Morgunblaðið - 26.01.1965, Síða 1
24 síðtir
52. Srgangur.
21. tbl. — ÞriSjudagur 26. janúar 1965
Prentsniiðja MorgunblaðsitMi.
,Andi hans mun
lifa um aidir64
Þjóðarleiðtogar, stjómmálamenn og
vinir minnast Sir Winstons — Auglýsingar
víkja af forsíðu „The Times“ í fyrsta
sinn í 50 áx
London, Washington, 25. jan.
(AP-NTB)
H1 N S látna leiðtoga bins
frjálsa heims á árum síðari
heimsstyrjaldarinnar, Sir Win
fftons Churchills, var minnzt
víða um heim í dag með þakk
læti og virðingu. Blöð í mörg-
t»m löndum birtu langar grein
*r um hinn látna stjórnmála-
skörung og samúðarskeyti
streymdu til konu hans, Lady
Clementine Churchill, Elísa-
hetar Englandsdrottningar,
Harolds Wilsons, forsætisráð-
herra, og brezku stjórnarinn-
»r. —
Blöð á Vesturlöndum minn-
»st Sir Winstons, sem leiðtoga,
«r allt mannkyn standi í þakk
arskuld við, en ummæli í ýms
Enn verkfall
í New York
New York, 25. jan. (NTB)
VER.KFALL, hafnarverkamanna
é austurströnd Bandaríkjanna
fcefur nú staðið í tvær vikur, og
era engar horfur á lausn í bili.
Er áætlað að verkfallið kosti
bandarísku þjóðina um 25 millj-
ónir dollara á dag, eða rúmlega
J.000 milljónir ísl. króna.
Fundir voru haldnir með deilu-
eðilum í gær í fjórum rikjum til
eð reyna að finna lausn á deilu-
tnáiunum eða grundvöll fyrir
eamninga. En ekkert miðaði í þá
át.t.
Stjórnir samtaka hafnarverka-
inanna eru andvígar verkfallinu
eg hafa sko,rað á verkamann að
eemja á grundvelli tilboðs at-
vinnurekenda.
Um 3'50 Skip hafa þegar stöðv-
»st vegna verkfallsins.
um hlöðum kommúnistaríkj-
anna eru blandin ásökunum á
hendur honum fyrir afstöðu
hans eftir lok heimsstyrjald-
arinnar síðari.
Eins og skýrt er frá á öðrum
stað í blaðinu verður ekki fyrir-
skipuð þjóðarsorg í Bretlandi
vegna láts Sir Winstons. Óskar
fjölskylda hans þess að hverjum
einstakling sé frjálst að minnast
hans að vild. En þjóðarsorg hef-
ur verið fyrirskipuð í þrjá daga
í Brasilíu og einn dag í Argen-
tínu.
Johnson Bandaríkjaforseti hef-
ur skipað svo fyrir að fánar skuli
blakta í hálfa stöng á öllum opin-
berum byggíhgum þar fram á
laugardag. Segir blaðafulltrúi
foi'setans, George Reedy, að þetta
sé í fyrsta skipti í sögu Banda-
ríkjanna, sem útlendings sé
minnzt á þennan hátt. En Churc-
hill var útnefndur heiðursborg-
ari Bandaríkjanna, fyrstur allra
útlendinga.
Hér á eftir fara ummæli
þjóðarleiðtoga, stjórnmála-
manna, blaða o. fl. um hinn
látna stjórnmálamann.
Þegar Johnson Bandaríkjafor-
seta hafði borizt fregnin um lát
Sir Winstons á sunnudaginn,
sendi hann út tilkynningu þar
sem sagði m.a.: .,Hann (Sir
Winston) var barn sögunnar, orð
hans og gerðir munu aldrei
gleymast. Svo lengi, sem menn
minnast hinna miklu hættutíma
og þeirra, manna, sem sigurinn
unnu, lifir nafn Ohurchills.
Þegar skuggar grúfðu yfir heim-
inum, og vonleysi ríkti me'ð
þjóðunum. sendi forsjónin okkur
Winston Churchill. Við skulum
vera þakklát fyrir að hafa þekkt
hann.“
Alexei Kosvgin, forsætisráð-
herra Sovétríkjanna, sendi Lady
Churchill og Harold Wilson sam
úðarskeyti. í skeytinu til Wilsons
sagði hann m.a.: „Eg sendi inni-
legustu samúðarkveðjur fyrir
mína hönd og Sovétstjórnarinn-
ar vegna fráfalls hins m:)cla
stjórnmálaskörungs Breta, Sir
Winstons Churohills. í Sovétríkj-
unum er Sir Winstons minnst
vegna óbilandi baráttuþreks
hans á árum styrjaldarinnar
gegn Þýzkalandi Hitlers, og við
samhryggjumst brezku þjóðinni
vegna hins mikla rnissis."
Framhald á bls. 2
25. jan. (AP). Hafinn er undirbúningur undir flutning kistu Sir
Winstons til Westminster Hall, þar sem iik hans mun liggja á
viðhafnarbörum. Verið er að setja upp palla fyrir sjúnvarps- og
myndatökumenn við þinghúsið.
67 ár
hefur
síðan
verið
brezkum forsætisráðherra
svnd slík virðing
Sir Winstons minnzt i þinginu —
F'jöldi þjóöarleiötoga verður við
útför hans á laugardag
London, 25. janúar.
(NTB-AP)
í DAG samþykkti Neðri
einróma tillögu Elísabetar
Englandsdrottningar um, að
útför Sir Winstons Churchills
máistofa brezka þingsins færi algerlega-fram á vegum
Sovézkir listamenn enn
Ehrenburg fær ekki
tippreisn æru
K.1THÖFUNDAFÉLAG Ehrenburg mn að bækur
Sovétríkjanna skýrði frá hans á þessum árum hafí
því á laugardag að rithöf* verið fuliar af vantrú, Nihil
itndurinn llja Ehrenburg isma og böisýni, og ekki
befði alis ekki enn fengið gefið rétta mynd af sov-
wppgjöf *»ka fyrir afbrot ézku þjóðinni.
sín frá þriðja tug þessarar
aldar.
I greininni kemnr ekki
fram nein gagnrýni á síð-
í tímarítf samtakanna Ustu verk Ebrenburgs, og
«ru endurteknar fyrri þessvegna er ekki talið í
inberar ákærur á bendur Frsunbald á bk 20.
Ilja Ehrenburg.
ríkisins með sömu viðhöfn og
útför þjóðhöfðingja. Sir Win-
ston Churchill er þriðji for-
sætisráðherra Breta, sem
sýnd hefur verið slík virðing.
Hinir voru hertoginn af Well-
ington, sem lézt 1852, og Glad-
stone, sem lézt 1898.
^ Flestar þjóðir heinis munu
senda fulltrúa til að vera
við útför Churchilis, laugar-
daginn 30. janúar, og verða í
þeim hópi konungar, forsetar
og forsætisráðherrar.
á Samkvæmt tilskipun Elísa
hetar Englandsdróttningar
mun lik Sir Winstons liggja á
viðhafnarbörum í Westminst-
er Hall á miðvikudag, fimmtu
dag og föstudag. Útför hans
verður gerð frá St. Páls kirkj-
unni. en hann verður jarð-
settur í fjölskyldugrafreit í
Bladon-kirkjugarði, að eigin
ósk.
^ Sir Winston Churchill lézt
eins og skýrt hefur verið frá,
að heimili sínu við Hyde Park
Gate í London á sunnudags-
morgun, 24. janúar, en þá
voru liðín rétt 70 ár frá dauða
föður hans, Sir Randolphs
Cbtircbills. Hann lézt að
morgni 24. janúar 1895.
Þegar lát Sir Winstons hafði
verið tilkynnt, rauN brezka út-
varpið dagskrá sína og leikin
voru sorgarlög, kirkjuklukkur
hringdu um allt Bretland og fán-
ar voru dregnir í hálfa stöng. Á
sunnudagskvöldið voru öil ijós
slökkt við Piccadilly Circus, eins
og á styrjaldarárunum, þegar Sir
Winston var leiðtogi þjóðar sinn-
ar í baráttunni gegn nazistum.
ATHÖFNIN í ÞINGINU
í dag var Sir Winstons minnzt
við hátíðlega athöfn í báðum
deildum brezka þingsins.
Leiðtogar stjórnmálaflokkanna
þriggja minntust hins látna stjórn
málaskörungs og margir þing-
menn risu úr sætum sinum og
sögðu nokkur orð til heiðurs
minningu hans. Athöfnin stóð yf-
ir í þrjá stundarfjórðunga og á
meðan beindust augu flestra við-
staddra að eina sætinu, sem var
autt á fremsta bekk, en í því sæti
sat Sir Winston oftast þau 64 ár,
sem hann gegndi þingmennsku.
Framhald á bls. 23.
Johnson hressarl
Washington, 25. jan. (NTB)
JOHNSON, Bandarikjaforseti,
sem var lagður inn í sjúkrabús
s.l. föstuclag, er nú á batavegi.
Forsetinn var lagður inn 1
"sjúkrahús flotans í Bethesda, út-
hverfi Washington, s.l. föstudag,
og þjáðist hann af illu kvefi og
slæmum hósta.
Ekki er þó enn vitað hvort
Johnson verður orðinn nægilega
friskur til að vera fulltrúi banda-
risku þjóðarinnar við útför sir
Winstons Churehills á laugardag.
Sjálfur hefur Johnson sagt að
hann vi)ji mjög gjarnan komast
þangað.