Morgunblaðið - 02.10.1964, Page 5
r
Föstudagur 2. okt. 1964
MORGUNBLAÐIÐ
5
iins og apar hjá Tarzan
I„I»etta er alveg splúnkunýr
dans. Hann er á ensku kallaff-
ur Monkey, sem þýffir api.
Hreyfingamar eru svona lík-
ar því, þegar gorilluapi stend-
ur uppréttur og dansar um
jörðina, rétt eins og apamir í
Xarzanmyndunum hegða sér
Silalegar hreyfingar, en anzi
skemmtilegar“.
Þaff er hljómsveitarstjóri
SOLO-bítlahljómsveitarinnar
sem talar. Blaðamaffur Mbl.
hitti um daginn að máli Þor-
kel Ámason hljómsveitar-
stjóra í tilefni af því, aff SOLO
hljómsveitin vann yfirburffa-
sigur í keppni Bítlahljóm-
1 sveita í Austurbæjarbíó um
i daginn. Þar kepptu 5 hljóm-
sveitir, Sólo, Bimbo, Strengir,
Garffar og gosar og Plato.
!' Hvernig fór svo atkvæða-
greiðslan fram?
„Krakikarnir völdu beztu
hljómsveitina. Hverjum miða
fylgdi atkvæðaseðill, sem átti
að útfylla. okkur finnst þetta
mikill viðurkenning. Þetta er
nefnilega fólkið, sem hefur
gaman að þessari miúsik, fólk
ið, sem sækir böllin, og æfcti
að hafa mest vit á því, sem
það er að segja.
Nei, það er ekkert lát á
Bítlamúsik. Við erum annars
ekki mjög hárprúðir. Það er
einn rakari í hljómsveifinni
og umboðsmaður okkar er
rakari, svo að þeim er ekkert
um þetta mikla hár gefið.
Þessi hártízka tekur alveg at-
vinnuna frá vesalings rökur-
unuffl. Við höfum heyrt, að
einn rakari neiti að snyrta
hár þessara Bítla, nema þá
til að snoða þá! En þá færi nú
af þeim mesti glansinn.
Eins og ég sagði þér áðan
höfum við í undirbúningi að
kynna nýjan dans, Monkey
eða apadans.
Máski skýrum við hann
„monkeybusiness“, skutum
við inni.
Ja, éig veit ekki! Þetta eru
ósköp silalegar hreyfingar,
rétt eins og hjá Sítu hans
Tarzans apabróður.
Við leikum fyrir dansi 2
kvöld í viku í Breiðfirðinga-
búð og í Silfurtuniglinu á
sunnudagskvöldum. Laugar-
dagskvöldin spilum við ein-
hvers staðar . og höldum þá
dansleikina Sjálfir.
Þetta gengur alveg ágætlega
og við bindum miklar vonir
við hinn nýja apadans. f hon-
um má þó hreyfa fæturna, en
ekki þörf á því að vera eins og
staður hestur í hafti líkt og í
SHAKE, sem hérna var lýst
um daginn. Dansarnir eru
samt báðir ágætir, hvor á
sína vísu.“
Og með það yfirgáfum við
Þorkel yfirbítil í Solo, og bíð-
um nú í ofvæni eftir solo í
apadansi.
1
Á ferð og flugi
Akrancsf erðir með sérleyfisbílum
1» Þ. Þ. Afgreiðsla hjá B.S.R. Frá
Reykjavík alla daga kl. 6. Frá Akra-
nesi kl. 8, nema á sunnudögum kl. 3
Á laugardögum frá Rvík ki. 2 og á
■unnudögum kl. 9 e.h.
H.f. Jöklar: Drangajökull kom i
fyrradag til Cambridge og fer þaðan
til Canada, Hofsjökuil fór frá Hamborg
29. sept. til Rvikur. Langjökull er 1
Aarhus. Vatnajökull fór frá London í
gærkveldi til Rotterdam og Rvikur.
Eimskipafélag Reykjavíkur h.f. —
Katia er 1 Piraeus Aslrja er væntanieg
til Cork síðdegis i dag.
Flugfélag íslands h f Millilandaflug:
Eólfaxi fer til Glasgow og Khaínar
kl. 08:00 í dag. Vélin er væntanleg aft
ur til Rvíkur kl. 22:20 í kvöld. Ský-
faxi fer til London kl 10:00 í dag
Vélin er væntanieg aftur tU Rvíkur
kl. 21:30 í kvöld. Gullfaxi fer tU
Glasgow og Khaínar kl. 08:00 í fyrra-
inálið. Sólfaxi fer til Oslo og Khafnar
kl. 08:20 í fyrramálið Innanlandsflug:
í dag er áætlað að fljúga til Akureyrar
(2 ferðir), Egilsstaða, Vestmannaeyja,
ísafjarðar. Fagurhólsmýrar og Horna-
fjarðar Á morgun er áætlað að fljúga
til Akureyrar (2 ferðir), Egilsstaöa, ísa
fjarðar, Vestmannaeyja, Sauðárkróks
«g Húsavlkur.
SkipadeUd S.f.S.: Arnarfell er 1
Haugasundi, fer þaðan 3. þ.m. til
Faxaflóahafna JökulfeU fer í kvöld
frá HuU tU Calais og íslands. DisarfeU
fer 3. þ.m. frá Gdynia tU Riga og
íslands. Litlafell fór 29. fm. frá Fred
erikstad tU íslands. HelgafeU er í Rvík.
HamrafeU fór í gær frá St. John's í
Newfoundland, er væntanlegt til Ar-
uba 8. þm. Stapafell fór i gær frá
Rvik tU Akureyrar. Mælifell er í
Archangelsk.
Loftleiðir h.f.: Þorfinnur karlsefni
er væntanlegur frá NY kl. 07:30. Fer
til Luxemborgar kl. 09:00. Kemur til
baka fré Luxemborg kl. 24:00. Fer til
NY kl. 01:03. Snorri Þorfi/isson er
væntanlegur frá NY kl. 09:30. Fer tU
Oslóar og Kaupmannahafnar kl. 11:00.
Snorri Sturluson er væntanlegur frá
Amsterdam og Glasgow kl. 23:00. Fer
tU NY kl. 00:30.
Hafskip h.f.: Laxá er á leið til
Hornafjarðar. Rangá er í Helsing-
fors. Selá er i Hull. Tjamme er í
Reykjavík. Hunze er á leið Ul Lyskil.
Erik Sif er á Raufarhöfn-
Skipaútgerð ríkisins: Hekla er á
Austfjörðum á norðurleið. Esja er í
Álaborg. Herjólfur er á Hornafirði.
Þyrill er á leið tii Fredrikstad. Skjald
breið er á Húnaflóa á leið til Akur-
eyrar. Herðubreið fór frá Rvík í gær
vestur um land 1 hringferð. Baldur
fór frá Rvík í gær til Snæfellsness,
Gilsfjarða- og Hvammsfjarðahafna.
H.f. Eimskipafélag íslands: Bakka-
foss fer frá Lysekil 3. þm. til Gauta-
borgar, Kristiansand og Leith. Rrúar-
foss fór frá Rvík 30. þm. til Húsa-
víkur, Akureyrar, Hríseyjar, Dalvík-
ur, Hólmavíkur, Vestfjarða og Faxa-
flóahafna. Dettifoss er i NY, fer
þaðan til Rvíkur. Fjallfoss fer vænt-
anlega frá Ventspils 1. þm. tU Kaup-
mannahafnar og Rvíkur. Goðafoss fór
frá Hull 1. þm. til Rvikur. GuUfoss
kom tU Kaupmannahafnar 1. þm. frá
Leith. Lagarfoss fer frá Seyðisfirði
1. þm. tU Eskifjarðar. Mánafoss fer
frá Breiðdalsvik 1. þm. Ul Fáskrúðs-
fjarðar, Norðfjarðar og Vopnafjarðar
og þaðan til LysekU, Gravaraa og
Gautaborgar. Reykjafoss kom tU Lyse
kU 30. þm. fer þaðan tU Gravaraa og
Gautaborgar. Selfoss fer frá Rotter-
dam 2. þm. til Hamborgar, Hull og
Rvikur. Tröllafoss fór frá Archang-
elsk 24. þm. til Lelth. Tungufoss fór
frá Keflavik 1. þm. tU Grundarfjarð-
ar, Patreksfjarðar, Súgandafjarðar,
Slglufjarðar, Hríseyjar, Akureyrar og
Reyðarfjarðar.
VÍSIJKORIM
AÐFALL
Öldur brunnu um Ægis-hlaff
eld viff sunnu rauffan,
Fjallkonunnar fótum aff
fúsar runnu í dauffann.
Pétur Hannesson frá
Sauðárkróki.
Þú ræður, hvort þú trúir því, heitir nýr þáttur, sem mun koma
í dagbókinni. Hann er ienginn frá hinum fræga manni Rofoert Rip-
ley, sem safnað hefur um árabii frásögum um ótrúlega hluti, sem
allir eru sannir. Hér birtist svo sá fyrsti.
Þetta er MORIMOTO, liinn fxægi Japani, sem gat í sannleika
gleypt nefið á sér.
Blómlaukar
Páskaliljur, 11 teg. Verð:
Kr. 5,- til 13,- st. Einnig
Iris og Stjörnulilja (Scilla)
Selt frá kl. 1—10 e. h.
Kristinn Guðsteinsson,
Hrísateigi 6.
Ungan regltunann
í góðri stöðu vantar
herbergi strax í Reykjavík,
Kópavogi, Hafnarfirði eða
nágrenni. Tilb. sendist Mbl.
merkt: „4566 — 9195“.
Hárgreiðslustofan Venus
Grundarstíg 2A. Lagning-
ar, permanent, litanir, hár-
skol, við allra hæfi. Gjörið
svo vel að ganga inn eða
panta í síma 21777. \
Fiberglas gerviefni
3 gerðir, terylene eldhús-
gardínuefni. Mikið úrval af
sængurfatnaði og silkidam-
ask. Vöggusett. Hullsauma-
stofan Svalharði 3, Hafnar-
firði. — Sími 51075.
Hjón með 10 ára telpu
óska eftir 3—4 herb. íbúð
sem næst Landakotsspítala.
Tilboð sendist Mbl., merkt:
„Rólegt — 9198“.
Vil taka á leigu
litla íbúð, má vera í Hafn-
arfirði. Tilboð sendist afgr.
Mbl. fyrir 6. okt., merkt:
„Reglusemi — 4059“.
2 samliggjandi bílskúrar
óskast,verða eingöngu not-
aðir við þvott og hreinsun
bifreiða. Sími 40493 eftir
kl. 4.
Erum á götunni
Óska eftir 2—4 herbergja
íbúð strax. Fyrirframgr.,
ef óskað er. Uppl. í síma
33311 í dag.
Ráðskona óskast
á fámennt sveitaheimili,
má hafa með sér börn. —
Uppl. í síma 21849.
Volkswagen ’62
í góðu lagi til sölu. Verð
kr. 75 þús. Staðgreiðsla.
Uppl. í síma 40331.
Dömur
Wella Koleston háralitur-
inn kominn.
Hárgreiffslustofan Inga
Skólavörðustíg 2.
Sími 12757.
Keflavík
í Faxó allar matvörur:
Grænmeti, nýir ávextir,
sælgæti, Faxó pylsurnar
góðu. Opið í matartíman-
um. Faxó, Hafnargötu 55.
Sími 1826.
Keflavík
Matarlegt í Faxaborg, dilka
kjöt, svið, lifur, vambir,
mör, hamsatólg, rauðar
kartöflur. Heimsendingar.
Jakob, Smáratúni. S. 1326.
Stretchbuxur
köflóttar og einlitar, sokka
buxur barna og fullorð-
inna, ullarhosur.
Hullsaumastofan Svalbarði
3, Hafnarfirði. Sími 51075.
Sniðkennsla
Dagnámskeið hefst 6.. okt.
Kenni frá kl. 2—5, þrisvar
í viku. Sigrún A Sigurffar-
dóttir, Drápuhlíð 48.
Sírni 19178.
Konur athugið
Tek að mér að lagfæra
kjóla o. fl. Er við frá kl.
2—5 e. h. nema laugardaga.
Anna Frímannsdóttir
Blönduhlíð 31, 1. hæð.
Sími 1-67-35.
Herbergi óskast
í Háleitishverfunum fyrir
einhleypan, ' reglusaman
mann, sem lítið er heima.
Uppl. í síma 11261.
Góð 3ja herb. íbúð
til leigu. Tilboð með uppl.
um fjölskyldustærð og fyr-
irframgreiðslu sendist Mbl.
merkt: „Nóvember 9196“.
Húsnæði
fyrir smáiðnað og verzlun,
helzt á sama stað, óskast
sem fyrst. Tilboð sendist
blaðinu, merkt: „9262“.
3ja—4ra herbergja íbúð
óskast til leigu nú þegar.
Fátt í heimili. Fyrirfram-
greiðsla. Uppl. í síma
41772.
Stúlka
um tvítugt óskar eftir
vinnu. Hefur verið í Eng-
landi. Uppl. í sima 23849.
B.T.H. þvottavél til sölu
Upplýsingar í síma 37854.
Vei kamenn
óskast nú þegar. — Upplýsingar hjá verkstjóranum.
S. í. S., Afurðasalan.
Sendisveinn óskast
fyrir hádegi.
. tUUfíUcUHi
Langholtsvegi 49.