Morgunblaðið - 18.08.1964, Page 1

Morgunblaðið - 18.08.1964, Page 1
um sbvézks efnahagslíís, en nú — iþurfi annað til en þá. Trapeznikon vill taka upp nýtt bónus-kerfi, sem hann telur að myndi auka bæði afköst og hagn að. „Fjármálaeftirlit verður að byggjast á uppörvun, álögum, sektum og breytilegu verðlagi, sem allt gerir sitt til þess að stefna tækniiþróuninni í rétta átt“ segir þessi sovézki hagfræðingur og nefnir ýmis dæmi vestan úr Bandaríkjunum til stuðnings máli sínu. Trapeznikon vill gera hvort tveggja, verðlauna meiri fram- leiðslu og betri framleiðslu, t.d. með skattaívilnunum og _ hegna fyrir slæma vinnu með refsiað- gerðum á borð við sektir fyrir afgreiðslufresti, serp ekki eru Framhald á bls. 2 Moskvu 17. ágúst. — AP. SOVÉZKUR hagfræðingur legg- ur það til, í grein sem hann ritar í Pravda í dag, að Sovétríkin láti efnahagskerfi það, sem þau nú búa við, lönd og leiö og taki upp annað kerfi, sem segir nánar frá í greininni og þykir bera tölu verðan keim af því sem Rússar hafa til þessa kallað kapítalisma. Hagfræðingur þessi, Viktor Trapeznikon, leggur til að gerð- ar verði breytingar á efnahags- kerfi Sovétríkjanna, sem miða að því að auka einstaklingsfrelsið og gera efnahagslífið allt háðara hinu einfalda lögmáli um fram- boð og eftirspurn. ^ - Segir Trapeznikon í grein sinni, að efnahagskerfi Sovétríkj anna sé úrelt og af sér gengið og ætti að afskrifast. Það hafi gert sitt gagn á frumbýlingsár- Grikkir heimta her- lið sitt úr NATO Tyrkir ségja fólk sitt svelta á Kýpur Aþenu og SÞ, New York, 17. ágúst — (AP) — GRIKKLAND tilkynnti Atlants- hafsbandalaginu í kvöld að það myndi taka þann hluta herliðs síns, sem með þyrfti úr sameigin- legum her bandalagsins „til þess að verja sjálfstæði Kýpur og af- stýra stöðugum hótunum Tyrkja." Gríski utanríkisráðherrann, Spyros Kyprianou kom aftur til Nicosíu í dag. Aðspurður hvort hann hygði á Moskvuferð til þess að ræða boð Krúsjeffs forsætis- ráðherra um aðstoð til handa Kýpur, sagði Kyprianou að það kynni vel að vera. Kvað hann málið nú vera til umræðu á Kýpur. Talsmaður stjórnarinnar kvað hernaðarástandið á eynni hafa verið rætt í ljósi yfirlýsingar Papandreous, forsætisráðherra, um að Grikkir myndu koma til liðs við Kýpur með öllu herliði eínu, ef Tyrkir gerðu aftur árás á eyna. Kvað Kyprianou fulla einingu ríkja með grísku stjórn- inni og Kýpurstjórn um stefnu þá, sem taka bæri í málum þessum. Ekki er víst, hve mikið herlið Grikkir hyggjast heimta úr sam- eiginlegum her Atlantshafsbanda lagsins, en talsmaður grísku stjórnarinnar segir það vera í at- hugun. Átta af tólf herfylkjum Grikkja eru í her samtakanna, miiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiniiiir ÍGEORGES Grivas, hers.höfð-| =ingi, fyrrum leiðtogi EOKA-= =nreyfingarinnar, hefur nú tek^ =ið við yfirstjórn þjóðvarnar-j| f liðs Kýpur af Karayannis,^ jghershöfðingja. Myndin er tekg gin í Pakhiammos á Kýpur á= gjdögunum er Grivas kom þarg = við á eftirlitsför um eyna.= gMeð Grivas (sem er til hægris =á myndinni) eru Polykarpos= ÉjGeorgjadis, innanrikisráð-= = herra grísku Kýpurstjórnar- = jginnar og K.S. Thimayya, yfir= gmaður herliðs S.Þ. á eynni.g ^(fyrir miðju). og flugherinn allur þeim til ráð- stöfunar. Fulltrúi Tyrklands hjá Sam- einuðu þjóðunum, Orhan Eralp, sendiherra, ræddi við U Thaht í kvöld og mæltist til aðstoðar við tyrkneskumælandi menn í Kokk- ina og Mansoura-héruðunum á Kýpur, sem nú væru aðþrengdir um vistir, þar sem Kýpur-Grikk- ir bönnuðu alla birgðaflutninga til héraða þessara. Sagði tals- maður tyrknesku stjrónarinnar, að Kýpur-Grikkir vildu svelta tyrkneskumælandi menn á eynni og sagði að SÞ ættu að taka að sér að sjá um að matvæli og eldsneyti til heimilisnota fengist flutt til héraðanna. yij:i c*' *■:> wiM •'■■■& Skæruliðar frá Indónesíu ganga á land í Malaysíu Kuala Lumpur, 17. ágúst, AP — NTB. MALAYSÍA sakaði í dag Indó- nesíu um að hafa stofnað til inn- rásar á meginland ríkisins og greip til sérstakra öryggisráðstaf ana í þrem strandfylkjum, Joh- ore, Malacca og Negri Sembilan. Varaforsætisráðherra og varn- armálaráðherra, Tun Abdul Razak, sagði á blaðamannafundi í dag, að hópur 30 til 40 Indó- nesa hefði gengið á land á ýms- um stöðum á vesturströndinni i bítið í morgun. Razak sagði að 13 innrásarmanna, sem sumir væru hermenn úr sjóher Indó- nesíu, hefðu verið handteknir og hefði einn hermanna Malaysíu særzt i viðureigninni. Hinna inn- rásarmannanna er nú leitað. Þetta er í fyrsta sinn sem Indó nesía gerir innrás á meginland Malaysíu. Razak kvað stjórn sína myndu tilkynna Öryggisráði S.þ. atburð þennan en sagði, að ekki muni leitað eftir aðgerðum af hálfu S.þ. eins og sakir stæðu. Razak tilkynnti einnig á fund- inum, að sérstakar öryggisráðstaf anir hefðu nú verið settar í strandríkjunum þrem. Ekki eru nema 30 mílur milli Indónesíu og Malaysíu yfir hið þrönga Malaccasund. Hafa nú yfirvöld í fylkjum þessum heimild til að framkvæma handtökur án form- legrar tilskipunar og til að beita skotvopnum ef nauðsyn krefur. Þá iiggur dauðarefsing við því að hafa undir höndum skotvopn, nema leyfi hafi verið fengið til þess áður. Heimavarnarlið Malay síu hefur einnig verið kallað út og heilli hersveit stjórnarhersins í Johore-fylki hefur verið gert að vera viðbúin hverju sem fyrir kynni að koma, og öll leyfi henn ar afturkölluð. Razak neitaði að segja, hver væri herstyrkur heimavarnarliðsins, en sagði að nokkrar deildir þess myndu að- stoða hermenn stjórnarinnar og lögreglu ríkisins við eftirlit í hér uðum þessum. Skæruliðar Indónesíu eru sagðir hafa verið settir á land í fenjahéraðinu Pontian í Johore- fylki, sem er um 35 mílur norð- vestan Singapore. Razak kvað innrásarmennina hafa komið yfir sundið á litlum bátum með utanborðsvél og hefðu tveir slíkir bátar fundizt á ströndinni í morgun. Innrásar- mennirnir hefðu verið vei vopn- um búnir, sagði Razak ennfrem ur, og hefðu hermenn stjórnar- LIVERPOOL vann 5—0 og lék sér að KR eins og köttur að mús. Hér skorar Wallace innherji fyrsta markið, eftir 2 mín. leik. Sjá íþróttir bls. 22. (Ljósm.: Sv. Þorm.) innar náð miklu af þeim. Aðspurður kvaðst Razak ekk- ert vilja um það segja, hvort til innrásarinnar hefði verið stofnað til þess að leggja meiri áherzlu á þau orð Sukarnos, for- seta Indónesiu, er hann viðhafði í ræðu á þjóðhátíðardegi ríkis- ins, að hann hefði einsett sér að brjóta á bak aftur hið unga sairi bandsríki Malaysíu. Þá benti Razak á það, að enda þótt Indónesía hefði ekki viður- kennt Malaysíu þegar ríkið var stofnað í september s.l., þá hefði Indónesia viðurkennt Malaya- sambandsríkið sem áður hefði verið. „Indónesía hefur nú tekið af skarið“, sagði Razak, „þetta er hrein árás á sjálfstæði okkar og fuilveldi". Framhaid á bls. 2 Sovéskur hagfræð- ingur aðhyllist kapítalisma

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.