Morgunblaðið - 08.09.1964, Qupperneq 26
26
MORGUNBLAÐIB
Þriðjudagur 8. sept. 1964
Þróttur
KR 2-2
Þróftur haföi næst-
um unniö mótið
fyrir Keflavik
ÞRÓTTUR og KR skildu jöfn
í 1. deildarkeppninni á sunnudag
inn, skoruðu trvö mörk hvort. —
Lengi ieit svo út sem Þróttarar
ætluðu sér að afgreiða íslands-
bikarinn til Keflvíkinga, þvi
befði KR ekki tekizt að jafna,
var bikarinn þegar í böndum
Keflvíkinga hvemig sem tveir
síðustu leikir KR færu. En stund
arfjórðungi fyrir leikslok jafnaði
Ellert með snöggum og góðum
skalla. Það mark gefur mótinu
enn þá nok'kfa spennu. Með
eigri yfir Akumesingum og Kefl
víkingum geta KR-ingar náð
Keflvíkingum að stigum — en
tapi þeú einu stigi í öðmm hvor
um leiknum eru Keflvíkingar ís
landsmeistarar 1964. ,
Þróttur skapaði sér með jafn-
tefli við KR möguleika ti'l áfram
haldandi setu í 1. deild. Með tapi
hefðu Þróttarar verið fallnir en
jafnteflið gerir það að verkum,
að þeir geta náð Eram- (en Fram
og Þróttur eiga eftir að leika
saman) og fengið þá aukaleik
um fallsætið við Fram. En eins
og er nægir Fram jafntefli til að
fella Þrótt i 2. deild.
Þróttarar voru mjög ákveðnir
í byrjun l:/ vsins við KR og eftir
16 miín stóð 2-—0. Þróttur upp-
s(kar ekkert of mikið þessar 16
min. Þeir réðu gangi leiksins,
sóttu mjög og áttu auk tveggja
ágætra marka, sem voru vel og
enaggaralega skomð af Hauki
Þorvaldssyni og Jens Karlssyni,
þmmuskot, sem hafnaði í stöng.
Markvörður KR átti ekki mögu
leika á að verja þann knött, hefði
hann verið þumlungi innar.
KR átti aðeins eitt verulega
gott færi allan fyrri hálfleik, en
þá skallaði Ellert yfir. í leikhléi
stóð 2—0.
í síðari hálfleik höfðu KR-ing
ar vindinn í bakið og sóttu nú
meira en uppfylltu sannarlega
hvergi vonir manna um sköpun
góðs leiks eða fallegs. Á 16. mín.
spyrnir Hörður Markan útherji
vel fyrir, Ellert lagði fyrir Svein
Jónsson með fallegum skalla og
Sveinn skoraði af stuttu færi ó-
verjandi mark. Á 30. mín.
tryggði Ellert jafnteflið með fal
legri hornspyrnu.
KR-ingar sóttu al’ifast það
sem eftir var en marki Þrótt-
ar var ekki verulega ógnað og
jafnteflið var réttlát úrslit þessa
leiks. Þróttur átti ágæta byrjun
en hélt ekki hraðanum. KR-liðið
hefur fallið furðulega upp á síð
kastið og virðist sem höfuðlaus
her í átökum sem flestir ætla
fyrirfram að verði liðinu létt. En
með svona máttlitlum leik og
tvístmðu átaki er þess vart að
vænta að liðið sæki 4 stig í fang
Afcurnesingum og Keflyíkingum.
KR-b lið Breiða-
blik í kvöld
I KVÖLD kl. 6.30 verður Bik-
arkeppni KSÍ haldið áfram.
Keppa KR-b lið og Ungmenna-
félagið Breiðablik í Kópavogi.
Leikurinn fer frarn á Kópavogs-
velli — og hefst kl. 6.30 síðdeg-
ia,
Tvelr keppa I sundi, tveir
í frjálsíþróttum
Á FUNDI Olympíunefndar fs-
lands í gær var éndanleg ákvörð-
un tekin um þátttöku Ísdend-
inga í Olympiuleikunum í
Tókíó, sem hefst 10. október.
'Fjórir íslendingar taka þátt í
keppninni, tveir frjálsíþrótta-
menn og tvö úr hópi sundfólks.
Frjálsíþróttamennirnir .eru Val-
björn Þorláksson KR, sem keppir
í tugþraut og Jón Þ. Ólafsson ÍR
sem keppir í hástökki. Sund-
fólkið er Hrafnhildur Guð-
mundsdóttir, sem keppir í 100
m. skriðsundi og Guðmundur
Gíslason ÍR, sem keppir í 4x100
m. fjórsundi. Fararstjóri verður
Ingi Þorsteinsson, formaður
Frjálsíþróttasambands íslands.
Valbjörn Þorláksson hefur um
roargra ára skeið verið í þröng-
um hópi beztu frjálsíþrótta-
manna okkar. Fyrstu árin lagði
hann megináherzlu á stamgar-
stökk, en nú hin síðari ár hefur
fjölhæfni hans í íþróttum skipað
honum á bekk með beztu tug-
þrautarmönnum Norðurlanda og
hefur hann tvívegis bætt íslands-
metið í tugþraut, nú síðast er
hann sigraði með yfirburðum 1
þriggjalanda keppni í tugþraut
sem fræigt varð. Hlaut .hann þar
7024 stig og náði þar með lág-
markinu sem sett hafði verið
til þátttöku í Tokíó, en það var
7000 stig.
Valbjörn getur án efa betur
en þegar er í ljós komið, þar sem
keppt er við beztu aðstæður. Og
þó hann hafi ekki möguleika á
að vera mjög framarlega í
Tokíó má telja hahn verðuigan
fulltrúa Sslands á þekn vett-
vangL
Jón Þ. Ólafsson á fslandsmet-
ið í hástökki 2.06 m. og er það
hið sama og lágmarkið var sett
til Tókíófarar. Jón jafnaði met
sitt frá í fyrra nú á dögunum og
virðist vera að komast í góða
æfingu nú á mjög heppilegum
tíma með þátttöku í OL. í huga.
Framhald á bls. 17
Keflavík vanir Val 5-1
*
- og Islandsmeistaratign blasir við
TÍU Keflvíkingar léku Valsmenn
sundur og saman, eftir að Valur
hafði gert Jón Jóhannsson ovíg-
an í annað skipti á sumrinu. —
í þetta skipti var enginn vafi á,
að betra liðið sigraði.
ÍBK vann hlutkestið og kaus
að leika undan allhvassri suð-
vestanátt.
Fyrstu mínúturnar skiptust
liðin á með upphlaup, sem sköp-
uðu þó ékki verulega hættu fyrr
en á 6. mín., er Jón Ólafur skaut
famhjá marki Vals, eftir góða
fyrirgjöf frá Rúnari.
Rúnar, sem nú lék með í stað
Hólmberts, varð aftur til að
skapa hættu við Valsmarkið. Á
iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiii^iiiiiiimiiiimiiuiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii
— —
| Fram og sænsku meistar-1
I arnir mætast í 2. umferðl
Dregið um kappleikjaröð
Evrópukeppni handknatt-
leiksliða
NÚ hefur verið skipulögð
keppnin um handknattleiks-
bi’kar Evrópu og dregið um
það hvaða lið leika saman í
1. umferð. Flram er með í þess
a/ri keppni nú sem í fyrra og
fó nú að sleppa við þátttöfcu
1 1. umferð. í 2. urnferð mæta
Framarar sænsku meisturun
um liðinu Redbergslid í Gauta
borg. Það verður erfiður
hjalli, en vinni Fram þann
leik má ætla að þeir nái langt
í keppninni.
En hér fer á eftir hvaða
lið leika saman í 1. umferð.
Liðunum þar er skipt í riðla
og komast sigurvegararnir í
riðlunum áfram í næstu um-
ferð og þar bætast við lið sem
fá að sleppa við 1. umferð. .
Fram er eitt þeirra. En 1. um
ferð er svona:
A-riðill: Royal Olympique
Ciub (Belgíu) — Grasihoppers
(Sviss).
B-liðill: Operatie (Holland)
— Dudelahge (Luxem'borg).
C-riðill: Cluib de Forto
(Portugal) — Union Sportive
D’Ivry (Frakkland).
D-liðill: Rapid Wien (Aust
urríki) — Nedivescak (Júgó-
slavíu).
E-ri.ðill: Polen — Honved
(Ungverjalandi).
Öllum þessum leikjum Skal
vera lokið fyrir 15. nóvember.
Þá hefur einniig verið dregið
um næstu umferð keppninnar
og þar eru leikar þannig:
1. Sigurvegari A-riðils —
Atletico Madrid (Spáni).
2. Sigurvegari C-riðils —
Sigurvegari B-riðils.
3. Ajax (Kaupmannah.) —
Union, Helsingfors.
4. Redbergslid, Gautaborg
— Fram.
5. Berliner Sportz Vereein
(V-Þýzkal.) — Duk'la Prag
(Tékkóslóvakíu).
7. Dinamo, Búkarest (Rúm
eníu) — ASK Vorwards (A-
Þýzfcaland).
8. Sigurvegari E-riðils —
Sovézku meistararnir.
Átta liða úrlistakeppnin
kemur þessu næst og er þó
leiíkið bæði heima og heiman,
en í fyrri umferðunum tveim
er um hrei-na útsláttarkeppni
að ræða í einum leik.
Áttaliða úrslitakeppnin verð
ur þannig:
Sigurvegari í leiik 1 — Sig
urvegari í leik 5.
Sigurvegari í leik 2 — Sig-
urvegari í leik 4.
Sigurvegari í leik 3 — Sig-
urvegari í leik 7.
Sigurvegari í leik 6 — Sig-
urvegari í leifc 8.
iTmimmimiiiiiiiiiiiiiimmniiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiíiiiimiiiiiiiiiimimiiíiiiiiiiimimnimmimmiiiimiiimiiiiiiiiiiiimmimiiiiimiiimiiiiiiiimmmiiiiiiiiimimiiiiiimiiu
tíundu mínútu renndi hann
knettinum til Einars Magnús-
sonar, sem var á markteig, en I
stað þess að senda knöttinn laust
í netið, skaut hann himinhátt
yfir.
Og enn skora Keflvíkingar
framhjá úr dauðafæri, er Jón
Ólafur misnotar ágæta sendingu
Jóns Jóhannssonar og skömmu
síðar varði markvörður Vals
naumlega laust skot Rúnars.
Það var éins og Keflvíkingar
hefðu notað alla heppnina uppi
á Skaga um fyrri helgi. Knött-
urinn vildi ekki rata á markið.
Valsmenn fóru heldur ekki var-
hluta af hinum misnotuðu tæki-
færum. Á 19. mín. var Her-
mann miðherji í dauðafæri, en
skaut framhjá og tveim mínút-
um síðar hreinsaði Ólafur Mar-
teinsson fyrir opnu marki ÍBK.
Skömmu síðar kom bezta tæki-
færi ÍBK í fyrri hálfleik. Einar
Magnússon elti vonlitla sendingu,
komst framhjá vörn Vals og fram
hjá úthlaupandi markverði, en f
stað þess að reyna að hlaupa
með knöttinn í markið, skaut
hann á hlaupunum og framhjá.
Á 28. mín. var dæmd víta-
spyrna á Val fyrir hendi hjá
Birni miðverði. Högni fram-
kvæmdi vítaspyrnuna og skaut i
fang Gylfa markvarðar, knött-
urinn hrökk út á teiginn til
Rúnars, sem skaut framhjá.
Bæði Valsmenn og ÍBK áttu
góð marktækifæri í lok hálf-
leiksins en .báðum mistókst.
Segja má að bæði liðin hafi
átt að skora í þessum hálfleik,
en ÍBK þó átt fleiri og opnari
tækifæri.
- Fyrsta markið í leiknum kom
á 8. mín. síðari .hálfleiks. Árni
Framhald á bls 12