Morgunblaðið - 18.08.1964, Síða 24
0 0 0 I
bilaleiga
/ jjglj magnúsar SsS|
\ÆÍL/ sfeépholt 21 SSS*
\| / Blmar: 21190-21185 izil
*» *> »-■
Forsetar Norðurlandaráðs hittust hinn 12. þ.m. í Rajamaki í nágrenni Helsingfors. Ræddu
þeir m.a. undirbúning að næsta fundi Norðurlandaráðs, sem hefst í Reykjavik 13. febrúar
í vetur. Á myndinni hér að ofn sjást talið frá vinstri: Karl Ágúst Fagerholm, Finnlandi, John
Lyng Noregi, Bertil Ohlin Svíþjóð, Sigurður Bjarnason og Harald Nielsen Danmörku.
Veðurfræðileg rannsóknarstöð
sett upp á Hveravöllum
Ráðizt á tvo menn
aðfaranótt sunnudags
AÐFARANÓTT sunnudags var
ráðizt á tvo menn hér í bæ. Var
annar sleginn niður 1 Austur-
stræti, og hlaut hann njeiðsli á
vinstra eyra, ert hinn í Kirkju-
stræti og slapp hann ómeiddur.
Strákahópur hafði safnazt sam-
an fyrir utan verzlunina Teppi í
Austurstræti og lét illa. Bar þar
að mann, sem staldraði við til að
fylgjast með framvindu mála, en
þá var ráðizt að honum og hann
sleginn, svo að hann féll á rúðu
í sýningarkassa og skarst á
vinstra eyra. Ekki hefur enn tek-
izt að hafa upp á árásarmannin-
um, en rannsóknarlögreglan bið-
ur þá, sem einhverjar uppiýsing-
ar kunna að gefa, að hafa sam-
band við sig.
Maður nokkur hafði verið að
skemmta sér á Hótel Borg sama
kvöld og ætlaði að taka strætis-
vagn heim til sín um eittleytið
en missti af honum. Gekk hann
þá vestur Kirkjustræti, og þegar
hann var kominn rétt vestur fyr-
ir Alþingishúsið réðust þrír ung-
ir menn að honum og slógu hann
niður. Rankaði maðurinn ekki
við sér fyrr en lögreglan kom á
j á vettvang og veitti honum að-
stoð. Ekki var maðurinn rændur
og hlaut hann engin meiðsli.
Skotárás á biðskýii
Á LAUGARDAGSKVÖLD var
lögreglunni í Keflavík tilkynnt
um ferðir bifreiðar, sem ók
Reykjanesbraut suður úr Hafn-
arfirði. Hafði ökumaður hennar
skotið úr kraftmiklum loftriffli
í rúður í' biðskýlinu við Ásgarð
í Garðahreppi. Keflavíkurlög-
reglan hélt í veg fyrir bifreiðina
og handtók ökumanninn. Var
hann ásamt tveimur farþegum í
Dodge Weapon-bifreið og hafðl
skotið úr loftrifflinum á vega-
skilti meðfram allri leiðinni til
Keflavíkur. Hann er um tvítugt
og var ódrukkinn. Var ökuskír-
teinið tekið af piltinum. Er þetta
stórvítavert athæfi og má teljast
mildi, að ekki hlutust slys af,
því að tveir menn munu hafa
verið í skýlinu við Ásgarð, þeg-
ar skotárásin var gerð.
Veðurstofan hefur fengið styrk frd Nato
ÁKVEÐI® hefur verið að koma
upp veðurfræðilegri rannsóknar-
stöð á Hveravöllum, og hefur vís
indadeild Nato veitt Veðurstofu
íslands styrk til að koma benni
af stað. Er hafinn undirbúningur
og verður væntanlega hafizt
handa næsta sumar.
Mbl. spurðist fyrir um þetta
hjá Hlyni Sigtryggssyni, veður-
stofustjóra. Hann sagði að Veður
stofan hefði lengi haft hug á að
koma upp veðurfræðilegum rann
sóknum á háiendi fslands. Og
með þessum styrk frá Nato væri
Vísitala fram-
færslukostnaðar
KAUPLAGSNEFND hefur reikn
að vísitölu framfærslukostnaðar
í byrjun ágúst 1964 og reyndist
hún vera 163 stig eða hin sama
og í júlíbyrjun.
fenginn fjárhagslegur grundvöll-
ur til þess. Sé málið því í undir-
búningi og væri helzt hugsað til
að koma rannsóknunum á fót á
Hveravöllum, sem væru í um 600
m. hæð yfir sjávarmál. Væri ætl
unin með þessu að halda uppi
veðurfræðilegum athugunum
allt árið, en það hefur aldrei
fyrr verið gert á hálendinu.
Til slíkra athugana þarf að
hafa 1—2 menn á staðnum og er
því fyrst og fremst nauðsynlegt
að reisa hús handa þeim til vet-
ursetu og koma upp veðurathug-
unaráhöldum. Er þetta í undir-
búningi og hafa verið gerðir til-
löguuppdrættir að húsinu, en
ekki búið að gera endanlega
teikningu. Verður húsið væntan-
lega byggt næsta sumar.
Hlynur sagði, að slíkar veður-
fræðilegar athuganir allt árið á
hálendinu hefðu að nokkru leyti
almennt gildi, en þó fyrst og
fremst vísindalegt og hagnýtt
gildi fyrir okkur íslendinga. Þær
mundu m.a. hafa mikið gildi fyr-
HÉRAÐSMÓT
SJALrSTÆÐISMANIMA
i V-Barðastrandarsýslu
HÉRAÐSMÓT Sjálfstæðismanna í Vestur-Barðastrandar-
sýslu verður haldið á Patreksfirði, laugardaginn 22. ágúst
kl. 8,30 síðdegis.
§^0]
Gunnar
Dansleikur
Gunnar Thoroddsen, fjár-
málaráðherra og Matthías
Bjarnason, alþingismaður,
flytja ræður.
Leikararnir Róbert Arn-
finnsson og Rúrik Haraldsson
skemmta. Ennfremur syngur
Guðmundur Jónsson, óperu-
söngvari, með undirleik
Carls Billich, píanóleikara.
verður um kvöldið.
Matthías
ir gróðurrannsóknir á hálendinu.
Dr. Sturla Friðriksson hefur
þegar gróðurreiti á Hveravöllum,
en ekki hefur verið upp gert í
hvaða sámbandi þeir mundu
verða við veðurfræðilegu rann-
sóknarstöðina.
Veðurstofan heldur f sumar
uppi veðurathugunum á tveimur
stöðum á hálendinu, á Hvera-
völlum og í Jökulheimum, sem
kunnugt er. Sagði Hlynur að
þær athuganir stæðu 2—3 mán-
uði yfir sumarið og gengju ágæt-
lega. Væri góður hagur af að
hafa fengið þær.
Slökkvistarfið tók
sólarhring
AKRANESI, 17. ágúst. — Mílli
klukkan 5 og 6 síðdegis á laugar-
dag var loks talið óhætt að láta
brunabílinn yfirgefa fjóshlöðuna
á Kirkjubóli í Innri-Akranes-
hreppi. Var liðinn heill sólar-
hringur og tvær klukkustundir
betur siðan slökkvistarfið hófst,
en það var kl. 3,30 e.h. á föstu-
dag. — Oddur.
Frakkar skila Bandaríkja-
mönnum flugbátum
iHafa viðkomu í Skerjafirði á leið vestur
UM MIÐJAN dag í gær lentu
hér í sjóflughöfninni í Skerja-
firði tveir tveggja hreyfla flug
bátar af Martin Mariner-gerð
frá franska flughernum. —
Komu þeir frá Frakklandi
með viðkomu í Shannon á ír-
landi og halda héðan á mið-
vikudag til Goose Bay og Nor
folk í Bandaríkjunum.
Flugbátarnir sem komu hing
að í gær eru tveir af niu bát
um, sem franski sjóherinn
flytur til Bandaríkjanna.
Koma þrír til viðbótar á föstu
dag og fjórir í næsta mánuði.
Alain Geundrot, flugmaður,
sagði Mbl. frá því í gær, að
þessir flugbátar hefðu verið
staðsettir í írönsku flotastöð
inni í Dakar, en hún var lögð
niöur, er Senegal hlaut sjálf-
stæði. Voru þeir notaðir til
eftirlits með ferðum kafbáta,
flutninga og æfingaflugs. —
Bandar.mcnn lánuðu franska
flotanum þessar flugvélar, sem
eru 15—20 ára gamlar, fyrir
nokkrum árum, og eru Frakk
ar nú að skila þeim. Flugvélar
þessar hafa hér viðdvöl þar til
á miðvikudag, eins og áður
segir, og í gær var sett á þær
eldsneyti. Var því ekið í tank
bíl fram á bryggjuna í Naut-
hólsvík og dælt þaðan í slöngu
út í vélarnar.
Það er nú orðið sjaldgæft,
að flugvélar lendi í Skerja-
firðinum. Var flughöfnin þar
lö{gð niður árið 1955, en enn
eru þar legufæri fyrir tvær
flugvélar.
uiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiimiiiiiiimiiHiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiimmiiiiiiiiiiiiiiumíiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiHiiiiiiiiiiiiiiiiiniiiid