Morgunblaðið - 29.07.1964, Page 24

Morgunblaðið - 29.07.1964, Page 24
175. tbl. — Miðvikudagur 29. júlí 1964 bílaleiga (iIb) magnúsar skipliolt 21 SSS1 Olmap: 21190-2118S zzzl Þ Þ > I Utsvörin 436.5 millj. í Rvík Nýjar aðferðir við álagningu GUTTORMUR Erlendsson, for- maður framtalsnefndar Reykja- víkurborgar, kvaddi fréttamenn á fund sinn í gær vegna þess, að lokið er nú álagningu og nið- urjöfnun útsvara. Hann skýrði frá því, að sam- kvæmt fjárhagsáætlun væru á- ætluð útsvör 399.347.000 krón- ur. Á það mætti leggja allt að 10% vegna vanhalda, eða 39.934.000 kr., svo að hámark þess, sem leggja hefði mátt á, var 439.281.000. Ekki var þó lagt á vegna vanhalda nema 9,3%, og er heildarupphæff útsvara 436.582.000 krónur. Útsvar er nú lagt á 28.254 ein- staklinga, sem erga samtals að gjalda í tekjuútsvar 364.266.202 kr. og eignaútsvar 10.388.398 kr., eða alls kr. 374.654.600 Útsvar er Iagt á 1'.345 félög, sem gjalda í tekjuútsvar 55.657.543 kr. __ og eignarútsvar 6.270.057 kr. eða alls 61.927.600 krónur. Útsvörin eru því samtals 436.582.200 kr. í fyrra var lagt á 26.096 ein- staklinga, ’sem áttu að gjalda alls 272.163.500 kr., og 1.052 fé- lög, sem áttu að greiða 41.389.200 kr. Útsvörin voru því samtals þá 313.552.700 krónur. BREYTINGAR. Á síðastliðnu þingi voru gerð- asr breytingar á útsvárslögum, (lög nr. 51 frá 1964). Breyttust þá aðferðir við útsvarsálagn- ingu. Nú er dregið frá tekjum, áð ur en lagt er á, eins og gert er við skattaálagningu. Persónufrádráttur fyrir ein- staklinga er 25 þúsund kr. og fyr ir hjón 35 þúsund kr. 5 þúsund kr. dragast frá fyrir hvert barn innan 16 ára aldurs. Ekki er lagt á elli- og örorku- lífeyri, og almannatryggingar eru dregnar frá. Þegar búic^er að veijta þennan frádrátt, er lágt 20% útsvar á fyrstu 40 þús. kr. hjá einstakl- ingum og hjónum. Af 40 þús. kr. og hærri tekjum eru greiddar 8 þús. kr. í útsvar og síðan 30% af afgangi. Nú eru aðeins tvö þrep í skatt stiganum, en áður voru átta tröppur í skalanum. !>á var ekki dregið frá tekjum, heldur lagt á þær allar, og síðan dregið frá út- svarinu. AÐTÖÐUGJÖLD Á einstaklinga eru lögð að- stöðugjöld að upphæð 17.630.400 kr. og á félög 66.1^,400; samtals 83.811.800. í fjárhagsáætlun voru aðstöðugjöld áætluð 78 millj. kr., svo að álag vegna vanhalda nemur aðeins 7,45%. í fyrra vorú aðstöðugjöld á ein staklinga 13.4Í7.400 kr. og á fé- lög 52.490.900, eða alls 65.908.300 kr. Þess skal getið, að skattstjóri sér um álagningu aðstöðugjalda. Framtalsnefnd Reykjavíkur- borgar skipuðu að þessu sinni auk formannsins, Guttorms Er- lendssonar, Björn Snæbjörnsson, Björn Þórhalls*pn, Haraldur Pét ursson og Zophonías Jónsson. Batnandi veður á miðunum AÐFAJRANÓTT þriðjudags og í gærmorgun var norðankaldi á miðunum og ekki veiðiveður eft- ir miðnætti. Lítilsháttar veiði var í fyrradag 100-—130 mílur austur frá Dalatanga. Samtals fengu 22 skip 13,850 mál og tunnur. Þessi skip voru aflahæst: — Helga RE 1200 tunnur, Elliði GK 1700, Sigurpáll GK 1100, Berg- ur VE 1100 og Helga Guðmunds- dóttir BA 1150 mál. Um miðnætti sl. skýrði síldar- leitin á Dalatanga svo frá, að batnandi veður væri á miðun- um og hefgi eitt skip, Sigurður Bjarnason, fengið 1300 tunnur austur af Langanesi. Skipin voru þá að tínast á miðin. Fulltrúar á aðalfundi NBC í Bændahöllinni. íslenzku fulltrú amir sjást lengst til vinstri. Sjá blaðsíðu 10. Gætið lífs og lima Islendingar! Munið að ganga þrifalega um þá staði, sem þér heimsækið um verzlunarmannahelgina. Skiljið hvergi eftir rusl, farið varlega með eld. Gætið lífs og lima. Góð umgengni er menningaratriði. Sýnið tillits- semi við náttúru landsins og komið fram af háttvísi við samferðamenn yðar. Akið varlega, gætið um- ferðarreglna. Sjóprófin í dag Þessi mynd var tekin í fyrrinótt er Höfrungur kom til Akraness með skipbrotsmennina af Hrefnu RE, sem sökk í fyrrakvöld suður af Hellnanesi. Á myndinni er Guðmundur Sveinsson, sklpstjóri á Höfrungi, og Einar Guðjónsson á Hrefnu RE. Sjó- próf vegna þessa sjóslyss fara fram hér í Reykjavík í dag. (Ljósm.: Þráinn Þorvaldsson) Annar gúmmíbáturinn og skipverjar af Hrefnu um borð í 'Höfrungl. Um 1000 manns með lllfari í Þórsmörk BLAÐIÐ átti i gær tal af Úlfari Jacobsen og spurði hann um þátttöku í Þórsmerkurferðúm um helgina. Eins og áður hefur komið fram í fréttum, hefur hann samvinnu við Skógrækt ríkisins um Merkurferðir yfir verzlunar- mannahelgina, og býður upp á kvöldskemmtanir í Húsadal fyrir unglinga, sem þar verða. í gær voru um þúsund manns búnir að láta skrá siig í ferðirnar, sem hefj ast á fimmtudag. Fara þá um 30 inn í Þórsmörk, á föstu dag 400 og á laugardag 600 manns. Sagði Úlfar, að þátttaka yrði meiri að þessu sinni en var í fyrra, er 900 gestir dvöldust í Þórsmörk um verzilunarmanna- helgina. Hljómsveitin So'lo leik- ur á skemmtunum, sem haldnar verða á afmörkuðu svæði í Húsa- dal, og til þess að standast straum af kostnaði vegna þessa skemmtanahalds hefur Úlfar ákveðið að krefjast 50 króna gjalds af þeim sem hyggjast sækja þessar skemmtanir, en eru ekki skráðir farlþegar í ferðum hans. AKRANESI 28. júlí — Ms. Urk- ersinger hlyður í dag 300 tonn af sementi, sem það flytur til Vestmannaeyja. Siglir skipið seint í kvöld. — Oddur. Engin bieyting d Kötlusvæðinu BJÖRN Pálssort, flugmaður, fór í flugvél sinni yfir Mýr- dalsjökul um hádegi í gær og kannaði svæðið um- hverfis Kötlu. Mbl. spurðist fyrir um það hjá Birni, hvort nokkrar breytingar á Kötlu- svæðinu væri sjáanlegar og sagði hann það ekki vera. — Jökullinn er aftur á mótl nokkuð hreinni á kafla eu vanal'ega og má orsakanna ef til vill leita til nvkiLlar snjókomu. Skntt- og útsvnrsskrdin lögð irnm í dng í DAG verður skatt- og út- Þar er opið frá kl. 9—16 alla svarsskráin lögð fram, og virka daga nema laugardaga, skatt- og útsvarsseðlar verða á mánudögum er opið tíl a næstunni bornir 1 hus. Skra in liggur frammi í gamla kl. 17. Kærufrestur er 14 dag- iðnskólanum og skattstofunnL ar frá og með deginum í dag.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.