Morgunblaðið - 22.08.1964, Page 10
lö
MORGU N BLADIÐ
Laugardagur 22. ágúst 1964
MYNDIR
Hérna sést þegar bandaríski
fjarskiptahnötturinn Syn-
com 3 var að leggja af stað
út í geiminn. Ætlunin er að
hann verði notaður við sjón-
varpssendingar frá Olympíu
leikunum í Tókíó.
Tass fréttastofan í Moskvu birti þessa mynd si. þriðjudag, og
sýnir myndin hvernig rússnes kt íþróttafólk á að vera klætt
við hátíðleg tækifæri á Oiympí uleikunum í Tókíó.
Sl. laugardag komu tveir sovézkir tónlistarmenn inn í bandariska sendiráðið í Tókíó og
báðu um aðstoð við -að komast til Bandaríkjanna sem pólitískir flóttamenn. Hér sjást tónlist-
armennirnir tveir, Boris Midney (fremst fyrir miðju) og Igor Berechtis (með gleraugu, of-
arlega lil vinstri) er þeir fóru frá Tókíó á sunnudag áleiðis tii Kaupmannahafnar á ieið sinni
til Bandaríkjanna.
Mynd þessi var tekin í aðalstö ðvum Atlantshafsbandalagsins sl. þriðjudag þegar þeir ræddust
þar við (talið frá vinstri): Man lio Brosio, hinn nýi framkvæmdastjóri NATO, Henry Cabot
Lodge, sérstakúr fulltrúi Johnsons Bandaríkjaforseta, og Thomas Finleiter, sendifulltrúi
Bandaríkjanna hjá NATO.
*
Bitiana brezku þarf vart að kynna, en þeir komu til San Francisco sl. þriðjudag þar sem
þeir ætla að halda hljómleika í Cow Palace, höllinni miklu þar sem Barry Goldwater var
kjörinn frambjóðandi repúblikana. Hér sjást Bítiarnir (hægra megin við miðju) við komuna
til flugvallarins, þar sem þúsundir aðdáenda biðu eftir þeim.