Morgunblaðið - 15.11.1964, Blaðsíða 25
MORGU NBLAÐIÐ
^ Sunnudagur 15. nóv. 1964
Stjórn félagsins. Talið frá vinstri: Gunnar Finnbogason, Guðmundur Hansen, Adolf Guð-
mundsson, Jón Böðvarsson, Gestur Magnússon, Ingólfur A. Þorkelsson og Flosi Sigurbjörnsson.
Félag háskólamennt-
aðra kennara stofnað
Alllengi hefur verið á döfinni,
að háskólamenntaðir kennarar
stofnuðu með sér félag vegna
sameiginlegra áhuga- og hags-
munamála, en áðurnefnd stefnu
breyting L.S.F.K. er þó ein meg-
inorsök þess, að félagið var
stofnað nú.
SUNNUDAGINN 8. nóv. var
Félag háskólamenntaðara kenn-
ara stofnað í Háskóla íslands.
Stofnendur eru einkum cand.
mag. og B.A.-prófsmenn við
framhaldsskóla í Reykjavík og
Kópavogi, en félaginu er ætlað
að ná til allra starfandi kennara
á landinu, sem tekið hafa loka-
próf frá háskóla í einni eða fleiri
kennslugreinum og aflað hafa
Bér kennsluréttinda.
Tilgangur félagsins er að
etuðla að ahliða eflingu hvers
konar almennrar menntunar og
sérmenntunar innan stéttarinnar
og í framhaldsskólum landsins,
og hyggst það beita sér fyrir
kröfunni um háskólapróf fyrir
alla bóknámskennara og skóla-
stjóra við framhaldsskóla í land
inu. Félagið mun standa vörð
um hagsmuni og réttindi félags-
manna og vinna gegn þeirri
háskóalegu þróun, að árlega
skuli bætast í starfsgreinina
fjöldi nýliða, sem ekki uppfylla
lögboðnar kröfur um menntun
og réttindi.
Stofnun félagsins á sér nokk-
urn aðdraganda.
Á 9. þingi Landssambands
framhaldsskólakennara í júní-
mánuði 19€2 var einróma sam-
þykkt sú stefna að beita sér fyr-
ir því, að auknar yrðu mennt-
unarkröfur, sem réttindi veita
til kennslustarfa í framhalds-
skólum. Stjórn L.S.F.K. skipaði
síðan fimm manna nefnd til að
vinna úr samþykktum þingsins
um menntun og réttindi kenn-
ara. Nefndin lauk störfum og
skiiaði tillögum sínum til stjórn
or L.S.F.K. í janúar 1963. Til-
lögur nefndarinnar voru alger-
lega í samræmi við stefnu þings
ins og samkvæmt samþykktum
þess starfaði stjórn L.S.F.K. á
öndverðu ári 1963, þegar samið
var um núgildandi launastiga
©pinberra starfsmanna. Var þá
nokkurt tillit tekið til mismun-
findi menntunar, þótt of skammt
væri gengið, en ekki var tekið
nægilegt tillit til þeirra fram-
þaldsskólakennara, sem voru
skipaðir eða settir í kennara-
stöðu 1. júní 1952, þegar lög um
breytingu á lögum nr. 36, 11.
júlí 1911 um forgangsrétt kandí-
data frá Háskóla íslands til em-
baetta tóku gildL Þetta olli að
Sjálfsögðu óánægju og þeitti
Stjórn L.S.F.K. sér fyrir lagfær-
jngu á þessu og fékkst hún með
ráðherrabréfi dagsettu 5. júní
1964, sem kunngerð var í upp-
hafi 10. þings L.S.F.K. í júní
í sumar. í sama bréfi var til-
kynnt að efnt yrði til námskeiða
fyrir þá kennara, sem framan-
greind regla nær ekki til, er
gerði þeim kleift að flytjast í
hærri launaflokk-
Hafnarfjörður —
TIL LEIGU
frá byrjun desember 5 herb.
einbýlishús á bezta stað í mið
bænum. Þeir sem hug hafa á
leigu, sendi nöfn sín í pósthólf
25, Hafnarfirði.
Þrátt fyrir þessa samþykkt 10.
þing L.S.F.K. fráhvarf frá fyrri
stefnu landssambandsins. Til-
lögunum um breytingar á lög-
um um menntun og réttindi var
að vístt ekki breytt, en sam-
þykktir gerðar, sem fela í sér,
að lítt skuli tekið tillit til mennt
unar við ákvörðun launa. Og
skömmu eftir þingið lýsti núver
andi formaður L.S.F.K., sem
jafnframt er formaður Gagn-
fræðaskólakennara í Reykjavík,
yfir þeirri skoðun, að „menn
skuli hljóta sömu laun fyrir
sömu vinnu“. Samkvæmt þessu
skulu settir hlið við hlið rétt-
indalausir menn og kennarar
með fyllstu tilskilda menntun,
sem er 4—6 ára háskólanám.
Yrðu þá ævitekjur þeirra, sem
afla sér þeirrar framhalds-
menntunar, sem nauðsynleg er
til starfsins og lög krefjast,
lægri en hinna, sem minni
menntun hafa.
Ef áðumefndar samþykktir
næðu fram að ganga myndu
þær stefna öllu skólastarfi í
landinu í bráða hættu. Menntun
kennara er tvímælalaust undir
staða allra skólafræðslu. Því
betur sem kennarinn er mennt-
aður, þeim mun hæfari er hann
til starfsins.
Laun kennara verða að vera
með þeim hætti, að þau standi
ekki í vegi fyrir því, að til starfa
ráðist valið fólk. Þá kennara
verður að launa bezt, sem mesta
menntun hafa til starfsins, því
að hverfandi líkur eru fyrir, að
menn leggi á sig, miktið nám,
sé það í engu metið í launum.
Framtíðarstefnan í launamál-
um kennara verður að miðast
við það að tryggja skólunum
sem hæfasta starfskrafta. Geri
hún það ekki er hún andstæð
hagsmunum þjóðarinnar allrar.
Stjórn Félags háskólamennt-
aðra kennara er þannig skipUð:
Formaður Jón Böðvarsson, cand
mag. Varaformaður Adolf Guð-
mundsson, B.A. Ritari Gestur
Magnússon, cand. mag. Gjald-
keri Guðmundilr Hansen, B.A.
Meðstjórandi Ingólfur A. Þor-
kelsson, B.A. Varamenn Flosi
Sigurbjörnsson, cand mag., Gunn
ar Finnbogason, cand mag.
(Fréttatilkynning frá Félagi
háskólamenntaðara kennara).
Breyttir æfinga-
timar sund-
félaganna
BREYTINGAR hafa orðð á æf-
ingatímum sundfélaganna í Rvík.
Hefur æfnigatíminn færzt aftur
til kl. 8 og æfa KR og ÍR á
mánudögum og fimmtudögum,
en Ármann og Ægir á miðviku-
dögum og föstudögum. Á þriðju
dögum eru samæfingar allra
keppnisflokka kl. 8.
Kekkoen til
Moskvn í febr.
Helsingfors, 12. nóv. — (NTB)
FINNSKA utanríkisráðuneytið
staðfesti í dag þær fregnir, sem
gengið höfðu manna á meðal, að
Kekkonen Finnlandsforseti
mundi fara í heimsókn til Moskvu
á heimleið frá heimsókn, sem
ráðgerð er til Indlands. Kekkon-
en mun heimsækja Indland dag-
ana 12—22. febrúar n.k.
GLAUMBÆR
EINN SÉRKENNILEGASTI VEITINCA-
STAÐUR BORGARINNAR ER
'ÁVALLT FALUR FYRIR HVERS
KONAR FÉLACSSAMTÖK OC
MANNFACNAÐI.
KAPPKOSTUM FYRSTA FLOKKS
VEITINCAR OC ÞJÓNUSTU
Upplýsingar daglega í símum 11777 og
19330 eftir kl. 4.
GLAUMBÆR
Afgreiðslustúlka óskast
Uppl. í verzluninni milli kl. 6—7
á mánudag. <si
Dömu- og herrabúðin
Laugavegi 55.
Tösku- og hauzkabúðin
Opið til kl. 10
ó föstudögum til jólu
Mikið töskuúrval, mikið hanzkaúrval.
Fóðraðir skinnhanzkar kr. 365 og 299.
Kegnhlífar, Slæður og margt til gjafa.
Tösku- og hanzkabúðin
við Skólavörðustíg.
Verksmiðjuvinna
Starfsfólk, konur og karlar óskast til verksmiðju-
starfa nú þegar. Yfirvinna. — Ekki unnið á laugar-
dögum. Upplýsingar eru ekki gefnar í síma.
Hampiöjan h.f.
Stakkholti 4.
Áhugasamur skipstjori
óskast á nýlegan 25 rúmlesta bát. Þyrfti að verða
meðeigandi. — Veiðarfæri samkomulag. —
Tilvalið tækifæri fyrir efnalítinn mann. — Þeir,
sem hefðu áhuga, sendi nöfn og heimilisföng til afgr.
Mbl. fyrir 21. þ. m., merkt: „Hagkvæm kjör —
9409“.
HöganSs
GÓLF OG VEGGFLÍSAR
= HÉÐINN =
Vélaverzlun
Mikið úrval af sænskum vegg- og gólfflísum til
notkunar úti og inni. — Leitið upplýsinga. —
Sýnishorn í verzlun vorri og hjá Byggingaþjón-
ustunni, Laugavegi 26.