Morgunblaðið - 07.04.1965, Qupperneq 1
32 síðtir
WgmttiíiMaíniííi
52. árgangur.
82. tbl. — MiSvikudagur 7. apríl 1965
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Róttækar efnahagsaigeri-
ir brezku stjórnarinnar
Niýir skattar og hækkanir á eldri
sköttum eiga að gefa 30 þúsund
illjón króna tekjuaukningu
mi i
London, 6. apríl (AP-NTB)
JAMES Callaghan, fjármála-
ráðherra, skýrði Neðri mál-
stofu brezka þingsins í dag
frá nýjum, róttækum ráð-
stöfunum ríkisstjórnarinnar
til að hindra frekari gjald-
eyrisflótta úr landinu. Kem-
ur þetta fram í fjárhagsáætl-
un stjórnarinnar, fyrstu fjár-
bagsáætlun Verkamanna-
flokksins í 14 ár, sem m.a.
boðar nýja skatta að upphæð
Oscar-verð- j
latinum út-
hlutað
Santa Monica, Kaliforníu, (
6. apríl (AP — NTB):
OSCAR-verðlaunin, fyrir I
foeztan kvikmyndaleik á síð-
asta ári, voru í dag veitt Rex -
Harrison, fyrir leik hans í „My
Fair Lady“ og Julie Andrews!
fyrir leik hennar í „Mary I
Poppins“. Það var Audrey i
Hepburn, sem aihenti verð-
launin.
Jtalska kvikmyndin „í gær, |
dag og á morgun" hlaut verð |
laun sem bezta erlenda kvik- ,
myndin, en þar leáka þau'
Sophia Loren og Marcello j
Mastroianni aðalhlutverkin. I
Verðlaun fyrir beztu aukahlut i
verk hlutu Peter IJstinov (fyr '
ir mvndina „Topkapi") og I
I.ila Kedrova (fyrir „Grikk-
inn Zorba“).
164 milljónir punda (um 19.-
700 millj. kr.) á þessu ári. —
Leggur stjórnin nýja skatta
á eignaaukningu og arð hluta
félaga, og einnig á risnu fé-
laganna, sem hingað til hef-
ur verið frádráttarhæf.
Eins og venjulega hækka einnig
totlar af tóbaki og áfengi. Toll-
ur af sígarettum hækkar um sex
pence (Þrjár krónur) á 20 stk.
pakka, og tollur af Whisky og
Gin um fjóra sihillinga (24 kr.)
á flösku. Þá hækkar árlegur bif-
reiðaskattur um 214 pund (kr.
300).
Skattar þeásir og tolilar koma
til framkvæmda nú þegar. A
sama tíma hækkar einnig almenn
ur tekjuskattur úr 7 shillingum
9 pence af hverju pundi í 8
shillinga 3 pence eða úr 38,75%
í 41.25%.
f framsöguræðu sinni sagði
Callagihan, fjármálaráðherra, a'ð
alls væri fyrirhugað að afla 250
milljón £ í nýjum sköttum og
álögum á ári, og lækka útflutn-
ing á brezku fjármagni um 100
milljónir punda. Benti hann á að
greiðslujöfnuður ársins 1964 hafi
verið óhagstæður um 745 milljón
ir punda (tæplega 90 þúsund
millj. kr.).
Callaghan sagði að skattar af
eignaaukningu yrðu þeir sömu
og af tekjum; en ágóðaskattur
hlutafélaga hafi enn ekki verið
ákveðinn. Þó yrði hann vart
hærri en 40%. Varðandi risnu
félaga sagði ráöherrann að hún
yrði svo til öll skattskyld, þó
væri kostnaður við móttöku er-
lendra kaupanda frádráttarbær.
Framh. á bls. 21.
Hnýsur aS leik — Hnýsurnar eru skemmtilegir fiskar þegar þær bregða á leik og stökkva upp úr sjón-
um. Helgi Hallvarðsson, skipstjóri á Maríu Júlíu greip myndavélina sina og festi þessar myndir á
filmuna, þegar hann sá hnýsur við skjpshlið úti á rúmsjó.
Enn stöövaðir flutningar til
Vestur-Berlínar í gær
Vestur-þýzka þingið kemur saman þar í dag
Danir skipta um sendi-
herra í Reykjavík
Bjan» Paulsson, wnðiherra.
Kaupmannahöfn, 6. apríl:
Kaupmannahafnarblaðið Berl-
ingske Tidende segir í dag að
orðrómur sé á kreiki um að
utanríkisráðuney tið hafi i
hygg:ju að flytja til þrjá af
sendiherrum Dana, þeirra á
meðal Bjarne Paulsson, sendi-
herra í Reykjavik.
Segir biaðið að Bjarne Pauls
son, sem verið hefur sendi-
herra í Reykjavík síðan 1960,
verði sendur til Buenos Aires
sem sendiherra í Argentínu,
Chile, Uruguay og Paraguay.
í stað hans kemur til Reykja-
víkur Birger Kronmann. nú-
verandi sendiherra í Tyrfc-
landi, en til Ankara fer Toy-
herg Frandzen, núverandi
sendiherra í Argentínu.
Birger Kronmann gekk í ut
anrikisþjónustuna 1935, og
hafði gegnt embættum i
Briissel, Moskvu, Hamborg,
Montreal, Paris og London, er
bann var skipaður sendiherra
i Ankara 1960. Hann er 53 ára.
— Rytgaard.
Berlín, 6. apríl (AP-NTB)
Ó Aftur í dag gripu austur-
þýzk yfirvöld til þess úrræðis
að loka braðbrautunum frá
Vestur-Þýzkalandi til Vestur-
Berlínar og stöðva alla um-
ferð til borgarinnar í fjórar
og hálfa klukkustund.
Ó Talið er að yfirvöldin Ioki
veginum til að mótmæla því
að vestur-þýzka þingið á að
koma saman í Berlín á morg-
un, miðvikudag, í fyrsta sinn
á sjö dögum. Þingmennirnir
komu flestir flugleiðis til V-
Berlínar í dag, þeirra á meðal
Ludwig Erhard, kanzlari.
Ó Fulltrúar Bandaríkjanna,
Bretlands og Frakklands í
Berlín hafa sent Sovétríkjun-
um harðorð mótmæli vegna
umferðarstöðvunarinnar, og
einnig vegna þess að rússnesk
sprengjuþota flaug fyrirvara-
laust yfir Tempelhof-flugvöll-
inn í Vestur-Berlín, og skap-
aði með því mikla hættu, því
allt farþegaflug til »g írá
BerJín fer um þennan flug-
völl. Flaug rússneska þotan í
aðeins 500 feta hæð.
♦ Talsmaður bandaríska ut-
anrikisráðuneytisins sagði í
M7ashington í dag að Banda-
ríkin og bandalagsríki þeirra
neyddust til að grípa til nauð
synlegra gagnráðstafana ef
umferðartruflunum þessum
verður haldið áfram.
Litlar truflanir hafa verið á
umferð til Vestur-Berlínar að
undanförnu, þar til í gær, að
vegunum var lokað í fjórar
klukkustundir frá klukkan níu
um morguninn. Þessari lokun var
strax mótmælt, en austur-þýzk
yfirvöld sögðu ástæðuna fyrir
lokuninni vera sameiginlegar
heræfingar Austur-Þjóðverja og
Rússa, sem standa eigi yfir í
viku. I fyrstu var tilkynnt að um
ferð yrði stöðvuð í sjö klukku-
stundir, en opnað var fyrir um-
ferðina eftir fjögurra klukku-
stunda bið.
Snemma í morgun var vegum
enn lokað, og var þeim haldið
lokuðum fram yfir hádegi. Vegna
lokunarinnar í gær hafði löng
bílalest safnazt saman á leið til
Framhald á bls. 21
Krúsjeff ræðir við
norræna fréttamenn
Friðsamleg sambúð nauðsynleg
NIKITA Krúsjeff, fyrrum
forsætisráðherra, rauf í gær
sex mánaða þögn sína. Var
bann þá staddur á listasýn-
ingu í Moskvu og ræddi
stundarkorn við fréttaritara
Kaupmannahafnarblaðsins
Folitiken, Stokkhólmshlaðs*
ins Dagens Nyheter og brezka
blaðsins Daily Express.
Viðræðurnar fóru fram er
Krúsjeff ásamt eiginkonu sinni,
Nínu Petiovnu, lífverði og leið-
sögumanni var að fara frá sýn-
Framihald é bls. 21