Morgunblaðið - 29.09.1964, Page 2
MORCUNBLADIÐ
Þriðjudagur 29. sept. 1964
3
Dýrmætum mynda-
vélum stolið í Rvík
f
AÐFARANÓTT sl. sunnudags
var stolið tveimur dýrmætum
myndavélum. írá sænskum ljós-
myndara, sem var að koma hing-
að til lands til þess að taka mynd
ir fyrir Loftleiðir. Myndavélarn-
ar ásamt meðfylgjandi útbúnaði
eru metnar á nær 100,000 kr.
Nánari atvik voru þau að Sví-
inn Linnart Carlsen, sem oft
hefur tekið myndir fyrir Loftleið
ir kom hir'":'ð í heim erinda-
gerðum á laugardagskvöldið. Um
kl. eitt aðfaranótt sunnudags
kom hann ásamt sænskum kunn
ingja sinum og Islendingi að
Snorrabraut 52, en þar er rekið
gistihús. Á meðan Carlsen ritaði
nafn sitt í gestabók, var farang-
ur hans á stigapallinum fyrir
aftan hann, en er hann sneri sér
við var svört taska með tveimur
myndavélum horfin. Er líklegast
talið að einhver, sem leið átti
út úr húsinu, hafi hrifsað tösk-
'úna með án þess’að nokkur tæki
eftir.
Myndavélarnar eru báðar af
gerðinni Hasselblad, önnur
Hasselblad Super White Biotar
með 38 mm. linsu, hin Hassel-
blad 1000 F með 80 mm. Tessar-
linsu. Þeirri síðari fylgdu tvær
aukalinsur, 00 mm. Ðistagon og
Sonnar 135 mm. Er allt þetta
metið á nær 100,000 ísl. krónur.
Heita má óhugsandi að þjóf-
inum takist að koma myndavél-
unum í verð. Sárafáar vélar af
þessu tagi eru til hérlendis, og
þær eru mjög auðþekktar.
Þeir, sem kynnu að geta gefið
upplýsingar um mál þetta, eru
vinsamlegast beðnir að snúa sér
til rannsóknarlögreglunnar.
Kosningar til ASI-þings
UNDANFARIÐ hefur verið kos-
ið í nokkrum verkalýðsféiögum
til Alþýðusambandsþings. Hér
fer á eftir skrá yfir þær kosn-
ingar, sem ekki hefur áður verið
getið í Mbl.
Bifreiðastjórafélagið Frami.
Einn listi kom fram, frá stjórn
og trúnaðarráði, og varð sjálf-
kjörinn. Hann skipa Bergsteinn
Guðjónsson, Pétur Kristjánsson,
Kristján Þorgeirsson, Óskar
Jónsson, Jakob Þorsteinsson,
Lárus Sigfússon og Pétur Jóns-
son.
IMámsflokkar Reykjavíkur
byrja kennslu 1. oktober
Hér getur að líta myndir af
Hasselblad myndavélunum,
sem stolið var, svo og töskunni.
Borgarrað
annast útiör
Tómasar
Jonssonar
BORGARRÁÐ Reykjavikur i
hefur samþykkt, að óska þess J
við fjölskyldu Tómasar Jóns-
sonar borgarlögmanns, að I
Reykjavíkurborg annist útförl
hans, sem gerð verður frá |
Dómkirkjunni miðvikudaginn ]
30. sept. n. k. og hefst kl. 14.00.
Hefur fjölskyldan fallizt á þá |
tilhögun.
Skrifstofa borgarstjóra verð j
ur lokuð eftir hádegi þann,
dag.
(Fréttatilkynning frá
skrifstofu borgarstjóra).
NÁMSFLOKKARNIR, sem nú
hafa starfað í 25 ár, hafa
kennslu í rúmlega 20 námsgrein
um og er kennslan sniðin við mis
munandi þekkinigarstig þátttak-
endanna: þannig er t.d. í ensku
1.-6. flokkur, í dönsku 1.-5. flokk
ur, í þýzku 1.-3. flokkur, í
frönsku 1.-2. flokkur, í spönsku
1.-2. flokkur, í bókfærzlu 1.-2.
flokkur og í íslenzku 1.-2. flokk
ur. I mörguim þessara náms-
greina skiptist hver flokkur í
nokkrar deildir og er þannig
möguleiki á því að velja um
mismunandi tíma á kvöldin.
Aðrar bóklegar námsgreinar
eru: algebra (bókstafareikning-
ur), íslenzka fyrir útlendinga—
í þessum flokkum verður kennt
á þýzku, dönsku og ensku —
sálarfræði, leikhúskynning og
bókmenntakynning, og foreldra
fræðsla (um uppeldi bama).
Sérstök ástæða er að minnast
á bókmenntakynningu á erlend
um bókmenntum, sem er ný
nám,sgrein í Námsflokkum
Reykjavíkur. Lesnir verða kaflar
um einstök tímabil og höfunda,
síðan verða lesin verk eða kafl
ar eftir höfundana, að svo miklu
leyti sem hægt er í íslenzkum
þýðingum. Kennslan fer fram í
fyrirlestra- og samtalsformi.
Kennari verður Ólafur Jónsson
bókmenntafræðingur.
Nánisflokkarnir hófu leikhús-
kynnigu í fyrsta sinni s.l. vetur.
Rætt var um leikritun, leiksviðs
tækni, leikhúsferðir, sviðsetn-
ingu og túlkun leikstjóra og
leikenda á leikritum. Flokkurinn
í leikhúskynningu starfar áfram
í vetur með nokkuð breyttum
viðfangsefnum. Kennari verður
--------- . - - .. . t
Sveinn Einars9on leikhússtjóri.
Foreldrafræðslan starfar í
tveim flokkum og verður í öðr-
um flókknum rætt um uppeldi
barna fram að 7 ára aldri og
umgengni við þau, kenndir leik-
ir, söngvar, föndur o.fl. við hæfi
ungra barna, og eftir áramót
verður kennt ágrip af uppeldis-
og sálarfræði barna í fyrirlestra-
og samtalsformi. í hinum flokkn
um, sem fjallar um uppeldi 7-12
ára barna, verða tekin til með-
ferðar flest sömu atriðin, en mið
að verður við börn á skólaaldri.
Einnig verður rætt um samvinnu
heimila og skóla, nesti og matar
æði skólabarna og uppe'disleg
vandamál þeirra.
Af verklegum greinum verða
þessar kenndar: föndur (bein,
horn, leður, bast, tágar, fílt og
perluvinna); kjólasaumur, barna
fatasaumur, vélritun og sniðteikn
ing ( í sniðteikningu er hámarks
fjöldi nemenda 10 og í sauma
flokkunum 14).
Námsflokkar Reykjavíkur eru
reknir af Reykjavíkurborg, sem
stendur fjárhagslega straum af
þeim, en nemendur þurfa þó að
greiða innritunargjald, sem er
þó mjög í hóf stilit.
Kennslan í námsflokkunum fer
fram á kvöldin kl. 7,30-10,30 og
veita þeir því fólki, sem vinnur
á daginn, tækifæri til að stunda
nám samhliða vinnu sinni. Kennt
verður frá 1. október til 31.
marz.
Innritað verður til mánaða-
móta í Miðbæjarskólanum kl.
5-7 og 8-9 síðdegis.
(Frá Námsflokkum Reykja-
vikur).
Síldveiðin er nú 2.473.737
mál og tunnur
HEILDARAFI.I á síldveiðunum
var orðinn 2.413.737 mál og tunn-
ur á miðnætti sl. laugardags. í
lok sömu viku i fyrra var hann
orðinn 1.646.225 mál og tunnur.
Sæmileg síldveiði var sl. viku,
þótt veður hafi hamlað veiðum
mikiiin hluta vikunnar. Flotmn
hélt sig aðallega SA af Seley.
Um 50 skip stunduðu enn veiðar
fyrir austan í vikulok. Vikuafl-
inn var 71.642 m. og tn.
Aflinn hefur verið hagnýttur
þannig (tölur frá í fyrra I svig-
um):
f sált (uppm. tn.) 335.795
(463.235).
í frystingu (uppm. tn.) 35.484
(33.424).
í bræðslu (mál) 2.042.458
(1.143.566).
Helztu löndunarhafnir eru þess
ar:
Seyðisfjörður 458.071
Raufarhöfn 421.159
Neskaupstaður 345.625
Siglufjörður 282.829
Vopnafjörður 221.494
Eskifjörður 183.249
Reyðarfjörður 137.601
Verkakvennafélag Keflavikur
og Njarovíkur. Sjálfkjörnar voru
Vilborg Auðunsdóttir, Eva Ingv-
arsdóttir, Guðrún Eiríksdóttir og
Ásta Kristjánsdóttir.
Verkakvennafélagið Framsókn.
Listi stjórnar og trúnaðarráðs
varð sjálfkjörinn, en hann skipa
Jóhanna EgiLsdóttir, Jóna Guð-
jónsdóttir, Guðbjörg Þorsteins-
dóttir, Ingibjörg Bjarnadóttir,
Ingibjörg Örnólfsdóttir, Þórunn
Valdimarsdóttir, Pálína Þor-
finnsdóttir, Guðrún Þorgeirs-
dóttir, Hulda Ottesen, Guð-
björg Brynjóifsdóttir, Guðrún
Björnsdóttir, Guðbjörg Guð-
mundsdóttir, Linbjörg Árna-
dóttir, Kristín Símonardótt-
ir, Jenní Jónsdóttir, Inga Jenní
Þorsteinsdóttir og Helga Guð-
mundsdóttir.
Trésmiðafélag Reykjavíkur.
Tveir listar komu fram. Listi
stjórnar og trúnaðarráðs (komm-
únista og stuðningsmanna
þeirra) fékk 306 atkvæði og alla
menn kjörna, en listi lýðræðis-
sinna fékk 140 atkvæði.
Verkalýðsfélagið Jökull, Ólafs
vík. Listi stjórnar og trúnaðar-
EINS og skýrt var frá í Mbl.
á sunnudag, fóru þeir Páll
ísólfsson og Halldór I.axness
ásamt konum sinum utan með
ms. Gullfossi á laugardag. Var
þá þessi mynd tekin. Frá
vinstri: Dr. Páll ísólfsson,
kona hans, frú Sigrún Eiriks-
dóttir, og Halldór I.axness.
(Ljósm. Gisli Gestsson).
mannaráðs varð sjálfkjörinn, e«
hann skipa Elinbergur Sveins-
son, Guðbrandur Guðbjartsson
og Guðmundur Sumarliðason.
Verkakvennafélagið Framtiðin,
Hafnarfirði. Sjálfkjörnar voru
af lista stjórnar og trúnaðar-
mannaráðs Sigurrós Sveinsdóttir,
María Jakobsdóttir, Guðbjörg
Guðjónsdóttir, Halldóra Bjarna-
dóttir, Málfríður Stefánsdóttir
og Hildigunnur Kiistjánsdóttir.
Nót, sveinafélag netagerðar-
manna. Kosin var Halldóra Guð-
mundsdóttir! Til vara var kos-
inn Þórður Þorfinnsson.
Verkalýðsfélag Akraness. Listi
stjórnar og trúnaðarráðs var
sjálfkjörinn, en hann skipa Guð
mundur Ólafsson, Einar Magnús-
son, Skúli Þórðarson og Herdi*
Ólafsdóttir.
Rakarasveinafélag Reykjai'. ðc
ur kaus Helga Sæmundsson og bii
vara Sigurð Daníelsson.
Landsbankinn ræður tvo
fulltrúa bankastjórnar
Á FUNDI í bankaráði Lands-
banka Islands í gær voru skip-
aðir tveir fulltrúar bankastjórn-
ar, þeir Sigurbjörn Sigtryggs-
son og Björgvin Vilmundarson.
Þeim er ætlað að gegna störfum
bankastjóra í forföllum þeirra,
t. d. vegna fjarvista í skemmri
tíma, og að öðru leyti að annast
störf skv. nánari ákvörðun
bankastjórnar.
Sigurbjörn Sigtryggsson hefur
verið útibússtjóri í Austurbæjar-
útibú Landsbankans og áður yfir
maður gjaldeyrisdeildar bank-
ans. Björgvin Vilmundarson hef-
ur verið fulltrúi viðskiptamála-
ráðuneytisins í gjaldeyrisdeitd
bankanna.
I / NA /5 hmittr [ y SV SOtinv/w X Sn/iéém* > Ois 7 Shirir £ Þrumur VV l|| H Hml ~) l Latri /
Á HÁDEGI í gær var grunn
lægð úti af Vestfjörðum og
önnur fyrir suðaustan land,
báðar á hreyfingu austur, en
djúp lægð fyrir vestan Græn-
land nálghðist landið. Var bú-
izt við fremur stilltu og góðu
veðri, þar til hennar færi að
gæta síðdegis í dag eða í nótt.
Hlýjast var á hádegi í Stykk-
ishólmi og Flatey, 8 stig, en
kaldast á Hólsfjöllum, 3 stig.
Veðurspáin kl. 22 í gær-
kvöldi fyrir næsta sólarhring
(þ.e. til kl. 22 í kvöld):
SV-land til Breiðafjarðar og
miðin: NV-kaldi í nótt, en N-
gola og léttskýjað á morgun;
þykknar upp með SA-átt ann-
að kvöld.
Vestfirðir til Austfjarða og
miðin: N-gola eða kaldi, skýj-
að og skúrir á stöku stað í
nótt, en hægviðri og léttskýj-
að þegar líður á morgundag-
inn.
SA-land og miðin: NV-gola,
léttskýjað en úrkomulítið.
Horfur á miðvikudag: All-
hvöss A-átt, rigning á S- og
SV-landi, en hægari og þurrt
veður norðan lands og austan.