Morgunblaðið - 02.09.1964, Síða 19
1 Miðvikudagur 2. sept. 1964
MORGUN BLADIÐ
19
Þórir Jónsson málarameistari
Khanh tekur væntan-
IUinining
ÞÓRIR var fæddur 14. sept.
1898 að Myrká, Hörgárdal, og
varð bráðkvaddur að morgni 24.
ágúst sl.
Útför hans fer fram frá Ak-
ureyrarkirkju í dag.
Hann var sonur hjónanna Jóns
Kristjánssonar, kennara og org-
elleikara í Skagafirði og Eyja-
firði og Rannveigar Stefánsdótt-
ur. —
■ Árið 1925 kvæntist hann mynd-
ar- og ágætiskonunni Þóreyju
Steinþórsdóttur frá Hömrum við
Akureyri. Með henni á hann þrjú
uppkomin og efnileg börn, Bald-
1 ur flugvélavirkja, kvæntur Erlu
, Beck, Kolbrúnu, gifta Aðalsteini
Gunnarssyni, loftskeytamanni,
' Magnús, bakari, kvæntur Árdísi
, Svanbergsdóttur. Af fyrra hjóna-
bandi átti Þórey tvo syni, þá
Steinþór og Vilhelm, sem Þórir
gekk í föðurstað.
Þórir var mjög vel kvæntur
og hjónaband hans hið bezta,
enda var hann nærgætinn og
Ijúfur heimilisfaðir, elskaður af
konu, börnum, stjúpbörnum og
barnabörnum. Gestkvæmt var
jafnan á heimili þeirra, því þar
var gott að koma, þar ríkti hlýja,
vinátta og skilningur, auk mynd-
arskapar húsmóður .
Lengst af bjuggu þau í Gránu-
félagsgötunni, en fyrir nokkrum
árum fluttu þau í nýtt hús í
Ránargötunni, sem þau reistu
með Steinþóri og konu hans.
Hin nýju húsakynni lífguðu þau
með gamla góða heimilisandan-
um, sem ég kynntist bezt hjá
þeim í Gránufélagsgötunni. Af
20 ára kynnum, hafa þau hjón
alltaf verið eins, manni hefur
jafnvel fundizt þau vera stöðugt
að yngjast og glaðværð og
græskulaust gaman þeirra að
aukast.
Þórir var ættaður úr Skaga-
firði og vann þar ýmsa vinnu
framan af ævi eða þar til hann
fluttist til Akureyrar og lærði
málaraiðn.
Hann iðaði af lífsfjöri, með
glettni í fjörlegum augum, hæfi-
lega drjúgur, með spaug á vör-
um og horfði á björtu hliðar lífs-
ins.
Hann var hjálpsamur og greið-
vikinn. Hann tók alltaf málstað
þeirra minnimáttar og gerði góð-
látlegt grín að yfirdrepsskap
spjátrunga. Réttlætiskennd hans
var mjög rík. Hestamaður var
Þórir mikill og dýravinur. í Þóri
var jafnan nokkur bóndi, og hafði
hann til skamms tíma bæði kýr
og kindur, auk hesta. Þórir var
gleðskaparmaður mikill og söng-
maður góður og félagslyndur vel.
Mikið gefinn fyrir ferðalög og
hafði yndi af mannamótum.
Vinmargur var Þórir, enda trúr
og tryggur vinum sínum og er
því mikill söknuður hjá vanda-
mönnum og vinum, við svo
snöggt andlát hans. En jafnvel í
andlátinu var Þórir samkvæmur
sjálfum sér, hann var nefnilega
aldrei neitt að tvínóna við það
sem hann gerði. Þegar Þórir varð
bráðkvaddur, var hann nýkom-
inn úr ánægjulegri ferð um öræfi
íslands.
Oft söng Þórir:
„Heim til blárra himinfjalla,
hugur ungan sveininn ber“.
Nú hefir honum orðið að ósk
sinnú
Þorv. Ari Arason.
Nokkrar lóðir
í næsta nágrenni við Reykjavík eru til sölu. —
Upplýsingar gefur (aðeins kl. 5—-7 daglega);
EINAR PÉTURSSON HDE.
Sólvallagötu 25. — Sími 19836.
Afgreiðslustarf
Viljum ráða stúlku til afgreiðslustarfa í snyrti-
vöruverzlun. —- Þarf að hafa áhuga á að kynna
sér meðferð og sölu snyrtivara. — Upplýsingar í
símum 35450 og 17475.
Þótt Þórir hafi ekki verið stór
maður hið ytra, þá var hans innri
maður þeim mun stærri. Hann
var afburða röskur, knár og verk
hygginn maður. Sem iðnaðarmað
ur var hann bæði vandvirkur og
sérlega afkastamikill. Til marks
um það má nefna að hann var
eftirsóttur um land allt, þannig
að starfssvið hans náði langt út
fyrir Akureyri. Á Akureyri hafði
hann, sem fasta viðskitpavini,
alla bankana og fleiri opinberar
stofnanir. Þrátt fyrir mikið ann-
ríki, mun Þórir jafnan hafa á
hverju sumri starfað í átthögum
SÍnum, Skagafirði.
Þótt Þórir hafi afkastað miklu,
þá mun lengur verða munað eft-
ir honum sem manni, heldur en
störfum hans.
Því Þórir var sérstök mann-
gerð. Hann var sannur og trúr
Skagfirðingur og hafði eiginleika
Skagfirðinga í mjög ríkum mæli.
I SÍMT.
_ 3 ¥333
AvALLT TIL'LÉIGU
Kranabíla'B
VÉLSKÓrLUTZ
DrAttarbílar
FLUTNINöAVAGNATL
pVUGAVItW VVÉLAWÁ
— *s í M i: “
3V333
3ja herb. íbúð
í Vesturbænum óskast til leigu sem fyrst. Tilboð
sendist afgr. Mbl. fyrir nk. föstudagskvöld, merkt:
„4210“.
Norskir beituönglar
Verzlun O. Ellingsen hf. Reykjavík
Heildsali Marinó Pétursson, Reykjavík
Nú innfluttir beint frá verksmiðju
Sími
10880
FLUGKENNSLA
lega við embætti á ný
Stúdentar / Saigon hætta
mótmælaaðgerðum
Saigon, 31. ágúst (NTB-AP)
MAXWELL Taylor, hershöfð-
ingi, sem er sendiherra Banda-
ríkjanna í Suður-Vietnam,
skýrði frá því í dag að hann
hefði rætt við Nguyen Khanh,
hershöföingja fyrrum forsætis-
ráðherra, og væri Khanh vænt-
anlegur aftur til Saigon innan
fárra daga. Er búizt við því að
Khanh taki þá upp að nýju
fyrri störf sín sem forsætisráð-
herra þriggja manna ráðsins,
sem fer iroð völd í landinu.
Hafa stúdentar þeir í Saigon,
sem stóðu fyrir mótmælaaðgerð
um gegn stjórninni í síðustu
viku, heitið stuðningi við
þriggja manna ráðið.
Khanh lét af störfum í lok
síðustu viku eftir stöðugar óeirð
ir stúdenta, en við forsætisráð-
herraembættinu tók þá Nguyen
Xuan. Oanh. Maxwell Taylor
segir að hann hafi heimsótt
Khanh í Dalat í 300 km. fyrir
norð-austan Saigon. Hafi Khanh
litið vel út og engin þreytu-
merki á honum að sjá.
í yfirlýsingu stúdentanna um
stuðning við þriggja manna ráð-
ið segjast þeir hafa tekið
þessa ákvörðun í þeim tilgangi
að tryggja einingu þjóðarinnar
svo unnt verði að kalla saman
nýtt þing til að velja nýjan
bráðabirgðaleiðtoga. Einnig
segja þeir að skipuð verði sér-
stök eftirlitsnefnd á þeirra veg-
um til eftirlits í öllum skólum
höfuðborgarinnar. Á eftirlits-
nefnd þessi að fylgjast með öllu,
sem fram fer í skólunum, og
gefa leyniþjónustu landsins upp
nöfn á öl-lum stúdentum, er sýna
stuðning við hlutleysisstefnu
eða kommúnisma.
JOIIANN RAGNARSSON
héraðsdómslögmaður
Vonarstræti 4. — Simi 19085.
Hópferðabilar
allar stærðir
Sími 32716 og 34307.
Buffet-dömu og herbergisþernu vantar.
Hótel Borg
Hjúkrunarkonur
vantar á sjúkrahús Akraness, eina frá 1. okt. og
aðra frá 1. nóv. nk. — Nánari upplýsingar veitir
yfirhjúkrunarkonan.
Sjúkrahús Akraness.
Staðarfell
Handavinnu- og húsmæðrakennara vantar að Hús-
mæðraskólanum að Staðarfelli á komandi vetrí. —
Frekari vitneskju veitir forstöðukona skólans, frú
Ingigerður Guðjónsdóttir, í síma 4-11-70 næstu
V
daga.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 53., 54. og 58. tbl. Lögbirtingablaðs
ins á mótorbátnum Helga Helgasyni VE 343, þingles
in eign Helga Benediktssonar, fer fram eftir kröfu
Braga Björnssonar lögfræðings, föstudaginn 4. sept.
1964 kl. 10,30 f.h. í dómsalnum við Hilmisgötu og
síðan um borð í bátnum þar sem hann liggur í Vest-
mannaeyj ahöf n.
Bæjarfógetinn í Vestmannaeyjum.
Opel Caravan '55
til sölu og sýnis í Gömlu bílasölunni, Skúlagötu. —
Fæst fyrir vel tryggt skuldabréf. Sími 15812.