Morgunblaðið - 23.08.1964, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 23.08.1964, Blaðsíða 12
12 MORCU N BLADIÐ Sunnudagur 23. ágúst 1964 fiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiitiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiíuiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiisiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiniiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiuiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiit'iiiiiiiiiiiiiiiin != „Verst að þurfa að raka sig með kðldu vatni" XJM daginn áttum viff, blaffa- maður og ljósmyndari Morg- unblaðsins leiff um Kjöl, þeg- ar viff sáum skammt utan viff veginn tjaldbúðir miklar. Var þar þá staddur leiðangur brezkra skólapilta ásamt for- ingjum sínum. Við ókum að tjöldunum og óskuðum eftir i Jón Xorfi fyrir framan tjald jsitt. aff ná tall af yfirmanni leiff- j angursins. Okkur var vísað aff tjaldi hans, sem stóð yzt í þyrpingunni, og hittum við þar fyrir Maj. Stanford, allra viðkunnanlegasta mann. Hann bauð okkur innfyrir og rabb- aði við okkur stundarkorn. — Sagði hann m.a.: — Hér eru eingöngu úrvals I menn. Hér eru 68 drengir og \ 11 foringjar auk tveggja ís- I lenzkra pilta, þeirra Guð- mundar Björnssonar og Jóns Torfa Jónassonar. Brezku drengirnir eru allir valdir úr ! stórum hóp umsækjenda, og j eru þeir úr ýmsum áttum, allt frá iðnverkamönnum til til- vonandi háskólanema. — Hvað heitir þessi félags- skapur? — Félagsskapurinn heitir British Schools Exploring Society og er eingöngu skip- aður áhugamönnum. Foringj- arnir hérna eru til-dæmis allir sjálfboðaliðar. — En hver borgar þá leið- angra sem þennan? — Það gera drengirnir sjálf- ir að einhverju leyti, en ýms- ir aðilar, svo sem menntayfir- völd á hverjum stað og fleiri styrkja þá að talsverðu leyti. — Og hvað kostar svona leiðangur? — Hann kostar um £5000, en hver þátttakandi þarf að borga £ 160. Ef einhver drengj anna hefur ekki efni á að borga fær hann styrk. — Hver er tilgangurinn með leiðangrinum? — Tilgangurinn er sá að kenna drengjunum útivist og hvernig ber að haga sér í úti- legum. Einnig kennum við þeim alls konar rannsóknir, svo sem veðurmælingar, kort- lagningu, jarðfræðirffnnsóknir o. fl. — Hverjir eru foringjar hér? — Foring.iarnir eru úr ýms- um áttum. Margir þeirra eru úr hernum, en hér er líka skólastjóri og jöklafræðingur. Skilyrðin fyrir því að menn geti orðið foringjar hér eru þau að þeir hafi áður verið í - slíkum leiðangri. — Þið hafið komið hingað áður? j — Ég hef ekki komið hing- að áður, en hópar frá þessu félagi komæJiingað 1951, 1952, 1956 og 1960. ■— Hvernig hefur veðrið verið? — Síðan við komum hingað, þann 30. júlí, hefur verið mjög gott veður, nema fyrstu nótt- ina, þá snjóaði. — Hvernig hafið þið hagað starfinu hér? — Við byrjuðum á því að senda hópa til þess að kannq landið hér í kring. Var það mjög góð æfing fyrir dreng- ina áður en til stórátaka kom. Síðan hjálpuðust allir að við að setja upp bækistöð fyrir landmælingamenn, sem hafa að undanförnu kortlagt um- hverfið. Þá sendum við nokkra pilta, sem áhuga hafa á nátt- úrusögu, upp á Hveravelli og veðurfræðingar settu upp tjald búðir í grennd við aðalbæki- stöðvarnar og á Bláfelli. Við höfum nú sent nokkra hópa upp á skriðjökulinn úr Lang- . jökli og hafa þeir gist eina nótt á jöklinum. Við miðum að því að allir gisti a.m.k. eina nótt þar. í lok leiðangurs- ins verður farið í 16 daga gönguferð hringinn kring um Hofsjökul og hafa tveir hópar verið að leggja út vistir að undanförnu. Einn hópur á eft- ir að fara þvert yfir Langjökul á Arnarvatnsheiði og annar suður fyrir jökulinn til þess að finna tjaldstæði fyrir næsta leiðangur. — Hvenær farið þið svo héð an? — Við förum héðan 11. sept. til Reykjavíkur og þaðan þann tólfta. Við þökkum fyrir og ætlum að kveðja en Maj. Stanford býðst til þess að sýna okkur tjaldbúðirnar. Við þiggjum það auðvitað með þökkum. 2750 pund af kexi Tjaldbúðirnar eru við Svartá, rétt hjá Fremri-Skúta. Þarna eru samanlagt milli 20 og 30 tjöld. Stórt birgðatjald er þarna, en þar hittum við fyrir Keith Crocker birgðastjóra, sem sýnir okkur innihald tjaldsins. Allur matur er þarna niðursoðinn eða þurrkaður, Maj. Standford, yfirmaffur leiðangursins viff eina farartækiff í leiðangrinum. fullt af alls konar lækninga- tækjum, sem við kunnum eng- in deili á. Læknirinn segir okkur, að hér hafi þeir tæki til næstum hvers konar lækninga. Geti þeir meira að segja fram- Guðmundur Bjornsson. Bak kexkössum. meira að segja mjólkin. Sér- staka athygli okkar vekur stafli af kexkössum. — Mestur hluti matarins hér er kex, segir Crocker, — við komum með nákvæmlega 2750 pund af kexi með okkur. Það kemur svo í minn hlut að skipta matnum milli drengj- anna. Hér fá menn sama mat- inn á hverjum degi og er hon um úthlutað daglega. Er allt nákvæmlega mælt eftir hita- einingum. Við höldum áfram og kom- um að „spítalanum". Maj. Stanford segir okkur, að tveir læknar séu með í ferðinni og hittum við annan þeirra í „spítalanum", sem er tjald við hann er hlaði af tómum kvæmt botnlangauppskurð ef þörf krefji. Notaði blaðamað- ur Mbl. tækifærið til þess að fá plástur á rispu, sem hann hafði fengið á fingur sinn um morguninn. Kann vel við matinn Maj. Stanford býðst til þess að sýna okkur bækistöðvar landmælinganna, sem eru nokkru sunnar. Við förum þangað og hittum þar Jón Torfa Jónsson, annan íslend- inganna, sem eru þarna. Jón var í 3.. bekk Menntaskólans í Reykjavík sl. vetur. Sagði hann okkur að sér líkaði vistin þarna vel. Farið er á fætur kl. 7 á morgnana og byrjað að vinna um kl. 8. Er síðan unn- ið eftir birtu og veðri og venju lega hætt kl. 7. Við spurðum hvernig maturinn væri og lét hann vel af honum. Á morgn- ana fá þeir hafragraut, kex- pakka og te eða kaffi. í há- deginu fá þeir tvo kexpakka, súkkulaðistykki og ostbita. Á kvöldin fá þeir svo kjöt, þurrkað grænmeti, og e.t.v. hrísgrjón eða rúsínur og síðan kakó. Sagði Jón að hann kynni ágætlega við matinn þó nokk- uð tilbreytingalaus væri. Votur Við snerum nú til baka til aðalbækistöðvanna þar sem við hittum Guðmund Björns- son, sem var þá nýkominn úr 7 daga gönguferð norður fyrir Hofsjökul, til þess að leggja út vistir fyrir gönguferðina miklu. Við spurðum hvernig honum hefði gengið. — Þetta gekk ágætlega. Það var verst hvað maður var vot- ur á leiðinni. Þarna voru margar ár, sem við þurftum að fara yfir og maður var varla fyrr orðinn þurr en mað- ur þurfti að vaða aftur. — Hvernig líkar þér dvölin hér? — Mér líkar vel. Maturinn er að vísu ekkert afbragð, en maður er þó aldrei svangur. — Hvernig líkar þér við Framhald á bls. 23. i Séff yfir tjaldbúffirnar viff Svartá. Héma er nesti fyrir tíu manns í einn dag. jfii.........................................................................................................................................................................................................................iiiiiiiiib wiiffliimmniinniinmniiimm iiiiiiitiitimiiniTiiniiiiniiiiiiiiiiiiniiniiiiiiniiiinnniniiiiiiiiiniiniiininiimiiiiniimninniinTiiuiTTiminuiiiimmmmni

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.