Morgunblaðið - 13.03.1965, Side 17

Morgunblaðið - 13.03.1965, Side 17
Laugardagur 13. marz 1965 MOKeUHBLAÐ/Ð 17 Útsýn efnir til páska- ierðar til Madeira SÍÐAN flugsamgöngur hófust til Madeira á síðastliðnu ári hefur ferðamannastraumurinn stórauk- izt, og nú þarf margra vikna eða mánaða fyrirvara til að fá far eða gistingu á „Eyju hins eilífa vors“ eða „Perlu Atlantshafsins“, eins og Madeira er oft nefnd. Ferðaskrifstofan Útsýn tryggði sér gistingu fyrir 40—50 manna hóp á nýjasta hóteli Madeira, Santa Isabel fyrir einu ári og efnir nú til páskaferðar þangað í annað sinn. Hefst ferðin 15. apríl og stendur í hálfan mánuð. Að dómi þeirra er til þekkja og víða hafa farið, þykir Madeira einn fegursti staður hejms og minna á Suðurhafseyjar hvað loftslag og gróður snertir. Lega eyjarinnar og Golfstraumurinn gera hana að einum frjósamasta bletti jarðar, enda er Madeira eitt glitrandi blómahaf í öllum •regnbogans litum. Landslag er einnig hið fegursta, og skiptast á ávalar hæðir, fagrir frjósamir dalir og há fjöll, hin hæstu um 2000 m. Eitt helzta aðdráttarafl eyjarinnar er þó hið heilsusam- Blaðinu hefur borizt til birt- ingar eftirMrandi opið bréf til borgaryfirvalda Reykjavíkur, frá Framfarafélagi Seláss og Árbæjarbletta: VIÐ leyfum okkur hér með að tilkynna yður að eftirfarandi til- lögur voru samþyktkar með sam hljóða atkvæðum fundarmanna á aðalfundi félagsins 28. febrúar 1965: „Aðalfundur F.S.A. haldinn 28. febr. 1965 leyfir sér að bera fram eftirfarandi kröfur við borgaryfirvöld Reykjavíkur: 1. Að fyrirhugaðri rafmagns- lýsingu á Suðurlandsbraut frá Elliðaám að Rauðavatni verði nú þegar hrint í framkvæmd. 2. Að meðfram framangreind- um vegarkafla verði gerðar mal- bikaðar eða steyptar afmarkaðar brautir fyrir hjólríðndi og gang- andi vegfarendur. 3. Að hámarkshraði bifreiða á þessum vegarkafla verði lækkað Ur úr 60 km. niður í þann há- markshraða, sem gildir annars staðar í þéttbýli í Reykjavík. lega, þægilega loftslag, sem vegna andvarans frá sjónum verð ur aldrei óhæfilega heitt, enda hefur fjöldi fólks leitað sér þang- að lækninga. Um þetta leyti árs er hitinn um 23° C. og allt í fegursta skrúða. Þarna munu þátttakendur í páskaferð Útsýnar dveljast í vikutlma og njóta hvíld ar og skemmtunar, baða í sól og sjó og fara í kynnisferðir um eyna. Á leiðinni til Madeira verður einnig stanzað í Lissabon, sem þykir fögur borg og glaðvær. Margt minnir þar á afrek og frægð Portúgala, sem eitt sinn voru mesta siglingaþjóð heims. Verður dvalizt þar tvo dagaji suð urleið, en í heimleið tvo daga í London. Flogið verður með flug vélum Flugfélags íslands til Bret lands, en þaðan með þotum BEA og portúgalska flugfélagsins, og geta þátttakendur framlengt ferð ina, ef óskað er. Mun ferðakostn aður í allri ferðinni með dvöl á beztu hótelum kosta litlu meira en venjulegt flugfargjald til Madeira fyrir einstakling. Jafnframt verði þeirri reglu fram fylgt og allir þeir sem gerast brot legir við hana, látnir sæta ábyrgð samkvæmt gildandi umferðalög- um. 4. Að hinni miklu umferð Suðurlandsvegarins verði hið fyrsta bægt frá þessu sívaxandi íbúðahverfi. — Hraðað verði staðsetningu og lagningu hins fyrirhugaða nýja Suðurlandsveg- ar, enda verði hann ekki í nán- um tengslum við þessa byggð. 5. Að hið allra bráðasta verði staðsett verzlun á þessu svæði, byggðarmegin við Suðurlands- brautir.a. 6. Að uppgreftri úr skurðum, sem nú er unnið við og öðrum framkvæmdum við þá, verði þannig hagað að þær á engan hátt skerði eða gangi út á það litla brautarrými, sem nú er á fyrrgreindum hluta Suðurlands- brautarinnai. 7. Að allir þeir opnu skurðir og húsgrunnar sem eru og verða kunna hér í hverfinu, verði ræki lega merktir og afgirtir svo börn um stafi ekki hætta af þeim. 8. Að strangt eftirlit verði sett með grjótflutningum frá grjót- námi borgarinnar, svo að hið tíða rgjótkast af flutningabílum þess geti ekki átt sér stað“. Með tilvísun til eftirfarandi samlþykktar, sendri Borgarráði Reykjavíkur 9. marz 1964, svo- hljóðandi: „Aðalfundur Framfarafélags Seláss og Árbæjarbletta 23. febr. 1964, skorar á háttvirt Borgar- ráð Reykjavíkurborgar, að það hlutist til um að götulýsing frá Árbæ að Rauðavatni verði kom- ið á sem allra fyrst.“ I greinargerð segir: „Hægt er að benda á, að á þess um kafla vegarins hafa orðið mjög alvarleg slys, þar á meðai a.m.k. eitt er leiddi til dauða, og má rekja mörg þeirra til ónógr- ar götulýsingar.“ I svarbréfi borgarstjóra dags. 29. apríl 1964 segir m. a. — ” — Borgarráð samþykkti, að í fram- kvæmdaáætlun rafmagnsveitunn ar á yfirstandandi ári og næsta ári, verði gert ráð fyrir raf- magnslýsingu á Suðurlands- braut frá Elliðaám að Rauða- vatni.“ Okkur er ekki kunnugt um að enn hafi verið byrjað á fyrr- gréindri lýsingu á þessum hluta Suðurlandsbrautar og ekki orðið vör neinna framkvæmda í þá átt. Hörmum við stórlega þær miklu vanefndir sem þegar em orðnar á þessu sjálfsagða öryggismáli okkar sem búum í þessu bæjar- hverfi. Hinn 27. jan. sl. varð á þessum slóðum hörmulegulegt dauðaslys, sem greint var frá í blöðum og útvarpi og því ekki rakið frekar hér. Orsök þess slyss má án efa rekja til þess ógurlega myrkurs, sem ríkir yfir allri umferð hér á Suðurlandsbraut. Þegar ekið er áleiðis út úr bænum að kvöldi eða nóttu til, eftir Suðurlandsbraut og komið yfir brýrnar í Elliðaánum er eins og farið sé inn í kolsvartan vegg. Bílljósin hverfa í kolsvart mal- bikið. Vegamót Suður- og Vestur landsvegar er stundum illt að greina. Þannig er Suðurlands- brautin öll frá Elliðaám algjör- lega óupplýst. íbúðahverfið fyr- ir ofan Árbæ sem nefnt er Selás og Árbæj arblettir verður að nota Suðurlandsbrautina sem tengilið innan hverfisins þar sem hún er eina samgönguleiðin í hverfinu. A Suðurlándsbraut skammt frá vegamótum Suður- og Vestur- landsvegar er skilti sem á stend- ur 60 km þar með er aflétt þeim lægri hámarkshraða, sem gildir annarsstaðar í bænum. Nú þegar er allmikil umferð á þessum hluta Suðurlandsbrautar- innar af gangandi og hjólríðandi fólki og þá ekki sízt börnum á leið úr og í skóla,, í sendiferðum o. fl. Hér er um að ræða þann eina malbikaða vegarkafla sem er á löngu svæði. Hann er freist- ing fyrir börn á reiðhjólum til skemmtiaksturs. Hann er líka freisting fyrir ökumenn til kapp- aksturs á kraftmiklum bifreiðum. Fyrir þessum freistingum hafa ýmsir bæði ungir og gamlir fall- ið. Síaukinn bifreiðaakstur og oft geypilegur hraði á þessum vegar- kafla eykur slysahættuna til stórra muna. Þó er slysahættan allra mest í náttmyrkri skamm- degisins á algjörlega óupplýstum vegi þegar bifreiðum er ekið á ofsa hraða og með háum ljósum án þess að skeytt sé um þá um- ferð sem á veginum er. Það verð- ur að teljast mikil mildi að fleiri umferðarslys hafi ekki orðið hér, en raun ber vitni um. Það má áreiðanlega að einhverju leyti þakka gætni þeirra gangandi og hjólríðandi vegfarenda sem hér eiga hlut að mál, því til sönnun- ar væri hægt að nefna nokkur dæmi. Staðsetning verzlunar þeirrar, sem hér er starfrækt, er miður heppileg. Þar sem byggðin er annars vegar við þessa miklu hraðbraut sem Suðurlandsbraut- in er, en verzlunin hinsvegar. Allir þeir sem hér búa og eiga erindi í verzlunina verða að fara eftir þessari braut. Einginn gang- stigur er meðfram henni hvað þá heidur hjólreiðabraut. Ekki er Umferð og fram- kvæmdir í Selás- og Árbæjarblettum heldur nein gangbraut merkt yfir Suðurlandsbrautina. (Hjólreiða- brautir eru sennilega óþekkt fyrirbrigði á voru landi, þó munu hjólreiðar ekki bannaðar hér, en hjólríðandi vegfarendur virðast í litlum rétti gagnvart öðrum farar tækjum, það mál verður þó ekki frekar rætt hér.) I Árbæjarblettum er nú unnið að holræsagerð'og vegalagningu vegna skipulagsins. Þar er einnig nú þear byrjað á nokkrum íbúðar húsum, þó eru enn fleiri fyrir- húguð. Allar þessar framkvæmd- ir leiða af sér mikið jarðrask. Opnir skurðir og húsgrunnar standa vikum og jafnvel mán- uðum saman hálffullir af vatni algjörlega óvarðir fyrir börnum Framhald á bls. 19. aðist. Ég er eldd þeirrar skoð- unar, eins og sumir virðast vera, að íslenzk menninig þurfi að sanna tilverurétt sinn með einhverjum slíkum aðgerðum og hún sé lítils eða einskis virði, ef hún standist þær ekki. Um leið mega menn hafa það í huga, að fleira sækir að íslenzkri menn- ingu en útlent sjónvarp eitt, enda þótt það sé sérstaklega til umræðu hér að gefnu tilefni. íslenzk menning getur ekki átt tilveru sína undir slysuiin eða óhöppum, eins og þegar sjónvarpinu var dengt á inn- lendan markað, og það hlýtur einnig að vera grundvallaratriði hverri frjálsri þjóð, hvaða sjón- varp eða önnur fjölmiðlunar- tæki séu alls ráðandi í landi" — Vettvangur Framhald af bls. 15 beint í áugu við hann.....“ íslendingar gera sér ljósa smæð sína og vanmátt til margra hluta. En háskalegt er, ef þeir taka að vísa á bug óþægilagum staðreynd um með innantómu sjálfhóli og rakalausum fullyrðingum um eig ið ágæti. Sýna ekki einmitt þess- ar endurteknu og órökstuddu full yrðingar um það, hversu traust íslenzk menning sé, að íslending- ar séu teknir að nálgast hættu- lega mikið það ástand, sem Koestler kallar pólitíska sálsýki? Þetta sjónvarpsmál er vand- ræðamál. Um það virðist ekki vera deilt lengur, heldur hitt, hvað sé til lausnar. Um lausn málsins segir ritstjórinn: „Og varla getur vakað fyrir neinum að knýja fram lausn, eins og þá að loka fyrir Keflavíkursjónvarp ið, ef sú lausn er þyrnir í augum þúsunda manna, sem telja sér frjálst að nota sjónvarpið sér til skemmtunar o'g dægrastyttingar“ og ennfremur segir hann: ,,En sem sagt: eina lausnin, sem ég eygi í bili, er sú, að íslenzka sjónvarpið taki við af því banda ríska — og það sem fyrst.“ Þetta íslenzka sjónvarp á að vera „girni legra til stundargamans en það varnarliðssjónvarp, sem nú er á boðstólum.......“ Síður en svo vil ég andmæla því, að nauðsynlegt sé að koma á fót íslenzku sjónvarpi og það sem fyrst. íslenzku sjónvarpi ber að óska alls velfarnaðar. En ósk- ir breyta ekki staðreyndum hér fremur en annars staðar. Framan af verður íslenzkt sjónvarp af ærnum vanefnum gert um fjöl- breytni og gæði dagskrár, auk þess sem dagskrá þess mun að- eins standa tæpan þriðjung þess tíma, sem dagskrá varnarliðs- sjónvarpsins stendur. Jafnvel þótt betur tækist til en nokkur þorir að vona, er engan veginn vist, að íslenzka sjónvarpið muni leysa það ameríska af hólmi, nema þá ef til vill að nokkru leyti. Sú staðreynd er alkunn, að í menninigarefnum sækist fólk engan veginn eftir því, sem bezt telst, sbr. það þegar leikhússtjór- ar eru að afsaka uppfærslu ýmis- legs sviðsglingurs, en það sé gert til að hressa upp á fjárhag leik- húsanna. Er ég raunar þeirra skoðunar, að varnarliðssjónvarp þetta muni hafa óheppileg áhrif á ís- lenzkt sjónvarp, einkum ef ís- lenzka sjónvarpið yrði að ein- hverju leyti miðað við samkeppni við það, hvort heldur væri um dagskrárefni og daigskrárlengd. Er því að mínum dómi ekki önn- ur lausn fyrir heridi en loka varnarliðssjónvarpi þessu, um leið og íslenzkt sjónvarp kemur. Mörgum mun vafalaust finnast eðlilegra að fara aðra leið, — þá að sjá, hverju fram vindur, — hvort íslenzka sjónvarpið leysi ekki sjálfkrafa af hólmi það sem fyrir er, án frekari aðgerða. Hér yrði þá gerð tilraun, sem gæti heppnazt og einnig misheppnazt. Sú spurning, sem menn þurfa því að svara, áður en tilraunin er gerð, er þessi: Er rétt að gera slík ar tilraunir með íslenzka tungu og íslenzka þjóðmenningu? Minn ast skulu menn þess, að örðugt og ef til vill ókleift gæti orðið að snúa við, ef tilraunin misheppn hennar, sagir Matthías Johannes- sen og hygg ég að flestir geti verið honum öldungs sammála. Sú skipan sjónvarpsmála, sem nú er á iandi hér, er því að hans dómi varhugaverð og þá um leið óæskileg. Hins vegar er sú lausn, að loka sjónvarpi þessu þyrnir í augum þúsunda manna, eftir því sem ritstjórinn segir. Það felur í sér, að þúsundir manna vilja hafa það, og igegn vilja fólksins er ekki hægt að ganga. Þar virðist sú lausn málsins stoanda. En þetta, sem kallað er vilji fólksins, er enginn föst eða ákveð- in stærð. Hvaða fólk var það. sem vildi að ' sjónvarpsstöðin yrði stækkuð? Ekki hefur verið bent á neina sem þess kröfðust eða um það báðu, heldur voru landsfeður okkar einir að verkL Þeir dembdu sjónvarpinu yfir landslýðinn án þess að nokkur hefði beðið um það, — raunar gegn mótmælum fjölmargra. Þann vilja fólksins, sem krefst nú útlends sjónvarps, hafa lands- feðurnir búið til. Þetta er þannig mjög einfalt dæmi um það, hvernig hafa má áhrif á það, hvað fólkið vill, — dæmi um að hægt er að búa til þarfir og ástríður sem síðan sprettur af ákveðinn vilji og ákveðnar kröf- ur. Þetta er leyndardóm-ur áróð- ursins. Morgunblaðið hefur heldur verið sjónvarpi þessu hliðholt; vægar verður vist ekki hægt að komast.að orði en segja, að blað- ið hafi sýnt sjónvarpi þessu vel- viljað hlutleysi. Þess er t.d. getið s.l, sunnudag, í hálfgerðum af- sökunartón, að blaðið hafi léð greinum gegn sjónvarpinu rúm, þótt sumar hafi verið býsna barnalegar, eins og í blaðinu stendur (vonandi hafa skynsam- legar igreinar Vignis Guðmunds- sonar og annarra sjónvarpsunn- enda vegið þar nokkuð á móti). Nú er hins vegar ástæðulaust að ganga fram í sjónvarpsmáli þessu með einhverju offorsi og gjarnan má byrja á byrjuninnL Sá vilji þúsunda manna, sem lýt- ur að því, að hér skuli vera út- lent sjónvarp, er sem sagt ekk- ert óumbreytanlegt fyrirbærL Á þenna vilja fólksins má hafa áhrif og sá aðili hér á landi, sen» þar getur öðrum fremur að unn- ið, er einmitt Morgunblaðið. Upp- hafið skyldi því vera þetta: Að Mongunblaðið hverfi frá sinni velviljuðu hlutleysisstefnu gagn- vart varnarliðssjónvarpi þessu. hætti að boða íslendingum menn- ingarlegt andvaraleysi með full- yrðingum, sem ekki fá staðizt, og taki að veita þjóðinni þá leið- sögn í menningarefnum sem hún sýnilega þarfnast. Gjarnan mætti byrja á þvi að fá nákvæma skýrslu um tildrög slyss þess eða óhapps, „þegar sjónvarpinu var dengt á innlend- an markað augsýnilega mjög að vanhugsuðu máli“. Einn þáttur þess slyss var sá, að Alþingi var sagt ósatt og beitt blekkingum. Hver átti þar upptökin? Skyldi það gerast oft, að Alþingi sé blekkt til að taka ákvarðanir? Ef slíkt kemur fyrir, er það þá látið algerlega óátalið? Hefur enginn þingmaður neitt við slíkt að athuga? Svör við þessum spurnimgum snerta ekki eingöngu sjónvarpsmál þetta, heldur gætu þau einnig verið þáttur í almenn- um pólitískum þrifnaðarráðstöf- unum. Sigurður Líndal.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.