Morgunblaðið - 22.08.1964, Side 6

Morgunblaðið - 22.08.1964, Side 6
6 MORGUNBLAÐIÐ Laugardagur 22. ágúst 1964 I HÆSTARÉTTI hefur verið kveðinn upp dómur í máli, er Sveinn Gunnarsson, læknir, höfð aði gegn Mjólkursamsölunni, en í máli Þessu fór Sveinn fram á bætur vegna tjóns, er hann varð fyrir í árekstri við eina af bif- reiðum Mjólkursamsölunnar. Málavextir eru svofelldir: Um kl. 10 að morgni hins 3. marz 1956 varð árekstur á gatna mótum Rauðarárstigs og Flóka- götu milli bifreiðanna R-6202 og R-3422. Bifreiðinni R-6202, sem var mjólkurflutningabíll af Chervolet gerð í eigu Mjólkur- samsölunnar, var ekið suður Rauðarárstíg, en bifreiðinni R-3422, fólksbifreið af Mosk- vitchgerð, eign stefnanda og ekin af honum í umrætt sinn, var á leið austur Flókagötu. Gat an, sem árekstunnn varð á, var malbikuð, en sujór var á, og færi því hált. Bifreiðin R-6202 var með snjókeðjum á aftur- hjónum, en R-3422 var keðjulaus- Lögreglumenn komu þegar á vettvang eftir slysið og gerðu uppdrátt af staðháttum. Skv. þeim uppdrætti hefur framendi bifreiðarinnar R-6202 rekizt á vinstri hlið bifreiðarinnar R-3422 og ýtt henni u.þ.b. 4 metra til hliðar, áður en bifreiðarnar stöðvuðust. Samkvæmt uppdrætt inum voru hemiaför R-6203 8m- BRIDGE ICfllMll11111111111111111111111111 SPILIÐ, sem hér fer á eftir, er úr leiknum milli Formósu og Filippseyja á Ólympíumótinu í New York og er af mörgum talið meðal þeirra beztu, sem þar voru spiluð. — Þar sem spilararnir frá Formósu sátu N-V gengu sagnir þannig: Vestur Norður Austur Suður 1 A pass 2 * 2 ♦ 2 V 3 ♦ pass 5 ♦ pass pass pass A Á 8 3 V 10 7 5 ♦ K53 ♦ DG109 A G 6 4 ♦ KD 10 9 A 7 2 V ♦ ÁDG62 ♦ ♦ G 2 ♦ ♦ — * K 8 7 6 5 3 2 * 5 V K 8 3 ♦ ÁD 10 9764 Á 4 Útspil var spaðakóngur og sagn hafi gaf!! Næst lét vestur spaða- drottningu, sem gefin var í borði, en sagnhafi trompaði heima með tígul 6. Nú tók sagnhafi ás óg kóng í trompi og lét út laufa- drottningu, austur gaf og sagn- hafi gaf einnig heima. Sagnhafi lét nú út spaðaás og kastaði í heima laufaás. Því næst var lauf látið út, austur drap með kóngi, sagnhafi trompaði heima með tígul 9 og lét næst út tígul 4. Þannig komst sagnhafi inn á borðið á tígul 5 og gat kastað 2 hjörtum heima í laufin í borði. Sagnhafi gaf því aðeins tvo slagi og vann spilið á snjallan hátt. löng, en hemiaför R-3422 6m. löng. Við áreksturinn kastaðist stefnandi til inni í bifreið sinni og hlaut brot a vinstri síðu, en skemmdir á bifreiðunum urðu þær, að lugtarrammi R-6202 beyglaðist, en vinstri hlið bif- reiðarinnar R-3422 lagðist inn. Engir sjónarvottar voru að slysinu, en stefnandi hefur skýrt svo frá, að hann hafi ekið á ró- legri ferð að gatnamótunum og ekki yfir hámarkshraða innan- bæjar. Er hann hafi komið með framenda bifreiðarinnar inn á gatnamótin, kveðst hann hafa séð til ferða stórs bíls, er hon- um virtist vera í u.þ.b. 20—30 metra fjarlægð frá gatnamótun- um, og hafi hann því talið hættu laust að aka áfram. En í því hann hafi verið kominn út á mið gatnamótin, kveðst hann hafa séð bíl þennan stefna þvert á bíl sinn og hafi honum verið ek- ið á talsverðri ferð og því bor- ið miklu fljótar að, en hann hafi reiknað með. Stefnandi kveðst þá hafa hemlað og reynt að vikja undan til hægri, en Það hafi eng um togum skipt, að bifreið þessi hafi skollið á vinstri hlið bif- reiðar sinnar. Ökumaður bifreiðarinnar R- 6202 skýrði svo frá, að fyrir áreksturinn hefði hann stöðvað bifreiðina á Rauðarárstíg á móts við húsið nr. 3 við Háteigsveg til að losa þar mjólk. Að því loknu hafi hann ekið af stað aft- ur og hafi ekki verið kominn yfir ca 30 km. hraða er hann kom að gatnamótum Flókagötu- Hafi hann þá séð til ferða R- 3422, er hafi komið honum á hægri hönd og virtist honum bifreiðinni vera ekið nokkuð hratt. Er hann hafi séð, að öku- maður bifreiðarinnar R-3422 ætlaði ekki að stöðva, kveðst hann strax hafa hemlað með fullu átaki, en bifreiðin, sem vvvVvvv^.:vv:V:v: MYND þessi er tekin suður á Keflavíkurflugvelli af þyrlu við björgunaræfingar. hafi verið með fullu hlassi, hafi verið þung og runnið því áfram. Stefnandi krafðist bóta að upp hæð kr. 256.451.86 ásamt vöxtum og málskostnaði. Studdi hann kröfu sína þeim rökum, að bif- reiðinni R-6202 hafi verið ekið með óhæfilega miklum hraða í umrætt sinn, enda beri hemla- förin vitni um það- Stefnandi hafi að vísu átt vikskyldu á um- ræddum gatnamótum fyrir R- 6202, en þegar litið sé til allra atvika á slysstaðnum, verði hon- allt að einu ekki gefinn sök á því hvernig fór. Stefndi, Mjólkursalan, krafðist sýknu og byggði kröfur sínar á því, að stefnandi ætti alla sök á slysi þessu með því ag gegna eigi vikskyldu sinni þarna á gatnamótunum gagnvart R-6202 og auk þess hafi bifreið stefn- anda verið keðjulaus í umrætt sinn. Stefndi mótmælti því, að bifreiðinni R-6202 hefði verið ek- ið óhæfilega hratt í umrætt sinn, þar sem hún hefði verið tekin af stað í aðeins um það bil 2—3 bíllengda fjarlægð frá áreksturs- staðnum og hafi Því að öllum lík indum ekki verið á meiri hraða en 25 km. hraða á klst. Hinsveg- ar hafi stefnandi ekið of hratt, eins og hemlaför eftir bifreið hans bæru vitni um. í forsendum að héraðsdómi, sem staðfestur var í Hæstarétti, segir svo: „Þegar virt eru atvik að slysinu og hugað er að af- stöðumynd af vettvangi, virðist allt benda til, að bifreiðin R- 6202, hafi verið komin mun nær gatnamótum, en stefnandi hefur skýrt frá, þá hann ók inn á Rauðarárstíg. Allt að einu gegnir stefnandi ekki vikskyldu sinni gagnvart R-6202, heldur ek ur hann bifreið sinni, keðju- lausri, þvert í veg fyrir R-6202 við framangreindar aðstæður og á hann því megmsök á árekstr- inum með þessu gálauslega og ólögmæta ökulagi sínu. Á hinn bóginn þykir ökmnaður bifreið- arinnar, R-6202, einnig eiga nokkra sök á slysi þessu með of hröðum akstri sinum miðað við aðstæður, svo sem séð verð- ur af hemlaförum bifreiðarinnar á uppdrættinum. Þegar virt er það, sem nú hefur verið rakið, þykir rétt, að stefndi bæti stefn anda tjónið að 1/4 hluta, en stefnandi beri sjáifur tjón sitt að 3/4 hlutum.“ Samkvæmt þessu var metið, að hæfilegar bætur væru kr. 21.718.46 auk vaxta og málskostn aðar í héraði, kr. 3-400,00, en málskostnaður í Hæstarétti var niður felldur. Við heimskautsbaug Mikið fjandi var hann kald- ur í gær. Þetta er hálfgert vetr arveður. Þeir standa a.m.k. í snjómokstri í Siglufjarðar- skarði. — Og hér syðra fellur kartöflugrasið og úthagarnir baka á sig gula haustlitinn. Okkur finnst þetta einum of snemmt. En við þessu er víst ekkert hægt að gera. Það er ekki um annað að ræða en sætta sig við hnattstöðuna. Við sitjum hér við heimskautsbaug inn, því verður ekki breytt. Og hér er allra veðra von allan ársins hring. Við verðum að miða allt við þessa meginstað- reynd. Þetta breytist víst ekk- ert þótt menn bölvi og Veður- stofan sýni óþarflega mikla bjartsýni við og við. Óttaslegnir Eitt af því sem hrjáir lands- lýðinn í vetrarveðráttu sumars ins eru jarðskjálftar. Þetta er hvimleið tegund af skjálfta og þeir, sem vakna af værum svefni um miðja nótt við að allt er farið af stað í íbúð- inni, verða margir óttaslegnir. Það er ósköp eðlilegt. Menn gera þá ósjálfrátt ráð fyrir hinu versta, enda má segja að ástandið sé orðið alvarlegt, þeg ar sultukrukkurnar eru farnar að skoppa úr hillum kaupfé- laga víðs vegar um land. Reikna með því versta? En er þetta ekki einmitt eitt af því, sem við og kaup- félögin getum alltaf átt von á? Ekki sízt núna, þegar eldgos stendur. Ég hef alltaf haft það á tilfinningunni, að einhverja fyllingu þyrfti þarna niðri í staðinn fyrir þessi ósköp af jarðefnum, sem koma upp úr jörðunni koma við eldgos. Þess vegna er ekkert óeðlilegt að jörðin sigi á stöku stað með miklu brambolti og sultuspill- ingu. Sennilega er þetta mjög óvísindaleg skýring ekki efast ég um það. Samt er hún mjög trúleg fyrir almúgann, sem hef ur ekki vísindalegan smekk fyrir eldfjöllum. Annars eru hús það ramm- byggð hér á landi, að fólk hef- ur ekki ástæðu til að óttast að jafn illa fari og víða í útlöndum þar sem heilar borgir hrynja til grunna við minnstu hrær- ingu eða skjálfta jarðarinnar. Að visu gæti sjálfsagt komið það mikill skjálfti í fósturjörð- ina að engum yrði stætt og rammbyggðustu steinkassar féllu saman. En reiknar maður alltaf með því versta? Ekki ástæða til andvöku Ég get ósköp vel skilið að fólki verði ónotalegt við, þegar það finnur smákipp. En mér finnst ekki ástæða til að láta þetta halda fyrir sér vöku heila nótt, eins og víða varð nú í vikunni. Þá getur fólk alveg eins orðið andvaka af ótta við að brenna sig á morgunkaffinu, þegar það rís úr rekkju. Ég segi bara eins og karlinn, sem var spurður að því hvort hann væri forlagatrúar: „Ha, forlagatrúar?“, sagði hann — „Nei ég held nú ekki. Nei, forlagatrúar er ég ekki frekar er aðrir sjómenn. Nei, við sjómennirnir trúum sko að maður fari, þegar maður á að fara. Maður drepst ekki fyrr en kallið kemur — ag kallið kemur hvort sem maður vill eða ekki — Það er allt fyrir- fram ákveðið hjá forlögunum.‘* Alvarlegur atburður Skurgröfu- og ’ ýtustjórar, sem gera ekki annað en slíta símastrengi út um allan bæ, vita sennilega ekki hvað þeir hafa á samvizkunni. Núna síð- ast biðu t.d. milli sjö og átta hundruð konur í Smáíbúða- hverfi við „dauðann“ síma, fréttalausar g sámbandslausar við umheiminn í tvo heila daga og höfðu ekkert nema útvarpið og dagblöðin. Mér er sagt, að þetta hafi verið ein alvarleg- asta röskunin á fréttamiðlunar kerfi borgarinnar í lengri tíma. ELDAVELAR ELDAVÉLASETT GRILL Sjálfvirkt hita- og timaval. A E G - umboðið Söluumboð: HÚSPRÝÐI HF.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.