Morgunblaðið - 21.10.1964, Síða 26

Morgunblaðið - 21.10.1964, Síða 26
28 MORCU NBLAÐIÐ Miðvikudagur 21. okt. 1964 Æsíspennandi tugþrautarkeppni: Holdorf slagaöi á brautinni - og féll á marklínunni En tókst að krækja í gullið f FYRSTA sinn síðan Finninn Paavo Yrjola sigraði í tugþraut á ÓL-leikjunum gekk nú sigurinn í þessari þrekraun úr greipum Bandaríkjamanna. Hinn 24 ára gamli Þjóðverji Willy Holdorf hreppti gullið eftir æsispennandi og drepandi 1500 m hlaup, því að það var síðasta grein þrautarinnar sein úrslitum réði. Holdorf gekk þar svo nærri sér að hann slagaði frá 1. til 3. brautar á siðustu metrum 1500 m hlaupsins og féll í ómegin er hann sté yfir mark- línuna — gjörsamlega að þrotum kominn. Hann hafði verið að berjast við það að Rússinn R. Aun yrði ekki 17 sek. á undan honum. Yrði það, myndi Rússinn hreppa gullið. Rússinn var kominn í mark og sekúndurnar iiðu — Holdorf slagaði síðustu metrana og féll á iínunni. En honum hafði tekizt það. Rússinn var ekki 12 sek. á undan í 1500 m og gullið varð þýzka stúdentsins. Valbjörn varð 12. Valbjörn Þorláksson lauk keppninni með prýði. Hann skipaði 12. sætið af 18 er luku þrautinni, en meðal þeirra sem hættu var hollenzki harð- jaxlinn Kamerbeeck. Er ár- angur Valbjarnar hinn lofs- verðasti. Árangur hans í þraut inni nú var þannig og til sam- anburðar árangur hans í stig- um nýju töflunnar, er hann setti íslandsmet sitt: Nú Metið 100 m 11.1 780 11.0 Langst. 6.43 699 6.57 Kúluv. 13.10 671 12.57 Hástökk 1.81 689 1.79 400 m 50.1 801 50.0 Fyrri dagur 3640 110 m gr 15.6 787 15.3 Kringluk. 39.70 680 38.90 Stöng 4.40 909 4.35 Spjótk. 56.19 714 56.22 1500 m 5.00.6 405 4.56.6 14:45, 1.96, 49.5, 15.3, 43.15, 4.10, 62.9 og 4.37.0. Lokaúrslit tugþrautarinnar urðu þessi: ÓL-meistari W. Holdorf Þýzkalandi 7887 2. R. Aun Sovétríkin 7842 3. Walde Þýzkalandi 7809 4. Herman Bandaríkin 7787 5. Yang Formósu 7650 6. Beyer 7627 7. Kuznetsov Sovétríkin 7569 8. Storosjenko Sovétríkin 7464 9. Hodge Bandaríkin 7325 10. Emberger Bandaríkin 7292 11. Gardner Kanada 7145 12. Valbjörn Þorláksson 7135 13. Sar ftalíu 7005 14. Buchel Lichtenstein 6838 15. Suzuki Japan 6838 16. Moro Kanada 6716 17. Kiprop Kenýu 6712 18. Sereme Mali 5917 Þetta er Ann Parker, sem í gær vann gull og setti hcims- met — allt til að hugga unn- usta sinn, sem var í sorgum yfir sínu 4. sæti. Myndin var símsend frá Tókíó í gær. Jón Þ. Ól. fór 2.oo Brummel felldi 2.03 tvívegis JÓN Þ. ÓLAFSSON var i und ankeppni hástökksins í gær- morgun á sama tíma og Val- björn Þorláksson var að berj- ast í grindahlaupi og kringlu kasti tugþrautarinnar. Jóni tókst ekki að ná til- skildri hæð til úrslita, en hún var 2,06 eða sama og ís- landsmet hans er. Jón stökk 2,00 metra og felld síðan þrívegis 2,03, en tvær tilrauna hans voru mjög nærri því að takast. 20 hástökkvarar fóru yfir 2,06 m og fara í úrslitakeppn- ina á morgun. Margir þeirra fóru 2,06 í fyrstu tilraun. En- sumum hafði þó ekki gengið slysa- laust. Þannig var t.d. með 1 Framh. á bls. 8. nema 3 cm munur á lengst og stytzta kasti hennar. Samtals st. 7135 7165 Eg lagði cllt í sölurnar til að hugga kærastann sagði kennslukonan sem Jón Þ. Öl. fðr 2.oo setti heimsmet Oslitin sigur^anga síðan 1924 UNGVERJINN T. Pasza vann með yfirbuTðum í skylmingum (sabel) í gær. Þar með hélt Ung verjaland sinni óslitnu sigur- göngu í þessari grein bæði fyrir einstaklinga og sveitir (áður unnin) síðan á Ol-leiku-num 1924 Hér sýnir hinn 18 ára gamli bandaríski sundmaður, Don Schollander, gullpeningana sína fjóra, sem hann vann í sundkeppni Tókíóleikanna. Eins og sjá má af þessu er Valbjörn alveg við met sitt, en met Arnar Clausens er, um- reiknað eftir nýju töflunni, 7104 stig. Árangur Holdorfs í þraut- inni er þessi í sömu röð: 10.7, 7.00, 14.95, 1.84, 48.2, 15.00, 46.05, 4.20, 57.37 og 4.34.2. Árangur Aun: 10.9, 7.22, 13.82, 1.93, 48.8, 15.9, 44.19, 4.20, 59.06 og 4.22.3. Árangur Walde: 11.0, 7.21, Ebbe Schwartz lézt í gær EBBE Schwartz form. danska knattspyrnusambandsins um ára bil varð bráðkvaddur í Honolulu í gær 63 ára að aldri. Schwartz hafði farið til OL-leikanna, en haldið heimleiðis 15. okt. og var sér til hvíldar í Honolulu. Var hann staddur á baðströnd í gær er hann féll og var örendur er til sjúkrahúss kom. Schwartz var mikill íslands- vinur — ekki sízt knattspyrnu- manna. Kom hann hér oft og var vinmargur hér á landi. 8 gullverðlaun ú boðstólum f gær voru 8 gullverðlaun á boðstólum á Tokióleikunum. Þrjú þeirra voru í frjálsum í- þróttum og imnu Þýzkaland, Rússland og ,Bretland eitt hvert. í judo vann Japani gull í létt- vigt. í fimleikum unnu Japanir tvenn gullverðlaun, Bandarikin eltt í skotfimi og UngverjaLand eitt í skylminguim. — ÉG ætlaði mér að leggja allt í sölumar fyrir sigurinn og gull verðlaun og setti mér að ná því takmarki mínu ifyrir unnusta minn Robbie Brightwell, en við ætlum að gifta okkur í desem- ber. Þannig talaði hin 22 ára gamla kennslukona Ann Packer eftir að hún sigraði í 800 m hlaupi kvenna á nýju heimsmeti 2.01,1. Sá sigur var öraggur vel, en all óvæntur og verðskuldaður eftir vel útfært hlaup. — Mannsefni mitt, Brightwell, er fyrirliði enska karlaliðsins í frjálsum íþróttum. Hann keppti 11 gull unnin á mánudag Mánudagurinn var ein.n mesti verðlaunadagurinn í Tokíó. Þá unnu ítaiir þrjú gull, tvö í reið- mennsku (einstaklings og lið) og í hjólreiðum og var það reynd- ax tvöfaldur sigur. Þjóðverjar fenigu þá sitt fyrsta gull er Balz er vann í 80 m grindahlaupi kvenna. Þann dag unnu Finnar sín þriðju gullverðlaun. Það var í skotfimi og höfðu Finnar áður unnið gull í einni grein skot- fima svo og í spjótkasti karla. Japan og Ungverjaland tryggðu sér tvenn guliverðlaun hvort land í glímu en hin gull- in fjögur í glímu skiptust milli Buglaríu, Tyrklands, Rússlands og Júgóslavíu. Svíar unnu silf- ur og bronsverðlaun í glimu- keppninni. í 400 m hlaupinu og varð aðeins fjórði, en flestir höfðu spáð hon- um sigri. Þetta fékk mjög þungt á hann. — Ég ákvað því að leggja allt í söiurnar fyrir sigur. Ef ég ynni gullið, yrði það einnig huggun fyrir hann, því sigurinn yrði þá fjölskyldunnar. Enginn hafði spáð Ann Parker sigri. Bezti tími hennar fyrir leik ana var 2.05,3 og eftir úrtöku- mótin heima í Englandi var hún í 2. sæti. — Það var farið hratt af stað, en ég fann ekki til þreytu. Og þegar hlaupið var hálfnað vissi ég að Robbie myndi fá sína gull medalíu. Parker var í 6. sæti eftir fyrri hringinn, en síðan tók hún að sækja fram og lauk hlaupinu á glæsilegum endaspretti 5 m á undan þeirri næstu. Úrslit urðu: Olm.eistari Ann Parker Englandi 2.01,1 2. Dupureur Frakkl. 2.01,9 3. Chamberlain N-Sjál. 2.02,8 4. Szabo Ungverjal. 2.03,5 5. Gleichfeld Þýzkaland 2.03,9 6. Erik Sovétríkin 2.05,1 f annarri grein kvenna fengust úrslit í gær. Olympíumeistaran- um frá 1960 Tamöru Press frá Sovétríkjunum, tókst að verja titil sinn. Hún var nú, sem fyrr í sérflokki. Hún vann einnig gull í kringlukasti fyrir tveim dögum, en í þeirri grein fékk hún „að- eins“ brons í Róm. Það vakti athygli í úrslitakeppninni að ný sjálenzk stúlka er varð 4. átti öll sín köst gild, en samt var ekki Úrslit urðu: Ol.meistari Tamara Press Sovétr. 18,14 2. Chulmberger Þýzkaland 17,61 3. Zybina Sovétríkin 17,45 4. Young N-Sjálandi 17,26 5. Helbold Þýzkalandi 16,91 6. Irena Press Sovétríkin 16.71 Hnefaleikakeppni á „verðlaunastigi“ Hnefaleikakeppnin í Tokíó er nú að komast á lokastig og komið að undanúrslitum í hverj um þungaflokki. Þar með hafa verið kjörnir allir þeir er verð- laun fá í hnefaleikakeppni, þvl reglumar eru þær að þeir sem sigra í undanúrslitaleikjum í hverjum þyngdanflokki, berjast síðan um gullið en báðir þeir sem tapa í undanúrslitaleikjum fá bronsverðlaun. Er því fjórum hnefaleikurum veitt verðlaun 1 hverjum flokki. í undanúrslitin eru meðal ann ars kornnir 7 Rússar. Mest á óvart hafa bomið hnefaleika- menn frá Afriku og Asíu og þá einkum frá Ghana. Hafa þeir bæði krafta og tækni en Asiu- mennimir eru höggharðari. Handbolfi í kvöld í KVÖLD verður Rvíkurmótinu í handknattleik haldið áfram að Hálogalandi. Fyrst leik í 3. fL karla ÍR og Víkingur. Síðan fara fram þrír leikir í m.fl. karla og leika Ánmann gegn Val, Þróttur gegn KR og Fram gegn ÍR. Mótið hefst kl 8:15.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.