Morgunblaðið - 02.10.1964, Síða 32
mmm
.E LE KTROLUX UMBOÐIÐl
IAUOAVEGI « .i'mi 21800
230. tbl. — Föstudagur 2. október 1964
I?
TVÖFALT
EINANGRUNARGLER
Oára reynsla hérlendi
EGGERT KRISTJANSSON «CO HF
Möguleikar á aukinni sölu
síldar til USSR kannaðir
Margreynt hefur verið að auka kvótann
á niðurlagbri sild án árangurs —
Rússar hafa engu svarað enn
, Siglufirði, 1. okt.
NIÐURLAGNINGARVERKSM.
Síldarverksmiðja ríkisins hóf
störf í dag og hyggst vinna úr
rúmlega 100 tunnum síldar frá
fyrra ári fyrir innanlandsmark-
að. Eg átti tal við Guðlaug Briem,
framkvæmda.stjóra verksmiðjunn
ar, og sagði hann að nú væri
unnið að því gegnum sendiráð
Islands í Moskvu að fá markað
fyrir framleiðsluvórur verk-
smiðjunnar í Sovétríkjunum. —
Ekki hefur verið gengið endan-
lega frá neinum sölusamningum,
en verksmiðjan hefur engu að
síður tryggt sér um 4000 tunnur
Borgurstjórnar-
hindur í gær
BORGARST J ÓRNARFUNDUR
var haldinn í Reykjavík í gær,
og m.a. rætt um barnaheimili og
vistheimili við Dalbraut, og enn-
fremur var upplýst um gang
skólabygginga og viðhorf í þeim
málum. Loks urðu nokkrar um-
ræður um tillögu um skipun
sérstakrar lóðanefndar í stað
borgarráðs, sem með þau mál fer.
— Nánar verður sagt frá þess-
um málum í blaðinu.
Markús Guðmundsson.
af síld í trausti þess að þessir
samningar takist. Þessar 4000
tunnur myndu tryggja vinnu í
verksmiðjunni frá áramótum til
vors.
í niðurlagningarverksmiðjunni
geta unnið 20 stúlkur og 4—5
karlmenn. — Stefán.
★
Við þessa frétt má bæta því,
að samkvæmt upplýsingum, sem
Mbl. hefur aflað sér, hefur það
lengi verið mikið áhugamál nið-
ursuðuverksmiðja og íslenzkra
stjórnarvalda að auka útflutning
á niðurlagðri síld og niðursuðu-
vörum til Sovétríkjanna. í síð-
ustu samningaviðræðum, sem
fram fóru í desember 1962 í
Reykjavík, fór íslenzka samn-
inganefndin fram á að árlegur
innflutningskvóti í Sovétríkjun-
um fyrir niðursuðuvörur yrði 30
milljónir kr. árlega, en rússneska
ÞAU óvenjule,gu tíðindi hafa
ger/.t, að 34 ára gamall maður,
Kristján Friðbergsson að nafni,
hefur fest kaup á húsinu Kumb-
aravogi á Stokkseyri, og hefur
í hyggju að setja þar á stofn eins
konar heimili fyrir munaðarlaus
börn. Þetta heimili verður, ef til
kemur, hið fyrsta sem með því
sniði verður rekið hérlendis, þar
sem ekki er um barnaheimili að
ræða í venjulegum skilningi
þess orðs, heldur hefur Kristján
í hyggju, hafi hann fjárhagslegt
bolmagn til, að veita þessvxn
börnum heimili, sem líkast því
sem þeirra eigið væri. Sjálfur
er Kristján kvæntur og á tvo
unga syni.
samninganefndin vildi ekki sam-
þykkja hærri kvóta en 7 millj.
kr. —
Síðan hafa verið gerðar marg-
ar tilraunir bæði af hálfu ís-
lenzkra stjórnarvalda og útflytj-
enda, í þá átt að selja niðurlagða
síld umfram umsaminn kvóta,
en hingað til hafa þær tilraunir
engan árangur borið. Eftir fund
fulltrúa íslenzkra kommúnista
og fulltrúa sovézka kommúnista-
flokksins í septemberbyrjun, en
íslenzkir kommúnistar hafa hald-
ið því fram eftir fundinn að
miklir möguleikar væru á stór-
aukinni söiu af niðurlagðri síld
til Sovétríkjanna, fól ríkisstjórn-
in sendiherra Islands í Moskvu
að athuga þetta mál til hlítar.
Hefur sendiherrann rætt málið
við aðstoðarutanríkisráðherra
Rússa, og fleiri aðila en svar við
tilmælum íslenzku ríkisstjórnar-
innar um aukinn kvóta hefur
ekki borizt ennþá. Ennfremur
hefur utanríkisráðherra rætt mál
ið við rússneska sendiherrann í
Reykjavík, en eins og fyrr getur
hafa Rússar ekki enn svarað
þessari málaleitan.
Kristján tjáði Mlbl. í samtali
í gærkvöldi að Kumbaravogur
væri stórt steinhús á tveimur
hæðum, 140 fermetrar hvor hæð.
í>ar hefði áður verið rekið barna
heimili, sumarbúðir og drykkju-
mannahæli. Húsið kvað hann því
henta vel að öðru leyti en að
það væri allmjög úr sér gengið,
og þyrfti endurbóta við. Hann
kvaðst enga hugmynd hafa um
hvenær hann gæti hafið að taka
á móti börnunum; ekki einu
smni vita hvort honum mundu
nokkru sinni takast að koma
heimilinu upp.
„Ég er sjálfur að flyija austur
nú um helgina, og ætla að vinna
Framhald á bls. 31
Algjört metár í afla-
leysi á heimamiðum
Hyggst veita munaðar-
lausum börnum heimili
Ovenjulegf framtak einsfaklings
— segir skipstjórinn á Júpiter
„HÉR á að vera þorskur um
þetta leyti árs, en hann sézt
bara ekki. Þetta eru sannar-
lega breyttir tímar“, sagði
Markús Guðmundsson, skip-
stjóri á togaranum Júpíter, er
Mbl. átti símtai við hann í
gær. Júpiter var þá staddur
á miðunum út af Vesturlandi,
nánar tiltekið útaf Breiðafirði,
og hafði verið þar að veiðum
í einn dag. En eftirtekjan var
rýr, að því er Markús sagði,
helzt karfi og eitthvað af ýsu.
Markús sagði að þeir á Júpi
ter hafi eingöngu fiskað á
heimamiðum í sumar, og oftast
selt afiann til útlanda. Hefur
Júpiter fengið gott verð fyrir
fiskinn í Þýzkalandi og Bret-
iandi í þrjú sl. skipti, sem
skipið hefur seit þar. „Eina
leiðin til að halda togurunum
úti, er að sigia út með fiskinn,
nái maður í eitthvað," sagði
Markús.
Minnkandi fiskur.
Markús sagði að ástandið á
miðunum virtist fara versn-
andi frá ári til árs, „oig hér er
óhætt að segja að sé enginn
þorskur. Eina skýringin á
þessu er hreiniega sú, að
minnkandi fiskur sé á mið-
unum. Ég mundi segja að í
ár sé algjört met í fiskleysi.
Að vísu kom ýsugengd á Eld-
eyjarbanka um daginn, en það
hefur líka verið eini ljósi
punkturinn í haustfiskiríinu.
Þetta er ekki fiskirí heldur
hreinasta skrap, eins og við
köllum.“
Markús bætti því við að
lokum, að mjög sæmilegur
markaður hefði verið í Þýzka
landi að undanförnu, og í
sumar hafi markaður verið
sæmilegur og oft mjöig góður
í Englandi, þótt ekki vissi
hann hvernig markaðshorfux
væru þar nú.
kvöld var slökkviliðið í
Reykjavík kvatt að húsi Þ.
Jónssonar & Co. að Brautar-
holti 6. Þar hafði komið upp
eldur í skorsteinsmótum, e>n
Til þess þurftu slökkviliðs-
menn að reisa brunastiga, svo
sem sjá má á þessari mynd,
sem Sv. Þ. tók.
Samkomulag um
fersksíldarverð
Verð á síld til soltunar hœkkar um 20°Jo
MBL. barst í gær eftirfarandi
tilkynning frá Verðlagsráði sjáv
arútvegsins, sem hefur að undan
förnu unnið að ákvörðun lág-
marksverðs á fersksíld veiddri
við Suður og Vesturland frá 1.
október 19*64 til 28. febrúar 1965.
Á fundi ráðsins í nótt náðist sam
komulag um fersksíldarverðið,
sem hér segir:
Síld til heilfrystingar, söltun-
ar og flökunar kr. 1,70 kíló-
grammið. Verð þetta miðast við
það magn, er fer til vinnslu.
Vinnslumagn telst innvegin síld
að frádregnu því magni, er
vinnslustöðvarnar skila í síldar-
verksmiðjur. Vinnslustöðvarnar
skulu skila úrgangssíld í verk-
smiðjur seljendum að kostnaðar
lausu, enda fái seljendur hið aug
lýsta bræðslusíldarverð.
Þar sem ekki verður við kom-
ið að halda afla báta aðskildum
í síldarmóttöku skal sýnishorn
gilda sem grundvöllur fyrir hlut-
falli milli síldar til framan-
greindrar vinnslu og síldar til
bræðslu, milli báta innbyrðis.
Framhald á bls. 31
Tómosor Jonssonar minnzt
á borgnrstjórnnrfundi
í UPPHAFI borgarstjórnarfund-
ar, sem haldinn var í gær, minnt-
ist frú Auður Auðuns, forseti
borgarstjórnar, Tómasar Jónsson-
ar, borgarlögmanns, en útför
hans var gerð frá Dómkirkjunni
í Reykjavík í fyrradag að við-
stöddu fjölmenni.
Frú Auður Auðuns mælti m.a.
á þessa leið: „Hér skulu ekki
rakin æviatriði né heldur tílraun
til þess gerð að teija upp þann
mikia fjölda ábyrgðar- og trún-
aðarstarfa, er hann leysti af
hendi fyrir Reykjavíkurborg í
þau rösklega 30 ár, sem liðin
voru er hann lézt, frá því hann
tók við hinu nýstofnaða borgar-
ritaraembætti árið 1934. Við frá-
fall hans á Reykjavíkurborg á
bak að sjá frábærum starfsmanni,
og við, sem áttum þess kost að
starfa með honum, kveðjum
traustan og drenglyndan vin.“
Borgarfulltrúar risu úr sætum
til að heiðra minningu hins látna
og votta aðstandendum hans
samúð.