Morgunblaðið - 15.11.1964, Blaðsíða 16
16
MORCUNBLAÐIB
Sunnudagur 15. nóv. 1964
Útgefandi:
Framkvæmdastjóri:
Ritstjórar:
Auglýsingar:
Útbreiðslustjóri:
Ritstjórn:
Auglýsingar og afgreiðsla:
Áskriftargjald kr. 90.00
f lausasölu kr.
Hf. Árvakur, Reykjavík.
Sigfús Jónsson.
Sigurður Bjarnason frá Vigur.
Matthias Johannessen.
Eyjólfur Konráð Jónsson.
Árni Garðar Kristinsson.
Sverrir Þórðarson.
Aðalstræti 6.
Aðalstræti 6. Sími 22480.
á mánuði innanlands.
5.00 eintakið.
HÖRMUNGARNAR
í SUÐUR-VIETNAM
OG ATFERLI
KOMMÚNISTA
Tlf'enn eru orðnir vanir því
að heyra hörmulegar
fréttir frá Suður-Vietnam.
Herlið kommúnista heldur
landinu í sífelldu hernaðar-
ástandi, innrásarsveitir frá
Norður-Vietnam flæða yfir
landið, ringulreið í stjórnar-
fari hefur hvað eftir annað
valdið upplausn í landinu, og
skærur milli trúflokka sundra
þjóðlegri einingu.
Svo gæti virzt sem óham-
ingju þjóðarinnar, er land
þetta byggir, gæti naumast
orðið fleira að vopni. Þó hef-
ur svo orðið. Sjálf náttúruöfl-
in hafa nú skorizt í leikinn.
í gær var skýrt frá því, að
fimm þúsund manns mundu
hafa farizt í flóðum, og því
var jafnvel haldið fram, að
sú tala gæti hækkað um
helming. Að minnsta kosti
130 þúsundir manna höfðu þá
mxsst heimili sín.
Á sama tíma var stjórn-
málaástandið í höfuðborginni,
Saigon, næsta ótryggt. Stúd-
entar fóru í mótmælagöngum
um stræti og andmæltu ríkis-
stjórninni.
Hvers konar neyðarástand,
vandræði og hörmungar, hef-
ur alltaf verið vatn á myllu
kommúnista, og er óþarft að
rekja hvers vegna það er.
Ástandið í Suður-Vietnam
hafa þeir hagnýtt sér til hins
ýtrasta. Jafnvel málgagn
kómmúnista á íslandi hefur
hlakkað yfir trúarbragða-
stríði kaþólskra og búddatrú-
armanna í Suður-Vietnam.
Það er kunnara en frá þurfi
að segja, hve trúarbragða-
styrjaldir eru hatrammar, og
tæplega getur nokkra þjóð
hént verri ógæfa en að vera
klofin um jafn mikið tilfinn-
ingaatriði og trú sína. Sið-
menntaðir menn um heim all-
an hafa haft samúð með hin-
um ógæfusömu íbúum Suður-
Vietnam, sem hafa barizt inn-
byrðis um sannfæringu sína
og trúarskoðun. Kommúnist-
ar hafa hins vegar smjattað
á þessu, því að þeim er hæg-
ara að kúga undir sig sundr-
aða þjóð en þá, sem er ein-
huga um trúarbrögð sín.
Nú hafa þeir atburðir gerzt,
s<em ýmsum þykja með ólík-
indum, en eru það í rauninni
ails ekki. Kommúnistar not-
færa sér neyðarástandið
vegna flóðanna í Suður-Viet-
nam og ganga svo langt að
skjóta á bandarískar þyrlur,
sem vinna að því að bjarga
einangruðu fólki á flóðasvæð-
unum og flytja matværi, lyf
og annan nauðsynjavarning
til hins bágstadda fólks.
Kommúnistum er ekkert
heilagt, þegar um leik í tafli
þeirra um heimsyfirráð er að
tefla.
Kommúnistastjórnin í Norð
ur-Vietnam hefur þverbrotið
ákvæði sáttmálans, sem skóp
þessi tvö ríki. Hún stefnir ekki
leynt heldur ljóst að því að
leggja undir sig land frænda
sinna í suðri, og í þeirri bar-
áttu er einskis svifizt. í áróðri
kommúnista úti um heim er
gjarnan vitnað til stjórnmála-
ástandsins í Saigon til þess að
villa mönnum sýn á því, sem
raunverulega er barizt um.
Það er: Á kommúnistum að
takast að leggja undir sig eitt
landið enn? Svarið hlýtur að
vera nei, og sem betur fer
standa Bandaríkjamenn á
verði í Suður-Vietnam.
HAGKVÆM
FJÁRFESTING
Fhns og frá hefur verið skýrt
hér í blaðinu, hyggst rík-
isstjórnin bjóða út skulda-
bréfalán að upphæð allt að
75 millj. kr., og hafa bæði í
blöðum og á Alþingi orðið
allmiklar umræður um þetta
vætanlega skuldabréfalán.
Morgunblaðið hefur talið, að
það væri vel að farið að bjóða
út slíkt lán. Hér þyrfti að
skapast verðbréfamarkaður,
líkt og er hjá nágrannaþjóð-
unum, þar sem fjár til meiri-
háttar framkvæmda er oft
aflað með almennu skulda-
bréfaútboði. Hér hefur þetta
hins vegar gengið erfiðlega,
einkum vegna stöðugra verð-
hækkana.
Stjórnarandstæðingar hafa
snúizt gegn þessu lánsútboði.
Þeir tala um, að lánskjörin
séu „óheyrilega slæm“ fyrir
ríkið og segja, að „eftirgjald
eftir peninga hafi sennilega
aldrei þekkzt opinberlega
hærra en í þetta sinn.“
Það er rétt, að ríkisstjórnin
hyggst tryggja það, að þeir,
sem kaupa skuldabréfin, fái
góða vexti af fé sínu og jafn-
framt verði það tryggt, að
höfuðstóllinn verði ekki skert
ur. Verður það gert með verð-
tryggingu. Þennan hátt verð-
ur að hafa á til þess að menn
Elizabeth Taylor úr rauðviði
FYRIK skömmu var af-
hjúpuð í listasafni í Fau-
bourg St. Hororé í París
stytta af bandarísku leik-
konunni Elizabeth Taylor.
Styttan er úr rauðviði, í
fuliri líkamsstærð, gerð af
myndhöggvaranum Ed-
mund Kara í Kaliforníu.
Sýnir hún leikkonuna
nakta.
Það var eiginmaður Eliza-
bethar, brezki leikarinn Ric-
hard Burton, sem afhjúpaði
styttuna, að viðstöddum blaða
mönnum og ljósmyndurum,
en Elizabeth sjálf gat ekki
verið viðsötdd vegna anna við
kvikmyndatöku.
Leikkonan sat ekki fyrir
hjá myndhöggvaranum og
hann tók ekki mál af henni.
Kvaðst hann ekki hafa þurft
þess, þar sem hann hefði starf
að í 15 ár að tízkuteikningum
og gæti fullvel gert sér grein
fyrir hvernig konur litu út
undir fötunum.
Ritchard Burton fór lofsam
legum orðum um styttuna af
konu sinni og sagði, að hún
væri mjög lík. Aðeins hand-
leggirnir væru öðruvísi, þeir
væru of grannir.
Styttan vegur um 250 kg.,
og Kara vann að henni í sam-
tals 533 klukkustundir. Hún
var flutt til Evrópu með
„Queen Mary“ og tveir leyni-
lögreglumenn voru ráðnir til
þess að gæta hennar á leið-
Richard Burton kyssir enni styttunnar af konu sinni. — En
hann afhjúpaði styttuna í listasafni í París.
Elizabeth sá styttuna i
vinnustofu Kara í Kaliforníu
Sagði myndhoggvarinn, að
leikkonan hefði ekki virzt sér
þegar hún var nær fullgerð. lega ánægð með verkið.
Gunnlaugur
J. Auðunn
sjötugur
GUNNLAUGUR J. Auðunn,
bóndi að Bakka í Víðidal, er 70
ára á morgun, mánudaginn 16.
nóv., fæddur að Auðunarstöðum,
sonur merkishjónanna Ingibjarg-
ar Eysteinsdóttur og Jóhannes-
ar Guðmundssonar.
Gunnlaugur stundaði nám í
Gagnfræðaskólanum á Akureyri
og settist í Menntaskólann í
Reykjavik. Fékk hann þá löm-
unarveiki og varð að hætta námi.
1921 kvæntist hann Önnu
Teitsdóttur frá Víðidalstungu.
Bjuggu þau 1 ár á Auðúnar-
stöðum, en flúttu þá að Bakka-
koti í Víðidal og hófu það kot
upp í ágæta jörð. Vélakost tók
hann mjög snemma í þjlnustu
sína og hugsar hvert verk vel
áður en á því er byrjað. Hann
varð fyrstur manna til að eign-
ast útvarp í Húnavatnssýslu,
öðlist trú á kaupum skulda-
bréfa.
Þótt tilgangur stjórnarand-
stæðinga sé sjálfsagt ekki sá,
þá er það samt ánægjulegt,
að þeir skuli með afstöðu
sinni vekja rækilega athygli á
því, að hér verður um hag-
kvæma fjárfestingu fyrir al-
menning að ræða. Má þess
vegna vænta þess, að þessu
skuldabréfaútboði verði vel
tekið og bréfin seljist þegar
uur
Ef þetta skuldabréfaútboð
gengur vel, má vænta þess,
að fleiri fylgi í kjölfarið. Ef
til vill verður þá ekki nauð-
synlegt að bjóða jafn góð kjör
og nú er gert. En það er rétt
og sjálfsagt af ríkisvaldinu að
haga þessu útboði þannig, að
það sé sem hagkvæmast fyrir
hinn almenna sparifjáreig-
anda, því að þannig verður
grundvöllurinn lagður að
heilbrigðum verðbréfavið-
skiptum í framtíðinni.
eða þrem árum áður en Ríkis.
útvarpið tók til starfa.
Fjölda trúnaðarstarfa hefur
hann gen.gt fyrir sveit sína. Hann
er einarður og ákveðinn í skoð«
unum. Hefur ætíð fylgt sjálf»
stæðisstefnunni og verið trún^ð-.
armaður flokksins í héraðinu frá
stofnun haris. Hann er vel máli
farinn og þykja tillögur han«
jafnan athygiisverðar.
Þau hjón hafa eignast átta
börn, sem öll eru á lífL
Á. H.
Sóknarfundur í
Keflavík
Sjálfstæðiskvennafélagið SÓKsNT
í Keflavík heldur fund nk.
þriðjudagskvöld kl. 9 síðdegiá,'
Kaffi verður drukkið, skugga-
myndir sýndar og loks spilali
bingo með góðum vinningum.
Sjálfstæðiskonur eru hvabta*
til að fjölmenna.
Knattspyrnukvik-
mynd í Hafnar-
firði
EIN bezta knattspyrnukvikmynd,
sem um getur, „England — Heim
urinn“, verður sýnd í Hafnar-
fjarðarbíó nk. mánudag, 16. nóv.
kl. 7. — Þar sjást margir fræg-
ustu knattspyr numenn heims,
t.d. Puskas, de Stefano, Law og
Greaves svo fáir séu nefndir. —
Þetba verður síðasba sýning
myndarinnar í Hafnarfirði.