Morgunblaðið - 02.09.1964, Side 21

Morgunblaðið - 02.09.1964, Side 21
í Miðvikudagur 2. sept. 1964 MORGUNBLAÐIÐ 21 MARGIR þekkja Magnús í Bæ í Reykhólahreppi, sem verið hefur vegavinnuverk- stjóri í 29 ár. Magnús bjó einn- ig myndarbúi í fjölda ára, en brá búi 1960 og flutti tii Reykjavíkur. Hann er þó enn- þá verkstjóri í veginum þar vestra og synir hans þrír búa allir að Bæ. Það er annað en sums stað- ar, sagði Magnús í stuttu við- tali við fréttamann Mbl., sem nýlega var á ferð þar vestra. Við hittum Magnús í vega- vinnuskúrunum á hlaði Mel- bæjar, sem er nýbýli úr landi Bæjar, og konu hans Borg- hildi, sem er ráðskona vega- vinnumanna. í Melbæ býr Er- lingur sonur Magnúsar og átt- um 'við einnig við hann á- nægjulegt samtal, meðan not- ið var gestrisni að Meibæ. — ★ — — Við erum að ljúka störf- um á veginum í sumar, sagði Magnús, það er að styttast í úthaldinu vegna fjárveitingar- innar. Magnús hefur veginn frá Brekku í Gilsfirði og út*É að Skálmardalsá, rétt sunnan við Þingmannaheiði. Við feng um ekki nýbyggingarfé í sum- Aldarafmæli norsku lýðháskólanna ■ (Frá fréttaritara Morgunblaðs- ins). Þess var minnzt með hátíða- höldum í Elverum. Rúmlega 300 lýðháskólamenn frá öllum Norðurlöndum komu saman til funda í lýðháskólanum í Elverum í Noregi. Þar voru haldnar mangar ræður um hlut- verk lýðháskólanna á þessari öld, og þess var einnig minnzt, að nú væri verið að stofna hihn fyrsta lýðháskóla á íslandi. Fulltrúar frá hinum Norðurlöndunum fluttu þar kveðjur, og þar vakti mesta athygli kveðja Bjarna Gíslasonar. Að lokum var svo þessari ráð stefnu lýðhás'kólmanna snúið til afmælishátíðar og minnzt aldar- afmælis norsku lýðháskólanna. Þar var sérstaklega minnzt for- vígismanna Arvesen, Anker og Ohristopher Bruun. Aðalræðurn- ar fluttu tveir útlendingar. Ann- ar þeirra var franski prófessor- inn dr. Erica Simon, sem hefir samið mikla doktorsritgerð um andlega lýðvakningu á Norður- löndum. Hinn var rit'höfundur- inn Jörgen Bukdaihl og talaði um innri kjarnann í norrænni lýð- vakningu. Svipaði ræðu hans Magnús Ingimundarson, vegavinnuverkstjóri og fyrrum bóndi í Bæ, í dyrum vegavinnuskúrsins: „Útiveran hefur fallið mér vel“. (Ljósm. Mbl. J.E.R.) Boríð niður að Bæ Samtal við Magnús ■ Bæ í Reykhólasveit og son hans Erling ar á þessu svæði, sagði Magn- ús, þótt veitt væri stórfé í nýja vegi vestar í sýslunum. Ég er ekki að öfundast yfir því, en sárnar að geta ekki skilað ‘veginum í betra ástandi. Það þarf að leggja upp marga kafla hér, eins og annars stað- ar. Við byrjuðum í maí í vor og gætum haldið áfram langt fam í október. Það var aðal- lega viðhald í sumar. — Hvernig kanntu við þig I Reykjavík? spyrjum við Magnús. •— Ég kann að mörgu leyti vel við mig syðra með því að vera hér alltaf á sumrin og halda velli. Vaninn er ríkur. Synir mínir þrír búa hér. Ingi- mundur og Ólafur búa að Bæ og Erlingur hér I Melbæ. Það er mér mikil ánægja, að þeir geta notið góðs af, því að sala á jörðum gefur ekki nema lít- inn hluta af verði þeirra og því erfiði og fé, sem í þær hefur verið lagt. — Hefur ekki verið erfitt að Erlingur Magnússon fyrlr utan nýbýll sltt að Melbæ: „Ég sé ekki ástæðu til þess að gera það svart, sem ekki er svart.“ (Ljósm. Mbl. J.E.R.) sinna veginum með búskapn- um? — Jú, því er ekki hægt að‘ neita, svarar Magnús, það þurfti að kaupa að meiri vinnukraft, en svo studdist ég líka við drengina mína. — Þú ert ekkert farinn að láta á sjá eftir rúmlega sextíu ár? — Vinnukrafturinn er nú eitthvað farinn að dvína, seg- ir Magnús, en það hljómar ótrúlega, þegar maður sér Magnús síbrosandi og kvikan. — Þú ert ekkert að hugsa um að fara að pakka saman? — Maður getur sagt, að það sé eitt af þessum óráðnu gát- um. Útiveran hefur fallið mér vel. Nei, ég er ekki að hugsa um að draga mig í hlé, ekki frekar en vant er, ég hef það góða heilsu. — ★ — Við göngum nú með Magn- úsi niður í Melbæ og hittum þar son hans, Erling Magnús- son. — Ég hef búskapinn nú mest til þess að dunda við yfir veturinn, segir Erlingur, það eru Ingimundur og Ólaf- ur, bræður minir, sem mest stunda landbúnaðinn hér hand an í Bæ. Ég fæst mest við akstur, vöruflutninga, vega- vinnu og annað, sem til fell- ur. Við spyrjum Erling um það, sem efst sé á baugi í Reyk- hólahreppnum. — Það er t.d. uppbygging Reykhóla, segir Erlingur, ef ekki kemur þar eitthvað til, þá verður allt hér í sama farinu. Það er nú í byggingu mjólk- urbú, sem mundi verða land- búnaði mikil lyftistöng. Mjólk er nú seld til Búðardals. Bænd ur hér verða þó að auka mjólk urframleiðslu sína til þess að sjá Reykhólabúinu fyrir nægj- anlegu hráefni. Síðan segir Erlingur frá fé- lagsheimili, sem er í undirbún ingi í hreppnum. Hreppsnefnd inni hafa verið faldar fram- kvæmdir. Um staðarval sé það að segja, að rætt hafi verið um Reykhóla, þar sem sé jarðhiti, en aðrir vilji byggja það á sérstökum og fögrum stað, t.d. nálægt Bjark arlundi. A vetrum eru bændafundir einu sinni í mánuði, þar sem rætt er um framfaramál og annað, sem uppi erð á teningn um. — Flytur unga fólkið héð- an? — Það er ekki mikið um það, segir Erlingur. Margir fara að vísu brott um stund- arsakir til vinnu, en flestir halda hér bólfestu og snúa aftur. Erlingur segir okkur nú frá árlegri skemmtiferð, sem far- in er út í eyjar úr hreppnum. Sjálfir eiga þeir fjórar eyjar út af Bæjarlandinu, en nyt hafa farið minkandi, svolítill dúnn, en við höfum tekið lítið af eggjum síðustu árin. Það er silungur hér í vötnum, fjallableikja, sem kemst upp í 6 til 7 pund, en farðu ekki að segja frá því, þá hef ég engan frið. Hún tekur illa nema í sérstöku veðri, mest á spón. Það hafa náðst þetta 35 stykki í göngu. — Hefur ekki umferðin auk izt hér um með Vestfjarða- vegunum? — Jú, umferðin hefur ver- ið óskapleg í sumar og stund- um um helgar, þá lesta bíl- arnir sig hér inn með öllum vegi. Tröllatunguheiðarvegur- inn hefur einnig aukið sam- gang við Strandasýsluna. Það er talin fögur leið af ferða- fólki. •— — — Ertu þú ekki feiknalega svartsýnn á framtíðina, Er- lingur? — Ég hef ekki undan neinu að kvarta og er bara bjart- sýnn. Ég sé ekki ástæðu til þess að gera það svart, sem ekki er svart og það, sem ekki hefur reynt á. þar til ræðu þeirrar umtðluðu er hann flutti á Þingvöllum i sambandi við vígslu Skál'holts- dómkirkju, þar sem hann benti á, að á hinum myrkustu öldum hefði það verið íslenzk alþýða, sem hélt uppi frelsisbaráttunnL Svo var haldið til Hamars, þar sem fyrsti norski lýðháskólinn var. Þar helt Sivertsen kirkju og menntamálaráðherra aðalræð- una. Næsta dag var hátíð mikil í Elverum. Hófst hún með guðs þjónustu í kirkjunni þar og pré- dikaði Sehjelderup biskup. En aðalræðuna á hátíðinni flutti Sig mund Skard prófessor. Ólafur Noregskonungur var viðstadd- ur hátíðahöldin og flutti kveðju sína og þakkir fyrir hið mikla menningarstarf sem norskir lýð- háskólar hefði haldið uppi um heila öld. Ræða Bjarna M. Gíslasonar. Kynni Norðmanna og íslend- inga eru af mjög gamalli rót, eins og allir vita. Þau hafa verið miklu nánari en kynni grann- þjóða eru að jafnaði. Landnámsmennirnir norsku á íslandi stofnuðu þar sitt eigið ríki, og kærðu sig ekki um að komast undir norsk yfirráð. Ef. vér nú göngum fram hjá þeirri valda streitu, sem leiddi til þess að Island missti sjólfstæði sitt og gekk undir Noregskonung, þá er það merkilegt, að eini samn ingurinn sem til er milli íslands og Noregs heitir „Gamli sátt- máli.“ Og sannleikurinn er sá, að hvað, sem líður öllum opin- berum ræðum og yfirlýsingum, þá er til sérstakur sáttmáli milli Norðmanna og íslendinga, sem hefði staðið óbrigðull um þús- und ára skeið. Þegar íslendingur ferðast um Noreg í fylgd með norskum manni, þó er oft staðnæmzt og horft yfir firði og dali, og Norð- maðurinn bendir og segir: „Þarna bjuggu landnámsmenn áður en þeir fóru til íslands". Sama hvort það er á Rogalandi, í Fjörðunum, á Sunnmæri, í Súrnadal, eða ann ars staðar. Og þegar Norðmaður kemur til íslands og ferðast þar í fylgd með íslendingi, bendir íslendingurinn og segir: „Þarna nam hann land, þarna bjó hann og af honum er mikil ætt kom- in.“ Sama hvar er á íslandi að breyttu breytanda um nöfn. í báðum löndum eiga samræðurn- ar upptök sín í sameiginlegum brennipunkti, sem er gamaU sátt- máli — ekki stjórnmálalegs eðl- is, heldur alþýðlegur. Á þeim stutta' tíma, sem mér er ætlaður, get ég ekki rökrætt þessi fornu tengsl íslands og Noregs. En það er máske engu spillt þótt ég taki stórt skref allt til nútímans og staðnæmist við þetta lifandi samband á þeirri öld, er skóp lýðháskólana — 19. öldinni. Og þegar maður lítur svo yfir þessa öld frá norrænu og evrópsku sjónarmiði, þá ber þar þrennt hæst í norrænni menningu. Vér getum kallað það Aþenu, GoLgata — og Reykholt, þar sem Snorri starfaði og dó. Kynningarleið íslands við Evrópu lá um Danmörk, einkum á 19. öld. En kynningarleiðin við Norðurlönd lá ætíð um Noreg, því að þar voru hin fornu frændsemisbönd. Nú liggur kynningarleið f-slend inga við Norðurlönd um nor- rænu lýðháskólana, enda þótt löndum mínum sé það ekki fylli- lega ljóst enn. Vegna menningar tengsla eru Norðurlöndin boðin og búin til þess að styðja að stofnun lýðháskóla á íslandi. Og ísland mundi hafa gott af slíku menningarsambandi við hin Norð urlöndin, einmitt á þeirri öld, er amerísk áhrif sækja á hvar- vetna. Áður sóttu Norðurlöndin eigið þrek og þrótt í hinar miklu fornbókmenntir íslendinga. Nú Framhald á bls. 27.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.