Morgunblaðið - 18.08.1964, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 18.08.1964, Blaðsíða 10
10 MORCUNBLAÐIÐ Þriðjudagur 18. ágúst 1964 HlllilllllllllllllllinillllllllMIIIIIIIMIIIIIIIIIIIIIIlllllllllllllllllllllllllllllllllllHIIIIIIIIIIIIIIIIllllllimilllllllllllMMfllllllllllllllllllllllllifllllllllllllMIIIIIIMIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIMIIIIIIIIIIIIIMIIIII 111111111111111 Hmillllllllllllllllllimilllll|l|||||||hllll*llllllllllll||||||||||||||||||||||||||||||||||l|l||||||,|,,,,|,,m|||f% Dáltar úr sjóher hennar hátignar fylktu liði á vöilinn — með hrossabresti, þokulúðra og brezka fánann. Hrossabrestir og þoku- lúðrar á Laugardalsvelli — HVERNIG kom fyrsta markið, spurði vesalings maðurinn, sem kom fimm mínútum of seint á völlinn í gærkvöldi. — Alveg í hvelli, maður, sagði ungur maður með sólgleraugu. — Uss, uss, sagði maður- inn, sem kom of seint. Lít- ill maður með mikið vit á knattspyrnu. Hann hafði enga tönn í efri góm. Það opinberaðist, þegar hann hló mikinn og sagði: — Þetta verður burst. Það er alveg öruggt. ' Svo hélt hann áfram að hlæja, þar til hann sagði allt í einu: — Sástu þetta, maður? þeir eru eins og rakettur, Eng- lendingarnir. Þessi númer 11 er alveg perla — sko — þeir bara hringsnúast í kringum — Þú meinar sebrahestar. Þeir eru röndóttir eins og KR ingarnir. — Veiztu það ekki maður, að sebrahestarnir eru bara venjulegir hestar, sem hafa gleymt að fara úr náttfötun- um. Feiknalegur hlátur við- staddra fylgdi þessari síðustu athugasemd. Samtalið fór fram milli tveggja smábítla á leðurjölckum, sem púuðu vindlinga í gríð og erg. Þetta voru tveir ungir menn á ferm ingaraldri. Sumir reyna að hugsa rök- rétt: — Þeir eru svo miiklu fljót- ari að hlaupa, Englendingarn- ir. ■ — Já, þeir æfa líka alveg brjálað. Rökrétt samhengi í innan- tómum athugasemdum er þó altént gáfulegra en tilraunir til skemmtilegbeita, sem varla eru 0.05 kr. virði. Nú var sótt fast að enska markinu. Kantmaðurinn hljóp eins og byssubrendur að enda mörkum og lét boltann rúlla á undan sér. Svo sparkaði hann í boltann, fast og örugglega . . Æ, nei, aumingja maðurinn datt — og boltinn sat eftir. — C’est déplorable, sagði borðalagður fransmaður með hvítan koll. Hörmulegt! Þeir Blaðaijósmyndararnir voru alltaf tilbúnir með myndavélarnar. Á þessari mynd eru frá vinstri: Kristján Magnússon (Heimiiisblaðið Vikan), Ragnar Snæfells (Alþbl.) Bjarnleifur Bjamleifsson (Þjóðviljinn), John Wilson, stjórnandi kvikmyndatöku fyrir sjónvarpið á Kefiavíkurflugvelli, Erich Wirth kvikmyndatökumaður, einnig frá sjónvarpinu og Kári Jónas- son (Tíminn). Sveinn Þormóðsson, ljósm. Mbl. tók þessa mynd af kollegiun sínum. Einkum er gaman að hlusta á hinar andríku upphrópanir á- horfenda og fylgjast með hin- um fjölbreytilegu svipbrigð- um þeirra. Sumir reyna að vera fyndn- ir: — KR ingamir fá aldrei 10 mörk, nema þeir gefizt upp í seinni hálfleik. — Hvað fá þeir fyrir mark- ið? — 2 pund. — Annars em þetta óttaleg ir hestar. Þeir eru svo seinir. fylgdust með leiknum af mikl um áhuga — líklega yfirmenn á frönsku herskipi. Á næsta leiti voru ensku dátarnir með hrossabrestina, þokulúðrana og brezka fán- ann. Það lét hátt í þeim allan tímann, sem leikurinn stoð yfir nema í frímínútunum. Þá þögðu þeir. í frímínútunum fóru all- flestir á stjá og keyptu sér svaladrykk. Það gerðum við lí'ka. Og það var segin saga: Allt í einu var ungur á- hugaljósmyndari kominn í samkeppni við blaðaljósmynd á fárra sekúndna fresti birt- ust litlir kaupsýslumenn við hlið okkar og sögðu: — Má ég eiga flöskuna, þeg ar þú ert búinn, manni? — Til hvers, lambið mitt? var hið sígilda svar okkar. — Til að seljá þana, var, hið sígilda svar þeirra. Þegar við fórum að kanna þetta mál, komust við að þeirri niðurstöðu, að þetta var mjög arðvænlegt kaupsýsla. Fyrir hvert gler fengu þeir kr. 4:00 og þegar fangið var orðið fullt, var kominn dá- laglegur skildingur til þess að kaupa gott fyrir. Nú var farið að síga á seinni hluta leiksins og hrossabresta glamrið kornið í algleyming. Aftur rákumst við á vin okk- ar, sem kom of seint á völlinn. Hann stóð í hópi nokkurra valinkunnra vestur-bæinga og hrópaði: — Áfram K.R.! Og enn hrópuðu brezku diátarnir: — Come on, Liverpool! Þeir þurftu e'kki að hvetja sína menn. Sigur þeirra var vís. Forsjálustu bíleigendurn- ir voru nú teknir að laumast út af vellinum. Þeir ætluðu að losna við umferðaöngþveit- ið. Þegar við yfirgáfum völl- inn að leik loknum sáum við þá sitja í bílum.sínum. Fyrir aftan var bíll — og líka fyrir framan. a.ind. "S*"/' /'t", ■'" ' "■■*"""/ '" ' ■ ' ' w'"■" ' " '"//s, % "■".w. v, //ííV'V ' ' Smábítlar á Laugardalsvell inum. hann: Þetta er aldeilis magnað — Áfram vesturbær, galaði einhver. — Þeir eru alveg ein tauga- hrúga, hejnrðist í öðrum Lúðrar skræktu, hrossabrest ir létu hátt og hvítkollóttur skari söng enskan baráttu- söng Það voru dátar í sjóher hennar hátignar, komnir á völlinn í Reykjavík tii þess að horfa á leikinni milli Liverpool og K.R. í stúkunni sátu fréttaritarar blaða með himirabornum há- loftasvip. Það er sagt, að þeir hafi mest vit á knattspyrnu. Þeir gaumgæfðu samvizku- lega hverja hreyfingu leik- mannanna og festu hugleiðing ar sínar á blað. Öðru máli gegradi um minn mann. Hon- um fannst miklu skemmti- legra að fylgjast með fólk- inu en leiknum. Líklega er þannig farið um flesta, sem koma á völlinn í fyrsta sinn. Eftirvæntingin var mikil — en ekki höfðu allir jafn gott útsýni. Mll 111111111(1111111111111111 IMIIHIUMIIMIIIIIIMIHIIMIIIMIMMMMIIIMMHMHHMMIIIHIMIMIIIIIMIIIIIMIII IIIIIIMIIMMIMIIMIIIMMIHIMMIIIMIIIMMIIIIIMMMNmilMMMIIIMMIIIIIIIIIIIIMMIIMIMIIIIIMMIIMIMIMII mimmmimmmiimiimiiiiimimimmiimiiiihmiiiiiiimmiiiiiuiiiiiiiiiimmiimmiiiiiiiiiiimímiiimiiiimmiM

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.