Morgunblaðið - 15.11.1964, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 15.11.1964, Blaðsíða 23
Sunnudagur 15. nóv. 1964 MORGUNBLAÐIÐ 23 Repúblíkanar, sem höfuðlaus her Halda fundi á næstunni til þess að ræða framtíð flökksins LAUGARDAGUR 7. nóv. Síðdegis í dag lagði Barry M. Goldwater upp frá Wash- ington í viku orlofsdvöl á Jamaica — eftir að hafa rutt skrifstofu þá, sem hann hefur haft til umráða í 12 ár, sem öldungardeildarþingmaður Bandaríkjaþings. Hvort hann kvaddi þar með höfuðborg- ina fyrir fullt og allt sem opinber embættismaður skal ósagt látið. En líklegt má það teljast eftir það, sem undan er gengið. Við sæti Goldwat ers í öldungardeildinni tekur Paul J. Fannin. Hinn hroðalegi ósigur Gold waters í kosningunum hefur orðið tilefni ákafra bollalegg- inga síðustu dagana um fram- tíð Repúblikanaflokksins. Er búizt við miklum átökum með al helztu foringja hans á næst unni og boaðað hefur verið til fundar ríkisstjóra flokksins nú innan skamms og lands- stjóri Repúblikanaflokksins (The Republican National Commitee) 10. jan. Formaður stjórnarinnar, Dean Burch frá Arizona, hefur sagt, að með al umræðuefna verði staða hans og þykir líklegt, að hann verði fljótlega settur af. Á þessum fundi mun m.a. rætt og e.t.v. ákveðið hverja stefnu eigi að taka' á næsta kjörtíma bili — hvort halda eigi fast við íhaldsstefnu Goldwaters eða fara að vilja hinna frjáls lyndari manna í flokknum. Sem stendur eru Republikan ar sem höfuðlaus her. Þess er nú minnzt, að árið 1948, þeg ar Harry S. Truman vann svo óvæntan sigur yfir Thom as E. Dewey, var þáverandi formaður landsstjórnarinnar, öldungadeildarþingmaðurinn Hugh Scott neyddur til að segja af sér. Nú er hann af mörgum talinn einna líkleg astur til að taka við af Burch. Meðal þeirra, sem líklegast ir eru taldir til að standa fremst í víglínu valdabarátt- unnar innan flokksins eru sagðir George Romney, ríkis stjóri, sem vann glæsilegan sigur í Michigan, Jacob Javits öldungadeildarþingmaður frá New York, Clifford Case frá New Jersey, William Scranton ríkisstjóri í Pennsylvaníu, Robert E. Smylie, ríkis- stjóri frá Idaho, Nelson Rockefeller, ríksisstjóri í New York og Richard Nixoh fyrrum varaforseti. Eisen- hower fyrrum forseti hefur látið svo um mælt, að Nixon muni gegna mikilvægu hlut- verki við að komá á einingu innan flokksins. En blöðin eru mörg þeirrar skoðunar að árás Nixons á Nelson Rockefeller strax eftir að úrslitin voru ljós orðin, hafi lítt orðið til að vekja á Nixon traust sem sáttasemjara Repúblikana. Jafnframt heyrist víða sú skoð un, að dagar Rockiefellers í embætti ríkisstjóra í New York séu brátt taldir. Stuðli þar að hinn mikli sigur John sons í ríkinu, sigur Kennedys yfir Keating og þá ekki sízt að Demókratar hafa náð meiri hluta á ríkisþinginu í báðum deildum, — í fyrsta sinn í þrjátíu ár. Ekki er talið ólíklegt, að Demókratar bjóði Wagner, borgarstjóra, fram gegn Rocke feller í kosningunum 1966 og er hann álitinn hafa góða sig urmöguleika. Stjórnmálafréttaritarar hér hafa glöggt auga með þeim Wagner og Kennedy í New York. Hafa þeir sjáanlega tak markaða trú á því, að Kenne dy sætti sig við nokkuð minna en að vera Demókrati nr. 1 í New York, úr því hann náði kosningu. Báðir arinnar, ríkisins og flokksins. Að svo haldist lengi telja fréttamenn vafasamt, sumir segja nokkra mánuði, aðrir 1—2 ár. — xxx — Það hefur gert ósigur Gold waters sýnu átakanlegri fyrir Repúblikana hvað hann dró marga með sér í fallinu. Þó hlutu nær 40 frambjóðendur floWksins til öldungadeildar- innar og ríkisstjóraembætta töluvert meira magn atkvæða en forsetaefnið. Af frambjóðendum til öld- ungadeildarinnar höfðu 25 frambjóðendur flokksins hærri hlutfallstölu en Gold- water. — Sjö þeirra fóru með sigur af hólmi en sautján töp íhaldsflokksins, Henry Pao- lucci tæp 7 %). Af fjórtán frambjóðendum Repúblikana til ríkisstjóraem bætta, sem hlutu fleiri at- kvæði en forsetaefnið, unnu 8 sigur en 6 töpuðu. Þessir 6 voru í Delaware,, Illinois, Indíana, Missouri, Vermont og V-Virginiu. Voru hlutfalls tölur Goldwaters í þessum ríkjum 32—44%, -en frambjóð endanna til ríkisstjóraem- bætta 35—49%. Af þeim 8, sem unnu sigur, fengu flest atkvæði umfram Goldwater þeir John Chafee ríkissjtóri á Rhode Island, sem hlaut þar 58% atkvæða en Goldwater 19% — og Georg Romney, ríksstjóri í Michigan, sem hlaut 56% at- kvæða, en Goldwater 33%. — xxx — Á hinn bóginn hefur Gallup stofnunin vakið athygli á því, að þótt hinn geysilegi ósigur Repúblikana sl. þriðjudag sé yfirleitt skrifaður á reikning Goldwaters, sýna Gallup-skoð anakannanir á undanförnum 2 áratugum að skráð fylgi Repúblikana hefur farið stöð . ugt minnkandi. Hefur stofn unin birt eftirfarandi tölur: Nelson Rockefeller hafa þeir gætt mikillar hæ- versku í umræðum um þetta mál — og segjast munu vinna í sameiningu að málum borg- wmm Richard Nixon uðu fyrir Demókrötum. Á ein um stað, Nevada, er enn ekki fyllilega útséð um úrslit. Þessi sautján ríki eru Connecticut, Indiana, Maine, Maryland, Massachusetts, Michigan, Minnesota, New Jersey, New Mexico, New York, Norður- Dakota, Ohio, Oklahoma, Tennessee, Texas, Wisconsin og Wyoming. Hlutfallstölur Goldwaters í þessum ríkjum voru 24—44% en frmbjóð- endanna til öldungadeildar- innar 26—50%. Sem einstök dæmi mætti nefna Ohio, þar sem Gold- water fékk 37% atkvæða, en Robert Taft jr., sem tapaði naumlega fyrir Stephen Young, hlaut nær því 50%; — New York, þar sem Gold- water hlaut 32% atkH’æða en Kenneth Keathing, sem tap- aði fyrir Róbért Kennedy, hlaut þó 43% (Kennedy hlaut rúm 50% og frambjóðandi Ár Rep. Dem. Óháð. % % % 1940 38 42 20 1950 33 45 22 1960 30 47 23 1964 25 53 22 Tölur þessar miðast við alla þá, sem hafa kosningarétt, en Gallup segir jafnframt, að þótt hlutfallstölurnar væru miðaðar við þá, sem neytt hafa atkvæðisréttar síns í for setakosningum, séu hlutföll- in 3 á móti 2, Demókrötum í hag. Segir Gallup, að sigur Eisenhowers 1952 — og ’56 og gengi Nixons 1960 hafi ver ið því að þakka, að þeim tókst að ná svo miklu magni at- kvæða óháðra og Demóhirata. Eina megin orsök þessarar hnignunnar flokk»ins telur Gallup þó, að honum hafi ekki tekizt að ná fylgi ungra kjósenda. í sjö forsetakosning um á tímabilinu 1936—1964 hefur meirihluti kjósenda á aldrinum 20—30 ára greitt Demókrötum atkvæði. Eina undantekningin á tímabilinu var árið 1956 — en þá greiddu 57% kjósenda á þessum aldri atkvæði með Eisenhower. — xxx — Varðandi úrslitin í kosning um til fullrtúadeildarinnar er á það bent, að af 39 Repúbli- Barry Goldvvater könum, sem áttu sæti í full- trúadeildinni en féllu í kosn- ingunum höfðu: • þrjátíu greitt atkvæði á þingi gegn frumvarpi, sem hvað á um aðstoð alríkis- stjórnarinnar við að leysa samgöngumál stórborga. • þrjátíu og átta greitt at- kvæði gegn áætlun um að þurfandi eða bágstaddar fjölskyldur skyldu njóta góðs af umfram-matvæla framleiðslu. • þrjátíu og fimm greitt at- kvæði gegn frumv., sem hvað á um endurskipulagn ingu landssvæða, er miðaði að því, að efla iðnað í mið ur þróuðum héruðxun. • tuttugu og átta greitt at- kvæði gegn frumvarpi um aukna efnahagsaðstoð við erlend ríki. • þrettán greitt atkvæði gegn mannréttinda frum- varpinu. Allt voru þetta hin mikil- vægustu frumvörp — og þótt ekki sé vitað með vissu hvern ig afstöðu Demókratarnir 39 taka, er mjög líklegt að frum vörpunum verði greiðari leið á þingi næsta ár. Republikanar tóktx að vísu 10 þingsæti frá demókrötum, en sjö þeirra voru frá Suður ríkjunum, svo að það gerir ekki svo mikinn mun. Varðandi enn eitt frumvarp stjórnarinnar — um aukna læknishjálp við aldrað fólk, er það athyglisvert, að af 14 læknum, sem buðu sig fram til fulltrúadeildarinnar, biðu 11 ósigur. Allir voru þeir and vígir frumvarpinu. — mbj. — Savanna Framhald af 14. okkur, hvernig hann fari að því að leika á það. — Sumir halda því fram, gegir Þórir, að áður fyrr hafi verið leikið á langspilið með boga. Sjálfsagt er það rétt, en enginn er kominn til með að segja, að menn hafi ekki haft sína hentugleika við það, eins og svo margt annað. Fólk hefur sagt við okkur: „Þið kunnið ekki að spila á lang- spil, — þið eigið að nota boga.“ í þessu sambandi má geta þess, að upphaflega er leikið á trommur með hönd- unum, en það er heldur aldrei að vita nema menn hafi líka notað prik stundum! Ég spila é langspilið, eins og mér finnst bezt — og fallegust út- koma. Það er að sjálfsögðu hægt að spila vel með boga — en það er geysimikill avndi, og ég efast um að öll alþýða manna hafi gert það áður fyrr. Nú fer „vertíðin" senn að hefjast hjá Savanna-tríóinu. Þótt þeir hafi lítið látið í sér heyra að undanförnu, hafa þeir síður en svó setið auð- um höndum. Þeir munu verða með tvær efnisskrár í takinu í vetur og kennir þar margra grasa. íslenzk lög og erlend, sem þeir hafa ekki sungið áður. I.O.C.T. Barnastúkan Æskan heldur fund í dag kl. 2 í GT-húsinu. Dagskrá: 1. Inntaka. 2. Framhaldssagan. 3. Gamansaga. 4. Leikir. Félagar, fjö'lmennið og mun ið eftir gömlu fötunum sem við svo sendum til fátæku barnanna í Grikklandi. St. Víkingur. Fundur mánudag kl. 8.30 e.h. Félagsmál. Myndasýning úr ferðalagi um Evrópu. Tryggðatröllin þeirra, Skapti og Skupla, munu fylgja þeim sem endranær, og er ekki að efa, að þau munu duga vel, eins og þau hafa hingað til gert. S t a ð a yfirhjúkrunarkonu við skurðdeild Borgarsjúkrahússins í Fossvogi er laus til umsóknar. Síðar verður ákveðið, frá hvaða tíma staðan verður veitt. — Umsóknir sendist Sjúkrahúsnefnd Reykja- víkur, Heilsuverndarstöðinni, fyrir 1. jan. nk. Reykjavík, 13. nóvember 1964. Sjúkrahúsnefnd Reykjavíkur 4ra herb. íbúð Til sölu 4ra herb. íbúð á tveim hæðum í Kópa- vogi.--Lág útborgun. — Laus strax. — Ath. Hægt að sýna í dag. HÚSA- og ÍBÚÐASALAN Laugavegi 18. 3. hæð. — Sími 18429. Sími, sunnudag, 10634.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.