Morgunblaðið - 13.03.1965, Side 10

Morgunblaðið - 13.03.1965, Side 10
10 MORCUNBLAÐIÐ Laugardagur 13. marz 1965 Louise drottning tæddist 13. júlí 1889 í Heiligenberg í Þýzkalandi, og voru foreldrar hennar Ludvig prins af Batt- enberg og kona hans Victoria prinsessa af Hessen. Faðirinn var bróðir keisarafrúarinnar í Rússlandi og barnabarn Vict- oriu Bretadrottningar. Hann hafði gengið í brezka flotann og hlotið þar foringj anafnbót og flutti því snemma með fjöl- skyldu sína til Bretlands. Þeg- ar fyrri heimsstyrjöldin brauzt út 1914 var Ludvig af Battenberg æðsti maður brezka flotans, eða First Sea Lord. Louise var stoð og stytta manns síns í opinberu starfi hans ag vann með honum að áhugamálum hans. Þau ferð- uðust víða og oft undir dul- nefninu greifinn og greifafrú- in af Gripsholm. Ekki var þjóðhollusta þessa þýzka prins dregin í efa í Bretlandi, en enigu að síður varð hann að láta af embætti þegar styrjöldin hófst. En þremur árum seinna, eða 1917, var gefin út konungleg reglu- gerð í Bretlandi þar sem ákveðið var að banna mönn- um að bera þýzka titla þar í landi, og var Ludvig af Batt- enberg þá gerður að mark- greifa af Milford-Haven. Ensk- Sænsku konungshjónin á ferðalagi. aði hann þá nafnið Batten- berg yfir í Mountbatten og tók upp fornafnið Louis. Louise prinsessa af Batten- beng varð þá lafði Louise Mountbatten. Hún var á þrí- tugsaldri á stríðsárunum, og tók að læra hjúkrun. Starfaði hún um skeið við brezkt sjúkrahús í Frakklandi. Til er saga um prinsessuna frá þess- um árum, sem lýsir henni nokkuð. Þannig var að til sjúkrahússins kom aldraður læknir, sem var lítið hrifinn af því að hafa kóngafólk í sinni þjónustu. Hann hafði frétt um Louise prinsessu, en ekki séð hana. Svo hitti hann hjúkrunarkonu á gangi sjúkrahússins, snýr sér að henni og hvíslar: „Það er víst einhver prinsessa starfandi hér. Hvernig er hún?“ Svía, en hann hafði þremur árum áður misst fyrri konu sína, Margaretu, sem hafði Gustaf Svíakonugur and- aðist árið 1950, 92 ára að aldri, en þá var Gustaf Adolf 68 ára. Hann hafði ætlað sér að láta son sinn taka við völdum. Sú fyrirætlun fór út um þúfur þegar sonurinn fórst í flug- slysi á Kastrup flugvelli 1947. Varð það þvr úr að Gustaf Adolf gerðist konugur Svia. í nærri fimmtán ár var Louise drottning Svía. Hún var fædd í Þýzkalandi, uppalin í Bret- landi en sænskari en margir Svíar er hún andaðist. Hjukrunarkonan, sem var Louise prinsessa, leit á lækn- inn og svarar: „Hún er ósköp venjuleg kona, alveg eins og ég“. Það var ekki fyrr en nokkru seinna að læknirinn komst að því að hann hafði verið að tala við prinsessuna. Louis Mountbatten mark- greifi andaðist 1921. Hann hafði misst eignir sínar í heimsstyrjöldinni, og stóð ekkja hans uppi eignalaus. Þá hún þá boð brezku kon- ungsfjölskyldunnar og flutti ásamt Louise dóttur sinni í Kensington höllina í 'London. Hinn 3. nóvember 1923 gift- ist Louise Mountbatten Gustaf Adolf, þáverandi krónprins Louise Svíadrottning. Brúðkaupsmynd af Gustaf Adolf og Louise Mountbatten. Útför Louise Svídrottningar gerð í dag ÓTFÖR LOUISE Svíadrottn- ingar verður gerð frá Stor- kyrkan í Stokkhólmi fyrir há- degi í dag, og verða viðstaddir þjóðhöfðingar víða að úr heiminum, þeirra á meðal for- seti íslands. Drottningin and- aðist sem kunnugt er á hádegi s.L sunnudag eftir þriggja daga banaleigu. Var maður hennar, Gustaf Adolf Svía- konungur, við dánarbeð henn- ar ásamt börnum sínum þrem- ur af fyrra hjónabandi þeim Ingrid Ðanadrottningu, Bertil prins og Sibyllu prinsessu. Einnig voru við dánarbeðinn Alice prinsessa af Grikklandi, systir drottningar, og Sigvard Bernadotte prins. alið honum fimm börn. Voru þau gefin saman í kapeliu brezku konungsfjölskyldunn- ar í St. James höll í London. Að lokinni brúðkaupsferð til Frakklands og Ítalíu kom Louise loks til Svíþjóðar hinn 10. desember 1923. Strax í upphafi varð hún að sinna margvíslegum embættisstörf- um, því tengdamóðir hennar, Victoria drottning, var mjög farin að heilsu. Hún lærði snemma sænsku, og vann hugi allra, sem henni kynntust. Tók hún virkan þátt í margskonar líknarstörfum, og í síðari heimsstyrjöldinni vann hún að fangaskiptum milli Breta og Þjóðverja, sem fóru fíam í Gautaborg.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.