Morgunblaðið - 26.03.1965, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 26.03.1965, Blaðsíða 17
Fimmtudagur 25. marz 1965 MORGUNBLADIÐ 17 Erfiðleikar íslenzkrar önglaframleiðslu Þátttakendurnir á námskeiðinu ásamt kennurum. Námskeið fyrir viðgerða- menn fiskileitartœkja SIM'RADUMBOÐIÐ heldur þessa dagana námskeið fyrir viðgerða- xnann fiskileitartækja. Þetta er í fyrsta skipti sem námskeið af þessu tagi er haldið hér á landi og hefur umboðið fengið hingað norska sérfræðinga frá Simrad- verksmiðjunum til kennslu. Nám- skeiðið er haldið 1 hinum nýju húsakynnum Simradumboðsins á horni Vesturgötu og Bræðráborg- arstígs Oig hefur þar verið komið upp venjulegum Simradfiskileit- artækjum, svo þátttakendur nám- 6keiðsins fái sem ljósasta mynd ef því hvernig fiskileitartækin starfa. Þátttakendur eru um tíu talsins og þar af nokkrir frá aðal- fiskveiðistöðum okkar utan af landi. Eru það mikil þægindi, því ef fiskileitartæki bilar hjá ein- hverju skipinu, þá getur það siglt til næstu hafnar þar sem við- gerðarmaður er staðsettur, í stað þess að þurfa að fara með tækið til Reykjavíkur, hvar sem skipi er statt við landið. Eins og flestum mun kunnugt, hafa fiskileitartækin valdið gjör- byltingu í síldaveiðum okkar ís- lendinga og má segja að síld- veiði hér við land væri næsta lítil án þeirra. Fyrsta fiskileitartækið af Sim- radgerð var sett í Ægi 1954 og var það um leið fyrsta fiski- leitartækið sem fengið var hing- að. Litlu síðar voru fengin hing- að þrjú tæki í viðbót og voru þau sett í báta, er voru að fara á síldveiðar við Norðurland. Reynslan sýndi að þessi tæki gáf- ust mjög vel og voru íslendingar því fyrstir til að hagnýta sér fiskileitartæki við véiðar og fiskileit samtímis. A næstu árum endurbætti Simradverksmiðjan fiskileitartækin stöðugt og æ fleiri síldveiðibátar urðu hér til að hagnýta sér þau. Árið 1964 kom fyrirtækið með nýtt, mjög fullkomið síldarleitar- tæki í þremur stærðum, er var miðað við báta allt niður í um 100 tonn. Af fyrstu 11 tækjunum, sem verksmiðjan gat tekið til framleiðslu, voru tíu seld mikla trú útgerðarmenn og skip- stjórar höfðu á þessum nýju síldarleitartæk j um. Nú er það staðreynd að íslend- ingar eru í dag í fremstu röð hvað snertir leikni í að hagnýta sér þessi fiskileitartæki og hefur það verið staðfest með heimsókn- um manna frá ýmsum þjóðum, er hafa komið hingað til að kynna sér hvernig við hagnýtum okkur þesSa tækni. Margar þjóðir hafa nú hafið framleiðslu á fiskileitar- tækjum en tækin frá Simrad eru þó í miklum meirihluta hér eða í 85—90% af þeim bátum er Aðalfundur Lúðrasveitar R. AÐALFUN'DUR Lúðrasveitar Reykjavíkur var nýlega haldinn í Hljómskálanum. Formaðurinn Björn Guðjónsson skýrði frá starfsemi félagsins á liðnu starfs- ári, sem var með miklum blóma og bar þar hæst hina vel rómuðu ©g glæsilegu för Lúðrasveitar- innar til Færeyja. Var síðan gengið til stjórnarkosninga og var formaðurinn Björn Guðjóns- son endurkjörinn, ritari Þorvald- wr Steingrímsson, gjaldkeri Eyj- ólfur Melsteð, varaform. Jóhann- es Eggertsson og meðstjórnandi Jónas Dagbjartsson. Úr fyrrv. stjórn gengu þeir Þórarinn Ósk- arsson, Halldór Einarsson og Magnús Sigurjónsson, en þeir báðust undan endurkosningu vegna anna. Form. þakkaði þeim fyrir ánægjulegt samstarf á liðnu ári. í Lúðrasveit Reykjavíkur voru starfandi um 40 blásarar á s.l. ári þegar sveitin var fjölmenn- ust. Er nú kominn vorhugur í félagana og hafa þeir ýmsar fyrirætlanir á prjónunum við- víkjandi hljómleikahaldi í borg- inni á komandi starfsári sem síðar mun skýrt fráu Norsku sérfræðingarnir ásamt umboðsmanninum, Friðriki A. Jónssyni, fyrir framan eitt fiskileitartækið. NOKKUR blaðaskrif hafa orð ið í sambandi við rekstur önglaverksmiðjunnar Stans hf. í Hafnarfirði. í þeim hef- ur gætt allmikils misskilnings og af því tilefni hefur Mbl. aflað sér upplýsinga um rekst ur fyrirtækisins og önglasölu hér á landi. Önglaverksmiðjur eru fáar í heiminum og framleiðsla þess- arar vöru mjög vandasöm. Fram- leiðsla öngla hefur mjög víða mistekizt. Japanir reyndu ekki alls fyrir löngu með sínum al- kunna dugnaði og lága verðlagi að koma sinni framleiðslu á Ev- rópumarkað, en tókst ekki. Auð- vitað verður fiskur ekki veiddur á ónýtan öngul og hafi fiskimað- ur fengið ótrú á einhverri gerð öngla, kaupir hann hana ekki aftur. Önglaverksmiðjan Stans hf. var stofnsett af nokkrum dug- legum ungum mönnum og öflugt sölufyrirtæki tók að sér að selja framleiðslu verksmiðjunnar. Því miður fór svo með fyrstu fram- leiðsluna, að hún misheppnaðist til skaða fyrir alla aðila. Þetta varð til þess að sölufyrirtækið hætti að selja vöruna. Hins veg- ar hefur sá misskilningur komið fram í blaðaskrifum að þarna hafi verið um vanskil af hálfu seljenda að ræða, *n forsvars- menn önglaverksmiðjunnar hafa beðið Mbl. að leiðrétta hann og láta þess sérstaklega getið, að fyrirtækið hafi ekkert upp á fyrr greint sölufirma að klaga. Sem kunnugt er er langmest notað hér á landi af norskum önglum frá fyrirtækinu Mustad & Sön og hefur svo verið um áratuga skeið. Þessir önglar hafa þótt góðir og því eru fiskimenn okkar ekki ginkeyptir fyrir að breyta til. Innflutningur öngla hefur verið sem svarar 25—30 milljónum stykkja árlega eða ná- lægt 100 tonnum. Nú síðustu árin hefur hinsvegar orðið á þessu talsverð breyting, þar sem línu útgerð hefur farið mjög minnk- 46 farast í flugslysum Bogota, Halifax, 24. marz (AP) 46 MENN hafa farizt í tveimur flugslysum frá því um helgi. Varð annað slysið í Puerto Rico og fórust þar 16 menn, en hitt í Colombíu og fórust 30 menn. Flak hinnar síðarnefndu fannst í dag og varð þegar ljóst, að eng- inn hefði komizt lífs af. Vélar- innar, sem er frá flugfélagi í Colombíu, hefur verið leitað frá því á mánudag, en slæm veður- skilyrði hafa tafið leitina. Sam- band við vélina rofnaði, er hún var á leið frá Bogota til Bucar- manga og átti um 20 mínútna flug eftir til áfangastaðar. Síðan spurðist ekkert til hennar. Flugið milli þessara tveggja borga tekur tæpar tvær klukkustundir. Ekki er vitað um orsök slyssins, en það var í fjalllendi, sem flugvélin hrapaði. Flugslysið í Puerto Rico varð í dag, er fjögurra hreyfla kanadísk eftirlitsflugvél frá flúghernum hrapaði um 100 km fyrir ijorðan höfuðborgina, San Juan. Vélin var á æfingaflugi, er slysið varð og með henni 16 menn, sem allir fórust. andi. Er áætlað að notkunarþörf- in á önglum í dag sé ekki yfir 18 milljónir og jafnvel minni. Ástæðan til þess að sölufyrir- tæki, sem hafa öngla og önnur veiðarfæri á boðstólnum, hafa þar ekki íslenzku önglana er í annan stað sú, að framleiðslan misheppnaðist til að byrja n\eð og varð þannig til að skapa ótrú á vörunni. Hinsvegar kemur til samdráttur í önglanotkun og sölufyrirtækin liggja með all- miklar birgðir af innfluttum önglum, aðallega frá Mustad. Nú hefur farið fram athugun á hinni innlendu framleiðslu á vegum Rannsóknarstofu Fiskifé- lags íslands og gerður saman- búrður á þeim önglum, sem hér eru á markaðnum. Var hér um ryðprófun að ræða. f ljós kom að Stans-önglarnir gáfu bezta raun. Þetta er samkvæmt skýrslu Rann sóknarstofu Fiskifélagsins frá 26. ágúst 1964. Rætt hefur verið um útflutn- ing á íslenzku önglunum. Sam- kvæmt upplýsingum Hagstofunn ar var útflutningur á önglum 1963 alls 300 kg., 1964 600 kg. og í janúar 1965 140 kg. Þarna er þvi ekki, enn sem komið er, um stór- útflutning að ræða. Hinsvegar hefur fyrirtækinu borizt tilboð frá söluaðilum í Þýzkalandi um að selja framleiðslu þeirra. Önglaverksmiðjan telur sig geta framleitt alla þá öngla sem við þurfum að nota hér á landL Hins vegar hefur rekstrarfjár- skortur háð fyrirtækinu mjög, svo_og þau mistök, sem urðu á framleiðslunni til að byrja með. Þessa örðugleika verður fyrir- tækið að yfirstíga og þeir sem flytja inn erlenda öngla segjast gera §ér það fyllilega ljóst að fái íslenzkir önglar viðurkenningu fiskimanna okkar, þá sé sala er- lendra öngla hér á landi búin að vera. Aaukning iðnað- arframleiðslu kommúnista * Moskvu, 24. marz (NTB) MOSKVUBLAÐIÐ Pravda skýrði frá því í dag, að framleiðsla iðnaðarins í kommúnistaríkjun- um hefði aukizt um 9% árið 1964. Mest hefði aukningin orðið í Norður-Kóreu eða 17%, þá í Júgóslavíu 16% og Kínverska Alþýðulýðveldinu 15%. Minnst var aukningin I Mongó- líu, 4%, Tékkóslóvakíu 4,1, Aust- ur-Þýzkalandi 6,7%, Kúbu 7% og Sovétríkjnunum 7,1%. Arekstur AKRANBSI, 24. marz. — Geysi- harður árekstur varð á fjórða tímanum síðdegis í dag á Jiióð- veginum litlu fyrir innan Litlu Fellsöxl. Volkswagen var að koma úr Reykjavík og ók á ofsahraða frama-n á langferðabíl ÞÞÞ, E-300, sem var á leið til Reykja- víkur. Maðurinn, sem ók fólks- bílnum, var einn í honum og meiddist m.a. á höfði og bíll hans igjöreyðilagðist. Langferðabíllinn hrökk út af veginum og stór- skemmdist. Bragi Nielsson læknir fór á vettvang og var hinum slas- aða maroi ekið hingað í sjúkra- húsið. Geimfarar farjóta siðareglur og leiðtogarnir taka því vel Moskvu, 24. marz (NTB) SOVÉZKU geimfararnir Alex- ei Leonov og Pavel Belyayev voru heiðursgestir í glæsi- legri veizlu í Kreml í gær- kvöldi. Geimfararnir drukku aðeins ávaxtasafa, samkvæmt læknisráði, því að rannsókn- um á þcim er ekki lokið. Þrátt fyrir það voru þeir svo ölvað- ir af hátíðahöldunum, að þeir gengu um gólf og heilsuðu að hermannasið meðan þjóðsöng- urinn var leikinn, en slíkt er algert brot á siðareglunum. Þetta tiltæki geimfaranna vakti aðeins kátínu leiðtoga kommúnistaflokksins, sem stóðu grafkyrrir meðan þjóð- söngurinn var leikinn. í veizlunni í Kreml voru 2 þús. gestir og þar voru geim- fararnir báðir útnefndir hetj- ur Sovétríkjanna, og það er mesti heiður, sem sovézkum borgai-a getur hlotnazt. Camilla Hallgrímssou Kaffidagur kvenskáta KAFFIDAGUR kvenskáta verður haldinn næstkomandi sunnudag í Súlnasalnum Hótel Sögu. Þar verða á boðstólum allskonar heimabakaðar kökur auk margs konar skemmtiatriða. M. a. syng- ur Ómar Ragnarsson gamanvís- ur, Camilla Hallgrímsson sýnir jassballett, kynning verður á Avon snyrtivörum, sungið verður með gítarundirleik o. fl. Allur ágóðinn rennur í Minn- ingarsjóð Guðrúnar Bergsveins- dóttur, er úr honum verður veitt til kaupa á húsgögnum í væntan- legt kvenskátaheimili. Miðasala og borðpantanir verða í anddyri Súlnasals Hótel Sögu laugardaginn 27. marz kl. 3—S e. h.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.