Morgunblaðið - 15.11.1964, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 15.11.1964, Blaðsíða 10
10 MORCU N BLAÐIÐ Sunnudagur 15. nóv. 1964 Eining þjóðarinnar í kosning- unum styrkir aðstöðu hennar Viðtal við Lyndon B. Johnson að unnum sigri Hér á eftir fer viðtal við Lyndon B.Johnson Banda rikjaforseta, sem birtist í bandaríska timaritinu „U. S. News and World Keport“, dagsettu 16. nóv. 1964. Spurning: „Herra forseti! Hvernig má skýra hinn undra verða stórsigur yðar?“ Svar: „Ég tel, að þjóðinni hafi geðjast að andrúmsloft- inu, sem ríkti í landinu, og hún hafi viljað varðveita það. Hún treysti sjálfri sér og stjórn sinni og gerði sér grein fyrir því að stjórnin bar traust til hennar. Bandaríkjamenn voru í þessum kosningum, fremur en nokkrum öðrum eftir styrjöldina, hvattir til að hugleiða alvarlega, gaumgæfi- lega og öfgalaust, grundvallar atriði markmiða okkar og stefnu heima og erlendis. Mér finnst úrslitin sýna, að mikill meirihluti Bandaríkjamanna trúi því af einlægni, að ábyrg barátta fyrir friði sé heilla- vænlegust og að leita skuli fram á veginn til þess að mæta vaxandi vandamálum vaxandi þjóðar, en ekki snúa til baka. Bandaríkjamenn eru sameinaðir í þessari afstöðu, það sýndu þeir 3. nóvember." Sp.: „Varð sigurinn meiri en gert var ráð fyrir?“ Sv.: „Nei. Bæði hvað við- kemur atkvæðum þjóðarinnar sem heildar og í hinum ein- stöku ríkjum, voru úrslitin mjög lík því, sem skoðana- kannanir höfðu sagt fyrir um. Ég get ekki sagt að úrslitin hafi komið á óvart, ef hugsað er um hinn mikla mannfjölda, sem fagnaði okkur um allt landið, og einlægnina og áhug ann, sem fólkið sýndi í stuðn- ingi sínum við okkur í kosn- ingabaráttunni". Sp.: „Hvernig túlkið þér, sem forseti, úrslitin?“ Sv.: „>að er trú mín, að kjósendur vilji ábyrgar, raun- hæfar og framsæknar áætlan- ir um hvernig mæta skuli vandamálunum, sem Banda- ríkjamenn eiga við að etja. Eins og ég sagði í kosninga- baráttunni, tel ég að Banda- þörfum þjóðar okkar verður ríkjamenn geri sér ljóst, að hvorki fullnægt af verka- mannaflokki né kaupsýslu- flokki, Suðurríkjaflokki né Norðurríkjaflokki, styrjaldar- floki né friðarflokki. Sem þjóð, erum við reiðubúin og staðráðin í að græða sárin, sættast innbyrðis og mæta sem heild þeim erfiðleikum, sem á vegi okkar verða á þess ari öld. Þetta sýna kosningarn- ar. Ég tel að kjósendur á þessu ári hafi haft hugfast hið góða ástand í atvinnumálum, að meðallaun við framleiðsluna nái 100 dölum á viku, hinn sameiginlega hagnað, sem aukizt hefur jafnt og þétt síð ustu fjögur árin, og stöðug- leika verðlagsins, sem er meiri en nokkur önnur þjóð getur státað af. Þjóðin veit, að við viljum fremur uppbyggjandi sam- starf en bitran fjandskap bæði meðal kaupsýslumanna, innan verkalýðsins, stjórnarinnar og með öðrum hópum. Hún veit, að við munum halda áfram að hvetja til aukinnar fjárfesting ar og útþenslu í viðskiptalíf- inu, en um leið vernda hag verkalýðsins gegn verðbólgu. Ég tel, að þjóðin kunni að meta baráttu okkar fyrir sparnaði og árangursríkri stjórn, sem gerir um leið skyld ur sínar við ungmenni vor, hina öldruðu og öryrkjana. Úr slit kosninganna geta aðeins sýnt, að þjóðin vill, að haldið sé áfram á sömu braut í inn anríkismálum.“ Sp.: „Þýðir þetta, að þér njótið stuðnings allra stærstu hagsmunahópa þjóðarinnar, þegar í byrjun kjörtímabils yðar?“ Sv.: Kosningarnar sýna auk- inn þroska í afstöðu okkar og aukinn áhuga á stefnu þjóðar okkar. Við drögum úr ágrein- ingi Bandaríkjamanna og auk um einingu þeirra. Þetta er uppörvandi þróun, sem hlýtur að hlýja manni um hjartaræt- urnar og ég er mjög ánægð- ur með hve kosningarnar sýndu mikla einingu meðal þj óðarinnar.“ Sp.: „Hvert teljið þér hlut- verk Repúblikanaflokksins nú?“ Sv.: „Ég er sannarlega þeirrar skoðunar, að Repúblik anaflokkurinn hafi mikilvægu og nauðsynlegu hlutverki að gegna í stjórnmálum okkar og myndun stefnu þjóðar okkar. Ég er stoltur af hve margir framúrskarandi Repúblikanar hafa lagt sinn skerf til stjórn arinnar, góðir Repúblikanar og góðir Bandaríkjamenn, t.d. ráðherrarnir McNamara og Dillon, John McCone, yfirmað ur leyniþjónustunnar (CIA), McGeorge Bundy, sérlegur ráð gjafi um öryggismál þjóðar- innar og mikilsvirtir leiðtogar á sviði viðskiptalífsns eins og John McCloy og Robert Ander son. Ég var mjög stoltur af að njóta, í kosningabaráttunni, stuðnings fjögurra manna, sem sátu í stjórn Eisenhowers. En ég legg áherzlu á, að marg ir þeirra Repúblikana, sem studdu okkur, munu nú hefja störf fyrir Repúblikanaflokk- inn og leiða hann í framfara- átt, þannig að tveggja flokka kerfið í stjórninni haldi velli, en það er mjög mikilsvert framgangi Bandaríkjanna á öllum sviðum.“ Sp.: „Eruð þér þeirrar skoð unar, að sigurinn styrki að- stöðu yðar á alþjóðavett- vangi?“ Sv.: „Ég tel, að hann styrki aðstöðu þjóðarinnar. En eng- ar kosningar geta, sem slíkar, leyst flókin vandamál varð- andi utanríkisstefnuna. Með- an kosningabaráttan stóð yfir, skýrði ég utanríkisstefnu stjórnar minnar ljóslega og af hreinskilni, og hún hlaut við- urkenningu þjóðarinnar. Úr- slit kosninganna sýna öllum heiminum, að við munum hatda áfram á sömu braut í að nýtt tímabil er að hefjast utanríkismálum. Það er ljóst, í heimsmálunum, þar sem margir nýir leiðtogar, stjórn- ir og öfl koma fram, bæði í hinum frjálsa heimi og hin- um kommúníska heimi. Hlutverk Bandaríkjamanna og áhrifin, sem þau geta haft á frið og frelsi í heiminum á komandi tímum, eflast af einingunni og samstöðunni, sem kosningaúrslitin bera vitni.“ (Þýtt úr „U.S. New and World Report", óháðu vikuriti gefnu út í Was- hington. — Einkaréttur „U.S. News and World Report“ 1964). Lyndon B. Johnson, Bandarí kjaforseti, hvíldi sig nokkra daga á búgarði sínum í Tex.as að kosningabaráttunni lokinni. — Á myndinni sýnir hann hvernig skilja á ungneyti frá nautahjörð. íbúð eða hús Sendiráð Bandaríkjanna vill taka á leigu íbúð eða hús. Þarf að vera 1. hæð. Upplýsingar í Sendiráði Bandaríkjanna alla virka daga nema laugardaga frá kl. 9—6. Vélstfórafél. íslands Félagsfundur verður haldinn að Bárugötu 11, mánu daginn 16. þ.m. kl. 20,30. Áríðandi mál á dagskrá. Somkomur Samkomuhúsið Zion, Austurgötu 22, Hafnarfirði. Sunnudagaskóli kl. 10,30. Almenn samkoma kl. 8,30. Allir velkomnir. Heimatrúboðið. Bræðraborgarstígur 34. Samkoma í kvöld kl. 8.30. Allir velkomnir. Kristileg samkoma verður í kvöld kl. 8 'í samkomusalnum Mjóuhlíð 16. Allir eru hjartan lega velkomnir. Sendill Viljum ráða sendil til jóla. — Þarf að hafa reiðhjól. Vinnutími ca. 1—5 e.h. Sjálfsbjörg Bræðraborgarstíg 9 — Sími 16538. Effírtökur eftir nýjum og gömlum Ijósmyndum. STJÓRNIN. Sjállstæðis- kvennafél. HVÖT heldur fund á þriðjudagskvöldið 17. þ.m. kl. 8,30 í Sjálfstæðishúsinu. DAGSKRÁ: Félagsmál — Skemmtiatriði: Frú Emelía Jónasdóttir, leikkona fer með gamanþátt. — Kvikmyndasýning — Kaffidrykkja. STJÓRNIN Fíladelfia. Vakningarsamkoma í kvöld kl. 8.30. John Anderson talar. Fjöl- breyttur söngur. B RIKISINS Ms. Hekla fer austur um land til Akur- eyrar 20. þ.m. Vörumóttaka á áætlunarhafnir frá Djúpavogi til Húsavíkur á mánudag og árdegis á þriðjudag. Farseðlar seldir á fimmtudag. Skyndimyndír Templarasundi 3. — Opið kl. 1—6. Aðstoðarlæknisstaða Staða 1. aðstoðarlæknis við lyflæknisdeild Borgar- spítalans er laus frá 1. janúar 1965. Umsóknir, ásamt upplýsingum um námsferil og störf, sendist Sjúkrahúsnefnd Reykjavíkur, Heilsu- verndarstöðinni, fyrir 20. desember næstkomandi. Reykjavík 13. nóvember 1964. Sjúkrahúsnefnd Reykjavíkur.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.