Morgunblaðið - 22.08.1964, Blaðsíða 24
bílaleiga
magnúsap
skipholt 21
slmar: 21190-21105
0 o c
0 0 0
z z z I
u> v) m
C C C I
r r P I
0 0 0
0001
23)1
íídl
z z z I
> > > I
195. tbl. — Laugardagur 22. ágúst 1964
Fjallvegir teppast - Alhvítt í byggð
Fé flýr afrétti
KULDAKAST mikið hefir
gengið yfir landið í gær og
fyrradag. Alhvít jörð varð
víða á Norður- og Austur-
landi og fjallvegir urðu þúng-
færir og sumir ófærir. Ekki
urðu hrakningar á fólki, en
fé leitar mjög ofan af fjöll
um og í heimalönd. Er það
venju fremur snemma. Veður
fer nú batnandi um land allt,
þótt kalsi sé enn.
Akureyri, 21. ágúst.
*HÉR er ýmist krapaihríð eða stór
rigning í dag. Um hádegisbilið
var nær al'hvít jörð í Kaupangs-
sveit, en yfirleitt hefir ekki fest
snjó á láglendi.
Færð er ágæt á Öxnadalsheiði
og þar hefir ekki komið snjókorn
að sögn Vegagerðarinnar hér. I
Norðurárdal í Skagafirði er líka
snjólaust en krapaelgur á veg-
um úr þvi kemur í Blönduhlíð
og ieiðindafærð á Vatnsskarði
en þó er það vel fært.
Vaðlaheiði á að heita fær bíl-
um með keðjum otg síðdegis í
dag var verið að skafa veginn
vestan í heiðarbrúninni. Ekki er
þó neinu hægt að spá um færð
þar ef snjókoman heldur áfram
í nótt.
Ríkisstjórnin
ræðir skatta-
mól við ASÍ
og BSRB
MORGUNBLAÐIÐ fregn
aði í gær, að ráðherrarnir
Gunnar Thoroddsen og
Emil Jónsson hafi í gær
haldið fund með fulltrúum
Alþýðusambands íslands
og Bandalags starfsmanná
ríkis og bæja. Á fundi þess-
um var rætt um skatta- og
útsvarsmál og skipzt á
skoðunum um þau. Var
ákveðið að halda viðræð-
um áfram n.k. þriðjudag.
Morgunblaðið spurði
Gunnar Thoroddsen um
viðræður þessar og sagði
hann, að ekki væri ástæða
til að ræða um þær opin-
berlega á þessu stigi máls-
ins.
Möðrudalsoræfi 'eru slarkfær
stórum bílum með drifi á öllum
hjólum, en litlum bílum er ein-
dregið ráðið frá að reyna að
komast þá leið. Axarfjarðarheiði
er ófær með öllu, en Hálsavegur
sæmíiegur. Á Mývatnsöræfum, 1
Framhald á bls. 23.
Stórskemmdir á hús-
um. Hey aldrei meiri
Mykjunesi, 21. ágúst.
Hér urðu skemmdir miklar á
húsum öllum í jarðskjálftunum
í fyrrinótt. Auk þess sópaðist allt
af hillum, bækur og glertau og
stór ísskápur fullur af varningi
snaraðist út á gólf. Slys urðu
ekki á fólki né skepnum. Hús
féllu ekki en hlöðugafl stein-
steyptur færðist úr stað um
tommu og losnaði frá hliðar-
veggjum. Fjós hér á staðnum er
afar mikið skemmt.
Sundlaug á Laugarlandi er svo
mikið skemmd eftir skjálftann,
að hún heldur ekki vatni. í Nefs-
holti brotnaði skorsteinn. Sprung
ur sáust í jörðu fram eftir degi
í gær en sigu saman er á dag-
inn leið.
Ef hús hefðu nú verið byggð
á sama hátt og var á jarðskjálfta
árunum 1896 og 1912 hefðu þau
hrunið í stórum stil að því er
gamalt fólk segir.
Um kl. 2 í dag varð vart við
smávægilegan kipp.
Hér hefur i dag snjóað niður
undir byggð Og 3ja stiga frost
var hér í nótt. Kartöflugrös eru
gjörfallin og útlit fyrir lélega
uppskeru.
Heyskap er að ljúka og hafa
aldrei verið hér jafnmikil hey
svo menn muni. Nokkuð er úr
sér sprottið en lítið sem ekkert
hrakið. Hey eru því græn í hlöð
um og stæðum, en úr sér sprott
in að marki og því ekki víst hve
mikið fóðurgildi þau hafa sum-
part.
— Magnús.
Carl Mau .aðstoðarfram-
kvæmdastjóri Lútherska
heimssambandsins.
MikiB um
bladlús
FRÚITIR hafa borizt um að
geysimikið sé um blaðlús á birk-
inu í Reykhólasveitinni, svo að
berjatínslufól'ki þyki nóg um. Ef
það kemur við runnana, eru föt
þess orðin þakin af grænni lús.
Auk þess er laufið orðið brúnt og
ljótt af lúsinni.
Mbl. hringdktil Ingólfs Davíðs-
sonar, grasaifræðings, sem sagði
að áraskipti væru að því hve
mikið væri um blaðlúsina, sem
færi sennilega eftir því hve mik-
ið hefði klakizt út af henni yfir
sumarið. í>etta sé semsagt ekkert
óvenjulegt, að mikið verði stund-
um af blaðlús á birki. Kvaðst
Ingólfur hafa farið nokkuð víða
að undanförnu og víða séð mikið
af blaðlús.
Þing Lútherska heíms-
sambandsins í Reykjavík
Merkur kirkjusögulegur við-
burður. Rætt við Carl IVIau
í GÆR kom hingað til lands
Carl Mau, aðstoðarfram-
kvæmdastjóri Lútherska
heimssambandsins (Lutheran
World Federation) ásamt
tveimur skrifstofustúlkum.
Mtmu þau vinna hér að undir
búningi stjórnarfundar sam-
bandsins ,sem haldinn verður
í Hótel Sögu dagana 30. ágúst
til 6. september.
Mbl. náði tali af Carli Mau
í gær. Hann er bandarískur
ríkisborgari, en kom hingað
nú frá Svíþjóð, þar sem hann
sat fund einnar sérdeildar
heimssambandsins, en þeir
eru haldnir víða um þessar
mundir, áður en stjórnin kem
ur saman til fundar .
Carl Mau hefur verið há-
skólaprestur í Bandaríkjun-
um, en áður vann hann á veg
um Lútherska heimssambands
ins í Þýzkalandi. Hann kvað
undirbúning fundarins taka
langan tíma, enda kom hann
hingað í febrúar í vetur vegna
hans.
Alls sitja 5ö manns fund-
inn ,en íslenzka kirkjan hef-
ur allmarga áheyrnarfulltrúa,
svo sem frá samhandsnefnd
kirkjunnar, úr kirkjuráði og
ritstjóra kirkjulegra mál-
gagna.
Þekktir kirkjumenn
Meðal erlendra fundar-
manna má nefna t.d. Kurt
Schmidt-Ciausen, fram-
kvæmdastjóra heimssambands
ins, sem kemur hingað í
kvöld, Bo Giertz, biskup í
Gautaborg sem væntanlegur
var í gærkvöldi, svertingjann
Auala frá Suðvestur-Afríku,
sem kemur á mánudag eða
Framhald á bls. 23.
35 ára gamalí maður
kœrður tyrir nauðgun
18 ára stúlka hefur kært 35
ára gamlan skrifstofumann fyrir
nauðgun, sem hún telur að átt
hafi sér stað í húsi við Ægissíðu
á ellefta timanum í fyrrakvöld,
og situr maður þessi nú í gæzlu-
varðhaldi. í yfirheyrslum hjá
rannsóknarlögreglunni i gær
taldi maðurinn að hér hafi ekki
verið um nauðgun að ræða.
Forsaga máls þessa er sú, að
er maður einn var á leið heim
til sín um 11-leytið í fyrrakvöld,
heyrði hann óp og háreysti úr
húsi við Ægissíðu.
Hélt hann fyrst að börn væru
þarna að leik með hávaða, en
er hann kom nær, heyrði hann
að hér var um að ræða nauð-
stadda konu. Gekk hann fram á
Flytja IMoskusa frá A-Grænlandi
til V-Grænlartds um Danmörku
DANSKA stjórnin hefur í hyggju
að koma upp Moskushjörðum í
Vestur-Grænlandi en moskus-
uxarnir eru nú aðeins í Austur-
Grænlandi. f sumar hafa menn
verið í Scoresbysundi til að hand
sama moskuskálfa í þessu augna
miði og sótti Björa Pálsson
mennina þangað í Vorinu á
fimmtudaginn en kálfarair verða
fluttir sjóleiðis til Danmerkur.
Alls náðust 17 kálfar, 10 kvíg-
ur og 7 tarfar. Verða þeir flutt-
ir með Grænlandsfarinu Tala
Dan til Danmerkur til rannsókn
ar. Þegar fullsannað þykir að
þeir eru ekki haldnir neinum
sjúkdómum, verða þeir fluttir
aftur með skipi næsta sumar til
Vestur-Grænlands og þeim'sleppt
þar.
Sem fyrr er sagt flaug Björn
Pálsson á Vorinu til Grænlands
á fimmtudag, en til Scaresbysund
er þriggja tíma flug frá Reykja-
vík. Lent er í 3 stunda gangs
fjarlægð frá þorpinu, þar sem
moskuskálfarnir eru nú geymdir
í búri og sá hann þá því ekki.
Veður var gott, en nokkuð lág-
skýjað. Hafði snjúað í fjöll á
Grænlandi, en bjart var og fag
urt að sjá suður með ströndinni.
stúlku, sem lá hljóðandi í ytri
gangi hússins, en útidyr stóðu
upp á gátt. Stúlkan var ekki við
mælandi, og enginn annar heima
í búsinu, svo maðurinn fór í
næsta hús, og greindi húsráðanda
þar frá málavöxtum. Var síðan
hrin/gt til lögreglunnar, sem kom
þegar á vettvang.
Ekki tókst lögreglumönnum
að ræða við stúlkuna í því á-
standi, sem hún var. Var hún
flutt í slysavarðstofuna, og gisti
þar. Um nóttina sagði hún lög-
reglumönnum gælunafn manns
þess, sem hún segir hafa nauðgað
sér, og varð það til þess, að lög-
reglumenn handtóku umræddan
mann í gærmorgun.
Við yfirheyrslur í gær kom
það fram, að maður þessi hafði
verið gestkoman-di hjá stúlkunni
ásamt fleira ' fólki um kvöldið.
Er aðrir gestir voru farnir, ber
stúlkan að maðurinn hafi ráðizt
á sig, og nauðgað sér. Maðurinn
viðurkennir að hafa átt samfarir
við stúlkuna, en heldur því hins-
vegar fram, að ekki hafi verið
um nauðgun að ræða. Hann sit-
ur enn í gæzkrvarðhaldi, og
rannsókn málsins heldu.r áfram.
Hefur jáfað
fleiri
þjófnaði
í GÆR héldu áfram yfir-
heyrslur í málli þjófs þess, sem
gripinn var á Grettisgötu síð-
degis í fyrradag, eftir að hann
hafði stolið tösku með pening-
um úr húsi þar. Við yfirheyrsl
urnar hefur maðurinn játað á
sig nokkra þjófnaði til við-
bótar, og er hér um að ræða
stuldi úr mannlausum íbúð-
um. Slíkir þjófnaðir hafa ver-
ið hreinasta plága í borginni
að undanförnu, svo sem
kunnugt er. Maðurinn sit-
ur í gæzluvarðhaldi og verð-
ur rannsókn máls hans hald-
ið áfram, því ekki er grun-
laust um að hann hafi enn
sitthvað á samvizkunni.