Morgunblaðið - 18.08.1964, Síða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ
Þriðjudagur 18. ágúst 1964
Liverpool-liðið lék
eins og köttur nð mú
Vann nteð 5-0 — KR átti ekkert
skot á mark allan fyrri hálfleik
en 3 í þeim síðari
TÍU þúsund raanns sáu Liverpool-liðið sigra KR í gærkvöldi með 5—0 og hafi ekki allir
sannfærzt um að það þarf tvö lið til þess að leika góðan knattspyrnuleik, þá er ekki hægt
að sannfæra fólk. Liverpool-liðið hafði svo mikla yfirhurði, að það var aldrei um kapp-
leik að ræða í þeim skilningi, sem venjulega er lagður í það orð — keppnin stóð fyrst og
fremst um það hvenær og hvort Liverpoolmönnum tækist að komast framhjá þeim 10
KR-ingum, sem fylktu sér innan vítateigs KR. Og þetta tókst Liverpool-liðinu ekki nema
einu sinni í fyrri hálfleik.
Varnartaktikinni héldu KR-ingar' ekki eins vel í. síðari hálfleik. I»á sleppti Liverpool
„göngu-hraðanunri' sem verið hafði á leiknum, dreifðu spilinu meir og KR-ingar megnuðu
ekki að standa á móti sem fyrr.
Yfirburðir Liverpool voru slíkir að hefði KR ekki leikið með 3 miðverði, dregið inn-
herjana aftur í framvarðastöður og útherjana til aðstoðar við bakverðina til að hafa trufl-
andi áhrif á tilraunir Liverpool til að skora, hefði Liverpool vel getað unnið með 15—0.
KR gat enga mótspyrnu veitt — nema að trufla inni í sínurn færi, skaut en hitti varnarmann
vítateig. Liverpool réð öllum gangi leiksins — vann hvert einasta
návígi — farið var kringum KR-inga fram og aftur, leikið sér að
vild. Allt tókst nema ekki að skora — og það var alls ekki að sjá
að þetta atvinnulið legði sig fram um það.
Leikurinn var leiðinlegur á köflum í fyrri hálfleik vegna leik-
aðferðar KR. Það má telja varnaraðferð þeirra rétta til að verjast
markasúpu, en með varnartaktíkinni spilltu þeir skemmtuninni fyrir
10 þúsund áhorfendum.
og af honum hrökk knötturinn
til Hunt — og þarna sást bregða
fyrir þeim góðu tilburðum sem
gert hafa hann að markhæsta
manni í ensku deildarkeppninni.
Hann var ekki seinn að átta sig
og áður en KR-ingar fengu eygt
knöttinn lá hann í netinu.
Það vakti athygli að í leik-
hléi hafði andvarinn sem KR lék
undan í fyrri hálfleik snúið sér
og enn lék KH undan golunni —
en lítt hjálpaði það.
• TÆKIFÆRI KR
Á 7. mín fékk KR bezta mark
tækifæri - sitt í leiknum. Gunnar
Guðmannsson gaf vel fyrir frá
hægra horni og Ellert hafði bet-
ur í skallaeinvígi við hinn sterk
vaxna Yeats fyrirliða. Knöttur-
inn stefndi af höfði Ellerts í
markhornið upp. Lawrence mark
vörður hafði ekki möguleika til
varnar, en Moran bakvörðut var
á réttum stað og fékk bjargað á
marklínunni.
'■v'T’.y-fss"- ‘ ■•■/y.-'.-y ■ ■ •
• BREYTT AÐFERB
En nú höfðu Liverpool-menn
sýnilega fengið skipanir um að
ganga betur til verks og þeir
tóku iað glreiða úir flækjunni.
Þeir pressuðu ekki eins mikið
að marki KR og áður — en
drógu KR-ingana fram og leit-
uðu siðan upp kantana og það
var ekki lengi að gefa ávöxt.
Á 12. mín sækja þeir upp
hægri kant. Callaghan útherji
lék á Bjarna út við hornveifu
og miðjaði vel. Knötturinn fór
fram hjá marki og út. Þar hljóp
að Chisnall miðherji og sendi
knöttinn með þrumuskoti í
markið.
Sex mín síðar (18. mín) endur
tekur Callaghan bragðið á
hægra kanti og miðjar veí. Hörð
ur reyndi að verjast með því að
skalla frá, en knötturinn sveif
yfir höfuð hans og lenti á næsta
höfði þar sem honum var ætlað
að lenda. Þar var fyrir Wallace
innherji og skallaði óverjandi í
mark af 6-8 m færi.
Tveir Ijósir punktar komu
síðan fyrir hjá KR. Gísli mark
vörður varði mjög vel skot frá
Stevenson framverði og litlu síð
ar kom annað tveggja marktæki
færa KR-inga. Gunnar Felixsson
Framhald á bls. 23.
• 1-0 f HALFLEIK
Það voru ekki liðnar nema 2
mín er KR sótti knöttinn í netið.
Hunt innherji undirbjó vel, lék
á tvo varnarmenn og gaf þvert
fyrir markið yfir til vinstri.
Chisnall miðherji lék þar að
endamörkum vippaði fyrir mark
ið og Wallace innherji (vinstri)
afgreiddi auðveldlega.
Þetta var eina mark hálfleiks
ins. En siðan sóttu Liverpool-
menn allan tímann, höfðu leik-
inn í hendi sér, snargöbbuðu bak
verði og framverði, en fyrir
marki KR var eins og skógur af
fótleggjum og erfitt að finna
JjBBBpi'MJi.'tQijlIL' i' iMui _ imiriu i 111"i i'jijf' :'"iniiirioi][iri
leiðina í mark — og Liverpool
l'ðið beitti sér aldrei af hörku
í þeim tilgangi, heldur þvert á
n.ióti, og má segja að sjaldgæft
sé að enskt atvinnulið taki svo
iétt á hlutunum.
í fyrri hálfleik kom Lawrence
markvörður aðeins 3 eða 4 sinn
um við knöttinn og í öll skiptin
var það er félagar hans sendu
knöttinn til baka til að hann
hæfi nýja sókn. KR átti ekkert
skot á mark í fyrri hálfleik.
O HRAÐINN EYKST
Á 1. mín í síðari hálfleik kom
næsta mark. Wallace var I skot-
Gisli ver og Iireiðar er til tak s. Wallace sér tækifærið ganga
úr gre ipum.
Annað markið. Hunt (ber utan við stöng) hefur skorað þó margir séu til varnar. Gísli mark-
vörður fær lítið að gert. — Myndir Sveinn Þorm.
"Það er KR að kenna, ef
ég fæ kvef"
sagði Lawrence
ÞAÐ ríkti svona svipað and-
rúmsloft eins og eftir létta
æfingu í búningsherbergi
Liverpool að leik loknum. Við
náðum tali af nokkrum leik-
manna, áður en þeir fóru í
baðið.
Markvörðurinn, Lawrence,
hár og myndarlegur maður,
brosfi glaðlega og kvað langt
síðan hann hefði haft svona
lítið að gera, en bætti við, að
það kæmi þó stundum fyrir á
móti sterkari liðum, að félag-
ar sínir í framlínunni yljuðu
hinum markverðinum.
„En jafn áreynslulítið og
við lékum í kvöld, verð ég að
segja, að það er framherjum
K.R. að kenna, ef ég kvefast.
Mér fannst veðrið alveg dá-
samlegt, en hrollkalt, þegar
sólaririnar naut ekki lengur.“
Bakvörðurinn Moran stóð
hjá okkur og tók undir það,
að kalt hafi verið undir lok-
in, en sagðist þó sízt hafa
ástæðu til að kvarta, þar sem
hann hafi haft bezta mann
K.R. á móti sér (Gunnar Guð-
mannsson).
— Það kemur ekki oft fyrir
að bakverðir skori mörk, en
mér sýndist þér hafa fullan
hug á því í eitt skipti.
Já, vissulega langar okkur
líka til að skora, og í kvöld
gafst mér klassiskt tækifæri
upp úr aukaspyrnu fyrir
framan vítateig K.R., en skot
mi'tt komst aldrei alla leið,
heldur lenti í einum hinna
mörgu varnarmanna, sem fyr
ir voru.
Aðalforstjóri og fram-
kvæmdastjóri Liverpool B.
Shankley vildi sem minnst
um leikinn tala, éngan dóm
leggja á leikmenn K.R. og
kvaðst eftir atvikum ánægð-
ur með úrslitin. Vissulega
hefur þetta neikvæð áhrif á
aðsóknina í Liverpool, og
strax verið betra, ef K.R.
hefði tekizt að skora eitt
mark.
— Ég vil ekki láta hjá llða
að hrósa vellinum ykkar og
öllum aðbúnaði. -Það þarf
sannarlega 'ekki að vorkenna
knattspyrnumönnunum ykkar
við slíkar aðstæður.
Það var heldur dauft yfir
KR-ingum en sýnilegt að
þeir voru fegnir að eldraun-
inni var lokið — í bili.
Gísli Þorkelsson markvörð-
ur taldi KR-liðið óheppið
með tvö fyrstu mörkin. — Ég
hélt þeir mundu skjóta meira
í stað þess að reyna svona
stanzlaust að spila inn í mark.
Taugarnar voru ekkert slapp-
ar í leiknum — en dálítið
óstyrkar áður en hann hófst
enda fékk ég ekki að vita fyrr
en kl. 7 að ég ætti að leika
og var þá nýkominn úr sumar
fríi.
Ellert Schram sagði. —
Þetta var eins og ég bjóst við.
Þeir spiluðu án efa af fullum
krafti. Ég sagði fyrirfram að
allt undir 6 mörkum væri hálf
gerður sigur fyrir okkur. Sig-
ur þeirra var ekki of stór en
sum mörkin fengu þeir ódýrt.
— Þú varst nálægt því að
skora.
— Já það var spennandi
augnablik að bíða og sjá
hvort knötturinn færi í mark-
ið, en þá bjargaði bakvörður-
inn á síðustu mínútu.