Morgunblaðið - 23.08.1964, Page 27

Morgunblaðið - 23.08.1964, Page 27
Sunnudagur 23. águst 1964 MORCU N BLAÐIÐ 27 iiHiiiiiiiiiiuiiuiiiiiiiueiiiiiiiiuiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiMiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiuitiiiiiuiiiiiieiiniiiiiiiiiiiiiiiiHiiiiiiiiiu^itiiiiiiiiiiiiuiiiiiiiHuiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiuuiiiiiiiiimiiiiiitiiiiiitiiHuiiiiiiiiiiiiiiiiuiiiiiiiiiiiiiiuiiiiiuiiiitiiiiiiiiuuiiimiiiiiiiiiiiiiiniiiHHiiiiiiiiiHiiiimiHiiiiiiiHiti , DEMÖKRATAR leggja siðustu hðnd ál I kosningaundirbúninginn | — á landsfundinum, sem hefst á mánudag | Velur Johnson Eugene IVIcCa rthy til fram- B boðs til varaforseta | LANDSFUNDUR demo- §§ krataflokksins í Banda- = ríkjunum stendur nú fyrir h dyrum. Hann vekur að h vonum mikla athygli, þótt §§ fátt bendi til þess, að H hann verði eins sögulegur s eða fréttnæmur og fundur |j repúblikana, fyrr í sumar. in Johnson foseti er örugg- 1 ur frambjóðandi flokksins | til forseta í kosningunum | í haust, þótt hinsvegar sé É enn með öMu óvíst, hver | verður í framboði til vara | seta. Johnson ákvað fyrir | nokkru, að enginn þeirra, 1 sem nú eiga sæti í ríkis- I stjóminni, yrði valinn til 1 þess framboðs. Þar með var loku fyrir | það skotið, að Robert | Kennedy, dómsmálaráð- 1 herra, yrði fyrir því vali. | Hann hefur hins vegar I ákveðið að venda kvæði Johnson: öruggur? sínu í koss, og láta til sín taka á öðrum vettvangi. Ráðgjafar Johnsons segja, að skoðanakönnun hafi fært fyrir því sönnur, að þessi ákvörðun forset- ans muni ekki hafa nein áhrif á úrslit haustkosn- inganna. Meirihluti demo- krata telji ekki, að Kennedy sé heppilegur maður, hvorki til forseta- embættis né embættis varaforseta. Sömu kannanir eiga að hafa sýnt, að Eugene McCarty, öldungadeildar- þingmaður, sé líklegaetur til að efla fylgi flokksins í Suðurríkjunum, þar sem mannréttindamálið verð- ur þyngzt á metunum. Margir telja því nú, að hann komi helzt til greina, er varaforsetaefni flokks- ins verður valið. Flestum stjómmála- fréttariturum vestan hafs, ekki síður þeim, sem styðja málstað demokrata, ber saman um, að meiri óvissa ríki í hópi demo- krata fyrir þessar kosning ar, en undanfarnar. Yal Johnsons, sem at- kvæðamestur er, og til- högun baráttunnar, mót- ast af þeim vandamálum, sem flokkurinn á við að etja, en þar er blokku- mannavandamálið efst á lista, þótt afstaða margra hóp til annarra við- kvæmra mála skipti miklu máli. Hverfandi einhugur f>að hefur löngum verið trú manna, að demkratar í Bandaríkjunum leiði til lykta allar flokksdeilur sínar í undankosningum, og á lands þingum, en komi síðan fram við kosningar einhuga. Lands fundur þeirra verður nú hald inn í Atlantic City í næstu viku, og hefst á mánudag. Þannig gekk til hjá dema- krötum 1960, er Lyndon B. Johnson og John F. Kennedy tóku höndum saman, eftir landsfundinn. 1952 var annað uppi á teningnum, er hópur óánægðra flokksmanna frá Suðurrík j unum neituðu að taka undir raddir þeirra, er bæta vildu hag blökkumanna, og veittu því Dwight D. Eisen hower fylgi sitt. Þeir reynd- ust honum enn fylgispakir 1956. Reyndin varð hins vegar sú 1960, að samvinna Johnsons og Kennedys nægði ekki til að tryggja sigur í Suðurríkj- Þannig sér einn bandariskur skopteknari landsfund demokrata og kosningamar í haust. unum, og sagan sýnir, að vart hefur verið hægt að tala um „einingu“ í Suðurríkjunum, síðan Franklin D. Roosevelt háði þar síðustu kosningarbar áttu sína, 1944. Því má með sanni segja, að demokrata- flokkurinn hafi ekki staðið einhuga saman um alllangt skeið. Vart eining nú Því verður vart um einingu að ræða nú. Andstæðingur Johnsons, Barry Goldwater, lagði þar fram drjúgan skerf, er hann greiddi atkvæði gegn mannréttindafrumvarpinu á þingi. Repúblikanar binda miklar vonir við Suðurríkin. Hér er ekki um einu erfið- leika demokrata að ræða, þótt vandasamt sé að skil- greina þá alla. Enginn hefur t. d. getað með neinni vissu sagt til um, hverja afleiðingu það hefur, að Johnson útilok- aði Robert Kennedy, dóms- málaráðherra, frá því að verða í framboði til varafor- seta; sömuleiðis veit enn eng- inn, hvort Kennedy beitir áhrifum sínum til góðs eða ills fyrir Johnson, er að lands fundinum kemur, og siðar í kosningabaráttunni. Þeir, sem bezt eru sagðir þekkja til í Hvíta hússinu, segja, að afstaða Johnsons til Kennedys muni lítil eða engin áhrif hafa. Johnson hafi úti- lokað Kennedy, vegna þess, að hann hafi orðið var við mikla andstöu gegn honum innan demokrataflokksins. bæði vegna mannréttindamáls ins og af öðrum orsökum. Kennedy hefði ekki verið til þess fallinn að afla flokkn- um fylgis í Suðurríkjunum. Þá segir Johnson, að hann hafi orðið var við talsverða andstöðu gegn Kennedy með- an þeirra, sem mest mega sín í viðskiptalífinu. Þá munu margir verklýðsleiðtogar Kennedy einnig andsnúnir. Sagt er, að skoðanakannanir hafi leitt í ljós, að Kennedy njóti lítilla vinsælda, og er reynt hafi verið á þann hátt að ganga úr skugga um, hverj ir væru taldir líklegastir til að verða beztu forsetarnir, hafi Kennedy orðið mjög neðarlega. Þeir, sem aðhyllast Kennedy, geri það fyrst og fremst vegna þess, að hann þess, að hann sé rómversk ka- þólskur. Þá mun hafa komið í ljós við könnun, að Johnson á sjálfur ekki litlu fylgi að fagna meðal rómversk ka- þólskra. Því hafi kostir Kennedys orðið léttari á met unum en ókostirnir. Því mun Johnson ekki telja, að það muni hafa óheppilegar afleiðingar, þótt lögð hafi verið hindrun í veg fyrir Kennedy. Vonbrigða verður vart Þrátt fyrir þetta ríkir þó óánægja meðal margra demo- krata yfir því, að Kennedy skuli ekki „vera með“. Þeir, sem honum fylgja, segja, að nauðsynlegt hefði verið að hafa hann í framboði til vara- forseta, til að tryggja ákveð- ina hópa innan flokks. í fyrsta lagi ungra manna, svo og ráðamanna í Norður- ríkjunum. Væri fylgi þessara hópa tryggt, telja þeií- óánægðu, myndi flokkurinn tryggja sér sigur í þeim ríkj- um, þar sem flestir búa í borg um, sem aftur mýndi leðia til heildarsigurs. Johnson er sjálfur sagður vera þeirrar skoðunar, að af- staða Goldwaters til mann- réttindamálsins muni tryggja honum sigur í Missisippi og Alabama. Þá mun forsetinn telja, að ríkin Virgina og Florida, sem snúizt hafa æ meir á sveif með repúblikön- um, allt frá-striðslokum, muni alveg snúast á sveif með repú blikönum nú. Johnson er sagður viss um, að hann geti, með harðri bar- áttu, unnið ríkin Georgíu, N-Karolína, Arkansas og Texas. Athuganir behda til þess, að S-Karolína og Louisi- ana geti brugðið til beggja vona, en það staðfestir, að þar njóti Goldwater mikils fylgis. Forsetinn telur því senni- legt, að Suðurríkin verði tví- skipt í afstöðu sinpi, og hann ætlar með öllum ráðum að reyna að koma í veg fyrir, að Goldwater vinni sér meira fylgi. Athyglisvert er, þó að það kunni engan veginn að ráða úrslitum á landsþinginu í næstu viku, að skoðanakann- anir Johnsons sýna, að af þeim, sem til greina hafa ver- ið taldir koma sem varafor- setaefni, þá nýtur Eugene Mc Carty, öldungadeildarþing- maður frá Minnesota, mests fylgis í Suðurríkjunum. Skoðanir í Hvíta húsinu Johnson forseti er sagður hafa látið þau orð falla, að þrátt fyrir mikið fylgi Gold- waters í Suðurríkjunum, megi vega upp á móti því með harðri sókn í landamæraríkj- unum Oklahoma, Missouri, Kentucky, Tennessee, V-Virg iníu, og Maryland, svo og Illinois og Ohio. Mörg önnur vandamál eiga ráðamenn demokrata nú við að glíma, þótt ekki sé þar bein línis um klofning að ræða. Stærst þeirra er e.t.v. mann- réttindamálið í rikjum, öðrum en Suðurríkjunum. Talin er hætta á, að áhrifamiklir demo kratar snúizt á sveif með Goldwater, vegna þess máls. Nú, þegar John F. Kennedys nýtur ekki lengur við, er mannréttindamálið demokröt- um miklu hættulegra en ann ars hefði verið, og því hefur óróa orðið vart í röðum þeirra. Sjaldan hefur verið um eins mikla óvissu að ræða, en eini maðurinn, sem ekki virðist láta það á sig fá, er Johnson sjálfur. JIIIHIIIIIIHIII1IIIUIIIIIIIIIIIIHIIIIIIIIIIIIIIIIHIIHIIIIIIIIIHillHIIIIIIHIIIIIUIIIIIIIIHIIIIUIIIIIHIIUirH >111111III11 llll 111III111 Ih III lllll.IIIIHIIIIHIHI..Illlllll......Ullllllllll...Hllllllllll...IIIII......... — Varaforsefaefni Framhald af bls. 1. Frá því var skýrt síðdegis í dag, að hópur blökkumanna (demókrata), sé á leið til At- lantic City, og ætli sér að vera viðstaddir landsfundinn á mánudag. Ekki hefur verið greint frá því, hvort blökku- mennirnir fá að sitja fundinn. Vitað er, að leiðtogar flokks lns vilja reyna að miðla mái- um milli andstæðinga í mann- réttindamálinu á landsþinginu, án þess, að til stórátaka komi. — Leiðbeiningar Framh. af bls. 28 lega þar sem togátak frá veið- arfærum getur valdið minnk- un á stöðugleika, t. d. þegar nót er dregin með kraftblökk eða botnvarpan festist í botni. 6) Búnaður til að losna við þilfarsfarm, t. d. síld á þilfari, skal ávallt vera í góðu lagi og tilbúinn til notkunar fyrir- varalaust þégar þörf krefur. 7) Austursop með lokunar- búnaði skulu ávallt vera til- búin til notkunar fyrirvara- laust og skulu ekki vera fest, og þá alls ekki í slæmu veðri. 8) Þegar aðaiþilfar er útbú- ið fyrir þilfarsfarm með stí- um, skulu ávallt vera nægjan- lega stórar rifur á milli stíu- borðanna, þannig að sjór geti runnið hindrunarlaust að aust ursopum, og þannig sé útilok- að að sjórinn bindist á þilfari. 9) Setjið aldrei lausan fisk eða síld í lest, án þess að hafa gengið úr skugga um að skil- rúm í lestinni séu tryggilega uppstillt. 10) Gætið þess ævinlega að eins fáir geymar og mögulegt er séu hálffullir. 11) Athugið vandlega allar handbærar upplýsingar um áfyllingu á sjó-ballestar- geyma, og verið ávallt minn- ugir þess, að hálffylltir geym- ar geta verið hættulegir. 12) Lokunarbúnaður loft- rása frá olíugeymum skal sér- staklega aðgættur í slæmu veðri. 13) Það er hættulegt að treysta sjálfvirkri stýringu í slæmu veðri, því hún getur hindrað að hægt sé að grípa nægjanlega fljótt til stýris, sem þá getur verið nauðsyn- legt. 14) Gætið sérstaklega var- úðar á lensi og með sjó aftan við þvert. Ef skipið hallast eða geigar óvenjulega mikið, mmnkið þá strax hraða skips- ins, áður en nokkuð annað er aðhafst. 15) Við hvaða hleðslu- ástand sem er skal aðgætt að fríborð sé nægjanlegt til að tryggja sjóhæfni skipsins. 16) Gætið sérstaklega vel að yfirísingu, sem hleðst á skipið, og sotið alla möguleika til að minnka hana.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.