Morgunblaðið - 15.11.1964, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 15.11.1964, Blaðsíða 32
bilaleiga magnúsar skipholt 21 Blmar: 21190-21185 ooo ooo z z z I W V. M C C C | r r r 0 0 0 0 o o I 121 Rússar flytja alia olíu hingað sjálfir á eigin skipum Á ÁRINU 1965 munu sovézkir I aðiljar flytja allar olíuvörur sem fslendingar kaupa af þeim til íslands á eigin skipum. Eins og skýrt var frá í M'bl. í gaer, var sl. föstudag undirritaö ur samningur milli íslands og Sovétríkjanna um kaup á gas- olíu, brensluolíu (fueloil) og benzíni hingað á árinu 1965. A | árinu 1964 flytja Rússar hingað | é eigin skipum meirihluta þeirra oiíuvöru, sem íslendingar sömdu um að kaupa af þeim á árinu, en ms. Hamrafell, sem er sameign Sambands íslenzkra samvinnu- félaga og Olíufélagsins hf. flyt- ur afganginn. Að því er ViPhjálmur Jónsson, hrl., aðalframkvæmdastjóri Olíu félagsins hf. tjáði Mbl. í gær, flytja Rússar t.d. á árinu 1964 um 60% af gasolíu og benzíni, en ms. Hamrafell um 40%. Þá flytja i Rússar hingað um 100 þús. txmn af brennsluolíu. Vilhjálmur kv- að m.s. Hamrafell flytja alls hing að á þessu ári 90 — 100 þús. tonn af olíu, en það hefði flutt hingað mun meira magn áður. Vilhjálmur sag'ði, að Rússar hefðu fram að þessu sagt, að þeir töpuðu stórfé á olíuflutn- ingum til íslands, en þrátt fyrir það hefði svo brugðið við i sein- ustu samningaviðræðum, að þeir hefðu lýst sig rei'ðubúna til þess að taka alla olíuflutninga að sér. Á það hefði verið fallizt, enda ekki áhugi fyrir hendi hjá eigend um Hamrafells að gera flutn- ingsamninga fyrir næsta ár með fyrirsjáanlegu rekstrartapi. Vil- hjálmur sagði óráðið, bvað um ms. Hamrafell yrði, en ytði það selt úr landi, fengju Rússar sterk ari aðstöðu við samninga um flutningsgjöld. Piltar og stúlkur til lögreglustarfa OKKUR vantar um 18—20 manns til starfa í lögreglunni, sagði Sig urjón Sigurðsson, lögreglustjóri, í viðtali við Morgunblaðið í gær. „í því sambandi höfum við auglýst eftir stúlkum, sem ætl- unin er að annist stöðumælaeft- irlit og önnur léttari störf í sam bandi við umferðina. Að vísu er þetta á frumstigi ennþá, en við höfum auglýst til reynslu. Við byrjum líklega með 2—3 stúlkur og heppilegast er að fá þær á aldrinum 20—30 ára“, sagði lög reglustjóri. „Þá höfum við einnig auglýst eftir 19 ára piltum til starfa í lögreglunni, auk eldri manna, og er ætlunni að skóla þá upp. Við höldum lögreglumannanámskeið sem tekur 6 vikur og svo starfa þeir til reynslu í nokkra mánuði JHontiuitlaöSMtf fylgir blaðinu í dag og er efni bennar sem hér segir: Bls. — 1 Úr sögu Reykjavíkur. Höfuð- bólið og Austurpartur, eftir Árna Óla. — 2 Svipmynd: Chou En-lai — 3 Óveðursnótt (eða maðurinn undir kúnni), smásaga eftir Jón Yngva. — - Steinar Sigurjónsson: Málað með gráu (Arnarhólsstemn- ing). — 4 Hæsti skýjakljúfur heims. — 5 Rabb, eftir hjh. — 7 Lesbók Æskunnar, Dagblaðið — 8 Kjarnorkusprengjur grafa nýjan skurð, eftir Lawrence GaJton. — 10 Fjaðrafok — 13 Lslen^kir ættJiðir erJendás: Frá Jóni Eiríkssyni, konfer- ensráði — Síðari híuti, eftir Sigfús M. Johnsen, fyrrv. bæjarfógeta. — 15 Ásaþór, teikningar eftir Harald Guðbergsson — - Fe-rdinand. — 16 Krossgáta - Hagalagðair. og fara svo loks á framhaldsnám skeið, sem tekur 5 mánuði“, sagði Sigurjón. Hann sagði að lokum: „Það má segja að framtíðarhorfur séu góð ar fyrir þá, sem vilja koma til starfa í lögreglunni. Það er verið að byggja nýja lögreglustöð og öll aðstaða verður þar miklu betri en nú er.“ Þing ASÍ hefst á morgun 29. ÞING Alþýðusambands ís- lands verður sett kl. 4 e.h. á morgun, mánudag, í jíú- KR við Kaplaskjólsveg. Þingið munu sitja tæplega 370 fi—Ii. úar 139 félaga og landssambanda ASÍ, sem telja samtals um 34500 með- limi. Stærstú hóparnir á þinginu verða: Landssamband íslenzkra verzlunarmanna með 35 full- trúa, Verkamannafélagið Dags- brún með 34 fulltrúa, Sjómanna- samband íslands með 21 --.-.Irúa, Iðja, félag verksmiðjufólks í Reykjavík með -3 L-.uuii og Verkakvennafélagið Framsókn með 17 fulltrúa. Meöal gesta á þinginu verða Konrad Nordal, foi.—. norska alþýðusambandsins. Er hann jafnframt fulltrúi sænska al- þýðusambandsins, sem boðið var að senda fulltrúa á þi,.gið. Á þessu þingi munu v^.....ar- menn hafa fulian atkvæðisrétt, en sem kunnugt er tókst Fram- sóknarmönnum og kommúnist- um að svipta þá atkvæðisrétti á síðasta þingi. Nýjcasti sjúkrabíllinn talinn ónýtur eftir árekstur MJÖG harður árekstur varð um kl. 12 í gær á gatnamót- um Laugavegar og Nóatúns, og mun það 26. áreksturinn á þessu horni á þessu ári. Sjúkrabíll var á leið inn Laugaveg til að sækja sjúkl- ing, sem bráðlá á að flytja í sjúkrahús. Ók hann allgreitt og var iúðurinn þeyttur. Þar sem Nóatún sker Laugaveg, ók hann yfir á rauðu ljósi, en í sama mund kom stór dísilknúinn vöruflutningabíH upp Nóatún og ók inn á Lauga veg þveran á grænu ljósi. — Skullu bílarnir saman af miklu afli. Bílstjórinn kveðst hvorki hafa heyrt né séð til sjúkra- bílsins. Miklar skemmdir urðu á báðum bílunum, svo að flytja varð þá í burtu með aðstoð björgunarfélagsins Vöku. Sjúkrabíllinn er talinn ger- ónýtur. Tveir menn voru í sjúkrabílnum, og slösuðust þeir báðir, þó ekki varlega, að talið er. Annar fékk snert af heilahristingi en hinn mun hafa hnéskeijarbrotnað. Öku- maður flutningabílsins meidd- ist ekki. Sjúkrabíllinn var sá nýj- ast af þremur sjúkrabílum slökkviliðsins. — Myndin er af bílunum á slysstað. (Ljósm.. Mbl. Sv. Þ.). Ráðstafanir gerðar gegn slysahættu í borginni GEIR IIALLGRÍMSSON, borg- arstjóri, hélt á fimmtudag og föstudag fund i með öryggismála stjóra ríkisins, framkvæmdastj. Slysavarnafélags íslands, lög- reglustjóra, borgarverl f ræðingi og öðrum trúnaðarmönnum borg arinnar, þar sem til umræðu voru hugsanlegar ráðstafanir, er dregið gætu úr slysum í borg- inni. Á föstudag var haldinn fundur í borgarráði, þar sem eftirfar- andi tvær ályktanir voru gerðar: Hvatarfundur á þi'iðjudagskvöld HVÖT, Sjálfstæðiskvennafélagið, heldur fund í Sjálfstæðishúsinu n.k. þriðjuda.gskvöld kl. 8.30. Þar verða rædd félagsmál, m.a. um vetrarstarfsemina. Þá flytur frú Emilía Jónas- dóttir leikþátt, kvikmynd verður sýnd og einnig er kaffidrykkja áð venju. Sjálfstæðiskonur eru hvattar til að fjölmenna og mæta stund- víslega. Sérstakur eftirlitsmaður „Borgarverkfræöingur skýrði frá því, að vegna slysa síöustu daga hafi hann haft sérstakt sam band við alla verkstjóra, sem starfa hjá borginni, og verktaka, sem fyrir hana vinna og óskað, að gerðar yrðu auknar ráðstaf- anir til að sporna við slysum hjá vinnustöðum. í þessu sambandi munai hann fela serstöKum starfs manni að vinna að því í samráði við hlutaðeigandi verkstjóra og lögregiu, aö viohafðar væru þær öryggisraöstafanir, sem tök eru á, m.a. með eítirliti utan 'hins al- menna vinnutíma. Borgarráð felur byggingarfull- trúa aö láta kanna, hvar sérstak- ar hættur séu á byggingastöðum í borginni, þar sem hann telur sér- staKa astæou til.“ Spornar við slysum „Borgarraö beinir þeim til- mælum til Slysavarnaféiags fs- lands, að það láti ra.____ í sam- ráði við lögreglu, fræðsluyfir- völd, samtök vinnuveitcnda og launþega, öryggiseftirlitið og aðra, sem hlut eiga að máli, hvaða ráðstafanir helzt komi til greina til að sporna við slvsum á vinnustöðum, og í þessu sam- bandi einkum slys á börnum. Borgarverkfræðingur tilnefni fulltrúa af borgarinnar hálfu tii starfa með ofangreindum aðilj- um. Heimilt er að greiða kostnað af rannsókn og störfum nefndax á þessu sviði úr bor,garsjóði“, Ajax Fram og í dag í DAG kl. 4 mætast í kappleik ísiandsmeistarar Fram og Dan- merkurmeistarar Kaupmanna- hafnarliðsins Ajax í handknatt- leik. Læikurinn fer fram á Kefla- víkurfiu.gvelli. Danmerkurmeistararnir eru hingað komnir í boði Vals og leika hér nokkra leiki. Þessi í dag er þó einna forvitnilegastur því bæði liðin taka þátt í Evrópu keppni meistaraliða. Verður leikurinn að sjálfsögðu skoðaður í því ljósi og margir munu vilja sjá hvernig Fram gengur á móti Dönunum, en í byrjun næsta mánaðar ei,ga Framarar að mæta sænsku meisturunum Retberglid á heimavelli sænska félagsins, Leikurinn í dag geiur s_...iar- lega gefið hugmynd um gengi Fram í keppninni. Ferðir eru frá BSÍ suður 4 Keflavíkurflugvöll kl. 2,36. Varðarfélagar Munið aðalfund Varðarfélagsins n.k. miðvikudagskvöld kl. 20.30. — Gunnar Schram ritstjóri flytur ræðu: „Stjórnarskipti í Austri og Vestri“.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.