Morgunblaðið - 29.09.1964, Side 10
10
MORGU N BLAÐIÐ
Þriðjudagur 29. sept. 1964
„Æskan er langt að baki
- hdn er 611 komin í myndir"
Talzð við Kjarval um
sýninguna í
Charlottenborg
Kjarval: Húmor og forstáelsi.
OKKUR berast nú fréttir um,
að Danir hafi verið að skjóta
flugeldum fyrir Kjarval.
Myndir hans hafi verið sýnd-
ar í heiðurssölum Charlotten-
borgar og af þeim sökum hafa
þeir haft svolítið aukatívolí í
blöðunum. Kjarval fór til
Kaupmannahafnar á föstudag
að vera viðstaddur sýninguna
og var heilan sólarhring í
burtu. Hann kom naesta kvöld
heim aftur úr útlegðinni. Þeg-
ar ég hitti hann að máli í gær,
sagðist hann vera þreyttur.
En við hresstum okkur á
svörtu kaffi, og ég fékk tæki-
færi til að spyrja hann nokk-
urra spurninga um sýning-
una. Hann var með allan hug-
ann við vísindalegt málverk,
sem stóð uppi við vegginn, og
það var semingur í svörum
hans. Þegar ég fór var ég sann
færður um að myndin við
vegginn væri vísindalegt af-
rek í málaralist. Hún var af
tveimur fígúrum, sem líktust
svönum í landslagi; þær voru
báðar skjannahvítar, þegar ég
horfði fyrst á þær, en um það
bil sem ég fór hafði kvöldsól-
in dregið fram nýja liti, sem
ég hafði ekki séð áður; fólkið
í myndinni hafði hreyft sig
og líf þess í landinu var með
öðrum blæ en þegar við hitt-
umst. Ég skildi vel að hann
var með hugann við þessa
mynd, hann hefur verið að
mála hana síðan 1918 og nú
hefur hún öðlazt það form og
þá 'liti, sem framtíðin fær
hlutdeild í.
„Á kvöldin má heyra hvísl
og kvak í þessari mynd,“
sagði Kjarval lágt og ég trúði
honum. Mér fannst hún séð
með huldumannsaugum, það
voru augu Kjarvals. „Orð eru
til alls fyrst,“ sagði ég við
Kjarval, „hvernig kom það til
að þú tækir þátt í Charlotten-
borgar-sýningunni?“
„Mér var skrifað bréf í vor
sem leið,“ sagði hann, „það
var undirritað af Vagn Jen-
sen, mikilsráðandi manni
í menntamálaráðuneytinu
danska. Hann er lögfræðingur
að prófi. Hann spyr í þessu
bréfi, hvort ég geti lagt fram
myndir eftir mig til að sýna
á haustsýningu í Charlotten-
EFTERÁRSUDSTILLINGEN
CHARLOTTENBORG 1964
borg og segir í bréfinu, að ég
muni fá þrjá sali í höllinni.
Ég skrifa um hæl og segi:
Ég hef eitthvað rúmar tuttugu
myndir innpakkaðar, sem ég
á sjálfur, og þessar mínar
myndir stár Dem til rádighed
— sem þýðir að þær séu hon-
um eftirlátnar. Sumar þessar
myndir höfðu verið á sýning-
unni í Listasafni ríkisins í til-
efni af tuttugu ára afmæli lýð
veldisins og þar hafði Jói Jóa-
son hengt þær upp af mikilli
fórnfýsi. Þar var m. a. myndin
af Kidda og nokkrar myndir
aðrar, sem ég tók ekki eftir
að væru í Charlottenborg.
Þeir eiga nefnilega fræga
portrettmálara og þurfa ekki
á að halda neinum innflutn-
ingi á því sviði.“
Ég spurði hvort hann hefði
kviðið fyrir að koma á sýn-
inguna.
„Nei,“ svaraði hann, „ég er
að vísu jafnvægislaus af kvíða
og hef ofnæmi fyrir öllu, er
óhætt að segja, en nú fann ég
ekki fyrir því. Sagði meira
að segja við þá: Mig langar
ekkert til að sjá sýninguna,
en mig langar til að sjá ykk-
ur, og ef ég sé ykkur, þá hljót
ið þið einnig að sjá mig. Þetta
var sem sagt allt á forstáels-
ens plani.
í einu herberginu voru ein-
göngu myndir sem ég átti
sjálfur, en auk þess höfðu
þeir sankað að sér myndum
og hengt upp í tveimur öðr-
um herbergjum. Þeir höfðu
fengið þær lánaðar ýmist í
Danmörku eða á Islandi. Þess
ar myndir tóku sig mjög vel
út, salirnir voru bjartir og
hátt undir loft, og undarlegt
hvað allt verkaði vel á mig.
Það var góð tilfinning að sjá
gömlu myndirnar aftur, kynn
ast þeim á nýjan leik, brosa
til þeirra eða kinka til þeirra
kolli. Ég vissi að ég hafði
verið ánægður með þær,
þegar ég lét þær af hendi, og
þar sem ég var í engri sér-
stakri stemningu reiknaði ég
með, að þær væru ekki verri
en þegar ég afgreiddi þær frá
mér á sínum tíma. Ég hafði
gleymt þeim mörgum, öðrum
mundi ég eftir, og þær minntu
mig á það sem ég hef verið
að reyna að burðast við að
gera í fjörutíu ár — að fylla
út í tímabilið sem var og er;
það eru praktískar myndir,
land séð með augum — auk
þess fantasíur sem eru ekkert
afkomuatriði, en hafa senni-
lega verið mér metnaðarmál,
já kannski, ég veit það ekki,
hvíld eða vinnugleði. Þær eru
sambland af öllu mögulegu
og ómögulegu, þær geta verið
abstrakt, eða hvað er
abstrakt?. En hvað þýðir að
hugsa um þetta, ég er hættur
að abonnera á það sem er
liðið, æskan er langt að baki,
hún er öll komin í myndir.
En það sem mér finnst undar-
legast er þetta: að málararnir
dönsku og upphengingar-
nefndin umgengust þess-
ar myndir eins og þær væru
þeim ekki óviðkomandi og
þeim virtist ekkert vera
ókunnugt í sambandi við þær.
Þær verkuðu allar eðlilega í
þeirra umsjá.“
Ég spurði um aðra málara
á sýningunni.
„Þarna var fjöldi ungra
málara,“ svaraði Kjarval,
„bæði í grafik og málverkinu
og allt verkaði þetta sympa-
tískt á mig. Annars talaði ég
lítið, skvaldraði svolítið, en
tjáði mig ekki. Mér þótti vænt
um að það var ekki verið að
sýna mig einan, og þess vegna
leið mér vel á sýningunni. Ég
hef áreiðanlega staðið þar við
í tvo tíma og skoðað mynd-
irnar, eða frá hádegi til
klukkan þrjá á laugardag, en
þá þurfti ég að ná flugvél-
inni heim aftur. Mér fannst ég
vera kominn yfir í annan
heim, þegar ég var í Kaup-
mannahöfn, svo borgin átti
sinn þátt í þessum óróleika.
Ég bjó í sama hóteli og ís-
lenzku flugmennirnir og svaf
í herbergi á milli þeirra, svo
ég stæði ekki uppi eins og
glópur. Þá fannst mér ég vera
í félagsskap, sem einhver
trúnaður var í, já, góðum fé-
lagsskap. Og þeir leyfðu mér
oft að koma fram í til sín
á heimleiðinni og líta út.
Veðrið var yndislegt, ljósa-
dýrðin á jörðinni ■— oh, ég
á engin orð til að lýsa henni.
Mér fannst ég kikna í hnjá-
liðunum yfir snilligáfu ljósa-
meistaranna, það var gott að
finna til þessarar smæðar
eftir viðtökurnar í Charlotten
borg — þó var ég þar líka
með smæðina inni á mér, en
hún gleymdist eins og allt
annað, því félagsskapurinn
var góður og stofnunin
gömul og gróin, og var byrjuð
á útstillingum þegar ég var
ungur drengur og ekki eldri
en þú að læra málaralist á
akademíinu.
Þegar ég sá eina áf mynd-
unum, sem sýndar voru,
Sumarnótt á Þingvöllum, sem
kennari minn Viggo Johansen
lét á sínum tima kaupa fyrir
listasafn danska ríkisins, vakn
aði í mér dálítið atvik sem
gerðist 1918, þá var ég elev á
listaakademíinu og öll blöð
full af skrifum um sjálfstæð-
ismál íslendinga. Þá var aug-
lýst legat og ég sótti um það,
en þurfti helzt að hafa með-
mæli frá einhverjum, og fer
til Viggo Johansen og spyr
hvort hann treysti sér til að
gefa mér meðmæli. Þá segir
hann við mig, enda var málið
á allra vörum: „Já, þið viljið
fara að vera sjálfstæðir ís-
lendingar, það er sjálfsagt að
hjálpa ykkur til þess.“
Slikum orðum gleymir maður
ekki í hita lífsbaráttunnar, í
þeim er humor og forst&else,
og ég hugsa hlýtt til þessa
kennara míns í viðlögum.
í Danmörku eignaðist ég
nýjar endurminningar um
mína gömlu kennara, þeir
voru allir miklir málarar og
stórmenni, kosmópólítar og
frægir menn. Þessir menn
voru meira en kennarar, þeir
voru eftirlitsmenn, gengu inn
í salina og skvöldruðu til að
við gætum séð þá: það var
Tuxen og það var Grönvold
og það var Rostrup Bogesen
— hann var mestur kamme-
ratinn, hann gat verið eins og
hversdagslegur strákur —
og það var Julius Poul-
sen. Og ekkert nema þræl-
dómur á akademíinu, þetta
hafa verið erfiðir tímar þang-
að til nú, áð maður er orðinn
intressulaus og úr sér genginn
og kominn út úr öllu sam-
kvæmislífi af eðlilegum ástæð
um og hefur ekki lengur hæfi
leika eða löngun til að inn-
vinna það aftur sem hefur
farið forgörðum og lent í glat-
kistu tímans og annanna og
hversdagsins, já, úr sér geng-
inn. Allt er þetta skrýtið, mér
fannst ég geta orðið innlyksa
þarna í Kaupmannahöfn og
treysti mér ekki til að hafa
það of gott, hélt ég mundi
ekki standast þá raun, svo ég
flýtti mér heim í heimilisleys-
ið. En þetta má ég ekki segja,
því þá fara vinir og kunn-
ingjar að aumkast yfir mann-
og koma með jólakökur og
með þeim. Ég segi þetta að-
eins vegna þess að ég sefjast
og verð fyrir utanaðkomandi
áhrifum, því ég hef alltaf ver-
ið kammeratlegur frá því ég
var drengur á skútunum. Ég
hef haft lítið fyrir því að um-
gangast listamenn síðan ég
var á skútunum, ég var alltaf
álitinn góður kammerat. Ég
sá marga snillinga þarna á
sýningunni, ég man ekki nöfn
in.“
Og Kjarval hélt áfram:
„Já, ójá, það var gaman að
sjá sumar myndirnar komnar
á sýninguna hingað og þangað
frá vinveittu fólki, sem lán-
aði þær. Mér er eiginlega ráð-
gáta, hvernig þeir gátu haft
upp á öllum þessum mynd-
um, mér hefur jafnvel dottið
í hug að þeir hafi haft eftir-
lit með manni og afkomu
manns og samt var þetta allt
eins eðlilegt og framast gat
verið, og sýningin eins sjálf-
sögð og maður drykki úr kaffi
bolla sæmilega gott kaffi. Og
ég varð ekki var við að hún
hefði truflandi áhrif á bæjar-
lífið. Raunar var hún svo
yfirgripsmikil, að ekki er
unnt að lýsa því með orðum.
En það sem gladdi mig mest
og kom helzt á óvart var að
sjá, að þeir notuðu „Við hafið
ég sat“ eins og plakat fyrir
sýninguna, það var hengt upp
á veggi og það fyrsta sem
blasti við manni, þegar inn
kom. Og hvers vegna gladdi
þetta mig svona mikið? vegna
þess að myndin var illustra-
sjón við kvæði Steingríms
Thorsteinssonar: Við hafið ég
sat fram á sævarbergstall —“
Þetta kom mér mest á óvart.
Og ég hitti ýmsa sem gaman
var að hitta og komu á sýn-
inguna, þar var Júlíana
Sveinsdóttir og Træniker
læknir, svo ég nefni nöfn.“
„Og hvernig leizt þér á
Kaupmannahöfn eftir öll
þessi ár?“ spurði ég.
„Það voru hengd upp flögg
um allt, þegar við komum og
mikill hátíðabragur á borg-
inni, og maður var nýkominn
úr einbýlinu sínu hérna heima
og ég varð óttasleginn, því
þeir höfðu um þúsund manna
orkestur. Var verið að gera
grín að einhverjum, nei. Mér
létti þegar þeir sögðu ag þeir
væru að halda hátíðlega enska
viku í borginni. En þetta
verkaði allt vel. Og mikið
ægilega eru göturnar í Kaup-
mannahöfn fínar. Ég var í
drossíu og kurteis dama ók
henni um fágaðar göturnar.
Ég var að reykja sígarettu
og þegar ég var búinn með
hana bleytti ég stubbinn með
fingrunum og setti hann ofan
í eldspýtustokk, sem ég lét
síðan í vasann, en auðvitað
datt mér ekki í hug að setja
hann í öskubakkann eða
fleygja honum út á götuna,
því ég vildi ekki óhreinka
bæinn hennar. Ég vissi að hún
mundi þá móðgast við mig.
Þú sérð að ég hef bekið
eftir ýmsu, góðu, en nú skul-
um við láta þessu rabbi lok-
ið. Þú getur komið seinna og
spurt mig, og þá geturðu feng
ið sæmilega mynd af því
Framhald á bls. 23