Morgunblaðið - 26.03.1965, Blaðsíða 27
r
Föstudagur 26. marz 19S5
MORGUNBLAÐIÐ
27
Hér sjást sovézku geimfararn
ir Pavel Belyayev (t.v.) og
Alexei Leonov aka í blómum
skrýddum bíl frá Moskvuflug
velli til Rauða torgsins sl.
þriðjudag.
Geimfararnir komnir
til Kennedyhöfða
Krefjast að
Luthuli fái frelsi
Stokkhólmi, 24. marz (NTB)
NÍUTÍU OG SEX Nóbelsverð-
launahafar hafa undirritað skjal,
sem þeir ætla að senda Hendrik
Verwoerd, forsætisráðherra S.-
Afriku. í skjalinu cr þess krafizt,
að létt verði ferðabanni af Albert
Luthuli, en honum leyfist ekki
að fara út fyrir heimaþorp sitt
Groutville.
Sem kunnugt er hlaut Lut-
huli friðarverðlaun Nóbels 1961.
— Montgomery
Kennedyhöfða, 25. marz — NTB
42 MANNA herhljómsveit lék
lagið „The Unsinkable Molly
Brown“ er geimfararnir Virgil
Grissom og John Young komu
aftur til Kennedyhafða í dag að
lokinni vel heppnaðri geimferð í
Gemini-hylki sínu. Nafn geím-
farsins, sem flutti geimfarana 3
hringi umhverfis jörðu, var
„Molly Brown“.
Geimfararnir tveir dvöldu um
borð í flugþiljuskipinu „Intre-
pid“ frá því að geimfarið var
flutt af lendingarstað á Atiants-
hafi og þar til í morgun, að þeir
voru fluttir í tveimur flugvélum
til Kennedyhöfða. — Foreldrar
geimfaranna biðu þeirra þar í
sjálfri eldflaugastöðinni, en kon-
ur þeirra og börn hinsvegar í
læknisfræðideild stöðvarinnar.
Grissom var að vanda ekki sér
lega orðmargur, og sagði við
blaðamenn að hann væri upp-
gefinn af málæði.
Geimförunum var ekið rak-
leitt til læknisfræðistofnunarinn-
ar á Kennedyhöfða en þar beið
þeirra þriggja klukkustunda
rannsókn á líðan þeirra og
heilsufari. Seint í gærkvöldi
hafði verið boðað til blaðamanna
fundar.
Á morgun, föstudag, halda
geimfararnir til Washington, en
þar mun Johnson forseti persónu
lega óska þeim til hamingju með
árangurinn.
Framhald af bls. 1
leið upp til fána Suðurríkjanna í
borgarastyrjöldinni, sem blakti
efst á þinghúsinu. „Þennan fána
átti að draga niður fyrir 100 ár-
um. Mér líður næstum sem föð-
urlandssvikara er ég stend í
skugga hans“, bætti hann við.
Wallace, ríkisstjóri, sem styð-
ur aðskilnað hvítra og svartra,
hafði fyrr í dag gefið öllum kon-
um, sem vinna í skrifstofum rík-
isstjórnarinnar, frí frá störfum.
Mun þetta hafa verið gert til
þess að undirstrika hverja um-
hyggju aðskilnaðarmenn bæru
fyrir hvítum konum.
Wallace, ríkisstjóri, dvaldi í
skrifstofu sinni í þinghúsinu er
göngúmenn nálguðust það, en úr
glugga sínum hefur hann gott
útsýni yfir hinar breiðu marm-
aratröppur fyrir framan bygg-
inguna. Það var á þessum sömu
tröppum að Jefferson Davis sór
embættiseið sinn sem forseti
Suðurríkjanna, The Confederate
States of America, í borgara-
styrjöldinni fyrir rúmum 100 ár-
um. Stór bronzstjarna stendur nú
þar sem Davis sór eiðinn, en
smíðað hafði verið yfir hana í
dag. Göngumenn héldu fund
sinn á tröppunum, og sagði tals-
maður ríkisstjórans að smíðað
hefði verið yfir stjörnuna til að
verja hana skemmdum, en einn
meðlima ríkislögreglu Alabama
hefur sagt að bólverkið umhverf-
is stjörnuna hafi þar verið sett
til að hindra að Martin Luther
King gæti drepið niður fæti á
þann blett, sem heilagur væri
Suðurríkjamönnum.
Aðskilnaðarmenn hafa haft
göngumenn að háði og spotti á
leiðinni, en ekki hefur komið til
alvarlegra átaka. Þrátt fyrir
régnskúrir virtust göngumenn í
bezta skapi þennan síðasta dag
hennar, sem dr. King hefur skírt
„Dag sigursins". „Dagur sigurs-
ins“ markar hápunktinn í níu
vikna látlaustri baráttu fyrir því
að negrar í Alabama fái fullan
kosningarrétt.
Færeyingurínn skorinn upp
nótiina, sem honn hvnrf
FÆREYSKI sjómaðurinn sem
lýst var eftir hér í Mbl. í gær,
kom fram árdegis í gær, hér í
borginni, — heill á húfi að
mestu, en hann var kominn í
sjúkrahús.
Færeyingurinn, sem heitir
Samuel Rasmussen og var skip-
verji á færeysku skipi er leitaði
hér hafnar, hafði farið frá fær-
eyska sjómannaheimilinu við
Skúlagötu aðfaranótt þriðjudags
um klukkan 1. Eftir það hafði
svo ekkert til hans spurzt. Skips-
félagar hans töldu manninn týnd
an og gerðu lögreglunni viðvart.
Þegar Rasmussen fór frá sjó-
mannaheimilinu var hann í leigu
bíl. Eftir nokkra stund varð
hann skyndilega veikur, þar
sem hann sat í leigubílnum
og svo kvalinn, að leigubílstjór-
inn ók í skyndi á læknavarðstof-
una. Næturlæknirinn áttaði sig
skjótlega á krankleika mannsins
en um var að ræða botnlanga-
veikikast. Var Færeyingurinn
Rasmussen sendur beint upp á
Landakotsspítala. Skurðlæknir
var ræstur í skyndi og um nótt-
ina var Færeyingurinn skorinn
upp við botnlangabólgunni og
gekk sá uppskurður mjög vel.
Er hann nú á góðum batavegi.
Leigubílstjórinn hafði á þriðju-
dag farið niður að höfn til þess
að tilkynna skipstjóranum á fær-
eyska skipinu sem Rasmussen
var á, hvar hann væri niður kom
inn, en hafði ekki fundið skipið.
CHOU EN-LAI
TIL ALBANÍU
Leyinlaúndur hans og H^ikojans
i Búkarest?
Vínarborg, 25 marz — NTB:
CHOU EN-LAI, forsætisráðherra
Kina, iruin einhvern næstu daga
koma í heimsókn til Tirana, höf
uðborgar Alhaníu, að því er út-
varpið þar í borg sagði í dag. Út-
varpið skýrði og frá því, að Chou
En-Lai hefði þegið boð Albaniu
stjórnar um að koma í þessa
heimsókn.
Kínverski forsætisráðherrann
var í dag staddur 1 Búkarest.
þar sem hann var viðstaddur út
för Gheorghiu-Dei,. forseta Rum
eníu. Anastas Mikojan, forseti
Sovétríkjanna, var einnig í Búka
rest í dag, en hann fór fyrir sendi
nefnd Sovétríkjanna við útförina.
Óstaðfestar fregnir herma að þeir
Chou En-Lai og Mikojan hafi
átt með sér leynilegan fund síð-
degis í gær.
Rúmenía hefur reynt að vera
hlutlaus í deilu Kínverja og
Rússa, og að því er segir í yfir
lýsingu kommúnistaflokks lands-
ins í dag mun landið halda áfram
þeirri stefnu.
Izvestifa ræðir tengzl
Al Capone og MATO
EFTIRFARANDI grein um
Keflavíkursjónvarpið birti Is
veztia 15. marz sl. Fyrirsögn
greinarinnar er, „A1 Capone
gerir áhlaup“, og virðist hún
m.a. styðjast við grein Olofs
Lagercrantz í Dagens Nyhet-
er nú fyrir skemmstu. Grein-
in er gott dæmi um, hvernig
þetta aðalmálgagn rússneska
kommúnistaflokksins um-
gengst -heimildir sínar. Grein-
in er skrifuð undir nafninu I
M. Subko.
Greinin er svohljóðandi í
lauslegri þýðingu:
A1 Capone og Atlantshafsbanda
lagið — manni verður spurn,
hvað þetta tvennt eigi sameigin
legt? Jú, — milli A1 Capone og
NATO eru nokkur tegssl, sem
hafa víðtæk eftirköst fyrir smá
þjóð í norðlægu landi.
Island hefur ekki eigin her.
Það greinir aðild að NATO því
verði að láta í té landssvæði fyr
ir flugvöll í Keflavík. Þaðan hef
ur A1 Capone hafið „árás“ sína á
þjóð iseyjunnar. Reyndar ekki
sjálfur — svo gætt sé meiri ná-
kvæmni — því að þessi gamli
bandaríski glæpamaður hefur
þegar legið lengi í gröf sinni í
Chicago, — heldur bandaríska
sjónvarpið, sem með aðferðum
glæpamanna hefur hrundið upp
dyrum íslenzkra heimila og kem
ur þar á framfæri í stórum stíl
dýrkun á ofbeldisaðferðum A1
Capone og annarra hans líka
Hinni auðugu, frumlegu þjóðar
menningu og andlegu lifi is-
lenzku þjóðarinnar er með þessu
hætta búin.
Upphaf þessa var, að banda-
riskir hermenn, sem gegndu her-
þjónustu í liði Bandaríkjamanna
í herstöðinni í Keflavík, urðu
leiðir á Íieim ströngu lífsskilyrð
um, sem þeim voru búin á ís-
eyjunni, víðs fjarri hinni „banda
risku siðmenningu". Árið 1955
reistu bandarískir herforingjar
sjónvarpsstöð, með leyfi íslenzku
rikisstjórnarinnar, og náði hún
aðeins til svæðis herstöðvarinnar.
En Bandaríkjamenn hafa víst
ekki gert sig ánægða með svo tak
markaðan athafnahring og á-
kváðu því að byggja í Keflavík
aðra aflmeiri sjónvarpsstöð. ís-
lenzku stjórnarvöldin samþykktu
þá ráðagerð, en eins og sænska
blaðið „Dagens Nyheter“ segir:
„án þess að hafa hugsað um allar
þær afleiðingar, er hún gæti
haft“.
íslendingar sjálfir eiga ekki
sjónvarp — og fólkið tók með
áhuga fregninni um, að því
mundi gefast kostur á að sjá sjóu
varpsefni hinnar nýju sjónvarps-
stöðvar bandarísku herstöðvar-
innar. Það flýtti sér að verða
sér úti um sjónvarpstæki.
í höfuðborg landsins, Reykja-
vík, búa 30 þús. manns, um það
bil helmingur þjóðarinnar, og
þar voru keypt 10 þúsundsjón-
varpstæki. Samkvæmt ummæl-
um blaðamanna þýoir það, að 40
þúsund manns í höfuðborginni
safnizt saman fyrir framan btóa
skerminn dag hvern.
En þættirnir, sem íslendingarn
ir hafa séð, koma þeim ókunnug-
lega fyrir sjónir. Á tjaldinu birt
ast glæpamenn, leynilögreglu-
menn, hálf naktar stúlkur, og
úr tækjunum glymja skothvellir,
öskur fórnarlamba og gótumál
bandarískra afbrotamanna, milli
þess, sem skýrt er frá „hættunni
sem stafar af kommúnismanum".
Þessi árás bandarískrar „menn
ingar“ hefur vakið réttlát mót-
mæli margra íslendinga. Það get
ur hugsazt að Bandaríkjamenn
reyni að auka andlegt siðgæði
hermanna með glæpakvikmynd-
um, en þessir íslendingar spyrja
hvaða erindi þetta eigi við ís-
lenzku þjóðina. Daprir í huga
horfa íslendingar á hinn dásam
lega heim fslendingasagnanna
hopa fyrir ,,blóðugum“ glæpum.
A1 Capones, „göfugum“ banda-
rískum lögreglustjórum og lág-
kúrulegum skemmtisýningum. Og
hafa margir íslendingar krafizt
þess af ríkisstjórninni, að hún
banni sendingar sjónvarpsstöðvar
innar.
En á íslandi eru einnig menn,
sem verja bandaríska sjónvarp-
ið, og jafnvel hefur komið fram
kenning um, að það verki eins og
„bólusetning". Höfundar þessar
ar kenningar fullyrða, að banda-
ríska sjónvarpið, eins og það er
í dag, „styrki“ íslendinga.
Þetta áróðurstæki Bandaríkj-
anna heldur uppi fyrir opnum
tjöldum hugmyndafræðilegri
áróðursherferð á hendur íslenzku
þjóðinni, sem miðar að því að
vekja með henni hugmyndir of-
beldis og andkommúnisma.
Dr Kristinn viS
útför Rúmeníu-
forseta
ÁKVEÐIÐ hefur verið að dr.
Kristinn Guðmundsson, sendi-
herra íslands í Rúmeníu, verður
viðstaddur útför Rúmeníuforseta,
sem fulltrúi forseta íslands og
ríkisstjórnarinnar.
Stjórn Fulttrúaráðs
verkal.fél. sjálfkjörin
AÐALFUNDUR Fulltrúaráðs
verkalýðsfélaganna í Reykjavík
var haldinn mánudaginn 22. þ.m.
Formaður Fulltrúaráðsins, Ósk
ar Hallgrímsson flutti skýrslu
um starfsemina sl. 2'ár. Þá gerði
framkvæmdastjóri ráðsins, Þorst-
einn Pétursson grein fyrir starf-
semi skrifstofu Fulltrúaráðsins
og lagði fram endurskoðaða
reikninga þess. Stjórn Fulltrúa-
ráðsins lagði fram tillögu um að
skattur verkalýðsfélaganná til
Fulltrúaráðsins yrði hækkaður
úr kr. 10,00 í kr. 20,00 á ári af
karlmönnum og úr kr. 6,00 í kr.
15,00 af konum. Hækkun skatts-
ins var síðan samþykkt og reikn-
ingar Fulltrúaráðsins staðfestir.
Stjórn Fulltrúaráðsins varð
sjálfkjörin, en hana skipa nú:
Óskar Hallgrimsson, Guðmundur
B. Hersir, Guðjón Sv. Sigurðs-
son, Sigfús Bjarnáson og Helgi'
Guðbrandsson. 1 varastjórn voru
kjörnir: Kjartan Ólafsson, Pét-
ur Guðfinnsson og Bergsteinn
Guðjónsson. Þá var Hilmar Jóns-
son kosinn í stjórn Styrktarsjóðs
verkamanna- og sjómannafélag-
anna í Reykjavík og endurskoð-
andi sjóðsins Pétur Stefánsson.
Endurskoðendur Fulltrúaráðsins
voru kosnir: Einar Jónsson og
Guðmundur J. Guðmundsson og
til vara Einar Ingimundarson.
Samþykkt var að hafa sömu
tilhögun um undirbúning 1. maí
hátíðahaldanna og sl. ár og voru
eftirtaldir menn kjörnir í 1. maí-
nefnd Eðvarð Sigurðsson, Jóna
Guðjónsdóttir, Guðjón Jónsson,'
Guðjón Sv. Sigurðsson, Jón
Snorri Þorkelsson og Óskar Hall-
grímsson.
Fundurinn var mjög fjölsóttur.
(Fulltrúaráð verkalýðsfélagamia
í Reykjavík).