjarmi. Bærinn stendur í aðlíðandi halla xnóti suðri og sól. Kjarrið í hlíð- inni og hjöllum ofan við bæinn tekur að ilma snemma vors og berst þá ljúfleg angan heim til bæjar. Skógarþrestirnir lífga um hverfið með kviku vængjablaki og fjörlegum söngvum sínum. — Við túnfótinn liggur Skorradals- vatn, slétt eins og fágaður spegill, en Heiðarhornið gnæfir hnarreist og sviptigið í suðri. — Eigi er það þó þessi laðandi náttúru- fegurð staðarins, sem gert hefur garðinn frægan, heldur mann- dómur og menning þeirra bú- enda, sem þar hafa staðið að verki. Fyrir um það bil þrjú hundr- uð árum lét Brynjólfur biskup Sveinsson fyrstur manna reisa bólstað á Grund. — Er það í frásögur færandi, að síðan hefur sami ættbálkur búið þar mann fram af manni. Til er fagurlega teiknuð mynd, gerð af Guðlaugu Pétursdóttur, af stórum og reisulegum bursta- bæ með mörgum stafnþiljum. — Mynd þessi nefnist: Gamli bær- inn á Grund. — í bæ þessum stóð vagga Pálínu Pétursdóttur. Hún fæddist að Grund í Skorradal 21. sept. 1876. — Hún lézt að xnorgni þess 23. júlí sl. á heimili sonar síns og tengdadóttur á Öldugötu 25. Foreldrar Pálínu voru Pétur porsteinsson hreppstjóri frá Vatnsenda í Skorradal og kona hans Kristín Vigfúsdóttir. Foreldrar Kristínar, móður Pálínu, fluttust búferlum frá Fellsmúla í Landsveit árið 1836, er Kristín var aðeins árs gömul. En þetta orsakaðist af því, að Grund var þá í eign ættar Vig- dísar, móður Kristínar. — Um þessi búferli foreldra Kristínar hefur dómbær maður látið svo ummælt: „Fáa mun hafa órað fyrir því, er hjón þessi fluttu í Borgarfjörð með barnahópinn stóra, hve mikil framtíðarheill og hamingja byggðarlaginu hlotn- aðist með þessum ungu hjón- um.“ Af tíu börnum þeirra Péturs ©g Kristínar, er til aldurs kom- ust, var Pálína næst yngst. Guð- laug Pétursdóttir, ekkja Frið/iks Bjarnasonar, tónskáldsins vin- sæla, var yngst þeirra Grundar- systkina, og er hún ein þeirra á lífi. Æskuheimili Pálínu var róm- að mjög og í miklum metum haft af öllum er til þekktu. — Protlaust starf, ráðdeild og at- ©rka gerði hjónunum kleift að •la önn fyrir barnahópnum etóra, veita gestum af rausn og eigi hvað sízt að styðja og styrkja snauða menn og örvasa. Á þeim árum, er Pálína var að alast upp, þótti það tíðindum aæta, ef sveitastúlka naut mennt- unar nema lítils háttar undir fermingu. En Pálína mun eigi hafa verið gömul, er í ljós kom, að hún var gædd óvenjulegum námshæfileikum og skörpum gáfum. Ung að árum settist hún í kennaradeild í Flensborg í Hafn- arfirði. Auk þess stundaði hún nám hjá Sigríði Bjarnason í Jtvík o. fl. Þetta skref var ómetanlegt fyr- fr æsku Borgarfjarðar. Að námi loknu gerðist hún farkennari þar um slóðir. — Kennsla hennar ©rkaði á okkur krakkana, sem vorum svo gæfusöm að njóta handleiðslu hennar, líkt og dögg ®g morgunsól á gróanda vorsins. Þegar minnzt er þessara daga, kemur kynleg æskubirta upp í huga okkar. Og nú við leiðarlok- in þakklætiskennd, sem snertir tilfinningarnar svo djúpt, að það ▼arnar okkur máls. Þótt þolinmæði hennar og frá- bær lagni við að uppfræða þessa íávísu smælingja væri aðdáun- arverð, var hitt þó ennþá áhrifa ríkara: Algerð siðfágun þessarar hispurslausu ungu stúlku og skilningsríkur kærleikur, sem vermdi okkur inn að hjartarót- um. Mælt er, að vart sé til gleði, seni eigi fylgi skuggi. Svo var það og með dvöl Pálínu á æsku- heimili mínu. — Enn í dag man ég vel, hversu hnugginn ég var í hvert sinn, er eigi varð um- flúið, að hún hyrfi á braut. Foreldrar Pálínu brugðu búi vorið 1899 og seldu yngsta syni sínum, Bjarna Péturssyni, bú og jörð í hendur. — Þrátt fyrir breytingu þessa dvaldist Pálína áfram á Grund, þegar hún var ekki við kennslu. — En þar áttu foreldrar hennar skjól til ævi- loka. Pétur, faðir hennar, lézt árið 1907, en móðir hennar 1923. Mjög fjölfarin þjóðbraut lá við Grundartún. Var þar jafnan gestakoma svo mikil, að vart mun hún á sama tíma hafa verið slík annars staðar á landi hér. Bjarni Pétursson og kona hans, Kortrún Steinadóttir, gerðu skála um þjóðbraut þvera. Þar svign- uðu jafnan borð undir krásum og broshýrt viðmót bauð gesti velkomna og var þar aldrei farið í manngreinarálit. — Innlendum sem erlendum urðu þessar mót- tökur gesta minnilegar. Varð heimilið víðfrægt fyrir höfðings- brag og fágun ytra sem innra. Hlutdeild mikla í þessum þætti átti Pálína. Háttvísi hennar og kunnátta í að ganga um beina var heimilinu alveg ómetanleg eins og högum var háttað. • Pálína lá aldrei á liði sínu um dagana. Stúlkur höfðu margvís- legum störfum að gegna á um- svifamiklum gestaheimilúm á þessum árum. Pálína var jafnan við því bú- in að vera skyndilega kvödd inn frá útiverkum til að sinna gest- um. Leið þá eigi á löngu, unz hún stóð prúðbúin og prúð í fasi inni í gestastofu og framreiddi vistir með tiginmannlegu yfir- bragði og kurteisi og nærgætni, sem henni var í blóð borin og aldrei brást. — ★ — Árið 1906, þegar landssíminn var lagður frá Rvík til Akureyr- ar, féll það aðallega í hlut norskra manna að vinna verkið. — Minnisstæður er mér dagur sá, er hóp þessara manna bar að garði á æskuheimili mínu. Fékk ég sem strákur að vísa þeim á tjaldstæði, þar sem þeir dvöld- ust síðan vikum saman. — Einn maður í vinnuflokki þessum bar langt af öðrum undir eins við fyrstu sýn: Ljós yfirlitum, mik- ill á velli, allur hinn vörpuleg- asti, frjálsmannlegur í fram- göngu og svipurinn hreinn. — Þetta var Háns Devik síma- verkfi-æðingur. En hann stjórn- aði símalagningunni. — Að loknu þessu mannvirki dvaldist Devik hérlendis og hafði yfirumsjón með símalínunum í Borgarfirði. Var það mikið trúnaðarstarf og vandasamt í þá daga. Símaþræð- irnir kubbuðust oft sundur, ef frost eða ísing mæddi á vírun- um, sem voru úr kopar. Þau Pálína og Devik felldu hugi saman og gengu í hjóna- band árið 1909. — Þau eignuð- ust einn son: Ólaf Hansson nú menntaskólakennara, og er hann löngu þjóðkunnur sem fræðasjór, kennari og rithöfundur. — Sam- vistir þeirra Pálínu og Deviks urðu eigi langar. Hann hvarf aftur til Noregs, og þar lézt hann árið 1920, fæddur 1867. — Eftir skamma dvöl í Rvík varð Grund enn á ný heimili Pálínu. — Þar ólst Ólafur sonur þeirra hjóna upp. — Naut hann einlægrar móðurástar og var eftirlætisgoð allra á heimilinu. — ★ — Eigi er unnt á þessum vett- vangi að gera þeim þætti í ævi- starfi Pálínu skil, sem hiklaust má þó telja einn hinn merkasta. Lítt efnum búin ræðst hún í að kosta son sinn í menntaskóla. En þessum áfanga Ólafs Hansson- ar lauk, eins og kunnUgt er, með prófi við erlendan háskóla. — Þeir eru orðnir margir bæði í Menntaskóla Reykjavíkur og Há- skóla íslands, sem notið hafa handleiðslu hans og fræðslu. Mörg hin síðustu ár ævinnar dvaldist Pálína á heimili Ólafs sonar síns og tengdadóttur sinn- ar, Valdísar Helgadóttur. — Naut hún þar nærgætni og vermandi umhyggju. — Gunnar, sonur þeirra hjóna, var henni einnig mikill gleðigjafi og eftirlæti hennar. Þegar hann nú hin síð- ari ár tók að heimsækja ömmu sína með hugljúfa konu sér við hönd og þrjá yndislega glókolla, jókst enn um allan helming ljósið í bænum hennar og ylurinn í umhverfinu. í vor, þegar ég heimsótti Pá- línu, virtist mér minni hennar á allt hið liðna vera með öllu ófölskvað og ^reisn hennar ennþá aðdáunarverð. — Ennþá geislaði glóð góðvildar úr augum henn- ar, ennþá var íslenzkan hennar björt og tær. Þegar inn var komið til þess- arar fjölskyldu, hætti hjól tím- ans að snúast. — ★ — Pálína Pétursdóttir var ein- hver allra heilsteyptasti persónu- leiki, sem ég hef kynnzt á langri ævi. — Hún var gerð af þeim góðmálmi, sem a-ldrei féll á. —• Hún miðlaði öðrum ríkulega af auðæfum hjarta síns. Með breytni sinni, háttvísi, sem aldrei brást, og bjartsýni gaf hún samferðamönnunum fagurt for- dæmi og benti þeim jafnan í ljóss ins átt. — Því murt minning þessarar fórnfúsu, göfuglyndu konu geymd í hugum vina henn- ar og vandamanna sem helgur dómur. Þórður Kristleifsson. Þorsteinn Þorvaldsson Minning f 28. r.júst 1880 d. 18. júlí 1964 EG vil hér með örfáum línum minnast Þorsteins, ekki fyrir það, að það verði neinn héraðsbrest- ur eða straumihvörf í þjóðlífinu þó aldraður maður lúti lögmáli dauðans, heldur sökum þess að hér er að velli hníginn sérstæður maður, af þeirri gerð, að flestum hlýtur að vera hann minnisstæð- ur, sem honum hafa kynnzt. Þor- steinn var fæddur og uppalinn á Árskógsströnd við Eyjafjörð, á hörðum árum, þegar um það var að gera að berjast fyrir lífinu og vinna sig áfram með þrautseigju og dugnaði, bæði á sjó og landi Þessar aðstæður hafa skapað kjarkmikla og hrausta menn, trausta og æðrulausa, hvað sem hefur að höndum borið á lífsins leið. Þorsteinn var gott dærni slíkra manna. Hann stundaði sjó á opn um bátum og margan góðan feng af fiski, fugli og sel, hefur hann hreppt um Eyjafjörð og Gríms- eyjarsund og aðrar veiðislóðir norðanlands. Hann hefur kynnzt bæði blíðri og gjöfulli náttúru tii lands og sjávar, en einnig úfn um sjó og hörðum veðrum, og oft mun lífsbaráttan hafa verið hörð að sjá stóru heimili farborða en hann bjó á lítilli jörð, Hellu- gerði á Árskógstjörn þar til ár- ið 1927, að hann flytur suður í Grímsnes í Árnessýslu, ásamt konu og átta börnum. Nú hefst nýr þáttur í lífi og búskap þeirra hjóna, barátta við sjúkdóm og þrönig kjör, en allir erfiðleikar eru þó yfirunnir með þrautseigju og dugnaði. Lengst af bjuggu þau á Gíslastöðum, Mtilii heyskapar- jörð og mjög erfiðri með allar samgöngur, en þar var góð fjár- beit og veiði í Hvítá svo enn nutu sín kostir góðs bónda og veiðimanns. Árið 1941 flytja þau svo til Reykjaví'kur og síðan hef- ur heimilið verið á Rauðarárstíg 30. Skömmu eftir að til Reykja- ví'kur kom, hó'f Þorsteinn vinnu í Steypustöðinni h.f. ög þar vann hann óslitið og jafnan fullan vinnudag þar til 12. apríl síðast- liðinn að hann veiktist skyndi- lega. Lá þá leiðin á sjúkra'hús, þar sem hann lá meðvitundar- lítill þar til hann andaðist 19. þ.m., tæplega 84 ára gamall. Hér er löng lífssaiga sögð í fá- um orðum, enda var Þorsteini aldrei mikil mælgi að skapi, hann lifði eftir þeirri reglu að betra væri að vera en sýnast. Hann naut þeirrar lílfslham- ingju að vera heilsuhraustur alla ævi og viðlhalda svo vel sin um æskuþrótti, að ungum mönn um þótti erfitt að vinna til jaíns við hann. En þegar til tilbreytinga og síkemmtana kom frá dagsins önn, var hann jafnan allra manna glaðastur og skemmti sér af lífi og sál sem ungur væri. Mjög var hann viti borinn, hag- mæltur og söngmaður góður. Sjálfur mun Þorsteinn á efri ár- um hafa talið sig vera gæfu- mann í lífinu. Hann gekk unigur að eiga frændkonu sína, Önnu Þorvaldsdóttur, gáfaða og mikil- ,hæfa konu, sem var honum að öllu leyti hinn bezti lífsförunaut- ur bæði í blíðu og stríðu, en hún andaðist fyrir 15 árum. Bftir það hafði hann ráðskonur sem önnuð ust heimilishaldið, en nú síðustu ár var hann einn í íbúð sinni, en hafði fæði og aðhlynningu hjá fólki í sama húsi og hann bjó í. Naut hann þar svo góðrár um- önnunar að öllu leyti sem bezt varð á kosið og vart verður að fullu metið. Gat hann þannig til hins síðasta verið sjálfstæður og haft sitt eigið heimili, þar sem hann að loknum vinnudegi undi og naut útvarps og sjónvarps, eða las góðar bækur. Afkomendur Þorsteins eru margir, hann var mjög barngóður og átti margar ánægjustundir, er hann lék við barnabörn sín og hampaði þeim og hann gladdist innilega er fyrstu barna-barna-börnin litu dagsins Jjós. Að leiðarlokum hefði Þorsteinn efalaust, getað tekið undir orð Davíðs Stefánssonar er hann kvað: „En bezt man hugur heima- löndin sín, sem hilti upp úr sorg og göturyki.“ Ó.Ö. Smiður Vil ráða nú þegar trésmið í 2—4 vikur. Upplýsingar gefur Jónas Einarsson. KAUPFÉLAG HRÚTFIRÐINGA, Borðeyri. Umsjónarmartnsstarf Starf umsjónarmanns barna- og unglingaskóla Ytri- Nja.ðvíkur, er laust til umsóknar. Umsóknir um starfið skulu sendar skrifstofu Njarðvikurhrepps, Þórustíg 3, Ytri-Njarðvík, fyrir 10. ágúst n.k. (Sími 1202). Hjúkrunarkonur vantar Yfirhjúkruusrkonu og aðstoðarhjúkrunarkonu vantar á Sjúkrahúsið á Patreksfirði. Laun sam- kvæmt hinu aimenna launakerfi opinberra starfs- manna. Upfdvsingar um starfið verða veittar hjá sjúkrahúslfckr.mum og sýsluskrifstofunni á Pat- reksfirði. Umsóknir sendist undirrituðum fyrir 1. september n.k. Sýslumaðurinn í Barðastrandarsýslu. IMýtízku saumastofa Stórt og traust fyrirtæki óskar eftir manni eða konu til þess að taka að sér stjórn og rekstur stórrar saumastofu, sem útbúin er öllum nýtízku vélum. Til greina kemur jafnt vinna allan daginn eða hluta úr degi. Þeir sem vildu athuga þetta leggi nafn og símanúmer í lokuðu umslagi á afgr. Mbl. merkt: „Saumaskapur — 1862“ fyrir hádegi á laugardag.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.