Morgunblaðið - 18.08.1964, Page 12
12
MORGU NBLADIÐ
Þriðjudagur 18. ágúst 1964
Jttttgttitlrlafrifr
Útgefandi:
Framkvæmdastjóri:
Ritstjórar:
Auglýsingar:
Útbreiðslustjóri:
Ritstjórn:
Auglýsingar og afgreiðsla:
Askriftargjald kr. 90.00
í lausasölu kr.
Hf. Árvakur, Reykjavík.
Sigfús Jónsson.
Sigurður Bjarnason frá Vigur.
Matthías Johannessen.
Eyjólfur Konráð Jónsson.
Árni Garðar Kristinsson.
Sverrir Þórðarson.
Aðalstræti 6.
Aðalstræti 6. Sími 22480.
á mánuði innanlands.
5.00 eintakið.
ÍSLENZK ÖFUND
rftir blaðaskrifum síðustu
vikur að dæma er öfund-
in ríkari þáttur í íslendings-
eðlinu en góðu hófi gegnir,
a.m.k. virðast ákveðnir at-
vinnustjórnmálamenn álíta að
svo sé.
Auðvitað er það fyrirbæri,
alþekkt, bæði hér og erlendis,
að framgjarnir menn, sem
mistekst að "sanna fyrir sjálf-
um sér og öðrum snilli sína,
fyllast öfund og beiskju í garð
allra annarra, hafa allt á horn
um sér og reyna að ófrægja
sem flesta; en hér á landi er
engu líkara en næra eigi heila
stjórnmálaflokka á slíkri
fæðu jafn lystileg og hún er.
Mjög er nú haft á orði, að
forstjórar og athafnamenn
lifi í miklum vellystingum.
Um það eru til dæmi, en þau
þekkjast raunar líka úr mörg-
um stéttum öðrum, enda
hvorki unnt né eftirsóknar-
vert að tekjujöfnun sé algjör.
Það er óhjákvæmilegt í öll-
um þjóðfélögum að verðlauna
dugnað, sérþekkingu og fram-
tak.
Sannleikurinn er samt sá,
að tekjujöfnun er líklega
meiri hér en í nokkru öðru
þjóðfélagi, hvort heldur það
er vestrænt eða austrænt, og í
mörgum tilfellum er meira að
segja ástæða til að ætla, að
það sé eðlilegri þróun at-
vinnulífs fjötur um fót, að
stjórnendum fyrirtækja séu
borguð of lág laun fremur en
of há.
Svo mikið hefir verið hamr
að á ofsaháum launum for-
stjóra og annarra í trúnaðar-
stöðum, að menn trúa því ef
til vill ekki, þótt það sé stað-
reynd, að í fjölda fyrirtækja,
m.a.s. stórra fyrirtækja, eru
forstjórarnir með lægri laun
en t.d. trésmiðir við uppmæl-
ingu eða sjómenn á aflaskip-
um. Frá þessu eru þó auðvit-
að undantekningar.
Hitt er ánnað mál, að ýmsir
þessara manna eiga skuldlitl-
ar íbúðir og aðrar eignir,
þannig að tekjur þeirra end-
ast betur fyrir þær sakir, og
oft er það líka svo, að þeir
kunna betur með fé að fara en
þeir, sem nýríkir verða.
En umboðsmenn öfundar-
innar munu sjálfsagt mót-
mæla þessu harðlega. í fyrsta
lagi munu þeir segja, að for-
stjórar almennt og menn, sem
í ábyrgðarstöðum eru, hafi
gífurlegar tekjur og í öðru
lagi, að alls ekki sé réttmætt,
að stjórnendur fyrirtækja
hafi hærri laun en gengur og
gerist. Það virðist sem sagt
orðin lenzka- hér að telja slík
störf sérlega auðveld og jafn-
vel löðurmannleg. Sá áróður
hefir verið rekinn áratugum
saman, og meira að segja
einkaframtaksmenn hafa hop
að fyrir honum, þótt í öllum
þjóðfélögum öðrum sé það
viðurkennt, að slík störf séu
meðal hinna erfiðustu, enda
mála sannast, að menn, sem
þeim gegna af samvizkusemi,
endast yfirleitt verr en aðrir.
SKATTAR „HÁ-
TEKJUMANNA
Segni og Togliatti
enn þungt haldnir
Róm og Moskvu 17. ág. AP.
LÆKNAR ítalíuforseta, Antonio
Segnis, segja hann enn þungt
haldinn, en hann hefur verið
meðvitundarlaus í þrjá sólar-
hringa. Segni fékk heilablóðfall
fyrir 10 dögum svo sem kunnugt
er.
//
¥jess hefir löngum verið
* krafizt af samtökum laun
þega, að skattar væru háir á
.hátekjumönnum; það væri
eðlilegt að þeir greiddu meira
til sameiginlegra þarfa borg-
aranna en aðrir. Þetta er rétt
sjónarmið, enda eru skattar
yfirleitt stighækkandi í lýð-
ræðisþjóðfélögum og hátekju-
menn greiða mikil gjöld.
Hér hefir það einnig verið
svo, að skattar hafa verið (
stighækkandi, og í skattalög-!
unum margumræddu, sem,
samþykkt voru á síðasta
þingi, var einnig gert ráð fyr- j
ir því, að skattar hækkuðu
meira á hátekjumönnum en
ákveðið var með lögunum frá :
1961, til þess að unnt værij
að lækka skatta á lágtekju-
fólki.
En niðurstaðan varð sú, sem
nú er komið á daginn, að tekj-
ur þær, sem taldar voru há-
tekjur, eru orðnar almennar
launatekjur, launajöfnuður
er það mikill, að f jöldi manna
fór í hina hærri skattstiga, og
þess vegna varð óánægja með
skattana mikil.
Því hefir verið hreyft að
finna ætti aðrar leiðir en
tekjuskatt til þess að afla
tekna til ríkis- og sveitarfé-
laga. Bæði hér og annars stað-
ar hefir söluskattsleiðin verið
farin og víða erlendis eru fast-
eignaskattar meiri en hér. Er
vissulega ástæða til að at-
huga, hvort ekki fengist meira
réttlæti með því t.d. að end-
urmeta fasteignir.
Hér eru fasteignir eins og
kunnugt er taldar fram til
skatts á fasteignamati, sem
er aðeins brot af verðmæti^
eignanna. Þeir, sem fasteignir f
eiga, greiða því yfirleitt litla
eða enga eignaskatta. Þessu
hafa menn raunar ekki treyst
sér til að breyta, vegna þess
að það snertir allan fjölda
manna, en svo langt getur
misræmið gengið að óhjá- ^
kvæmilegt sé að breyta til,
og a.m.k. ætti að hækka fast-
eignamat meira til samræm-j
að muni hafa verið Palmiro
Togliatti, leiðtogi ítalskra komm
únista.
Togliatti, sem fékk heilablóð-
fall suður á Krímskaga s. 1.
fimmtudag, er nú nokkuð á bata
vegi, að sögn rússnesku Tass-
fréttastofunnar, enda þótt hann sé
enn mjög þungt haldinn.
Togliatti liggur nú á sjúkra-
húsi í Yalta og annast hann.þar
sovézkir læknar og einkalæknir
hans, prófessor Mario Spallone,
sem kom til Sovétríkjanna flug-
leiðis frá ítalíu.
Getum er að því leitt hvort
Krúsjeff, sem nú er á ferðalagi
um Sovétríkin, muni koma og
vera við sjúkrabeð Togliattis,
sem eins og kunnugt er, ræður
yfir stærsta kommúnistaflokki í
Vestur-Evrópu, og er mikill á-
hrifamaður í þeirri hugsjóna-
deilu, sem risið hefur innan al-
þjóða komnjúnismans. Togliatti
iiiiiiiiiiiiiiiiitiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiniiiR
*
Ottazt um
líf Sakari
T uomioia
Palmiro Togliatti
Fjöldi fólks hefur safnazt sam
an úti fyrir Quirinal-höllinni,
þar sem forsetinn liggur fársjúk-
ur. Heimabær forsetans, Sassari
á eynni Sardiniu, sendi honum
fornan fána, sem þar er jafnan
borinn í skrúðgöngum á trúar-
legum hátíðisdögum. Eru í hann
saumaðar myndir af Maríu mey
og píslarvottum ættuðum af
Sardiníu og senda heimamenn
forsetans honum fánann til
marks um áhyggjur eyjarskeggja
vegna veikinda hans og óska
þeirra um bráðan bata honum
til handa.
Páll páfi er sagður hafa beðið
fyrir bata forsetans og einnig
bata annars manns,-sem ekki var
á nafn nefndur, en menn telja
Antonio Segni
fylgir Krúsjeff að málum alla
jafna dg styður málstað hans i
deilunum við Peking, en hefur
átt það til að finna að við Sovét
ríkin hvernig þau héldu á mál-
Framhald á bls. 15
is við raunverulegt verðmæti
en nú er.
Vitaskuld er þó engin leið
til varðandi skattlagningar,
sem óumdeilanlega sé hin
eina rétta og sanngjarna. —-
Mannanna verk eru yfirleitt
ekki fullkomin, og þeir, sem
hafa það að aðalstarfi og eina
áhugamáli að benda á það,
sem miður fer, hljóta alltaf
að geta fundið sér umræðu-
efni.
UPPLÝSINGAR■
UM LAUN
í»egar samkomulag náðist
* milli launþega og vinnu-
veitenda fyrir milligöngu
ríkisstjórnarinnar nú í sumar
um kjör næsta ár, lágu skatta-
og útsvarslög fyrir, og á þeim
m.a. var það samkomulag
byggt, sem gert var.
Formælendur launþega virt
ust sætta sig við þau lög og
mun ástæðan ekki sízt hafa
verið sú, að þar vár gert ráð
fyrir að skattar yrðu lækkað-
ir á lágtekjum en hækkaðir
á hærri tekjum. Nú er komið
í ljós eins og margsinnis hefir
verið um rætt, að launatekjur
voru miklu hærri en menn
gerðu ráð fyrir og þar af leið-
andi fleiri, sem fóru í hærri
skattstigana en ella.
Alþýðusamband íslands
hefir ritað ríkisstjórninni og
óskað eftir viðræðum um
skattamálin. Engin rök eru
fyrir þeirri ósk önnur en þau,
að Alþýðusambandsstjórn
hafi ekki gert sér grein fyrir
hve há laun manna væru, því
að skattalögum hefir ekki
verið breytt síðan samkomu-
lag var gert.
Vel má vera, að það sé rétt,
að stjórnendur launþegasam-1
takanna hafi í rauninni ekki
vitað, hve háar tekjur manna
væri. En úr því að þeir sömdu J
um ákveðnar kjarabætur í
júní og héldu að launin væru
lægri en þau -raunverulega
eru ættu þeir þeim mun bet-
ur að una þessum samning-
um, þegar í ljós er komið, hve
há launin eru, ekki sízt þar
SgSÞ, New York, 17. ágúst. AP =
g SÁTTASEMJARI SÞ í KýpurÍ
= deilunni; Finninn Sakari Tuo-3
= mioja, sem fékk heilablóðfallj|
Há sunnudag, er hann var ísj
M þann veginn að leggja upp frás
sGenf, var í morgun skorinng
Bupp og vilja læknar ekkertg
|um líðan hans segja, annað en§i
íÉið hann sé þungt haldinn. =
= S
ɧ Tuomioja var á leið til =
SAnkara, Aþenu og Nicosíu tilg
Hviðræðna við stjórnir Tyrk-§É
llands, Grikklands og Kýpur,=
|um lausn deilumála á eynni.EE
sGerast menn nú áhyggjufullirs
|um framvindu sáttaumleitana ||
^ef Tuomioja njóti ekki við ái
=næstunni og eru talsmenn SÞh
gsagðir hræddir um að ástand-|§
Hið á Kýpur versni að mun fyr-§§
=ir bragðið. Grikkir og Tyrkirs
geru einnig sagðir kvíðnir ogE
= Tyrkir þó meira, því þeir sjáis
Mnú fram á að ekki verði leng-§§
=ur gengið fram hjá Makariosi§§
= erkibiskupi, forseta Kýpur og§§
Emálin rædd við grísku stjórn- =
=ina eingöngu. Tyrkir eru sagð-H
§§ir hafa falazt eftir fundi Öryggs
=isráðsins til þess að ræða við- §§
^skiptabann Kýpur-Grikkja á§
Hþorp tyrkneskumælandig
Imanna á eynni, en þar eru§
§sums staðar ekki vistir nema§
|til tveggja daga, að sögn Kýp- §É
= ur-Tyrkja. _
§§ U Thant, aðalritari SaTnein-s
suðu þjóðanna, hefur ekk'i skipS
§að annan sáttasemjara í staðg
sSakari Tumioja í Kýpurdeil-§§
^unni, en mun ætla að ræða§
Emálið við samstarfsmenn sínas
1' dag. |j
imiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiHiiiiiiiiiiiimtiiiiiiiiiiuiÍu
sem ríkisstjórnin hefir gefið
fyrirheit um að lagfæra skatta
lög til samræmis við hækkað
kaupgjald.
Þess er einnig að gæta, að
stjórnendur launþegasamtak-
anna ættu ekki síður en rík-
isstjórnin að geta aflað sér
upplýsinga um raunverulegar
launatekjur. Það er þesa
vegna út í bláinn að ásaka
stjórnina fyrir það, að hún
hafi ekki kynnt sér nægilega,
hve há laun manna væru. Það
var ekki síður í verkahring
Alþýðusambandsins, sem átti
að gæta hagsmuna launþeg-
anna í samningum þeim, sem
gerðir voru.