Morgunblaðið - 23.08.1964, Síða 19

Morgunblaðið - 23.08.1964, Síða 19
SunnudaguT 23. ágúst 1964 MQRGtiUBLAÐIÐ 19 l Sauðahúsrústin. í baksýn Miðskytjuskarð. — Á söguslóðum fárra kosta völ, svo að þeir sneru upp í brekkurnar í leit að hentugum stað til varnar. Sennilegt er, að þeir hafi ætl- að sér upp í klettaborgirnar, en ekki gefizt tóm til þess og því hafi verið nauðugur einn kostur að leita sér stað- ar í gerðinu á örlygsstöðum. í sama bili komu þeir Sig- hvatur og Markús sunnan hlíð ina hið efra, þ.e. austan Bellu borgar, og sameinuðust liði þeirra bræðra. Var Kolbeinn ungi þá kominn fast að gerð- inu að suðaustan, og voru tveir menn Sighvats vegnir þar á hestbaki, þeir er síðast riðu. Allt gerðist þetta í skjótri svipan. Ekki er að efa, að fram- vinda mála hefði orðið allt önnur, ef Sturlungar hefðu sýnt meiri fyrirhyggju, en hún reyndist furðulega lítil og undirbúningur átakanna frá þeirra hendi ráðleysisfálm hugsjúkra manna, sem höfðu glatað trúnni á gæfu sína. Ýmis viðbrögð Sturlu þennan morgun og dagana á undan sýna vel þetta hugarástand. Það var í meira lagi óskyn- samlegt að senda skagfirzka bændur á njósn um Kolbein unga og hyggjast hafa gagn af því. Hið eina, sem af því hlauzt, var, að Kolbeinn vissi um hverja hræringu Sturl- unga. Þá hafði Sturla dreift liði sínu á ýmsa bæi í Blöndu hlíð, og hlaut að fara dýrmæt ur tími til að safna því á einn stað. Hestar þeirra voru dreifð ir um allar mýrar, svo að menn voru flestir gangandi. Skildir allir voru bundnir í klyfjar og urðu ekki leystir nema einn; sá var Sturlu ætl aður, en hann tók ekki við. Brynju bjóst Sturla fyrst á orrustuvellinum og að áeggj- an annars manns. En stærsta og afdrifaríkasta vanrækslan var sú, að hafa ekki valið sér vígstöðu. Sturl ungar höfðu Skagafjörð á valdi sínu og gátu valið um hin ágætustu vígi, m.a. í Blönduhlíð, þar sem Gissuri og Kolbeini unga hefði orðið örðug aðsóknin þrátt fyrir all mikinn liðsmun. En nú beindu öriögin feigum mönnum til örlygsstaða, og enginn tími vannst til neins viðbúnaðar eða skipulagningar liðsins. Hér urðu skjót umskipti. Kolbeiim ungi sótti fast suð- austan að gerðinu og komust menn hans brátt inn fyrir hinn lága garð, og Gissur sótti með sínu liði niður frá hólunum úr suðvestri. Lítt eða ekki kvað að herstjórn Sturl- unga ,og varð þröng mikil í gerðinu. Einstakir menn í liði þeirra börðust af mikilli hreysti gegn ofureflinu, en Kolbeinn Sighvatsson flýði fljótlega með liði sínu upp úr gerðinu og staðnæmdist á „grjóthörg“ nokkrum. Sr. Björn Jónsson á iMklabæ gat þess til við Brynjólf Jónsson, að grjóthörgurinn væri Mikla bæjarborg, og er það senni- leg tilgáta, því að þaðan kom- ust þeir í kirkju. og bæjarhús á Miklabæ, sem þeim hefði tæpast tekizt fyrir eftirreiðar mönnum, ef þeir hefðu leitað beint til fjalls. Tumi Sighvats son komst á flótta til Eyja- fjarðar um Miðskytjuskarð, en Markús bróðir hans var særður til ólífis í gerðinu og veginn sama dag heima á Víði völlum. Helztu foringjar Sturlunga feðgarnir Sturla og Sighvatur, sem þá var 67 ára að aldri, voru báðir að velli lagðir á örlygsstöðum, Sighvatur sunn an undir garðinum, en Sturla norðvestan við garðinn. Kol- beinn ungi lagði sjálfur spjóti til Sighvats. þar sem hann lá, þrotinn að mæði, en Einar dragi veitti honum banasár. Kolbeinn var bróðursonur Halldóru, konu Sighvats. Giss ur Þorvaldsson veitti Sturlu banasár með eigin hendi og dró ekki af högginu. Áður hafði Sturla verið særður mörgum sárum og var óvígur orðinn. Var nú hefnt svikanna við Apavatn, en fram til þessa hafði Gissur verið friðsamur höfðingi og óáleitinn við menn. Sólveig, kona Sturlu, og Þóra, móðir Gissurar, voru systkinadætur. Mágaástin var alltof köld á þessari róstuöld. Kolbeinn Sighvatsson og Þórður krókur voru teknir úr Miklabæjarkirkju og til höggs leiddir ásamt f jórum mönnum öðrum. Urðu þeir allir hreysti lega við dauða sínum og höfðu gamanyrði á vörum. IV. Bardaganum á örlygsstöð- Um var lokið. Hann hafði öllu fremur verið vopnaviðskipti einstakra manna en orrusta milli fjölmennra fylkinga, og hann stóð aðeins skamma stund. í honum tóku þátt fram undir þrjár þúsundir manna, að því er ætla verð- ur: Gissur og Kolbeinn ungi með tæp 1700; Sighvatur hafði tæp 500 og varla hefur Sturla komið með færri en 700—800 menn, þar sem hann hafði safnað liði um Borgar- fjörð, Snæfellsnes, Dali og Vestfirði. Alls féllu, voru höggnir eða létust af sárum 4 menn af Sturlungum, en einir 7 menn af Gissuri og eng inn af Kolbeini unga. Hall- dóra Tumadóttir á Grund hafði látið bónda sinn og 4 syni. En ófriði Sturlungaaldar var ekki lokið. Enn átti mikið blóð eftir að renna og rauðir logar að sleikja um rjáfur. Blönduhlíðin fór ekki var- hluta af því. Á Haugsnesi sunnan Djúpadals féllu um 100 manns 19. apríl 1246, og á Flugumýri voru symr Giss- urar Þorvaldssonar og Gró kona hans brennd og brytjuð 22. október 1253. Að lokum biðu allir fslendingar ósigur, en Hákon gamli sat með unn- ið tafl. V. Nú er allt kyrrt á Örlygs- stöðum aftur. Blóð Sturlunga er löngu runnið ofan í brúna moldina. Nú grær fjölgresi í móunum, þar sem gerðið var og sauðahúsið fyrrum. Rúst- irnar grænka snemma vors, þar er gömul rækt í jörð. Sól in vermir landið, og vindar strjúka blítt um hlíðarvang ana. Orrustugnýrinn, vopna- grýrinn, vopnabrak, heróp og dauðastunur, allt er þagnað; lóan og sólskríkjan kveða hér einar stefin sín vorlangan dag inn. Kýr kjaga júgursíðar um holtin, og hestar kroppa út í mýrinni. En höfugur ilmur mikillar minningar og örlaga stundar stígur úr grasi og gagntekur þann, sem hljóður hlustar á straumnið tímans sunnan undir gróinni rúst. Sverrir Pálsson. Atvinna óskast Ung stúlka óskar eftir góðri atvinnu. Hef gagn- fræðapróf og góða menntun í ensku og vélritun. Tilboð sendist Morgunblaðinu merkt: „Atvinna —• 4446“. . Ferðafólk — Ferðafólk Vei'tingar, gisting. Höfum 20 gestaherbergi 1, 2, 3 4 manna. Útvegum veiðileyfi. Leigjum út pokapláss. HÓTEL VILLA NOVA Sauðárkróki. Gjaldkeri Gjaldkeri óskast, laun skv. kjarasamningi opin- berra starfsmanna. Umsóknir sendist ásamt upplýs- ingum urn fyrri störf og menntun fyrir 26. þ.m. ATVINNUDEILD HÁSKÓLANS. Beint frá Tjong Pong i Hong Kong Vanaðir og fallegir BARNAGALLAR á 1 til 4 ára nýkoninir. Tvær gerðir í 3 litum vantsheldir og mjög ódýrir. Heilverzl. AMSTERDAM sími 23 0 23. Framleiðendur Vel þekkt heildsölufyrirtæki sem mest verzlar með nýlenduvörur, óskar að taka að sér sölu á góðum innlendum framleiðsluvörum. Tilboð óskast sent á afgr. Mbl. eða í box 606 fyrir miðvikudagslivöld merkt: „Viðskipti — 4442“. I\iýtt einbýlishús í Kópavogi til leigu. — íbúðin er 108 ferm., 4 herb., bað og geymsla og er á einni hæð á fallegum stað í Austur- bænum. Leigutími 1—2 ár. Fyrirframgreiðsla. Verðtilboð óskast sent á afgr. Mbl. merkt: „Einbýlishús — 1846“. Síðasti stórleikur ársins K.S.Í. " ISLAND Landsleikurinn fer fram á Laugardalsvellinum r dag sunnudag 23. ágúst og hefst kl. 4 Forsala aðgöngumiða við Útvegs- bankann kl. 9—13. KaupiH mita tímaiega Knattspyrnusnillingurinn ÞÓRÓLFUR BECK teiku* meS ísl. liðiuu. FINNLAND Dómari: P. J. GRAHAM frá Dublín. . Línuverðir: Baldur Þórðarson og Grétar Norðfjörð. Lúðrasveitin Svanur leikur frá kl. 3,15 undir stjórn Jóns G. Þórarinssonar. Aðgöngumiðar seldir við Laugardals- völlinn frá kl. 13.0ft Forlist biðraðir Knattsjiyrnusamband íslands.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.