Morgunblaðið - 08.09.1964, Síða 17
C Þriðjudagur 8. sept. 1964
MORGUNBLAÐIÐ
17
v-.v»a ,. -x. • s w• -. -VW'W'WJ«S■"-■■ * •—■■ • ---------■""■"B!"www
víjr'
Ssiií
nimtiimiiiiiiiimiiiiiiiiimitiitiiiiiiiiiiHiiiiiiiiiiiiiiiimii . f
ÞAÐ var myrkur um miðjan
dag. Það var síldarleysi. Það
voru norðaustan vatnsveður
og fannkoma. Það trónuðu
snjóskaflar á Siglufjarðar-
skarði og torvelduðu samgöng
ur við þjóðvegakerfið, blésu
skafrenningi framan í fólk,
sem hélt að sumarið væri
/í V) r
V v, mí—7m qfe
„ tji As? rC
Undir
sá ég
sumar og hugðist fara á fjór-
um hjólum fjallveginn til
Skagafjarðar. En því aðeins
vita menn, að svartur litur er
septemhersól
sumarið fyrst
svartur, að þeir hafi hvíta
litinn til samanburðar.
Það er kominn september.
Það er komin síld til Siglu-
fjarðar. Það er saltað á fjór-
um stöðvum í dag og var
saltað á tveimur í gær. Þessar
stöðvar fengu sína fyrstu
síld í september þegar eng-
inn bjóst við síld, en síldin
væri ekki síld ef hún kæmi
þegar búizt væri við henni.
Þetta er enginn landburður,
en þó eins og að sjá á sól
milli skýja, eins og von sem
vex úr vonbrigðum. Þetta er
eins og koma heim til sín eftir
langa útivist, þótt maður hafi
ekkert farið.
Það sem jók þó mest á
ánægjuna var, að það var
skuttogarinn Siglfirðingur,
flaggskip Siglfirðinga, sean
færði stærsta fenginn að
landi í dag, rúmlega 2000 mál
og tunnur. Hér sjáið þið skip-
ið, það rúmar varla meiri
afla, en sýnist þó lítt hlaðið,
ber með reisn sinn feng og
líkist ekki fjöl á sjó. — Önnur
mynd sýnir nokkra unga sigl-
firzkra sjómenn við löndun
síldarinnar og sú þriðja skip-
stjórann, Pál Gestsson, sem
ræðir við Aage Schiöth (t.h.)
og Skarphéðin Guðmunds-
son (t.v.). Megi hann sem
oftast segja jafn góðar veiði-
sögur!
Þetta er að vísu haustafU,
en það er á haustin, sem
náttúran sáir fræjum þeim,
sem eiga að bera ávöxt að
vori. — Stefán. 3
UllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllilllllllllllllllllllllllllimillllllllllllllllllllllllllllllllllllCllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllÍ
- /jbröff/r
Framhald af bls. 26
2.06 mun heldur ekki duga til
efstu sæta í Tokíó en Jón er
Síklegur til meiri afreka. Jón
hefur margoft unnið bezta af-
rek á helztu frjálsíþróttamótum,
er m.a. handhafi forsetabikarsins
fyrir slíkt afrek 17. júní. Hann
eómir sér því vel í Olympíuliði
íslands.
Hrafnhildur Guðmundsdóttir
hefur um mörg ár verið ókrýnd
drottning ísl. sundmeyja, óvenju
fjölhæf og reyndar einnig mikil
afrekskona á hvaða grein sunds
sem er. Kórónan á feril hennar
er þó 1.04.2 mín. í 100 m. skrið-
sundi, og glæsilegt ísl. met og
og undir því lágmarki sem til-
skilið var til Tokíófarar. Að
visu á hún ekki verðlauna von í
keppni við allar beztu sundkonur
heims, en afrek hennar lýsa vel
Þcr fdið
WIL@0
nrvuls niðnrsnðuvörar
f NÆSTU BtlÐ.
Binkaumbofl:
KONRÁD AXELSSON lc co. blf.
Vesturgötu 10 — Rcykjavik
8uui. 10440 h 21400.
hæfni til að taka þátt í móti
sem Olympíuleikjum.
Guðmundur Gíslason hefur
um langt árabil verið meistari
ckkar sundmanna. Hann hefur
sett fleiri ísl. met en nokkur
annar íþróttamaður og sýnt
meiri afrek en nokkur sundmað-
ur annar íslenzkur. Keppnis-
grein hans verður 4x100 m. fjór-
spnd — _ einskónar „þraut“
sundsins. í þeirri grein synti
Guðmundur á 5.10.2 mín. á
sunnudag eða 2/10 lakar en lág-
markið hafði verið sett, en
flestir munu á einu máli um að
Guðmundur skipi vel sæti sitt
i Olympíuliði íslands.
Valbjörn Þorláksson og Guð-
mundur Gíslason hafa áður tek-
ið þátt í Olympíuleikum — í
Róm 1960. Jón Þ. Ólafsson oig
flrafnhildur eru nýliðar- ó
Olympíuleikvangi og er Hrafn-
hildur 5. konan, sem keppir. á
þeim vettvangi fyrir ísland.
Ekki mun að fullu ráðið hvort
ísl. þátttakendurnir keppa , í
f'eiri greinum en sínum aðal-
greinum, en líklegt má þó telja
að svo verði einkum með sund-
íólkið.
Skurðgröfur, ámokstur, — jarðýtU'
— ákvæðis- eða tímavinna.
— Sími 19842. —
leqsíeina^ oq
plÖtUK
^ A
S. Helgason hf.
Súðarvogi 20. — Sími 36177.
Skrifstofustúlka
Stúlka óskast til starfa á skrifstofu allan eða hálf-
an daginn. Þarf að vera vön vélritun, og æskilegt
er að hún hefði þekkingu á bókhaldi. — Umsókn
afhendist til afgr. Mbl. fyrir 12. sept. nk., merkt:
„Skrifstofustúlka — 4923“.
Húseign
ásamt eignarlóð á Veghúsastíg 3 er til sölu. —
Tilboð sendist fyrir 20. sept. í pósthólf 1414, Rvík.
Skrifstofuherbergi óskast
á góðum stað í bænum. Tilboð sendist afgr. MbL
fyrir fimmtudagskvöld, merkt: „Skrifstofa - 4922“,
Innflutningsleyfi
Óska eftir að kaupa innflutningsleyfi fyrir notaðri
bifreið frá V-Þýzkalandi. Tilboð sendist afgr. MbL
f-yrir miðvikudagskvöld nk., merkt „Leyfi — 4921“.
Speglar í teakrömmum
Fjölbreytt úrval af speglum í
Teak-, Eikar- og Palisander-römmum.
Speglar í baðherbergi —
forstofur og ganga.
— Speglar við allra hæfi —
— Á hagstæðu verði —
LUDVIG
STORR
SPEGLABUÐIN
Sími 1-96-35.