Morgunblaðið - 02.09.1964, Side 14

Morgunblaðið - 02.09.1964, Side 14
14 MORCUNBLAÐIÐ Miðvikudagur 2. sept. 1964 Útgefandi: Framkvæmdastjóri: Ritstjórar: Auglýsingar: Ú tbreiðslus t j óri: Ritstjórn: Auglýsingar og afgreiðsla: Áskriftargjald kr. 90.00 f lausasölu kr. Hf. Árvakur, Reykjavík. Sigfús Jónsson. Sigurður Bjarnason frá Vigur. Matthías Johannessen. Eyjólfur Konráð Jónsson. Árni Garðar Kristinsson. Sverrir Þórðarson. Aðalstræti 6. Aðalstræti 6. Sími 22480. á mánuði innanlands. 5.00 eintakið. LÚTHERSKA HEIMS- SAMBANDIÐ Ctjórnarfundur Lútherska ^ heimssambandsins, sem haldinn er hér í Reykjavík um þessar mundir, er merkur atburður í íslenzku kirkju- lífi. Þennan fund sækir forseti heimssambandsins, ásamt um 50 fulltrúum frá 15 þjóðlönd- um. Meðal þeirra eru margir biskupar og kirkjuleiðtogar lútherskra manna. Jafnframt situr þingið fjöldi íslenzkra presta undir forystu biskups- ins yfir íslandi. Lútherska heimssambandið eru samtök lútherskra manna um heim allan. Þessi samtök hafa víðtæk áhrif og sam- þykktir þeirra marka stefnu, sem vekja heimsathygli. Það er íslendingum mikill sómi, að þessi merku samtök skuli nú í fyrsta sinn halda stjórn- arfund sinn hér á landi. Það mun eiga sinn þátt í því að gera kirkju íslands að virkum þátttakanda í því merkilega alþjóðlega starfi, sem unnið er á vegum samtakanna. Það er rétt sem biskupinn yfir ís- landi sagði í ræðu sinni í fyrra dag, að aldrei fyrr hafa ís- lendingar verið minntir svo áþreifanlega á að þeir til- heyra heimsvíðu samfélagi lútherskra manna, „sem játa með oss og vitna með oss um heiðarlega trú feðra vorra, sem sé dýrmætastur arfur lið- inna á íslandif og sem við von- um og biðjum að öll okkar börn megi halda fast við gegn um kynslóðir". Jóhann Hafstein, kirkju- málaráðherra, sem flutti á- gætt ávarp við setningu þessa fundar, komst m.a. að orði á þessa leið: „Allir útlendingar sem nokkur deili hafa af íslend- ingum kannast við þá sem söguþjóð og skáldaþjóð. En í fremstu röð íslenzku skáldanna eru tvö stórskáld, bæði trúarskáld, sem gnæfa eins og hátindar við heiðríkju og mUnu gera það meðan ald- ir renna. Þetta eru séra Hall- grímur Pétursson og sr. Matt- hias Jochumsson. Þér þekkið Hahgrím Pétursson en passíu- sálmar hans hafa verið þýdd- ir á erlendar tungur um víðan heim. Sr. Matthías orti ekki aðeins fegurstu sálma sína heldur einnig öll stórljóð sín, mnblásin af þvílíkri andagift að við leikmenn undrumst í lotningu.“ Kirkjumálaráðherra hélt áfrám Og komst þannig að Oíði undir lok ræðu sinnar: „Þessi miklu trúarskáld ís- lendinga eru sennilega ekki af tilviljun fram komin. Ef til vill bergmála þau þar dýpstu tilfinningar, sem búa með þjóðinni — innst við hennar hjartarætur.“ Þesst ummæli Jóhanns Hafsteins eru hin athyglisverðustu. Það er rétt sem hann sagði fyrr í ræðu sinni, að íslendingar flíka yfirleitt ekki trúartil- finningum sínum. En það er vissulega engin tilviljun, að ýms af mestu skáldum þjóð- arinnar hafa ort trúarljóð, ljóð sem eiga ríkan hljóm- grunn í brjósti hennar og túlka tilfinningar hennar og afstöðu til kristinnar trúár. íslendingar bjóða stjórnar- fund lútherska heimssam- bandsins velkominn til ís- lands. Það er von þeirra að hann megi verða íslenzkri kirkju og kristnihaldi til efl- ingar og uppörvunar á kom- andi árum. HAGNÝTING GRÓÐURLENDIS Á aðalfundi Skógræktarfé- lags íslands, sem nýlega er lokið, voru gerðar ýmsar athyglisverðar samþykktir um skógrækt og ræktunarmál yfirleitt. M.a. lýsti fundurinn yfir ánægju sinni yfir því starfi, sem unnið er af At- vinnudeild Háskólans undir forystu Ingva Þorsteinssonar að gróðurkortagerð og rann- sóknum á beitarþoli afréttar- landsins, og taldi að með því hafi verið lagður grundvöll- ur, sem byggja verði á til skynsamlegrar hagnýtingar gróðurlenda og verndar þeim gróðri, sem í landinu er. Taldi fundurinn ljóst, að brýna nauðsyn bæri til þess að starfi þessu verði hraðað sem mest og skoraði á Alþingi og ríkis- stjórn að auka svo fjárveit- ingar til þessara rannsókna á afréttum og helztu beitar- löndum landsins að þeim verði lokið eigi síðar en árið 1970. Hér er um mjög merkilegt mál að ræða. Ingvi Þorsteins- son hefur upplýst í erindi sem hann flutti á skógræktarfund inum á Laugarvatni, að geysi- leg landssvæði hafi orðið ör- foka hér á landi frá því að ísland byggðist. Taldi hann að gróðurlendi landsins væri í stórkostlegri hættu fyrir áframhaldandi uppblæstri og ofbeit búpenings. Þessa óheillaþróun verður að stöðva. íslendingar hafa ekki efni á því að gróður- Kínverjar neita að láta fag- urmæli Sovétstjórnarinnar blekkja sig Segja Rússa líta á erlenda kommúrrista sem brúðtir til þess eirrs gerðar að hiýða fyrir mælum frá lloskvu Tókíó, 31. ágúst — (AP) — PEKINGSTJÓRNIN hefur svarað boði Sovétstjórnarinn- ar um að sitja ráðstefnu fulL- trúa 25 kommúnistaflokka í Moskvu hinn 15. desember n.k., en ráðstefnu þessari er ætlað það hlutverk að undir- búa alþjóðaráðstefnu komm- únista um einingu innan fiokkanna. Segir Pekingstjórnin í svari sínu að hún muni enga fulltrúa senda, en dagurinn, sem ráðstefnan verður hald- in, „muni verða skráður í sög- unni sem dagur hinnar miklu klofningar innan alþjóða kommúnismans.“ „Við munum aldrei taka þátt í neinni alþjóðaráðstefnu né und- irbúningsráðstefnu, sem Sovét- ríkin boða með það eitt fyrir augum að kljúfa kommúnista- hreyfinguna," segir miðstjórn kínverska kommúnistaflokksins í svarbréfi sínu, sem er dagsett 30. ágúst. Bréf Kínverja er svar við bréfi Sovétríkjanna frá 30. júlí lendi lands þeirra haldi á- fram að eyðast. Það verður að taka þessi mál föstum tök- um og gera allt sem í mann- legu valdi stendur til þess að hindra áframhaldandi upp- blástur og örfok. Aðalfundur Skógræktarfé- lagsins lagði einnig áherzlu á það, að aðstaða skógræktar- innar yrði bætt og stuðning- ur við hana aukinn þannig, að mögulegt væri að fram- kvæma þá áætlun sem skóg- ræktarstjóri gerði fyrir nokkr um árum að gróðursettar yrðu a.m.k. 1,5 millj. trjá- plantna í landinu á ári hverju. Fundurinn beindi einnig þeirri hvatningu til skógrækt- arfélaganna og almennings að hefja allsherjarsókn til þess að fjölga félögum í skógrækt- arfélögunum með það tak- mark fyrir augum að tvöfalda félagatölu þeirra á næstu tveimur árum. Er vonandi að þessari áskorun verði vel tek- ið. Efling skógræktarinnar er þjóðnytjamál, sem varðar alla íslendinga, hvort sem þeir búa í sveit eða við sjó. sl., og er þar ráðizt harðlega á Sovétstjórnina fyrir að hundsa algjörlega óskir margra bræðra- flokkanna um einingu. „Bréf yð- ar kemur í veg fyrir að samráð verði haft um það hvort boðuð skuli alþjóðaráðstefna flokkanna og fyrirskipar klofning innan al- þjóðahreyfingar kommúnista," segja Kínverjar. „í yðar augum eru bræðraflokkarnir aðeins brúður, sem geta aðeins farið eftir fyrirskipunum yðar. Þér segið að með því að boða til al- þjóðaráðstefnu viljið þér leita að sameiginlegum hagsmunamálum sem sameina alla bræðraflokk- ana. Þetta eru hrein ósannindi. Bræðraflokkarnir hafa sannar- lega sameiginleg stefnumál, þ.e. samþykktirnar frá 1957 og 1960. En þessum grundvallarreglum hafið þér fyrir löngu kastað til hliðar,“ Þá segja Kínverjar ennfremur: „Við munum aldrei láta fögur orð yðar blekkja okkur, aldrei láta undan ógnunum yðar, aldrei verða samsekir yður í klofnings- tilraunum yðar og aldrei verða meðábyrgir í því að kljúfa al- þjóða kommúnistahreyfinguna.“ Kínverjar endurtaka fyrri að- vörun til Rússa og segja: „Við höfum áður varað yður við því að dagurinn sem þér boðið til ráðstefnunnar verði dagurinn sem þér stígið ofan í eigin gröf. Bréf yðar frá 30. júlí sýnir að án tillits til afleiðinganna hafið þér tekið stórt spor í áttina til þeirrar grafar, sem þér hafið grafið yður.“ I frétt frá Moskvu í dag segip að sovézk blöð og útvarp minnisfc ekki á svar Kínverja. Fyrirfrana var talið fullvist að Kínverjar neituðu þátttöku bæði í undir- búningsráðstefnunni í desembee og aðalráðstefnunni, sem væntan- lega verður haldin á næsta ári. Mánuður er liðinn frá því Sovétstjórnin bauð fulltrúum 25 kommúnistaflokka til undirbún- ingsráðstefnunnar, og hingað til hafa aðeins sjö flokkar lýst stuðn ingi við þessa ráðstöfun. Eru það flokkarnir í Tékkóslóvakíu, Ausfc ur-Þýzkalandi, Ungverjalandf, Búlgaríu, Frakklandi, Finn- landi og sovétarmur ástralska flokksins. Talið er líklegt að 17 flokkar sendi fulltrúa til ráðstefnunnar í Moskvu í desember. Einnig er álitið að Kínverjar muni grípa til þeirra gagnráðstafaná að boða til annarrar ráðstefnu með þátt- töku fulltrúa kommúnistaflokka, sem ekki eru á Moskvulínunni, Fréttamyndir frá Kýpur eru sjaldan neitt fagnaðarefni — en þessi, sem við rákumst á í Dagens Nyheter, frá 25. ágúst, bregð- ur út af vananum. Einn liðsmanna úr herstyrk þeim sem Svíar léðu S. Þ. til friðargæzlu á Kýpur, hinn þritugi Sture Jonssua frá Södertalje, gekk að eiga hina nitján ára gömlu Kýpurstulku, Krislinu Ónnu Cattou, á sunuudaginn var í grisk-kaþólska kirkjunni t Xeros.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.