Morgunblaðið - 19.12.1964, Síða 6

Morgunblaðið - 19.12.1964, Síða 6
6 MORGUNBLADIÐ Laugardagur 19. des. 1964 Miklar framkvæmdir í rafmagns- málum Hafnarfjarðar HAFNARFIRÐI — Eins og skýrt var frá hér í blaðinu fyrir nokkru, eru nú 60 ár síðan kveikt voru rafmagnsljós fyrst í Hafn- arfirði og reyndar fyrsta almenn ingsrafveitan tók til starfa, Var afmælisins minnzt með því að Rafveita Hafnarf jarðar tók í notkun síðastliðinn laugardag nýja aðveitustöð og álagsstýr- ingarkerfi, sem er í húsi við Öldugctu. — f tilefni þessa gerði rafveitustjórinn, Gísli Jónsson, grein fyrir framkvæmdum þess- um, en þær eru í stórum drátt- um, sem hér segir: Drög að byggingu aðveitustöðvarinnar Þann 26. nóvember 1937 var gerður samningur milli ríkis- stjórnarinnar og ReykjavíkUr- kaupstaðar um raforkuveitu til Hafnarfjarðar. Samkvæmt þess- um samningi átti Reykjavíkur- kaupstaður m. a. að byggja að- véitustöð við bæjarmörk Hafnar- fjarðar og er það sú stöð sem nú verður lögð niður. Við hliðina á þessari aðveitustöð sem er að mestu leyti utanhússvirki, stend- ur dreifistöð Rafveitu Hafnar- fjarðar sem dreifir raforkunni með 6000 volta spennu út í spennistöðvar, sem dreift er um bæinn og lækka spennuna niður í notendaspennu 220 volt. Aðveitustöð sú, sem nú hefur verið tekin í notkun kemur í stað bæði fyrrnefndrar aðveitustöðv- ar Reykjavíkurborgar og dreifi- stöðvar Rafveitu Hafnarfjarðar. Málraun hinnar gömlu aðveitu stöðvar er 4,0 megawött (þ. e. 4000 kílówött) en þegar á árinu 1954 var mesta álag Rafveitu Hafnarfjarðar orðið 4,0 mega- wött. Síðan hefur álagið aukizt og var á síðasta ári 5,68 mega- wött, þ. e. 142% af málraún gömlu aðveitustöðvarinnar. — Hvort tveggja er miðað við mæl- ingar við Elliðaár. Enda þótt hvert verkefni hafi e. t. v. ekki unnizt á nákvæm- lega iþví tímabili, sem áætlað var, þá erum við, sem að þessari áætlun stóðum, ánægðir með ár angurinn, og teljum að áætlunin eigi sinn þátt í því að við gátum í dag hleypt straum á hina nýju aðveitustöð. Verktakar Byggingu aðveitustöðvarhúss- ins, sem teiknað var af Gunnari Hanssyni, annaðist byggingarfé- lagið Þór, hf, en múrarameistari við húsið var Einar Sigurðsson. Málarameistarar hafa verið þeir Kristinn Magnússon og Sigurður Kristinsson. Járnsmíðavinnu hafa Klettur hf og Raftækjaverk- smiðjan hf o. fl. annast og blikk- smíðavinnu Blikksmiðja Ágústar Jónssonar. í>ar að auki hefur Þorvarður Magnússon, byggingar meistari annazt ýmsa byggingar vinnu síðan vinna hófst aftur í apríl si. Tæknileg lýsing á aðveitustöðinni Rafveita Hafnarfjarðar fær orku sína frá tengivirki Sogs- virkjunarinnar við Elliðaár, eftir 30.000 volta háspennulínu, sem nú er eingöngu fyrir Hafnar- fjörð. Þessi lína endar í Set- bergslandi og liggur þaðan 150 mm2 jarðstrengur, sem verður nú fluttur af gömlu aðveitustöð- inni yfir í þá nýju. Ennfremur liggur nú annar 150 mm2 jarð- strengur inn í nýju aðveitustöð- ina frá fyrrnefndu varasam- bandi út frá 30.000 volta Suður- nesjalínu Rafmagnsveitna ríkis- ins. Hinir tveir 5 megawatta spennar stöðvarinnar lækka spennuna úr 30.000 voltum í 6000 volt og dreifðist orkan síðan út á 5 útfarandi, 6000 volta jarð- strengi, sem flytja raforkuna út í spennistöðvar bæjarins. öllum rofum, þ. . bæði álags- rofum og teinrofum er stjórnað með iþrýstilofti. 6000 volta safn- teinar eru tvöfaldir, en það eyk- ur rekstraröryggið. Aðvörunar- og stjórnarkerfi stöðvarinnar er gert fyrir 110 volta jafnspennu og eru fyrir það rafgeymar í kjallara bygg- ingarinnar. Allur rafbúnaður stöðvarinnar ei' innanhúss og þar með taldir spennarnir. Rekstrartruflanir í aðveitustöðinni vegna sjávar- seltu, sem getur orðið talsverð hér í Hafnarfirði í hvassri suð- vestanátt, eru því alveg útilok- aðar. Álagsstýringurkerfið. 1 ágústmánuði 1961 var leitað tilboða í álagsstýringarkerfi, og barst aðeins eitt tilboð, sem var frá svissneska fyrirtækinu Zell- weger. Áður en tilboðið var samið, bauð fyrirtækið að senda hingað yfirverkfræðing sinn, Mr. Kniel, sem var á férð frá Bandaríkjun- um og kom hann hingað í des- ernber 1962 til viðræðna um mál- ið. í maí 1963 barst svo tilboð fyrirtækisins og var upphæð þess 131.580 svissneskir frankar, F.O.B. Álagsstýringarkerfi þetta var fyrst og fremst keypt til þess að nota í stað rofaklukkna til þess að rjúfa strauminn hjá þeim, sem kaupa raforku til hitunar, en sú raforka er seld með þeim skilyrðum, að Rafveitunni sé heimilt að rjúfa allt að 3 klst. á dag hjá daghitanotendum á tím- um mesta álags og timabilinu frá kl. 9 til 21 hjá næturhitanot- endum. Ennfremur verður kveikt á götulýsingu bæjarins með á- lagsstýringarkerfinu. Til gamans má geta þess, að þegar hér verða settir upp götu- vitar, mundi vera tiltölulega auðvelt, með álagsstýringarkerf- inu, að setja t. d. blikkandi rautt ljós á alla götuvita, ef slökkvi- liði lögreglu eða sjúkrabifreið liggur á að komast leiðar sinnar. Með rofaklukkunum var rofið Gangur byggingiaframkvæmda 1 maí árið 1959 var hafin bygging aðveitustöðvarhússins og var það svo til fullgert í lok ársins 1960. Leitað var tilboða í rafbúnað stöðvarinnar og var samþykkt á fundi stjórnar Rafveitunnar þann 27. júní 1960 að taka tilboð frá Siemens og Sohuchert Þýzka- landi, að upphæð D. M. 324.730,- íob. þýzkri höfn. Fyrsta sendingin kom til lands ins fyrri hluta árs 1961. í lok þess árs var meginhluti raf- búnaðarins kominn, að spennun- um undanskyldum, sem komu snemma á árinu 1962. Vegna lánsfjárskorts varð að fresta uppsetningu rafbúnaðar- ins, en seint á árinu 1963 fékkst bráðabirgðalausn á fjárhags- vandamálunum, þannig að það tókst að fá heim þann rafbúnað, sem þá hafði eigi verið leystur úr tolli og voru spennarnir þar á meðal. Nýi spennirinn var svo tengd- ur við gömlu aðveitustöðina þann 22. jan., en til þess að það væri hægt, varð að kljúfa 6000 volta kerfið í tvö aðskilin kerfi, þar sem nýi spennirinn gat ekki unnið samhliða þeim gamla, sem eftir stóð. Hér var því um að ræða algjöra bráðabirgðalausn, en sem þó bætti um mun rekstr- aröryggið frá því, sem það var. í apríl S'íðastliðnum hófst vinna við að byggja 30.000 og 6000 volta básana og síðan farið að setja upp og tengja sjálfan rafbúnaðinn. Um miðjan september kom þýzkur sérfræðingur, Mr. Kúhn- er, frá framleiðanda rafbúnaðar- ins, og hefur hann síðan verið þér og unnið við frágang og prófun á rafbúnaðinum og ann- ast yfirumsjón með öllu er varð- ar sjálfan búnaðinn. Jólablað > ÚT ER komið jólablað Æsk- unnar, 96 síður að stærð með yfir 100 myndum. Af efni þess má nefna greinarnar,: Guðs góða gjöf, eftir Frank Halldórsson, Lærisveinar hans skiptu þúsund- um, frásögn af lifi Frans frá Assisí, Ritgerð Einars Ingólfsson- ar, en hann hlaut fyrstu verð- laun í ritgerðarsamkeppni þeirri, sem Æskan og Eimskipafélag ís- lands, efndu til í tilefni af 50 ára afmæli Eimskipafélagsins 17. janúar 1964, Með Flugfélaginu á slóðum forfeðranna, ferð verð- verðlaunahafa til Noregs, mynd- ir og texti eftir Svein Sæmunds- son, Heimsókn í kvikmyndaver í Hollywood, Hann barðist við Ijón, frásögn af hinum fræga glímu- og lyftingamanni Eugen Sandow, Bessastaðir, sagt frá uppruna staðarins, Erling Blön- dal Bentson, sem undrabarn, en er nú orðinn stór, Kort sem verða ^tsKunnar milljónum nauðstaddra barna til góðs í heiminum í dag, Álfar, sagt frá uppruna þeirra, Kettir í opinberum embættum, Fyrstu jólakortin, Jól hjá hinum ýmsu þjóðum, Jólagjafirnar, Barna- leikritið Mjallhvít, Tónlist og Skemmtanir um jólin, Stærstu sögurnar eru: Jesúbarnið, eftir Jóhönnu Brynjólfsdóttur, Ofjarl töframannsins, Skýamokstur, Þegar Anna var átta ára, eftir Katherine Peabody Girling, Rottustefnan, Litla lambið, eftir séra Jón Kr. ísfeld og framhalds- sagan Davíð Copperfield. Þá er sagt frá þeim níu bókum, sem Bókaútgáfa Æskunnar, hefur gef ið út á þessu ári og birtir smá þættir úr sumum þeirra. Af föst- um þáttum má nefna, svo sem Handavinnuhornið, Esperanto, Gítar-námskeið, frá Tónskóla Sigursveiyjs, Amatör Radio, Hjálpa mömmu, það er gaman að baka, Raddir Æskunnar, Frá unglingareglunni, Spurningar og svör, Bréfaskipti og svo hinar fjórar föstu myndasögur. Að þössu sinni efnir Æskan og Flugfélag íslands til spurn- ingaþrautar, og nú boðið í verð- laun flugferð til London fram og aftur og dvöl þar í borg otg inn- anlandsflugs, auk fjölda bóka- verðlauna. Aðrar þrjár getraunir eru svo í blaðinu, sem verðlaun eru veitt fyrir. Sérstakt jólaspil fylgir nú blaðinu, og mun það koma til með að skemmta mörg- um í jóiafríinu. Með þessu jóla- blaði líkur 65. árgangi Æskunn- ar, e* hann er 424 síður að stærð. Ritstjóri er Grímur Engilberts. Regnhettur njóta vinsælda nú. hjá hitanotendum á fyrrnefndum 'tímum og rufu þær að sjálf- sögðu alltaf, hvort sem þörf var á eða ekki. Engir möguleikar voru á að hliðra neitt til rof- tímanum eða breyta honum, ef þess gerðist þörf. Notkun rofa- klukknanna var því mjög stirð í vöfum og stillingar- og við- haldskostnaður mikill. Með áiagsstýringunni er hins vegar sérstökum fjarstýrðum rof . um, sem settir eru upp hjá not- I endum, stjórnað frá einum stað, sem er aðveitustöðin. Þessum fjarstýrðu rofum má skipta í 22 flokka og er síðan hægt að láta st j órntöf lu álagsstýringarker f is- ins kveikja og slökkva á hverj- um flokki á fyrirfram innstillt- um tímum, sem velja má eftir vild og mjög fljótlega er að breyta, ef þörf krefur. Ennfrem- ur er hægt að grípa inn í sjálf- . virknina hvenær sem þess gerist I þörf. BHM vill samnings- rétt til jafns við BSRB AÐALFUNDUR Bandalags há- ' skólamanna (BHM) fyrir árið 1964 var haldinn 24. nóv. s.l. og j sátu fundinn fulltrúar frá öllum aðildarfélögunum. Formaður bandalagsins, Sveinn Björnsson, verkfræðingur, flutti skýrslu stjórnarinnar fyrir s.l. starfsár. Kom fram í henni að aðildarfélög bandalagsins voru við lok starfsársins 11 að tölu með um 1220 félagsmönnum. Á liðnu starfsári hefur starf BHM einkum mótast af undir- búningi að öflun samningsréttar til handa háskólamenntuðum mönnum í þjónustu hins opin- bera, svo og endurskipulagningu bandalagsins. Á þessu hausti fór BHM þess formlega á leit við ríkisstjórnina, að hún beitti sér fyrir því, að lögum um samn- ingsrétt opinberra starfsmanna yrði breytt á þann veg, að BHM lengi samningsrétt til jafns við BSRB. Mun ríkisstjórnin væntan lega svara þessari málaleitan innan skamms. Af öðrum málum, sem banda- lagið lét til sín taka á árinu, má nefna, að á vegum þess var starfandi nefnd til að kanna, hvað BHM gæti gert til að styðja framhaldsnám kandídata, svo og nefnd vegna endurskoðunar á lögum og reglugerðum um menntaskóla. Bandalagið er full trúi íslenzkra háskólamanna gagnvart hliðstæðum samtökum erlendis og átti á árinu tölu- verð og mjög gagnleg samskipti við systurfélög sín á Norðurlönd um. Bandalagið gaf út handbók á árinu, sem einkum er ætluð fyrir fulltrúaráð þess og stjórnir aðildarfélaganna. í handbókinni er að finna upplýsingar um flest öll samtök háskólamanna á ís- landi o.fl. Ákveðið er, að banda- lagið hefji í vetur útgáfu frétta- bréís, sem komi út nokkrum sinn um árlega. Fréttabréfið verður ■ sent öllum háskólamönnum inn- . an vébanda BHM. j Fyrir aðalfundinum lá inntöku beiðni frá Félagi háskólamennt- | aðra kennara, sem nýlega var stofnað. Var samþykkt einróma, að veita félaginu aðild, og eru íþá aðildarfélög BHM 12 að tölu. Úr stjórn gengu þeir Árni Böðvarsson, cand. mag., og Stefán Aðalsteinsson, búfjárfr. Þakkaði formaður þeim ánægju- legt samstarf og alúð í störfum fyrir bandalagið. í stað þeirra voru kosnir Bjarni Bragi Jóns- son, hagfr. og dr. Matthías Jónas son. Sveinn Björnsson, verkfr. var endurkjörinn form. banda- lagsins, en aðrir í stjórn eru: Arinbjörn Kolbeinsson, læknir og Ólafur W. Stefánsson, lögfr. Framkvæmdastjóri BHM er ólafur S. Valdimarsson, viðskipta fræðingur. Aðildarfélög bandalagsins eru: Dýrálæknafélag íslands; Félag B.A.-prófs manna; Félag há- Skólamenntaðra kennara; Félag íslenzkra fræða; Félag íslenzkra náttúrufræðinga; Félag íslenzkra sálfræðinga; Hagfræðafélag ís- lands; Lyfjafræðingafélag ís- lands; Læknafélag íslands; Lög- fræðingafélag íslands; Prestafé- lag íslands og Verkfræðingafé- lag íslands. IVIECCANO SMIÍÐATÓL fyrir börn. JLZúmm/

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.