Morgunblaðið - 22.08.1964, Qupperneq 17
Laugardagur 22. ágúst 1964
MORCUNBLAÐIÐ
17
Cassius Clay, eða Muhammad Ali, og leiðtogi svörtu múham
eðstrúarmannanna Elijah Muiiammad.
HINN nýgifti heimsmeistari i
hnefaleik, Cassius Marcellus
Clay, sagði við fréttamenn i
Chicago fyrir nokkrum dög-
um, að hann ætlaði ekki að
láta börn sín fæðast í Ame-
ríku, og talaði um að hinn
spillti heimur mundi tortím-
ast innan tíu ára. „óboðnu
börn mín eiga að fæðast í
framtíðarlandinu," sagði
heimsmeistarinn. Framtíðar-
landið kvað hann vera „ein-
hversstaðar nálægt Arabíu.
Hann gat þess, að fáeinum
CASSIUS CLAY nýgíftur
Eyðir hveitibrauðsdögunum í
Egyptalandi
löndum yrði hlíft við hinum
válegu örlögum, en Ameríka
yrði með þeim fyrstu sem
iglötuðust. Eftir ölíum sólar-
merkjum að dæma yrði það
innan tíu ára.
Cassius Clay og brúður hans
Sonji Roi, fyrrverandi sýn-
ingarstúlka, hyggjast eyða
brúðkaupsdögunum í Egypta
landi. Cassius áformar að
þjálfa sig þar undir næstu
heimsmeistarakeppni, þar
sem hann og Sonny Liston
takast á á ný.
Kona hans mætti ekki á
fundinum, sem hann hélt
með blactamönnum. „Eigin-
konur svartra múhameðstrú-
armanna halda sig í skuggan-
um,“ bætti hann við til skýr
ingar.
Cassius er meðlimur hreyf-
Eiginkona Cassiusar, ingar í Bandaríkjunum, sem
Soni Roi. nefnis „Svörtu múhameðstrú-
armennirnir", og hefur verið
endurskírður Muhammad Ali.
Hann segir að það sé sitt lög-
lega nafn. „Elijah Muhammad
leiðtogi okkar, gaf mér það,
og allt sém hann gerir er lög
legt.“
Hnefaleikarinn sagði, að
hann hefði þurft að snúast
smávegis í viðskiptum á sjálf
an brúðkaupsdaginn. „Eg
keypti þá tvö íbúðarhús,"
bætti hann við.
Cassius Clay og kona hans
létu skrá á giftinga vottorð
sitt, að þau væru austurálfu-
búar. „Ég er ekki negri,“
sagði hann, „og ég er ekki
hvítur svo við komum okkur
saman um að vera austur-
álfubúar."
— Togliatti
Framh. af bls. 12
að láta heyra til sín aftur eft-
ir margra ára ofsóknir. Voru
. kommúnistar mjög andvígir
því, að konungdæmi yrði á-
fram á Ítalíu, en Togliatti
tókst að breyta viðhorfi þeirra,
og fékk þá til að hætta um
sinn að berjast gegn konungs-
fjölskyldunni og taka sæti í
stjórn Badoglios marskálks,
sem var formlega tilnefnd af
konungi.,
Þetta djarfa herbragð Togli
attis ávann honum virðingu
manna, jafnt andstæðinga sem
annara. Það leið heldur ekki
á löngu þar til honum hafði
tekizt að koma sjálfum sér
og dyggustu fiskifiskum sín-
um í lykilembætti í ríkisstjórn
inni. Það hagræði fylgdi
stjórnarsetunni að nú gátu
kommúnistar komið upp mik-
illi kosninga og áróðursvél,
sem þeir höfðu ekki átt áður.
1947 hugðist Togliatti leika
svipaðan leik og 1944. Þá fékk
hann kommúnista til þess að
styðja stjórnarskrárbreytingu,
sem þeir voru í hjarta sínu
mótfallnir, en á þennan hátt
hugðist hann aftur vinna sér
fylgi og jafnframt tryggja
setu kommúnista í stjórn de
Gasperis. En í þetta sinn sáu
andstæðingar Togliattis við
honum, og tveimur vikum
eftir stjórnarskrárbreytinguna
voru kommúnistar komnir úr
stjórn.
Næstu 15 árin var markmið
Togliattis tvíþætt. í fyrsta
lagi vildi hann fresta þeirri
stundu að sósíalistar slitu
sambar di við kommúnista og
skildu eftir Moskvukjarnann
einan og í öðru lagi búa svo
um hnúta, að Moskvukjarn-
inn réði öllu í flokknum. Þetta
var vandasamt verk, og vinnu
brögðin kenna allir, sem eitt-
hvað þekkja til starfsemi
kommúnista. Eftir 1953 gerð-
ist erfiðara að halda saman
flokknum svo Togliatti hent-
aði. Dauði Stalins og afneitun
hans síðar, svo og uppreisnin
í Ungverjalandi bættu og
ekki úr skák og sósíalistar
fjarlæguðst Moskvumennina
stöðugt. Loks kom þar að, að
stefna Togliattis beið algjört
skipbrot. Það var árið 1962,
er „apertura a sinistra", eða
„opnunin til vinstri" átti sér
stað, en þá fluttu sósíalistar
sig um set úr stjórnarandstöðu
og inn í „herbúðir“ stjórnar-
innar.
Staðá Togliattis í flokknum
varð því ekki eins tilkomu-
mikil eftir áratuga baráttu
og hún var 1948, er reynt var
að ráð» hann af dögum. Tvær
kúlur lentu þá í lungum hans,
en hann lifði tilræðið af og
um þetta leyti stóð hann á há-
tindi vinsælda sinna á Ítalíu.
Eftir að kommúnistar gerðu
sjálfir heyrinkunnugt hvílíkur
erkibófi og stórglæpamaður
Jósef Stalín hefði verið, varð
ljóst að þær hugmyndir, sem
allur þorri manna hafði um
Togliatti, hlyti að breytast, og
að falla mandi fara á dýrling-
inn. í lífi hans voru myrk
tímabil, einkum meðan hann
sat sem varaforseti Komin-
tern, og erfitt var að gera við-
hlítandi grein fyrir þeim. Hve
mikið hann vissi um glæpi
Stalíns og að hvað miklu leyti
han-. var meðsekur er ekki
vitað. ‘ i engu að síður bar
Togliatti höfuð og herðar yfir
samstarfsmenn sína 1 Komm-
únistaflokknum og þótt ekki
hafi blásið byrlega, er það
staðreynd að Kommúnista-
flokkur Ítalíu er hinn stærsti
vestan járntjalds, og það er að
heita eingöngu verk Palmiro
Togliattis. Hann var af öll-
um talinn meðal mestu stjórn-
málamanna Ítalíu, og ýmsir
telja að hann hefði getað fært
þjóð sinni mikla gæfu, hefði
starfskraftar hans og gáfna
notið á öðrum ’sviðum en
kommúnismans. Og víst er, að
Machiavelli hefði fallið vel
við Togliatti.
Tilboð
óskast í Volkswagen 1963, sem er skemmdur eftir
árekstur. Bíllinn er til sýnis á bifreiðaverkstæðinu
Armur, Bústaðabletti 12 við Sogaveg (við Bíla-
sprautun). Tilboð óskast send til Ábyrgðar h.f.
Laugavegi 133 fyrir kl. 17 24. þ.m.
USSR vill banna
kjarnorkuvopn
— myndi skapa falska öryggis-
tilfinnirrgu, segja vestrænir
fulltrúar
Genf, 20. ágúst. — (AP-NTB) i
AÐALFULLTRÚI Sovétríkj-!
anna á hfvopnunarráðstefn-
unni í Genf, Semyon K.
Tsarapkin, lýsti því yfir í dag,
að stjórn lands síns væri
reiðubúin til að undirrita
sainning, þar sem kveðið væri
á um algert bann við notkun
kjarnorkuvopna.
Sagði Tsarapkin við þetta
tækifæri, að slíkur samningur
myndi „binda enda á alla
hættu á árásum með kjarn-
orkuvopnum, alls staðár“.
• Sovézki fulltrúinn lýsti stuðn 1
ingi við tillögu, sem fram kom
frá fulltrúa Eþíópíu, Mikael
Irmu, og var á þá leið, að næsta
Allsherjarþing Sameinuðu þjóð-
anna kallaði saman alþjóðaráð-
stefnu, sem gerði upplcast að
samningi, er bannaði alla notk-
un kjarnaorkuvopna.
• Vestrænir fulltrúar létu í
ljós þá skoðun á þessum til-
lögum, að þser væru ekki raun-
sæjar, og væru til þess fallnar
að vekja falska öryggistilfinn-
íngu í brjóstum manna.
Fyrsti ræðumaður af hálfu
vestrænna þjóða, sem til máls
tók, eftir ræðu Tsarapkins, full
trúi Kanada, E.L.M. Burns,
sagði, að samningur, sem bann-
aði alla notkun kjarnorkuvopna
væri „ólíklegur til að koma
nokkru verulegu til leiðar, og
myndi vekja falska öryggistil-
finningu".
Kvað hann ólíklegt, að þjóðir,
sem eldu öryggi sínu ógnað
myndu fara að á þann hátt, sem
slíkur samningur kvæði á um.
Sagði Burns, að sagan hefði sýnt
og sannað, að slíkir samningar
sefðu aldrei verið haldnir á ör-
lagastund.
Aðalfulltrúi Breta, J. G.
Tahourdin, lýsti því yfir, að syo
lengi sem kjarnorkuvopn væí'u
til, væri alltaf á því hætta, að
til þeirra yrði gripið. Taldi hann,
að þótt slíkur samningur yrði
gerður, væri á engan hátt loku
fyir það skotið, að til ofbeldis-
aðgerð með venjulegum vopn-
um kæmi, — jafnvel miklu frem
ur en ef enginn slíkur samningui
væri gerður — því að sum rík;
myndu þá telja sér óhætt aí
ganga lengra en þau nú gerðu
því að þau myndu enga hættn
telja á að kjarnorkustyrjöU
fylgdi í kjölfarið.
heitir hið undurfagra japanska kirsuberja
blóm. LANCOME hefir í ár valið
SAKOUEABLt^lIÐ sem tízkulit
SAKOURA fæst samstætt í varalit og
naglalakki hjá Tízkuskóla Andreu, Oculus
og Sápuhúsinu.
LANCOME
íþróttakonur. SAKOURA-tízkuliturinn er valinn með hliðsjón
ai Olympíuleikunum í Tokíó.
IMú eða aSdrei
slmi 12500
Bílasalinn við Vitatorg
DUN^FIÐURHRHINSUNINI
VATNSSTIG 3 SIMI 18740 DCCT RF7T-lcr.drlnr
AÐEINS ORFA SKREF
££AUUJGAVEGI
REST BEZT-koddar
Endurnýjum gömlu sœng-
urnar.eigum dún- og fidurheld ver.
>ELJUM ædprduns-og gæsadúnssæng-
ur og kodda af ýmsum stærdum.