Morgunblaðið - 23.08.1964, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 23.08.1964, Blaðsíða 21
SunnudagUT 23. ágúst 1964 MOHGUNBIAÚIO 21 Grjótið bjargaði trjánum Og Gunnlaugur gekk með okkur að fallegum lundi með um 30 stórum trjám, sem öll voru al-laufguð. Þetta voru trén, sem áttu að verða jarð- ýtunni að bráð. Annars koma flest trjánna úr Safamýrinni, Feils- múla og Stóragerði, segir Gunnlaugur. Og hann bætir við: Svo á ég nokkur tré niðri í bæ. urstræti þar sem Bókaverzlun Sigfúsar Eymundssonar var til húsa áður en Almenna Bóka- félagið reisti þar stú.hýsi sitt. Eins og borgarbúa „,una voru þar stórir og muílir búðar- gluggar, og var verið að rífa þá úr þegar Gunnlaugur kom að. Spurði Gunnlaugur hvað gera æ-tti við þessar forláta rúður úr tvöföldu gleri, og var sagt að þær yrðu ekki notaðar í nýja húsið. Festi Gunnlaugur þá kaup á glugg- unum á staðnum, og sendi mági sínum mál af þeim, en utan um þá var svo „kofinn“ teiknaður. Yar það því ekki arkitektinum að kenna að „kofinn" varð að veglegu húsi. En teikningu þessa lagði Þorvaldur fram í skólanum sem prófverkefni. Og er ekki að efa að hann hefur fengið ágætiseinkunn. En til að þóknast húsráð- endum skulum við snúa okk- ur að gróðrinum, þótt skrifa mætti langt og skemmtilegt mál um stutta og ánægjulega dvöl í „Helluvík“, en það nafn ber sumarbústaðurinn. Bústaðinum fylgir mikið land, sem áður var lítt gróið, eins og sést af umhverfinu. Ekki var bústaðurinn fyrr ris- inn af grunni en húsráðenflur hófu ræktun umhverfisins, og það á .fremur óvenjulegan hátt. Við höfum oft heyrt um menn, sem eignast land og planta í það örlitlum trjáplönt um, sem varla ná upp úr grasL En hér átti að setja niður tré í dag sem væru( skógur á morg un. Fyrsta tréð var flutt sum- arið 1961. Og það var ekki neitt smá trj, heldur um tveggja metra hátt birki. Því var komið fyrir í brekku fyrir framan bústaðinn, og þar stendur það í dag og dafnar vel. Gunnlaugur tók nefnilega það ráð að hlaða grjót-hnull- ungum meðfram trjástofnin- rom til að tréð haggist ekki eftir að það var gróðursett, og nægði það til þess að vetr- arvindarnir náðu ekki að slíta hárfínu ræturnar, sem færa trénu næringu. Þessa aðferð hefur Gunn- laugur notað alltaf síðan. Hann hefur flutt mikinn fjölda trjáa í lóðina og um 500 þeirra voru á annan meter þegar þau voru flutt. Afföll hafa verið innan við 5%, og þá aðallega vegna þess að rót- arhnullungar hafa lnskast í Minnl inyndin sýnlr brekkuna fyrir ofan Helluvík eins og hú n leit út 1961 þegar trjáflutningur var a» hefjast. A myndinni eru þau frú Herdis Þorvaldsdóttir, Sverrir Þórðarson og dr. G unnlaugur Þórðarson við gróðursetningu. Stærri myndin sýnir ■ömu brekku eins og hún er nú. Dæturnar leika sér á nýrri gr asflöt meðan húsbóndinn skoðar gróðurinn. Þarsa eru dæturnar, Tinna Þórdis og Snædis, hjá grenitrjám, sem voru komin á þriðja metra þegar þau voru flutt. (Myndirnar tók Gísli Gestsson). Ekki hafa allir góða reynslu af flutningi á trjám, og skal væntanlegum trjáflytjendum bent á reynslu Gunnlaugs og Herdísar. Aðalatriðið. segir Gunnlaugur enn á ný, er að hlaða grjóti meðfram bolnura ofan á ræturnar svo trén haggist ekki. Og við verðum að álíta að hann hafi lög að mæla. Það sýnir skógarlund- urinn við Helluvatn. Tinna Þórdís hjá elzta trénu, sem flutt var 1961. Heimsókn í Helluvík þar sem húsbændur hafa komið upp skógi ó þremur drum ÞAÐ var hráslagalegt í höfuð- borginni eitt kvöldið nú í vik- unni þegar fréttamaður blaðs- ins brá sér upp að Rauðhól- um. En sunnan við hólana var logn, og hlý kvöldsólin glamp aði í heiði. Þrátt fyrir nepj- una í Reykjavík var Hellu- vatn spegilslétt. Og við fallega vík á vatninu, milli tveggja hóla, stendur nýlegur sumar- bústaður uragirtur skógar- lundi. Þarna ríkir fegurðin og kyrrðin aðeins steinsnar frá ys og þys stórborgarinnar. í>eir, sem þekkja þarna til, vita að þarna var enginn trjá- gróður fyrir 3 árum, og því vakti þessi skógarlundur for- vitni vegfarandans. Það kom í ljós að sumarbústaðinn áttu hjónin Gunnlaugur Þórðar- son, dr. juris., og kona hans, Herdís Þorvaldsdóttir, leik- kona. Þar sem forvitni lék á *ð vita hvernig á þessum trjá- gróðri stóð mitt í gróðurleys- inu, var ákveðið að hringja til húsbóndans næsta dag og fá frekari upplýsingar. Voru þær fúslega veittar, og einnig heimild til að fara á staðinn með Ijósmyndara. ' Helluvatn er ekki stórt, en f vestri er það opið út í Ell- iðavatn og austan við það eru Gvendarbrunnar. í fjörunni hjá frú Herdísi og Gunnlaugi liggur grjóthleðsla þvert yfir víkina, sem myndar fallega tjörn fyrir framan helli í fs: > hraunbungu við sumarbústað- inn. Þarna segir húsoóndinn að sé falin gamla vatnsleiðsl- an úr Gvendarbrunnum, en sú nýrri liggur eftir vatninu endilöngu. Vegurinn að sumarbústaðn- um liggur í gegnum sundur- grafna Rauðhólana, þar sem hvergi er stingandi strá að sjá. Það er því eins og að koma í vin á eyðimörk að líta allt í einu skógarlundinn. Og fáir kunna betur að meta gróðurinn en húsbændur. Við fórum þarna uppeftir með húsráðanda en á áfangastað var húsfreyja ásamt dætrum þeirra tveimur, Snædísi og Tinnu ÞórdísL — Og ég ætla að biðja ykk ur að muna að það er gróður- inn, sem á að skrifa um, en láta okkar ekki getið, sagði Herdís. Og hún bætti því við að frá bústaðnum hafi verið sagt í Mbl., þegar fyrst var flutt í hann sumarið 1961. En samt er ekki hægt að ganga algjörlega framhjá bústaðnum án þess að geta aðeins um sögu hans. Það stóð nefnilega þannig á að ákveðið var að bústaðurinn yrði byggður þarna á þessum stað og að bróðir húsfreyjunn ar, Þorvaldur S. Þorvaldsson arkitekt, sem þá var að Ijúka námi úti í Kaupmannahöfn, skyldi teikna „kofann". Svo var Gunnlaugi eitt sinn geng- ið framhjá þar sem verið var að rífa gamla húsið við Aust- sumarbústað á vorin, svona í marz eða apríl. — Til að auðvelda flutning- ana er bezt að undirbúa trén á haustin með því að rista í kringum þau í hæfilegri fjar- lægð frá bolnum, og þola þau þá flutningana betur á vorin. En þetta er ekki alltaf hægt, því stundum þarf að hafa hraðann á. Ég man sérstak- lega eitt tilfelli, og það var núna í vetur sem leið. Búið var fyrir nokkru að úthluta byggingarlóð við Háaleitis- braut, en þar voru fyrir um 60—70 tré, mörg stór og falleg. Fór ég því til eiganda og fal- aðist eftir kaupum á trjánum með það fyrir augum að bjarga þeim frá skemmdum og fegra enn hjá mér um- hverfið. Ekki samdist með okkur í fyrstu atrennu, svo ég sagði við eigandann að hann skyldi hafa samband við mig ef hann skipti um skoðun. — Tíminn leið. Svo kom að því að undirbúningur hófst undir húsasmíðar á lóðinni. Þá var hringt til mín einn daginn, og var þar eigandinn kominn. Hann sagði að nú væri illt í efni, því jarðýta væri tekin að ryðja burtu trjánum, sem hann hafði neit- að að selja mér. Bauð hann mér að hirða það, sem eftir væri, um endurgjald mætti semja síðar. Fór ég beinustu leið til verkstjórans og hús- byggjandans og bað um frest. Tókst að fá eyðileggingunni frestað um tvo daga, sem ég gat notað til að koma um 30 trjám undan. Það merkiNig- asta við þetta er að trén flutti ég í janúar. Þá var eng- inn klaki í jörð og dafna þau vel. flutningum. Margir hafa orðið fyrir skakkaföllum við að koma upp trjágróðri, og fáir hafa sennilega farið betur út úr því en þau hjónin í Helluvík. En leyndarmálið segir Gunn- laugur eingöngu vera það hve örugglega var gengið frá því að trén gátu ekki haggazt á rótunum eftir flutningana. Annað mál er svo hvernig Gunnlaugi tókst að útvega öll þessi tré. Aðspurður segir hann svo frá. — Á bæjarlandi Reykjavík- ur var víða kominn upp trjá- gróður á svæðum, sem seinna fóru undir skipulag. Á þess- um svæðum var ákveðið að byggja íbúðarhús, og fæstir hirtu um að bjarga gróðrin- um. Er það undarlegt tilfinn- ingaleysi, sem ríkir hjá mörg- um gagnvart þessum litla gróðri, sem við eigum hér á landi. Á ferðum mínum um borgina á undanförnum árum hef ég oft séð stórar gróður- spildur, sem verið var að gera að byggingarlóðum, og þá jafn an notað tækifærið til að reyna að fá keypt þau tré, sem þar voru. Stundum hefur þetta tekizt, stundum ekki Venjulega reyni ég svo að flytja þessi tré hingað upp í

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.