Morgunblaðið - 13.03.1965, Blaðsíða 2
MORGUNBLABIB
Laugardagur 13. marz 1965
«
Oltazt að aftur komi til
trúaróeirða í Saigon
Saigon, 12. marz, AP.
KAÞÓLSKIR menn í Saigon
hafa mikið verið á ferðinni í dag
og haldnir hafa hafa verið marg-
ir fundir þeirra, en ekki fjöl-
mennir þó, í höfuðborginni og
næsta nágrenni hennar. Óttazt er,
að aftur kunni að koma þar til
illdeilna með kaþólskum og
Búddatrúarmönnum.
Sl. helgi varð kaþólskur her-
maður í Da Nang að bana öðrum
hermanni, Búddhatrúar, í rysk-
ingum er spunnust af spila-
mennsku þeirra. Ekki vildu trú-
bræður hins fallna una þessu og
brenndu fjögur heimili kaþólskra
í Da Nang í hefndarskyni og
héldu útifund, en herlið var
kvatt á vettvang og dreifði mann
fjöldanum.
Einnig er það hald margra í
höfuðborginni, að brátt megi
menn eiga von á einni byltingar-
tilrauninni enn og muni sú runn-
in undan rifjum kaþólskra. Leið-
togar byltingartilraunarinnar er
gerð var í fyrra mánuði og fór
út um þúfur, svo sem kunnugt
er, herforingjarnir Pham Ngoc
Tao og Lam Van Van Vom Phat,
sem báðir eru kaþólskir, fara enn
huldu höfði einhvers staðar í
Fræðslufundur
í Valhöll
NÆSTI fundur á fræðslunám-
skeiði Verkalýðsráðs Sjálfstæðis-
flokksins og málfundafélagsins
Óðins verður í Valhöll n.k.
mánudag 15. þ.m. kl. 20,30. Á
fundinum flyt-
ur Birgir Kjaran
hagfræðingur
fyrirlestur er
hann nefnir:
Þættir um stefn-
ur og íslenzk
stjómmál. Á eft-
ir fyrirlestrinum
verður málfund-
ur, rætt um
landbúnaðarmál. Framsögumenn:
Sigurjón Bjarnason og Sigurður
Sigurjónsson. Þátttakendur eru
beðnir að mæta vel otg stundvis-
lega.
Sátiafundur
á sunnudag
SÁTTAFUNDUR fulltrúa yfir-
manna á farskipum og skipa-
eigenda lauk kl. 3 í fyrrinótt, án
þess að samkomulag næðist.
Næsti fundur er boðaður kl. 4 á
sunnudag.
landinu, þrátt fyrir miklar til-
raunir stjórnarinnar til þess að
finna þá og taka höndum.
Blaðamaður nokkur segir í
dag að leiðtogar Búddatrúar-
pianna í Suður-Vietnam séu á
bandi kommúnista og geri sér
þess ljósa grein að íhlutun Banda
ríkjamanna sé eina ástæðan til
þess að stríðið þar haldi enn á-
fram. Segir blaðamaðurinn, Wil-
fred Burchett, sem er Austur-
ríkismaður, að tveir virtir leið-
togar Búddatrúarmanna séu fé-
lagar í miðstjórn „þjóðfrelsis-
hreyfingar" kommúnista.
IVferki Ekkna-
sjóðs seld
á sunnudag
HINN árlegi merkjasöludagur
Ekknasjóðs íslands er á sunnu-
daginn. Ekknasjóður var stofn-
aður af sjómannskonu fyrir á-
hættufé manns hennar, er hann
kom heill úr hinum mikla hildar-
leik heimsstyrjaldarinnar síðari.
Síðan hefur sjóðurinn verið
efldur með árlegri merkjasölu
einnig hafa honum borizt gjafir.
Er búið að veita úr Ekknasjóði
í nokkur ár, síðastliðið ár til
fimm ekkna.
Merki Ekknasjóðsins eru með
engilsmynd og áletruninni Ekkna
sjóður íslands. Þau verða afhent
og seld í Sjálfstæðishúsinu uppi
á sunnudaginn eftir kl. 9.30 um
morguninn. Hvetur sjóðurinn
reykvíska fgreldra til að láta
börn sín selja þessi merki á
sunnudag og borgarbúa til að
taka börnunum vel og kaupa af
þeim n-ierki.
Uppþot í Aþenu
Aþenu, 12. marz. AP.
ÞRJÁTÍU manns særðust er sló
í brýnu í dag milli lögreglumanna
og íbúa borgarhverfis eins í
Aþenu, þar sem hús eru flest í
óleyfi byggð. í hverfi þessu eru
um það bil 1,000 slík hús og í
morgun var hafizt handa um að
ryðja þeim burtu. Lögreglan
beitti kylfum og táragasi til að
dreifa mannfjöldanum, sem lét
sig ekki með góðu og áður en
lauk slösuðust tíu lögreglumenn,
tveir þeirra alvarlega. 20 manns
voru handteknir fyrir mótþróa
við yfirvöldin.
1**
'
..-W.
* &
í GÆR var hægviðri hér á
landi. Vægt frost var á Vest-
fjörðum kl. 11, en annars
staðar var hiti rétt ofan víð
frostmark síðdegis. í nótt mun
hafa verið næturfrost um allt
land. Lægð sést á kortinu ná-
lægt Nýfundnalandi og ætti
verða nálægt Hvarfi á morg-
un, en farið að hlýna hér
nokkuð með austlægri átt.
Veðurhorfur kl. 10 í gær-
kvöldi: Suðvesturmið: NA-
kaldi og léttskýjað í nótt, en
þykknar upp með A-stinnings
kalda síðdegis. Suðvesturland
Faxaflói og miðin: Hægviðri
og léttskýjað fram eftir degi,
en A-jcaldi og skýjað með
kvöldinu. Breiðafjörður til
Norðvesturlands og miðin:
Hægviðri fram eftir degi, síð-
an A-gola, léttskýjað. Aust-
firðir, miðin og Austurdjúp:
NA-gola og skýjað. Suðaust-
urland og miðin: NA-gola og
léttskýjað, en A-gola og
skýjað síðdegis.
Horfur á sunnudag: Hæg
A-átt og ennþá svalt og bjart
á norðvestanverðu landinu, en
A-kaldi sunnanlands, um 5 st.
hiti og sums staðar lítilsbátt-
ar rigninig.
Næsta verkefnið verður
væntanSena Afríka
— segír Guðjón liðugason,
skipsfjói’i, sem nýkomirtn er
heim frá Piikislan, þar sem
hann fann geysiauðug fiskimið
Frú Björg Sigurðardóttir, sonurinn Guðjón, þá Guðjón
Illugason og dóttirin Lovisa. — Myndin var tekin af fjölskyld
unni Vishagapatnam.
GUÐJÓN Illugason, skipstjóri,
er nýkominn heim frá Pakist-
an. þar sem hann hefur dval-
izt um tveggja ára skeið á
vegum Landbúnaðar- og mat-
vælastofnunnar SÞ (FAO) til
að kanna fiskveiðimöguleika á
Bengalflóa. Morgunblaðið átti
i gær stutt samtal við Guðjón,
sem sagði:
— Ég kom heim til íslands
6. febrúar sl. eftir tveggja ára
dvöl í Pakistan. Ég geri ráð
fyrir því, að vera heima í 3-4
mánuði, en ég er ekki heill
heilsu, er slæmur í baki.
Þessi kvilli hefur háð mér í
11-12 ár.
— Samningur minn um
Pakistandvölina er útrunninn
Og ég fer ekki aftur þangað.
Það hefur komið til tals, að
ég fari á vegum FAO til
Afríku, liklegast til Ghana.
— Starf mitt í Pakistan var
aðallega að rannsaka hvað
hægt væri að fiska í Bengal-
flóa. Við skiptum flóanum í
110 reiti, sem hver var um 100
fermílur að stærð. Við kom-
umst að því, að hægt er að
veiða á 11 þúsund fermílna
svæði.
— Á tveim árum könnuðum
við veiðimöguleika á 72% alls
svæðisins. Sums staðar var
allgóð veiði, komst upp í 400
kg á klukkustund. Þá fór ég
út með tveim bátum til að
kenna þeim meðferð á veiðar-
íærum.
— Við fundum geysiauðug
fiskimið í mynni árinnar
Shahbazpur, en þessi mið
höfðu ekki fyrr verið þekkt.
— Fundum við geysistórar
fisktorfur á dýptarmæli og
gerðum tilraunir til að veiða
fiskinn með því að leggja rek-
net og botnnet. En þáð bar
ekki árangur. Þessi fiskur hef-
ur fálmara og finnur hann net
in með þeim og syndir burtu.
— Þá reyndum við botn-
vörpu og töguðum með henni
og þá fengum við ágæta veiði.
I einu tilfelli t. d. fengum við
5 tonn á 5 mínútum. í síðustu
ferðinni sem ég fór fengum
við 13,5 tonn á tæpri 3 V2 klst.
á 75 tonna báti, sem nýkom-
inn var á þessar slóðir. Ann-
ars eru ekki nema 5 bátar a£
svipaðri stærð í Austur-Pak-
istan.
— Fiskurinn, sem við fund-
um í ármynninu, er mjög góð-
ur til átu. Hann er af stein-
bítsfjölskyldunni og ber fræði
heitið pangas. Líklega er hann
annar verðmesti fiskurinn þar
í landi.
— Ekki er fyllilega rann-
sakað enniþá, hve mikið má
veiða af honum í öðrum ám
þarna með botnvörpu. Við
fundum þennan fisk fyrst í
aprílmánuði í fyrra, en gátum
ekki fiskað nema til maíloka.
Þá þurfti að taka bátinn upp
í slipp.
— Hann var ekki tilbúinn
á veiðar aftur fyrr en í ágúst-
byrjun. Fórum við þá aftur
á þessar slóðir, en þá fannst
enginn fiskur. Við fórum þá
á þrjár nærliggjandi ár, en
þar fannst heldur enginn fisk-
ur. Á þessu svæði er geysi-
mikill straumur á tímabilinu
júní-október. Á þeim tíma
fundum við engan fisk.
— Þann 25. nóvember fór-
um við aftur af stað og þá
fannst óhemju fiskmagn, sem
búizt er við að unnt sé að
veiða frá nóvember til júní.
— Mikill áhugi er meðal
mánna á þessum nýju, auð-
ugu miðum og hafa menn
skrifað mér til að biðja um
að fá íslenzkan skpstjóra til
að stjórna bátum á þessum
veiðum.
— Fjölskylda mín var með
mér í Pakistan í 9 mánuði, en
það eru erfiðleikar með skóla-
göngu barnanna, svo kona
mín, Björg Sigurðardóttir, fór
heim um það leyti sem skólar
byrjuðu. Við eigum sjö börn,
það yngsta er 8 ára, en þau
eldri eru gift.
X ■ i ■' V '
Lóðning í ármynni Shahbazpur. — Eins og sjá má er fiskitorfan samfelld á ea. 10 faðma dýpi.
Er hér um feikilegt fiskmagn að ræða. Svarta strikið að neðan sýnir endurkast. Lóðningin er
frá 26. nóvember siðastliðnum.