Morgunblaðið - 13.03.1965, Page 19
Laugardasur 13 uiarz1965
MORGU'NBLAÐIÐ
19
Athugasemd frá stjórn
Félags læknanema
UMRÆÐUR fara nú fram á al-
þingi um frumvarp til nýrra
læknaskipunarlaga. Þar sem lög
þessi snerta nokkuð læknanema
við Háskóla íslands og komið
hafa fram við umræður ýmis
atriði, sem varða þá beint, þar á
meðal ýmis misskilningur eða
missagnir, þykir stjórn Félags
læknanema rétt að koma nokkr-
um sjónarmiðum sínum og at-
hugasemdum á framfæri.
Hæstvirtur forsætisráðherra,
Bjarni Benediktsson, hélt því
fram á Alþingi hinn 8. þ. m., að
ísland væri nær einstætt í heim-
inum að því leyti, að það veitti
stúdentum ekki aðeins ókeypis
háskólamenntun, heldur veitti
þeim einnig mikla námsstyrki,
svo að þeir kæmu skuldlausir
eða skuldlitlir frá námi.
Þessar fullyrðingar eru alrang
»r. Einu styrkir, sem læknanem-
ar, og raunar allir stúdentar við
Háskóla íslands, eiga kost á frá
íslenzka ríkinu, eru hinir svo-
nefndu „stóru styrkir“, sem munu
veittir sjö nýstúdentum ár hvert,
og renna jafnt til stúdenta er-
lendis, sem hér heima, enda
munu aðeins þrír læknanemar
njóta þessa styrks sem stendur.
Utan þessara styrkja fá lækna-
nemar enga styrki frá ríkinu.
Hins vegar eiga læknanemar,
eins og aðrir stúdentar, kost á
námslánum úr Lánasjóði ís-
lenzkra námsmanna. Lánasjóður
þessi hefur eflzt talsvert hin síð-
ari ár, og eiga nú þeir lækna-
nemar sem dveljast sjö ár í
deildinni, kost á u.þ.b. kr. 160.-
000,00 láni þann tíma, sé miðað
við úthlutun úr sjóðnum árið
1964. Varla þarf að taka fram,
að þessa upphæð verða stúdent-
ar að endurgreiða að námi loknu,
og verður þetta óneitanlega að
teljast nokkur skuld, þótt vaxta-
og greiðsluskilyrði séu hagkvæm.
Enginn mun þó svo einfaldur,
að ætla söguna þarna ó enda.
Með lauslegri at'hugun á fram-
færslukostnaði þeirra lækna-
gtúdenta, einhleypra, sem búa á
Görðunum, telst okkur svo til,
að lágmarkskostnaður þeirra ár
hvert sé um kr. 75.000,00. Þannig
ætti sjö ára nám þeirra að kosta
þá í beinhörðum penmgum um
kr. 525.000,00, og mun þó var-
lega reiknað. Séu lán dregin frá
þessari upphæð, standa eftir kr.
365.000,00, sem stúdentinn verð-
ur að vinna fyrir sjálfur eða fá
frá aðstandendum ella, beint eða
óbeint, og telst það auðvitað
skuld. Ætti því ekki að þurfa að
eyða fleiri orðum að hjali um
skuldlausa læknakandidata.
Einnig má benda á, að í flest-
um löndum Evrópu eiga stúd-
éntar kost á ókeypis háskóla-
menntun, svo að Island er ekk-
ert einsdæmi, hvað það snertir.
Varðandi þá skoðun háttvirtra
þingmanna, að æskilegt sé að
stúdentar vinni óskyld störf á
sumrin, þykir rétt að taka fram
eftirfarandi:
Námsefni í læknisfræði hefur
þanizt út ótrúlega hratt undan-
farna áratugi og kemur þar
margt til, einkum aukin rann-
sóknartækni og ný þekking á
sjúkdómum, ekki sízt þeim, sem
minnst var vitað um áður. Á
þessu aukna námsefni verða
læknanemar auðvitað að kunna
skíl. Bein afleiðing af þessu er,
að meðalaldur læknakandidata
hafði árið 1960 hækkað um þrjú
ár síðan 1920, var þannig orðinn
tæp 28 ár, og mun flestum hafa
þótt það of hár aldur. Sú mun
einnig hafa verið skoðun lækna-
deildar, sem setti náminu ströng
tímatakmörk, raunar þegar árið
1958, svo að nú má telja sumar-
vinnu læknanema við óskyld
störf nær útilokaða, eigi þeir að
gera námi sínu sómasamleg skil.
Má geta þess til frekari skýring-
ar að læknanemar verða að
vinna nær kauplaust 12% mánuð
á námstíma sínum á sjúkrahús-
um auk annars verklegs og bók-
legs náms, svo að nóm þeirra er
langt frá því að vera sambæri-
legt við nám í öðrum deildum
háskólans. Auk þess er mjög ó-
heppilegt frá þjóðhagslegu sjón-
armiði að lengja námstíma
læknastúdenta með óskyldum
Coca-Cola hressir bezt!
NJÓTIÐ þeirrar ánægju,
sem Coca-Cola veifir.
Æíð hið rérta bragð
- aldrei of sætt
ferskt og hressandi.
störfum og stytta þannig að
sama skapi starfstíma þeirra
sem lækna, en hann er, sem
kunnugt er, styttri en allra ann-
arra stétta þjóðfélagsins.
Læknanemar munu flestir
samþykkir nauðsyn einhverra
tímatakmarka í námi og enn
fremur núverandi tímatakmörk-
um, væri um leið fullnægt tveim
ur grundvallaratriðum, annars
vegar nægri kennslu, hins vegar
fjárþörf stúdenta. Fyrra atriðið
verð.ur ekki rætt hér, en þegar
hefur verið sýnt fram á, hve
langt er frá því, að hinu síðara
sé fullnægt.
Vegna ummæla háttvirtra
þingmanna, Einars Olgeirssonar
og Þórarins Þórarinssonar, þess
efnis, að próf við læknadeild Há-
skóla íslands séu óhæfilega
þung, viljum við lóta í ljós það
álit okkar, að prófkröfur séu
ekki of miklar við deildina.
Læknisfræði er alþjóðleg vís-
indagrein og íslenzkir læknar
þurfa að sækja framhaldsmennt-
un sína að mestu til annarra
landa. Læknadeild Háskóla fs-
lands hlýtur því að miða kröfur
sínar við, að íslenzkir lækna-
kandidatar standist samkeppni
við hina erlendu, eins og verið
hefur.
í 13. gr. umrædds frumvarps
er veitt heimild um veitingu ríkis
láns til læknastúdenta gegn
skuldbindingu þeirra um læknis-
þjónustu í héraði að loknu námi.
Hvað sem annars má um grein
þessa segja, er ljóst, að hún felur
í sér fulla viðurkenningu á því,
að núverandi lán nægi lækna-
nemum alls ekki, og það sem
meira er, að ekki muni ætlunin
að auka þau á annan hátt. Þannig
lítur út fyrir að ríkið ætli að
hagnýta sér féleysi þeirra, sem
treystast ekki til að ljúka lækna-
námi að öðrúm kosti.
- Annars er margt gott um frum
varp þetta að segja, og álítum
við það spor í rétta átt, að svo
miklu leyti sem það byggir á
þeir grundvallarsjónarmiðum að
leysa læknaskortinn í dreifbýl-
inu með því að bæta starfsskil-
yrði héraðslækna og gefa þeim
tækifæri til að auka og endur-
nýja þekkingu sína.
F. h. stjórnar Félags læknanema,
Jón G. Stefánsson, form.,
Bjarni Þjóðleifsson, gjaldk.,
Baldur Fr. Sigfússon, ritstj.
— Umferð
Framhald af bls. 17.
— og það í næstu grennd við
barnaskólann sem ekki hefir
neinn leikvöll. Er þetta forsvar-
anlegt? Hinar fyrirhuguðu íbúða-
byggingar leiða af sér samkvæmt
eðli sínu fleiri íbúa í hverfjnu og
þar af leiðandi meiri umferð á
margnefndri Suðurlandsbraut, er
þegar hér verður fullbyggt, mun
eiga nóg með að anna þeirri um-
ferð, sem þetta hverfi leiðir af
sér.
Allmjög hefur borið á því að
grjót hafi kastazt af bifreiðum
þeim, sem annast flutning á
grjóti frá Grjótnámi borgarinn-
ar. Legið nærri að stór slys hlyt-
ist af, þegar steinar hafa fallið
af bílum rétt við fætur gangandi
vegfarenda.
Af framansögðu má ljóst verða
að auka þarf til muna eftirlit
með allri umferð á þessu svæði
og ýmsum þeim framkvæmdum
sem hér fara fram.
í trausti þess að þér séuð 6t-
ulir málsvarar borgarbúa, heitum
við á yður að koma fyrrgreind-
um kröfum okkar í framkvæmd.
— H.S.
RÉTTA LÍNAN
FRAMLEITT AF VERKSMIðJilNNI VÍFILFELL i IIMBOBl THE COCA COLA COMPANY
kemur frá Svíþjóð
tnginn kiilupenni annar en
BALLOGRAF er byggður
jafn vísindalega fyrir
hiindina. Hann hefir hina
réttu línu, sem gerir mönn-
um fært a$ skrifa tímum
sainan án þess að þrcytast,
Blekkúlan er gerð nr
sterkasta cfni, sein
þekkist.
Oddurinn er nr ryðfríu
stáli.
Blskhylldð, sem er stórt
og vandað, endist til að
skrifa línu sem er 10.000
metrar á lengd.
Skriftin er hrein — mjúk
og jöfn.
Penninn, sem skrifar lengur
Heildsala:
ÞÓRÐUR SVEINSSON & CO. H.F.
og betur.